Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. Kvikmyndir China town Þegar litið er yflr vinsælustu kvik- myndimar í Bandaríkjunum þessa dagana má s.já nöfn eins og Lethal Weapon 2, Indiana Jones and the Last Crusade, Ghostbusters II, The Karate Kid Part III og Star Trek V Final Frontier. Allt em þetta fram- haldsmyndir sem byggja á vinsæld- um forvera sinna. En engin þessara mynda kemst þó í hálfkvisti við Batman sem virðist ætla að slá öll aðsóknarmet fyrr og síðar. Myndin hefur sem dæmi náð sömu aðsókn og Indiana Jones myndin hans Spi- elberg á helmingi skemmri tima. En hvað er það sem tengir saman framhaldsmyndir og Batman? Jú, það er Jack Nicholson sem sló eftir- minnilega í gegn í hlutverki „The Joker“ í Batman og sú staðreynd að þessa dagana er hann aö leik- stýra og leika í framhaldsmynd af Chinatown sem ætlunin er að frumsýna um jóhn. Chinatown Chinatown var glæpamynd sem gerðist á þriðja áratugnum í Los Angeles. Myndin var að mörgu leyti endurvakning á þeim anda og andrúmslofti sem ríkti í bestu myndum Humphrey Bogarts og var rós í hnappagatið hjá hinum pólska leikstjóra Roman Polanski. Jack Nicholson fór þar á kostum í hlutverki einkaspæjarans Jake Gittes sem fyrir tilviljun hóf rann- sókn á máh, er snerist um landsvik og vatnsréttindi, sem endaði síðan með morði. Sérstaklega er minnis- stætt atriðið er Jack Nicholson lenti í klónum á nokkrum hlmenn- um sem sjálfur Polanski veitti for- ustu. Endaði viðureign þeirra með því að Polanski beitti hníf á nasir Nicholson. Þar sem Polanski er smávaxinn maður varð hann að tylla sér á tær th aö framkvæma verknaðinn sem vakti mikla kátínu kvikmyndahúsgesta. Erfið fæðing Ólíkt flestum framhaldsmyndum er ekkert í nafni þessarar nýju myndar sem minnir.á Chinatown. Myndin kahast einfaldlega The Two Jakes. Þótt 15 ár séu hðin frá því að Chinatown var gerð er það sami höfundurinn sem gerði bæði handritin, eða Robert Towne. Með- an á kvikmyndun stóð var í sífehu verið að endursemja og fínpússa suma hluta handritsins. Jafnvel samkvæmt Hohywood stöðlum átti The Two Jakes erfiða fæðingu. Ætlunin var að gera myndina árið 1985 og var málið komið svo langt að æfingar voru hafnar. En tveim- ur dögum seinna voru þær stöðv- aðar vegna hstræns ágreinings sem ekki tókst að leysa fyrr en nú fjór- um árum síðar. Ástandið var svo slæmt að jafnvel framleiöandinn, Paramount, dró stuðning sinn th baka. Eins og svo oft áður í Hohy- wood var ástæðan fyrir þessum ágreiningi ekki eins alvarleg og ætla mætti. Upphaflega var ætlun- in að Robert Towne bæði leikstýrði og skrifaði handritið að myndinni. Bob Evans, sem framieiddi fyrri myndina, átti einnig að framleiða þá seinni en þar að auki vhdi hann leika hlutverk Jake Berens á móti Jack Nicholson. Towne lét fljótlega í ljós efasemdir um leikhæfheika Kvikmyndir Baldur Hjaltason Evans sem síðan ohi árekstrum við Nicholson sem er góður vinur Evans. Enginn vhdi gefa sig svo framleiðandinn greiddi öhum kaup fyrir þessa tvo daga og sendi síðan alla heim. Friðsæl lausn En einhverjum hefur tekist að sætta aha málsaðila og nú er svo komið að næsta öruggt er að The Two Jakes verður ein af jólamynd- um Paramount. Hins vegar hafa verið gerðar ýmsar breytingar. Evans er nú orðinn aðstoðarfram- leiðandi ásamt Harold Schneider sem framleiddi fyrstu mynd Nic- holson sem leikstjóra. Það var hinn rómantíski vestri Goin South sem mörgum aödáendum Nicholson þótti htið th koma þótt hann léki einnig aðalhlutverkið hkt og nú. Evans hefur orðið aö fá sendar heim til sín til skoðunar allar fhm- ur sem búið er að taka á. Hann getur ekki yfirgefið heimkynni sín vegna tengsla sinna við þekkt morðmál sem nú er réttað í. Er þetta óneitanlega neyðarleg staða fyrir Evans og gerir honum erfitt um vik. Líkur efnisþráður Það er Harvey Keitel sem fer með hlutverk fasteignasalans Jake Ber- Hér sést Nicholson sem Gittes í Chinatown 1974. Nicholson í fram- haldsmyndinni The Two Jakes árið 1989 sem leikari og leik- stjóri. vitnanir að ræða eins og þegar Gitt- es (Nicholson) segir við (Berens) Keitel: „Ég þekkti fyrrverandi eig- endur þessa lands.