Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Blaðsíða 11
r LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. framkvæmdir í sínu eigin hverfi. Fólki líkar þetta fyrirkomulag vel enda er fólk áhugasamt um þaö sem er aö gerast í umhverfi þess.“ íbúarnir fylgjast vel með í gegnum hverfaskipulagið Þegar er komið út hverfaskipulag fyrir tvö hverfi borgarinnar, þ.e. Laugames, Langholt og Háaleitis-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Hafa upplýsingabæklingar með hverfa- skipulaginu verið sendir inn á öll heimiii í viðkomandi hverfum. Þann- ig geta íbúamir fylgst vel með gangi máia í eigin hverfi. Það er nýmæh aö eldri hverfi borgarinnar séu tekin til slíkrar hákvæmrar endurskoðun- ar og raun ber vitni í hverfaskipulag- inu. Slíkt hafði yfirleitt verið í formi déiliskipulags þegar um ný hverfi var að ræða. Nú er unnið að hverfa- skipulagi í gamla austurbænum en í ff amhaldi af því verður að öllum lík- indum unnið hverfaskipulag af Hlíð- um og Holtum. Margir hafa áhyggjur af gamla miðbænum nú þegar byggðin teygist sífellt lengra og dreifist. Verslun er ekki lengin- bundin við gamla mið- bæinn og hafa risið upp miðbæjar- kjcirncir á nokkrum stöðum í borg- inni. Hyggjast borgaryfirvöld gera eitthvað til að lífga upp á gamla mið- bæinn? Glerhýsi yílr hluta Austurstrætis „Já, við höfum mikinn áhuga á að gera átak í miðbænum. Gamli bær- inn er hinn eini sanni miðbær borg- arinnar og það kemur aldrei annar í hans stað. Auk tiltölulega nýstað- fests deiliskipulags fyrir miðbæinn bind ég miklar vonir við tillögur sem lagðar hafa verið fram um að breyta Austurstræti og gera það að líflegri göngugötu. Hugmyndin er að reisa glerbyggingu um sex metra út í göt- una norðan megin, þar sem gatan er nánast lífvana og koma þar fyrir litl- um verslunum og þjónustu. Gler- hýsið myndi þá ná alveg frá Lækjar- torgi út að Pósthússtræti og áfram að Hallærisplaninu. Gatan yrði því öll gerð að göngugötu en hægt yrði að ganga undir berum himni á hin- um helmingi götunnar. Ég tel að þetta eigi að vera sam- vinnuverkeftii borgarinnar og hús- og verslunareigenda í miðbænum. Þessa breytingu þyrfti að fram- kvæma strax á næsta ári. Með þess- um hætti ætti okkur að takast að auka mannlífið í miðbænum. Aust- urstræti er hjarta borgarinnar og þar verðum við að byija. Að mínu viti er næsta skrefið að stofna þróunarfé- lag sem gerir áætlanir og stuðlar að meginframkvæmdum í þágu mið- bæjarins. Á þennan hátt er best hægt að tryggja stöðu miðbæjarins og efla hann sem viðskiptasamfélag.“ Miðbærinn tengdur hafnarsvæðinu Vilhjálmur bindur einnig miklar vonir við að hægt verði að tengja miðbæinn við hafnarsvæðið. „Fólk á að geta notið þeirrar sér- stöðu að borgin sé við höfn. Það.á að vera hægt að koma niður að höfn og njóta líflegs mannlífs og athafna þar. Hugmyndin er að gera göng undir miðbakkann sem yrðu frá Kalkofnsvegi og kæmu upp sunnan við aðstöðu Skipaútgerðar ríkisins. Við höfnina mætti setja upp htla matsölustaði, verslanir og þess hátt- ar. Nú eru að verða miklar breyting- ar á notkun hafnarinnar. Vöruflutn- ingar eru að flytjast í auknum mæh úr gömlu höfninni inn í Sundahöfn. Því er tílvahð að nýta höfnina á þennan hátt. Hingað til hefur að- gangur almennings að hafnarsvæð- inu frekar verið takmarkaður en hitt.