Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Qupperneq 20
Sviðsljós Ólyginn sagði... Bill Cosby mun vera farinn aö hafa áhyggjur af nánustu framtíð. Börn fyrir- myndarfóöurins vaxa óðfluga úr grasi og þá er hætt viö aö at- vinnuleysi blasi viö hinum atork- usama foöur. Er Bill með nýjar áætlanir á prjónunum varðandi Huxtable-hjónin. Nú hefur hann hugsað sér að þau hjón taki sig til við að ættleiöa smábörn til að færa líf inn á heimilið á ný. Þess verður því líklega ekki langt að bíða að auðleysanleg ungbarna- vandamál taki við af auðleysan- legum unglingavandamálum í þáttunum um fyrirmyndarfööur- inn og fjölskyldu hans. Goldie Hawn leikkonan létta og káta, er ailtaf að gera eitthvað spaugilegt á veit- ingahúsum þessa dagana. Nýlega varð hún yfir sig hneyksluð á veitingahúsi í New York er hún fann langt ljóst hár í matnum sín- um. Hún rauk með tilheyrandi bægslagangi fram í eldhús og byrjaði að skammast í starfsfólk- inu þar. En það bráði þó fljótt af henn er uppgötvaðist að það var enginn með sítt ljóst hár í eld- húsinu, né öllu veitingahúsinu, nema hún sjálf. Dan Quayle er stundum dálítiö þreyttur á starfsaðstöðunni í Hvita húsinu. Koma aðallega upp vandamál þegar bamaböm forsetahjón- anna em í heimsókn hjá afa og ömmu. Mun Dan Quayle nýlega hafa látið í ljós óánægju og sagt „ég er ekki fyrr kominn inn á skrifstofuna mína, en það er bankað og ritarinn minn er spurður: „Má Dan koma út að leika?“ Yoko Ono: Flúin til Sviss með soninn Yoko Ono hefur nú yfirgefið stór- borgina New York og sest að í kyrrð svissnesku Alpanna með son sinn, Sean, sem nú er 13 ára. „Ég var ein- faldlega búin að fá nóg af morð- hótunum geðsjúklinga," sagði hún í blaðaviðtali nýlega. „Sonur minn er mér allt og ég vil að hann geti alist upp við sem best skilyrði. Hér í Sviss erum viö ekki ónáðuð á götum úti og við getum loksins lifað eðlilegu lifi hér í Genf.“ Nú eru tæp níu ár liðin síðan John Lennon var myrtur af geðsjúkum manni í New York. Þau mæðgin Yoko og Sean, sem var bara fjögurra ára þegar hinn örlagaríki atburður gerðist, hafa ekki átt sjö dagana sæla síðan. Þau hafa þurft að verjast stöð- ugum ásóknum stórbilaðs fólks og kjaftasagna síðan og voru farin að lifa í hálfgerðri einangrun í stórhýsi í New York síðustu árin. Nú hefur Sean verið skráður í einn virtasta einkaskóla í Sviss. Þau mæðgin eru mjög samrýnd og taka oft léttar sveiflur saman á píanó eða tefla. Yoko segist vera komin yfir mestu sorgina vegna manns síns og nú lætur hún sig dreyma um að opna John Lennon safn í New York. Sean Lennon og Yoko Ono, samrýnd mæðgin. Ekki er laust við að sonur- inn beri svip föður síns. M-M-Marilyn og W-W-Winston Hvað átti Marilyn Monroe sameig- inlegt með Winston Churchill, Char- les Darwin og Aristotelesi? Þau stöm- uðu öll. Það hafa verið uppi margar getgát- ur um hvers vegna fólk stamar. Fyrr- um var talið að þetta gæti stafað af svefnleysi eða hamingjusnauðu kyn- lífi. Nokkuð lengi var talið að hægt væri að lækna stam með aðgerð og jafnvel raflosti. Nú til dags er yfirleitt talið að stam eigi sér andlegar orsakir og eru til yfir tvö hundruð tegundir meðferða til að lækna þetta talmein. Best er að sá sem stamar fari í meðferð sem barn en fullorðnir hafa einnig fengið bót meina sinna. En það tekur mun lengri tíma. Þessar fjórar þekktu persónur mannkynssögunar áttu eitt mikilvægt atriði sameiginlegt þrátt fyrir ólíkt lífshlaup og að þau væru uppi á mismunandi tímum. Kim Laudrup og Betina Sörensen vöktu mikla athygli á götum Kaup- mannahafnar. Dó ekki ráðalaus Hann dó ekki ráðalaus, brúð- guminn ungi í Kaupmannahöfn, þeg- ar svo illa vildi til að leigubíllinn lét ekki sjá sig. Bíllinn hafði verið pant- aður tíl að aka honum og tilvonandi eiginkonu hans til kirkjunnar á brúðkaupsdaginn. Hinn 24 ára gamli Kim Laudrup sá að tíminn var að verða naumur. Hann hljóp því til og náði í gömlu Honduna sína. Pariö vippaði sér á bak. Brúðurin Betina Sörensen lyftí brúðarkjólnum og síðan brunaöi hið glæsilega par eftír götum Kaup- mannahafnar og vaktí að vonum mikla athygli. í prjónaskap hjð öiruiiii Einn af þeim fjölmörgu ferða- unni á Snæfellsnesi á dögunum og mönnum, sem heimsóttu ísland lærði undirstöðuatriðin í prjóna- erlendis frá í sumar, var þessi skap hjá öramu sinni og alnöfnu í hnáta á myndinni. Hún heitir Elín Elínarlundi á Snæfellsnesi. Ekki Guðrún Gísladóttír og er frá Árós- þótti Elínu yngri síður gott að um í Danmörku. spjalla við ömmu sína og riíja upp Hún notaöi tækifærið í rigning- ástkæra ylhýra málið..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.