“ Leikstjóri og leikari En hvemig skyldi Nicholson standa sig sem leikari og leikstjóri? Hann nýtur án efa góðs af reynslu sinni frá Goin South. Hann fer vandlega í gegnum hvert atriði áð- ur en kvikmyndatakan hefst. „Einu vandræðin eru að ég verð að skha tvöfaldri vinnu og það tek- ur tíma,“ hefur verið haft eftir Nic- holson. „Á hverjum degi eru ahtaf nokkur atriði sem ég hef ekki haft tíma th að kynna mér.“ Nicholson virðist líka að vinna mjög náið með hinum frábæra kvikmyndagerðar- manni Vilmos Zsigmond sem á að baki myndir eins og Close En- counters of the Third Kind, Blow- out og svo Apocalypse now. Hann lætur yflrleitt Zsigmond eftir að ákveða hvort nauðsynlegt er að endurtaka eitthvert atriði eða ekki. The Two Jakes hefur mjög sér- stætt yfirbragð. Þeir félagar á- kváðu að taka upp sams konar lýs- ingu og tíðkaðist í myndum á fimmta áratugnum. Þá var reynt að ná harðri og fullkominni lýsingu gagnstætt hinu mjúka og náttúr- lega yfirbragði sem nú tíðkast með- al kvikmyndagerðarmanna. Það eru nokkrar deilur uppi um hvort rétt sé að leita svona til fortíðarinn- ar en Nicholson bendir á að það sé ekkert sem segi að sum tækni og yfirbragð, sem hafi tíðkast í kvik- myndagerð áður fyrr, sé neitt verra en það sem bjóðist í dag. Framtíðin Þegar þessi grein birtist er kvik- myndatökum á The Two Jakes lík- lega lokið. Það verður forvitnhegt að sjá hvernig og hvort Nicholson tekst aö nýju að blása lífi í persónu einkaspæjarans Gittes. Framhalds- myndum sumarsins hefur vegnað upp og ofan þótt sumar þeirra hafi Skilað því í kassann sem ætlast var th. Það er hins vegar áhyggjuefni hve oft kvikmyndaverin reyna að notfæra sér sömu gömlu lummuna og eru tilbúin að veita mikiö fé til þess meðan kvikmyndagerðar- menn af yngri kynslóðinni með góðar hugmyndir fá örsjaldan tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Þótt sjálfstæð kvikmyndagerð sé ekki stór í sniðum í henni Hohy- wood koma alltaf fram á sjónar- sviðið myndir þaðan sem stóru kvikmyndaverin hefðu aldrei framleitt. Ástandinu er líklega einna best lýst með því að nú er verið að undirbúa framhaldsmynd um Batman og auðvitað er búið að panta Jack Nicholson í gamla hlut- verkið sitt. Helstu heimildir: Variety Baldur Hjaltason ens en snemma í myndinni finnst félagi hans myrtur. í Chinatown var deht um vatnsréttindi en í The Two Jakes er deilt um nýtingu lands og olíu. Þrátt fyrir að The Two Jakes gerist 1947 eða um 10 árum síðar en Chinatown fjalla báðar þessar myndir um afleiðing- ar græðgi sem í þessu thviki er morö. Jack Nicholson leikur að vanda Jake Gittes. Ef vel er gáð má sjá örið á nefi hans eftir viður- eign hans við Polanski. Hann ekur einnig nú um á nýjum Hudson bh af betri geröinni. Hann hefur fengiö það verkefni að finna út hver drap félaga fasteignasalans og að vanda lendir hann í ýmsum ævintýrum áður en málið er leyst. Ekki verður farið nánar út í söguþráðinn en þess má geta að í nokkrum atriðum myndarinnar vitnar Gittes th eldri myndarinnar. Oft er um duldar th-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.