Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989.
DV
3
Fréttir
w Tillögur fiskifræðinga um hámarksafla á næsta ári:
Utflutningur dregst
saman um 5 milljarða
Hafrannsóknastofnun gerir tillögu
um aö hámarksafli af þorski verði
250 þúsund tonn á næsta ári. Þaö er
um 50 þúsund tonnum minna en til-
laga stofnynarinnar hljóðaði upp á í
fyrra eða um 17 prósent samdráttur.
Auk þess að gera tillögur um mik-
inn samdrátt í þorskveiðum telur
stofnunin að draga þurfi úr grálúðu-
veiðum á næstu tveimur árum um
sem nemur 30 þúsund tonnum eða
helmingi þess grálúðuafla sem gert
er ráð fyrir að veiðist í ár.
Þrír slæmir árgangar
f fyrra lagði Hafrannsóknastofnun
til að hámarksafli þorsks yrði 300
þúsund tonn eins og tvö ár þar á
undan. Að sögn Jakobs Jakobssonar,
forstjóra stofnunarinnar, eru eink-
um tvær ástæður fyrir því að tillögur
fiskifræðinga eru lægri í ár. í fyrsta
lagi hefur afli í ár farið fram úr tillög-
um þeirra og í öðru lagi hefur komið
í ljós að árgangur 1988 af þorskinum
er mjög lakur eins og allir árgangar
frá 1985 hafa verið.
1980 = 100
120
80 81 82 83 84 85 86 87 88 89
Aflaverðmæti frá 1980 til 1990
miðað við tillögur Hafrannsóknarstofnunar um afla árið
90
1990
Þorskafli á Islandsmiðum
1980 til 1990
þus. tonn
500 -i
300
200
Grálúðuafli á íslandsmiðum
1980 til 1990
þus. tonn
100
80
60
40
20
0
Þá vill Hafrannsóknastofnun draga
úr karfaveiðum og lítillega úr veið-
um á rækju. Hún telur hins vegar
óhætt að auka veiðar á humri og
ufsa. Gert er ráð fyrir óbreyttri veiði
á öðrum fisktegundum.
6,5 prósent samdráttur
í útflutningstekjum
Þar sem þorskurinn vegur þungt í
aflaverðmæti alls sjávarafla má
reikna með að sá samdráttur í veið-
um sem Hafrannsóknastofnun legg-
ur til leiði til um 5 milljarða minna
aflaverðmætis á næsta ári. Sá sam-
dráttur jafngildir um 9 prósentum.
Slíkur samdráttur hefði að sjálf-
sögðu mjög víðtæk áhrif á ýmsa þætti
efnahagslífsins. Ef af honum verður
myndu útflutningstekjur þjóðarinn-
ar dragast saman um 6,5 prósent. í
ár gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir
að útflutningur verði ívið meiri en í
fyrra en þá dróst hann saman um 3
prósent. Sá aflasamdráttur, sem Haf-
rannsóknastofnun leggur til, getur
því leitt til mun alvarlegri samdrátt-
ar en gengið hefur yfir á undanföm-
um misserum.
{ þessu dæmi er gert ráð fyrir að
þorskkvótinn verði minnkaður úr
300 í 250 þúsund lestir en eins og í
ár færi aflinn um 40 þúsund tonn
fram yfir kvótann.
Skip Hafrannsóknastofnunar eru
nú lögð af stað í leiðangra til að
kanna hvemig árgangurinn 1989
kemur út. Ef það kemur í ljós að
hann er einnig mjög lakur getur ver-
ið að Hafrannsóknastofnun endur-
skoði tillögur sínar og leggi til enn
frekari samdrátt.
Eins og áður sagöi leggur stofnunin
til að hámarksafli á grálúðu verði
lækkaður um 30 þúsund tonn úr 60
þúsund tonnum. Það er einfaldlega
mat stofnunarinnar að grálúðustofn-
inn standi ekki undir frekari veiði.
Þar sem grálúðan vex hægt gæti það
haft slæmar afleiðingar ef veiðin
færi upp fyrir þessi mörk.
í tillögum fiskifræðinga er gert ráð
fyrir 250 þúsund tonna þorskafla
næstu þrjú ár. Þegar Jakob Jakobs-
son kynnti þessar niðurstöður í gær
kom fram í máh hans að vonir stæðu
til að hluti af þeim seiðum sem rak
í miklum mæli frá íslandsihiðum til
Grænlands á árinu 1984 mundi snúa
aftur. Það verður þó ekki fyrr en 1
fyrsta lagi 1991 eða 1992.
Ef þessi þorskganga frá Grænlandi
verður jafnsterk og sams konar
ganga var á árunum 1980 og 1981
gera fiskifræðingar ráð fyrir að auka
megi þorskveiði á árunum 1991 til
1992 um allt að 100 þúsund tonn.
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
Það er hins vegar enn óljóst hvort
þessi þorskur muni snúa aftur heim.
I fyrsta lagi hafa Grænlendingar
aukið þorskveiðar sínar og árgang-
urinn frá 1984, sem rak frá íslandi,
er svo til eini þorskurinn á Græn-
landsmiðum. í öðru lagi gæti það
gerst að stór hluti af þessum þorski
ílengdist á Grænlandsmiöum og
mundi hrygna þar ef skilyrði í sjón-
um þar verða góð.
Svart útlit framundan
Þjóðhagsstofmm birti spá mn horf-
ur í efnahagsmálum íslendinga fram
til ársins 1993 í maí síðastliðnum. Þar
var gert ráð fyrir að framleiðsla sjáv-
arafurða myndi dragast saman um 2
prósent á næsta ári en aukast síðan
að nýju á árunum 1991 og 1992. Miðað
við tiÚögur fiskifræðinga nú má hins
vegar reikna með um 9 prósent sam-
drætti á næsta ári. Þá er gert ráð
fyrir að raunveruleikinn verði álíka
fjarri tillögum fiskifræðinga og hann
er í ár.
í framtíðarspá Þjóðhagsstofnunar
kom fram að hagvöxtur yrði hér ekki
nema um 1,6 prósent á næstu árum.
Þegar tillit hefur veriö tekið til nýrra
tillagna fiskifræðinga er Ijóst að
hann getur orðið enn minni. Til sam-
anburðar er gert ráö fyrir að í iðn-
rílgunum verði hagvöxtur á næstu
árum um 3 prósent á ári.
-gse
Nllf
Justy
- Réttur bíU á
réttum stað
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2