Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 5
.6HHI TSÚOÁ ,0t HUOÁdJÍAOÚAj LAUGARÐAGUR 19. ÁGÚST 1989. i . .5 Fréttir Menntamálaráðherra: - með stofnun nýja einkaskólans „ Á undanförnum áratugum hefur veriö samstaöa um íslenska skólann - þjóðarsátt um skólakeríið. Miklu skiptir að yfirvöld menntamála rjúfi ekki þá samstöðu. Augljóslega var samstöðunni stefnt í hættu með því að fallast á stofnun þess skóla sem Bragi Jósepsson hefur beitt sér fyr- ir.“ Svo segir meðal annars í greinar- gerð Svavars Gestssonar mennta- málaráðherra sem hann sendi skóla- nefnd hins nýja einkaskóla í gær- morgun er hann synjaöi skólanum um starfsleyfi. Grundvallarástæður synjunarinn- ar segir ráðherra þær að ekki hafi legið fyrir fullnægjandi upplýsingar um fyrirhugaðan rekstur skólans, kennsluhætti né námsframboð. Ráðuneytið telji ekki ástæður til að auka við opinberan kostnað í grunn- skólakerfinu umfram það sem þegar hafi verið ákveðið. Sé enn fremur talið óeðlilegt að stofnaðir verði einkaskólar sem alfarið séu kostaðir af foreldrum eða aðstandendum barna. Slíkt geti stuðlað að mismun- un í skólamálum og sé í fullkomnu ósamræmi við jafnréttisanda grunn- skólalaganna. Þá sé fjárhagsgrundvöllur skólans mjög óljós og hætta á geysiháum skólagjöldum. Fjárhagsáætlun sú, sem lögð hafi verið fram, greini ekki frá því hvernig ráöa .eigi við mikil- vægustu kostnaöarþætti. Hætta á gjaldþroti stofnunarinnar blasi því viö eða að skólagjöld verði allt að 20 þúsund krónur á mánuði, sem sé frá- leitt. Ekki hafi verið séð hvernig tryggja ætti kjör kennara, svo sem orlof, lífeyri og sérstakar verðbætur á lífeyri eins og opinberir starfsmenn njóti. Loks hafi tveir umsagnaraöilar af þrem lagst gegn stofnun skólans. Að síðustu segir í greinargerð ráð- herra: „Fyrsta skylda menntamála- ráðuneytisins er að tryggja sem best rétt barnsins. Með því að fallast á skipulagsskrá nýs einkaskóla er ráðuneytið að fallast á að undan- þiggja börnin, sem þar stunda nám, frá því að sækja hinn almenna grunnskóla. Til þess að falla frá þeirri skyldu verða að liggja fyrir veigamikil rök og gleggri upplýsing- ar en þær sem hafa birst til þessa. í umræðum um skólann að undan- förnu hefur komið fram að börn yrðu ef til vill tekin inn í skólanr. eftir ein- kunnum... .Hér er því augljóslega gengið á svig við meginforsendur grunnskólalaga, framhaldsskólalaga og aðalnámskrá grunnskóla.“ -JSS Skógræktarátak næsta ári: Landið klætt landgræðslu- skógiá ný Júlía Imsland, DV, Höfn: Um verslunarmannahelgina var lögreglunni á Höfn tilkynnt að útsýn- isskífa, sem verið hefur við tjald- stæðið á Höfn, væri horfin. Skífan er úr kopar, 60X60 sm að stærð, og var skrúfuð ofan á steinstöpul. Ekki hefur enn hafst uppi á þjófunum og er máliö í höndum lögreglunnar. - réttur bíll á réttum stað. Ingvar Helgason hC Sævarhöfða 2, sími 674000 Nýju sætin í Laugarásbíói eru með götum í armpúðum fyrir gosdrykkjarílát. Laugarásbíó: Ný sæti leysa af hólmi 30 ára gömul sæti Breytingar hafa verið gerðar á Laugarásbíói. Sett hafa verið ný sæti í A-sal kvikmyndahússins og leysa þau af hólmi sæti sem hafa verið frá því kvikmyndahúsið var opnað 1959. Nýju sætin eru af Irving gerð en fyr- irtækið, sem framleiöir þau, er leið- andi á sviði sæta fyrir íþróttahús, tónleikasali og kvikmynda- og leik- hús. Þá hefur sætum verið fækkað úr 430 í 400 og er því rýmra fyrir áhorf- andann. Einnig er nýjung í armpúð- um sætanna en þar eru göt sem eru sérhönnuð til að geyma gosdrykkjar- ílát. Fljótlega er einnig áætlað að breyta anddyri kvikmyndahússins. -HK Á næsta ári eru 60 ár liðin frá stofn- un Skógræktarfélags íslands og hef- ur í tilefni þess verið ákveðið að efna til sérstaks átaks í landgræðslu. Felst það í ræktun landgræðsluskóga í samvinnu við Skógrækt ríkisins, Landgræðslu ríkisins og Landbúnað- arráðuneytið. Landgræðsluskógur er í raun allar þær landgræðslu og gróðurverndar- aðgerðir sem leiða til þess að örfoka eða lítt gróið land verði klætt trjá- gróðri að nýju. Felst aðgerðin í að friða land þar sem skógur og kjarr getur vaxið upp af sjálfsdáðum. Samningar hafa verið gerðir við 20 garðyrkjubændur og Skógræktarfé- lag Reykjavíkur um framleiðslu á einni og hálfri milljón plantna. Til viðbótar eru fyrirhugaðir samningar um framleiðslu víðiplantna. Þá hafa verið gerðir sérstakir söfn- unarbaukar sem eiga áð gefa er- lendum ferðamönnum kost á að láta fé af hendi rakna til málefnisins. -SMJ Höfn: Útsýnisskífu stolið Nissan: Mest seldi japanski bíllinn í Evrópu í mörg ár Bílasýning laugardag og sunnudag frá kl. 14.00-17.00 Lánstími í allt að 372 ár. 3ja ára ábyrgð Samstöðunni var stefnt í hættu Kodak Express 60 MÍNÚTUR Opnumkl. 8.30. trnxi iTTrmnriTm LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 • SÍMI 68 58 11 11 ■ 11 ■ 11111 LllIHH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.