Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1989, Blaðsíða 30
42 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1989. Afrnæli Jónas Finnbogason Jónas Finnbogason, póstur og bóndi á Raufarhöfn, er sjötíu og fimm ára ídag. Jónas er fæddur á Harðbak á Mel- rakkasléttu og ólst þar upp. Hann gekk í bamaskóla á Raufarhöfn og unglingaskólann í Núpasveit. Síðar fór hann á Reykjaskóla í Hrútaíiröi. Hann tók einnig meirapróf á bifreið- ar. Jónas vann fyrst almenn störf til sjávar og sveita. Hann var vélgæslu- maður hjá Kaupfélagi Norður-Þing- eyinga í 20 til 30 ár. Einnig var hann bifreiðarstjóri á Raufarhöfn og vann þar á bifreiðaverkstæði. Hann var umboðsmaður fyrir Ríkisskip og Olíufélagið á Raufarhöfn. Jafnframt rak hann verslun þar á staðnum. Núna er Jónas landpóstur og stund- ar hlunnindabúskap á Harðbak og hefur þar tekjur af æðarvarpi, sil- ungsveiði ogreka. í 16 ár var Jónas í hreppsnefnd Raufarhafnarhrepps. Hann vann ýmis trúnaðarstörf þar t.d. fyrir Ungmennafélagið Austra. Þá var hann í Kirkjukór Raufarhafnar í hálfa öld og formaður kórsins í 36 ár. Hann var einnig formaður Verkamannafélags Raufarhafnar í nokkur ár. Jónas kvæntist 22. apríl 1943 (Guð- rúnu) Hólmfríði Friðgeirsdóttur frá Oddsstöðum á Melrakkasléttu, fæddri 2. júní 1921. Foreldrar Hólm- fríðar eru Friðgeir Siggeirsson, b. verkamaður og póstur, og kona hans, Valgerður Sigurðardóttir. Börn Jónasar og Hólmfríðar eru: Vilmundur Þór, f. 26. júní 1945, verkamaður á Raufarhöfn. Hann er ógiftur og barnlaus. Valgeir, f. 27. febrúar 1950, rafeindavirki í Reykja- vík. Kona hans er Kristín Böðvars- dóttir og börn þeirra Guðmundur, Sóley og Jónas. Gunnar Finnbogi, f. 6. apríl 1956, fiskiðnaðarmaður á Raufarhöfn. Kona hans er Þórhildur Hrönn Þorgeirsdóttir og börn þeirra Eva Guðrún og Friðgeir. Jónas átti fimm alsystkini og tvö hálfsystkini, sammæðra. Systkini hans era: Súsanna, f. 16. júlí 1912, fyrrverandi talsímavörður á Akur- eyri. Sigurður, f. 21. september 1916, bóndi og verslunarmaður. Hann er nú látinn. Kona hans var Borghild- ur Pétursdóttir og áttu þau fimm börn. Stefán, f. 18. júlí 1918. Hann fór til náms en dó ungur. Kristín Guðbjörg, f. 18. júlí 1918, húsmóðir á Raufarhöfn. Maður hennar er Valdimar Guðmundsson og eiga þau þrjú börn. Þorbjörg, f. 15. apríl 1921, húsmæðrakennari á Akureyri. Hálfsystkini Jónasar sammæðra: Sigþór Jónasson, f. 18. september 1901, lést 20. desember 1967. b. á Rifi og verslunarmaður, kvæntur Hildi Eiríksdóttur. Anton Jónsson, f. 5. desember 1903, b. á Harðbak. Foreldrar Jónasar voru Finnbogi Friðriksson, f. 13. mars 1877, d. 8. maí 1944, b. og sjómaður á Harðbak, og kona hans, Guðrún Stefánsdóttir, f. 11. september 1879, d. 26. júlí 