“ En það eru ýmis önnur verkefni og hugmyndir í gangi sem unnið er’ að. Þörfin á breytingum og endurbót- um á borginni vex samhliða síféht fleiri íbúum. Það verður ekki langt í það að borgina búi 100.000 manns en þess má geta að þegar Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi, árið 1786 töldust íbúar 167. Ánægjulegt aö sinna skipulagsmálum „Skipulagsmáhn eru sérstaklega áhugavert viðfangsefni. Ég hef haft mikla ánægjú af að sinna þessum málum, taka þátt í að móta framtíð- arbyggð og vinna að endurskipu- lagningu ýmissa staða í eldri hverf- um borgarinnar," segir Vilhjálmur. „Ég hef ennfremur lagt áherslu á aukna kynningu á skipulagsmálum og þátttöku borgarbúa í umfjöllun um skipulagsmál almennt. Vinnan við hverfaskipulagið er nærtækasta dæmið. Skipulagsnefnd, ásamt borgarfull- trúum, er þegar allt kemur til alls að reyna með ákvörðunum sínum að gera góða borg betri og skapa að- stæður fyrir blómlegt mannlíf í fah- egri borg. Auðvitað gengur þetta misjafnlega en við reynum að gera okkar besta,“ segir Vhhjálmur. -RÓG. Kort af framtiðarbyggðarsvæði borgarinnar. Þetta landsvæði er talið duga til byggingar íbúðar- og atvinnuhúsnæðis fram til ársins 2004. 11 IþróttapistiU Sigurður Grétarsson skorar gegn Sovétmönnum á Laugardalsvelli i undankeppni Heimsmeistaramotsins þar sem Sovétmenn máttu þakka fyrir jafntefli, 1-1. Mikilvægasti knattspyrnuleikur íslands: Draumurinn getur ræst í Salzburg Landshð íslands í knattspyrnu verður í sviðsljósinu í næstu viku en þá fer fram mikhvægasti leikur íslendinga í knattspyrnhsögu okk- ar. íslenska landsliðið mætir Aust- urríkismönnum í Salzburg á miö- vikudaginn kemur og er hér um að ræöa leik sem skiptir gífurlega miklu máh í baráttunni um annað sætið í 3. undanriðh heimsmeist- arakeppninnar. Annað sætið í 3. riðh géfur farseðilinn th ítahu en þar fer lokakeppni heimsmeistara- mótsins fram á næsta ári. Að sjá hð sitt í úrshtakeppni HM er án efa stærsti draumur hverrar knattspymuþjóöar á sama hátt og það er mestur heiður hvers leik- manns að spila á þeim vettvangi. Ekki þarf að fjölyrða um þá at- hygh sem slík keppni vekur á sér en gríðarlegur fjöldi áhorfenda fyll- ■ ir jafnan glæshega leikvehi og mhljónir manna fylgjast með keppninni með aðstoð gervihnatta. Þessi draumur hefur jafnan verið fjarlægur íslensku þjóðinni þar th nú. Aht í einu stöndum við frammi fyrir því að „htla“ ísland á mögu- leika á að komast í hina eftirsóttu úrshtakeppni. Þessir möguleikar byggjast á hagstæðum úrshtum í hinum mikhvæga í leik í Salzburg á miðvikudagskvöldið. íslendingar hafa jafnmörg stig og Austurríkismenn og Tyrkir og því er ljóst að okkar menn geta komist aha leið í úrslitakeppnina á Ítalíu ef hagstæð úrsht nást í þeim leikj- um sem eftir eru. Öh þessi hð eiga möguleika á öðru sætinu í 3. riðli og síðan eru Austur-Þjóðverjar einnig inni i myndinni. ísland á eftir að leika gégn Austurríki á úti- velli og síðan koma heimaleikir gegn Austur-Þjóðverjum og Tyrkj- um. Allt er sem sagt galopið ennþá en augljóst er að leikurinn gegn Austurríki á eftir að skipta sköpum um framhaldið. Jafntefli mjög góð úrslit Það er auövitað alltaf leikið th sigurs og þaö mun íslenska hðið ijrugglega gera innst inni í Salz- Burg. Sigur er auðvitað alltaf bestu úrsht sem