Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989. LífsstHl Frá íslandsmeistaramótinu í tennis sem lauk.um síðustu helgi. Hér fer fram keppni í tví- liðaleik kvenna. DV-mynd Hanna », »i • •«! Tilþrifin eru glæsileg. Keppendur í tviliðaleik karla á íslandsmeistaramótinu í tennis sem haldið var á Vikingsvöllunum í Fossvogsdal. DV-mynd Hanna Tennis er ein þeirra íþróttagreina sem á síðustu árum hafa átt vax- andi fylgi að fagna hér á landi. Þeg- ar íþróttin er nefnd á nafn dettur mörgum fyrst í hug Björn Borg, skapheitur McEnroe, Díana prins- essa, hvít stutt pils og ungar stúlk- ur ástfangnar af tenniskennaran- um. Hvað sem því liður eru vin- sældir tennisíþróttarinnar gífur- legar um heim allan og er íþróttin iðkuð af ungum sem öldnum, kon- um sem körlum, í gamni sem al- vöru. Tennis vinsæl fjölskylduíþrótt - vaxandi áhugi á tennis hér á landi „Það er alltaf hægt að drífa sig á völlinn, svo lengi sem það er ekki hávaðarok,“ segir Guðný Eiríksdóttir, formaður Tennissambands ís- lands. DV-mynd JAK Hérlendis leika um 300 manns reglulega tennis og líklega um helmingi fleiri sem „taka í spað- ann“ af og til. Fyrir tveimur árum var Tennissamband íslands stofn- að. Formaður sambandsins er Guðný Eiríksdóttir. „Áhuginn á tennis hefur aukist mjög mikið hérlendis á undaníörn- um árum,“ sagði Guðný í spjalli við DV. „Það styrkir vitaskuld stööu íþróttagreinarinnar að Tenn- issambandið var stofnað en áður var starfandi tennisnefnd á vegum íþróttasambands íslands. En þegar tennisfélögin voru orðin nógu mörg var Tennissambandið sett á laggirnar. Á vegum Tennissambandsins eru haldin mót og hefur sambandið staöið fyrir kennslu og kynningu á íþróttinni. í sumar var fenginn hingað til kennslu Einar Sigur- geirsson sem æft hefur tennis í Ástralíu og Bandaríkjunum. Hann hefur verið með námskeið í allt sumar fyrir byrjendur og lengra komna. Hefur aösóknin á nám- skeiöin sýnt að áhuginn er mikill á íþróttinni og eykst stööugt. Aðstaðan fer batnandi Aðstaða til. tennisiðkunar er þokkaleg. í Reykjavík eru níu tenn- isvellir, fjórir á Víkingssvæðinu í Fossvogi, íjórir við gervigrasvöll- inn í Laugardal og einn hjá Tennis- og Badmintonfélagi Reykjavíkur i Laugardal. í Kópavogi eru þrír vell- ir, einn við Vallargerði og tveir við Kópavogsskóla. í Hafnarfirði er tennisvöllur við Öldutúnsskóla, í Hveragerði eru tveir vellir við Hót- el Örk, einn völlur er á Akureyri og annar á Ólafsfirði. Nýstofnað tennisfélag Þróttar áætlar að taka í notkun þrjá velh við Þróttheima næsta vor. Aðstaöan fer því batn- andi í kjölfar síaukinnar ásóknar í iþróttina. Fremur er bágborin aðstaðan til inniiðkunar yfir vetrartímann. Þó hafa verið teiknaðar tennislínur í sum nýrri íþróttahús landsins og nýtir. tennisáhugafólk sér það ós- part þegar tímar eru lausir í íþróttahúsunum. Draumurinn er að létt yfirbygging yfir tennisvelM verði reist. Nokkrir einstakMngar hafa sýnt því áhuga að byggja slíka tennishöM en hvenær einhver ræðst í verkið verður að koma í ljós. Það er ekki síst eftir sumar eins og þetta sem er að líða sem tennisleikarar landsins vilja fara að sjá góða inniaðstöðu fyrir tennis verða aö veruleika. Að læra undir- stöðuatriðin rétt - En hvaö er mest heillandi við tennis? „í mínum augum er þaö fyrst og fremst útiveran. Þetta er Mka mjög góð hreyfing og íþrótt sem hentar fólki á öllum aldri. Það geta alMr í fjölskyldunni leikið saman og er tennis því mjög ákjósanleg fjöl- skylduíþrótt,“ segir Guðný. „En það er mikið atriði fyrir byrjendur að fá rétta leiðsögn strax í upphafi. Tennis byggir á ákveðinni tækni og verða undirstöðuatriðin að lær- ast rétt ætfi maður að ná einhverj- um tökum á íþróttinni. íslendingar hafa mikið kynnst tennis erlendis. Á flestum stöðum erlendis er tennis mjög vinsæl íþrótt og feiknavinsælt sjónvarps- efni. Þeir sem hafa til dæmis verið viö nám eða búið um tíma í Svíþjóð hafa gjarnan farið að leika tennis því þar er íþróttin gífurlega vinsæl og velMr úti um aMt. Þetta fólk hef- ur svo komið heim og heldur áfram að leika hér. Annars fer vaxandi sá hópur fólks sem byrjar bara strax að leika tennis hér. Börn og ungMngar sækja líka mikið í tennis og hafa verið í gangi tennisskólar fyrir þau í sumar á vegum Tenn- issambandsins. Um hundrað manns keppa Það er alltaf hægt að bregða sér út að spila. Þótt veðrið sé kannski ekki búiö að vera gott þá er hægt að drífa sig á völlinn á meðan það er ekki hávaðarok." Guðný segir um hundrað manns hér á landi keppa í þeim mótum sem haldin eru. Þar sem tennis- tímabiMð er mjög stutt eru ekki mjög sterkir leikmenn sem leika hér. En að minnsta kosti tveir skara þó fram úr öðrum en það eru þeir Ulfur Þorbjörnsson og Einar Sigurgeirsson. Þeir eru við nám erlendis og hafa því tök á að æfa tennis allt árið. Tennissamband íslands hefúr nú undirbúningsaðild að alþjóðlega tennissambandinu. Eftir tvö ár fær það fuMgilda aðild að sambandinu og fær þá rétt til að senda landsMð á alþjóðleg mót. Án efa á það eftir að vekja upp enn meiri áhuga á tennis hér á landi og styrkja stöðu íþróttarinnar. Þeir sem ætla að leika tennis ættu að verða sér úti um spaða, bolta og góða skó. Tennisspaðar eru til í íþróttaverslunum hér og kosta frá 2.500-12.000 krónur. Ágætis byrj- endaspaða er hægt að fá á 4-5.000 krónur. Hver bolti kostar um 250 krónur en íþróttaskómir eru á margvís- legu verði. Til eru íþróttaskór sérs- taklega ætlaðir til tennisiðkunar. Þeir eru sérstaklega hannaðir með það í huga að veita gott viðnám, að styðja vel við ökklann og að þeir andi vel. Nánari upplýsingar um kennslu í tennis er að fá hjá íþróttasam- bandi íslands og hjá tennisfélagi Víkings í Fossvogsdal. -RóG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.