1955. Finnbogi var sonur Friðriks, b. á Gvendarstöðum í Fáskrúðsfiröi, Finnbogasonar. Móðursystir Jónas- ar var Jóhanna, móðir Björns Ön- undarsonar tryggingayfirlæknis. Önnur móðursystir Jónasar var Arnþrúður, amma Vigdísar Gríms- dóttur rithöfundar. Guðrún var dóttir Stefáns, b. á Skinnalóni á Melrakkasléttu, bróður Hildar, langömmu Péturs Guðjónssonar, formanns Flokks mannsins, og Haf- liða Vilhelmssonar rithöfundar. Önnur systir Stefáns var Ingibjörg, amma Jóns Hjörleifs Jónssonar skólastjóra og langamma Silju Aðal- steinsdóttur bókmenntafræðings. Stefán var sonur Jóns, b. á Skinna- lóni, Sigurðssonar, ættföður Jónas Finnbogason. Skinnalónsættarinnar, og konu hans, Þorbjargar Stefánsdóttur, langömmu Hilmars bankastjóra, föður Stefáns bankastjóra og langömmu Hildar, móður Ólafar Pálsdóttur myndhöggvara. Ida Christiansen Ida Christiansen verslunareigandi, Móaflöt 12 í Garðabæ, er fimmtug í dag. Ida er fædd á Siglufirði og ólst þar upp. Hún gekk í skóla í heimabæ sínum og síðar á Húsmæðraskólann á Varmalandi í Borgarfirði. Á Siglu- firði starfaði Ida við Póst og síma og við verslunarstörf. Eftir það vann hún um tíma við Atvinnudeild Há- skólans. Hún rekur nú eigin verslun í Garðabæ. Eiginmaöur Idu er Gísli Holgers- son heildsali. Hann er fæddur 25. júní árið 1936, sonur Guðrúnar Sæ- mundsdóttur og Holgers Gíslason- ar. Holger er rafvirkjameistari og vinnur að eftirlitsstörfun í Keflavík ogáSuðumesjum. Ida og Gísh eiga þrjú börn. Þau eru: Holger Gísli, fæddur 2. júlí 1967. Hann varð stúdent 1987 og vinnur nú sem sölustjóri. Unnusta hans er Embla Dís Ásgeirsdóttir nemi, fædd 7. mars 1969. Barn þeirra er Gísli Ásgeir, fæddur 7. október 1987. Sigríður Dóra, fædd 24. maí 1970. Hún varð stúdent í vor og er nú við nám. Erik Hermann, fæddur 22. júlí 1975, skólanemi. Öll börnin búa enn á heimili for- eldranna að Móaflöt 12 í Garðabæ. Ida á eina hálfsystur sammæðra og tvö hálfsystkini samfeðra. Þau era: Jónína M. Hjartardóttir, fædd 1. ágúst 1948. Maður hennar er Kristj- án Óli Jónsson, fæddur 6. janúar 1948. Þeirra börn eru Hjörtur, Kristján og Kristinn. Nanna K. Christiansen, fædd 26. maí 1950. Maður hennar er Gylfi Aöalsteinsson, fæddur 5. mars 1950. Þeirra bam er Hinrik, fæddur 24. ágúst 1986. Pétur E. Christiansen, fæddur 13. febrúar 1955. Kona hans er Ingibjörg Þorgilsdóttir, fædd 2. janúar 1966. Þeirra böm eru Nói, fæddur 28. ágúst 1986, og Rósa, fædd 28. sept- ember 1988. Foreldrar Idu eru Sigríður Guð- mundsdóttir, húsmóöir á Siglufirði, fædd 7. apríl 1913, og Erik Christ- iansen, tæknifræðingur hjá Vita- og hafnamálastofnun, fæddur 27. maí 1911 og látinn 24. júní 1988. Þau skildu árið 1946. Erik var fæddur í Ida Christiansen. Danmörku. Sigríður, móðir Idu, giftist Hirti Ármannssyni, lögregluvarðstjóra á Siglufirði, fæddum 23. janúar 1918. Hjörtur er ættaður frá Urðum í Svarfaðardal. Erik, faðir Idu, var kvæntur Rósu Guðmundsdóttur en hún lést 1. apríl 1970. Björgvin Steinþórsson Björgvin Steinþórsson gæslumaður, Skúlaskeiði 20 í Hafnarfirði, er fimmtugurídag. Björgvin er fæddur á Þverá í Blönduhlíð í Skagafirði og ólst þar upp. Árið 1964 flutti hann til Hafnar- fjarðar. Hann lærði skipasmíöi og lauk námi í iðngreininni frá Iðnskóla Hafnarfiarðar árið 1969. Hann vann við iðn sína fram til ársins 1985 þeg- ar hann gerðist gæslumaður hjá Fjármálaráðuneytinu í Arnarhváli og vinnur þar nú. Um tíu ára skeið var hann gjaldkeri hjá Sveinafélagi skipasmiða. Eiginkona Björgvins er Soffia Magnúsdóttir húsmóðir, fædd 5. júní árið 1937. Hún er dóttir Magn- úsar Sölvasonar sjómanns og Önnu Sigfúsdóttur. Foreldrar Björgvins era Steinþór Stefánsson, fæddur 8. aprfi 1908, dáinn 4. nóvember 1977, og Margrét Jóhannesdóttir, fædd 17. maí 1916. Þau vora lengi búendur á Þverá í Blönduhlíð. Böm Björgvins og Soffiu era Margrét, húsmóðir á Hvammabraut 10 í Hafnarfirði, fædd 13. febrúar 1965. Maður hennar er Stefán Hjaltalín Jóhannesson. Þau eiga þrjú böm: Björk, fædda 31. febrúar 1983; Björgvin Svein, fæddan 19. maí 1986, og Guömund, fæddan 23. des- emberárið 1987. Þórdís, afgreiðslustúka í Hafnar- firöi, fædd 1971. Björgvin á sjö systkini. Þau era Stefán Halldór, fæddur 8. janúar á Þverá og býr þar ógiftur. Jóhannes, verkamaður í Reykja- vík, fæddur 27. mars 1938. Kona hans er Guðrún Sigmundsdóttir og eigaþautvöböm. Hjörtína Ingibjörg, húsmóðir á Sauðárkróki, fædd 1. október 1940. Maður hennar var Héðinn Sveinn Ásgrímsson en hann lést árið 1987. Börn þeirra eru þrjú. Gunnar, sjómaöur á Akureyri, fæddur 29. desember 1941. Kona hans er Heiða Björk Pétursdóttir og eigaþauþijúböm. Magnús Ingi, bóndi á Þverá í Blönduhlíð, fæddur 11. júlí 1944. Kona hans er Amalía Guðmunds- dóttir og eiga þau fimm börn. Steinþór Valdimar, línumaður hjá Rafmagnsveitunum á Sauðárkróki, fæddur 13. maí 1949. Kona hans er Halla Tómasdóttir og eiga þau eitt bam. Björgvin Steinþórsson. Guðrún Björg, húsmóðir á Akur- eyri, fædd 7. júní 1957. Maöur henn- ar er Heimir Rögnvaldsson og eiga þaueittbarn. Björgvin verður að heiman í dag. Til hamingju með 80 ára 60 ára Helga Einardóttir, Ásgcir H. P. Hraundal, Reynimel 76, Reykjavik. Garðabraut 20, Akranesi. ölgUliJu.1 1. ölglll OSSOli^ Víðivöllum 4, Selfossi. Lúðvik A. Hjálmarsson, 50 ára Skagfiröingabr. 8, Sauðárkr. Jóhanna Pétursdóttir, Laugarnesvegi 66, Reykjavik. Georg Hermannsson, Þorsteinsgötu 15, Borgaruesi. 75 ára Guðbjörg Sigurðardóttir, oíenuumut iv. uitiiaoon, — Laugateigi 4, Reykjavik. Hildur Margrét Egilsdóttir, Kringlumýri 31, Akureyri. Thora Priebe, Digranesvegi 63, Kópavogi Hulda Vigfúsdóttir, Aðalgötu 4, Árskógsströnd. Hákon Benediktsson, Jónina Guðrún Árnadóttir, Torfufelli 29, Reykjavík. Miðvangi 110, Hafnarfirði. 40 ára 70 ára ólafur Tryggvi Þórðarson, Urðarstíg 4, Reykjavík. Steinar Þórðarson, Hraunbæ 168, Reykjavík. Jón Pétursson, Gautlöndum 2, Skútustaðahrepi Svava H. Asgeirsdóttir, Grundargerði 5A, Akureyri. Magnús Guðmundsson, l5 Reynivöllum 4, Egilsstöðum. Þorvaldur Einarsson, Hlíðargötu 5A, Neskaupstað. Elsi Sigurðardóttir, Leynisbraut 11, Grindavík. Pétur Þ. Sigurðsson, Torfufelli 40, Reykjavík. Benjamín Kristján Eiríksson Benjamín Kristján Eiríksson, fyrr- um sjómaður og verkamaður, Gnoð- arvogi 84 í Reykjavík, er áttræður í dag. Hann er fæddur á Dynjanda í Grunnavikurhreppi í Norður-ísa- fjarðarsýslu og ólst þar upp. Hann hóf sjósókn frá verstöðinni á Staðar- eyrum í Jökulfjörðum árið 1924. Næstu fjörutíu vertíðir reri hann frá Hnífsdal, ísafirði og Bolungarvík. Benjamín flutti til ísafjarðar árið 1949 og bjó þar til ársins 1950 þegar hann flutti til Bolungarvíkur. Þar bjó hann tfi ársins 1984 en þá flutti hann til Reykjavíkur. í Bolungarvík vann hann hjá fyrirtækjum Einars Guðfinnssonar frá árinu 1953 til 1981 þegar hann lét af störfum. Benjamín kvæntist 9. nóvember 1933 Kristínu Valgerði Ámadóttur, fæddri 21. maí 1907. Foreldrar henn- ar voru Ami Friðrik Jónsson og Elín B. Jónsdóttir, búendur í Furu- firði í Grannavíkurhreppi. Benjamín og Kristín eiga eina dóttur. Hún er Guðfinna Elísabet ljósmóðir, Gnoðarvogi 84 í Reykja- vík, fædd 23. júlí 1933. Maöur henn- ar er Guðmundur Sigmundsson. Þau eiga þrjá syni sem era: Kristj- án, viðskiptafræðingur; Sigmundur, laganemi, og Eiríkur, bókmennta- nemi. Benjamín á sjö hálfsystkini, íjögur sammæðra og þrjú samfeðra. Hálf- systkinin sammæðra eru: Guðfinnur Einarsson sjómaður. Hannléstáriðl933. Jakob Einarsson, bóndi og sjó- maður. Hann lést árið 1987. Benjamín Kristján Eiríksson. Rannveig Einarsdóttir húsfreyja. Húnereinniglátin. Guðrún Einarsdóttir, húsfreyja í Vestmannaeyjum. Hálfsystkinin samfeðra eru: Marta Eiríksdóttir, býr í Reykja- vík. Kristín Eiríksdóttir, ekkja Bjarna Vfihjálmssonar þjóðskjalavarðar, býríReykjavík. Jóhanna Eiríksdóttir sem dó ung. Foreldrar Benjamíns vora Eiríkur Benjamínsson, útvegsbóndi á Hest- eyri í Sléttuhreppi, og Ólöf Jóhann- esdóttir.lengihúsfreyjaáKollsáí 1 Grannavíkurhreppi. Benjamín ólst upp hjá fósturfor- eldrum sínum, þeim Benedikt Kr. Benediktssyni, bónda og útvegs- bónda á Dynjanda í Grunnavíkur- hreppi, og Gunnvöru Rósu Elías- dótturhúsfreyju.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.