koma th greina. Það Verður hins vegar að líta máhð raunhæfum augum og stilla ahri bjartsýni í hóf. Islenska hðiö á fyr- ir höndum erfiðan leik á útivelh og því verður að leika af mikilh varkámi og aðalatriðið er að fá ekki á sig mark. Með öruggri leik- aðferð er hægt að ná alla vega jafn- tefli og það yrðu mjög góð úrsht fyrir íslenska hðiö. Það er ekki að efa að Siegfried Held, landshðs- þjálfari íslands, mun láta íslenska liöið spila svipaða leikaðferð og í Sovétríkjunum í lok maí þegar frá- bær úrslit náðust. Svo vitnað sé í orð landshðsfyrirliðans, Atla Eð- valdssonar, þá er varnarleikur uppáhaldsleikstíll íslenska hðsins og skyndisóknimar era hættuleg- asta vopnið. Með því að spila var- lega og jafnvel mjög aftarlega er ekki teflt á tvísýnu heldur stólað upp á góð úrsht. Þessi leikaðferð kann að reynast lítið augnayndi en hér er ekki verið að keppa um feg- urð. Ef rétt verður haldið á spilunum í Salzburg þá á íslenska hðið góöa möguleika. Það er þó betra að vera hóflega bjartsýnn en vona bara það ahra besta. 12 lið falla úr3. deild! Á sama tima og tvö lið færast upp úr neðstu deild í knattspyrnu á hausti komanda er ekki færri lið- um en 12 ætlað að leysa þessi tvö af hólmi. Eru það lið sem nú leika í riðlunum tveimur í 3. deild. Sú deild hefur um langa hríð ver- ið skipt í riðla með hliðsjón af bú- setu þeirra liða sem kljást í deild- inni. Á þingi KSÍ fyrir nokkru var hins vegar ákveðið að aðeins skyldi verða einn riðill framvegis í 3. dehdinni. Ekki fæ ég séð hverjum þessi breyting á að gagnast. Tvö lið fara upp í aðr'a dehd úr þeirri þriðju eftir sem áður en tvö færast að vísu niður í stað fjögurra áður. Ætla má að mörg hð muni shgast undan ferðakostnaði í þeirri þriðju dehd sem fæðist á komandi hausti en gríðarlegt verk er framundan hjá þeim félögum sem fá sæti í deildinni við að afla farareyris. Aðeins sex lið halda velh í þriðju deildinni nýju og ætla má að leik- mönnum þeirra tólf sem falla þyki súrt í broti að sjá lið úr neðstu dehd taka þar sæti. Ótrúleg skammsýni var að gera ekki einhverjum eða öhum fahhð- um þriðju dehdar fært að mæta þessum tveimur hlutskörpustu lið- um fjórðu deildar í sérstakri keppni um þau sæti sem laus eru í þriðju dehdinni. Vegna þessarar ósvinnu hljóta ófáir að efast um að stefna ráðandi aðila í knattspyrnunni hér heima sé að sterkari lið leiki í þriðju dehd- inni en í þeirri fiórðu. Verða tveir íslend- ingar í loka- keppni Grand-Prix Eins og staðan er í dag má ætla að tveir íslenskir fijálsíþróttamenn keppi á lokamóti Grand-Prix í Món- akó í byrjun september. Grand- Prix er eitt allra stærsta og sterk- asta frjálsíþróttamót sem fram fer í heiminum. Eru það íslendingarnir tveir, spjþtkastararnir Sigurður Einars- son og Einar Vilhjálmsson. Báðir standa þeir vel að vígi í stigakeppni Alþjóða frjálsíþrótta- sambandsins og verði framhald á velgengni þeirra getur allt gerst. Þessir kappar okkar era nú í allra fremstu röð í sinni iþróttagrein og er ánægjulegt að sjá með hvaða hætti þessi íþrótt hefur þróast með íslendingum hin síðari ár. Spjótkastið er tignarleg grein sem stendur í beinum tengslum við ís- lenska menningarsögu. Það væri óskandi að íslendingar sjái því tvo af mörgum ágætum íþróttamönnum sínum meðal keppenda í þessu mikla frjáls- íþróttamóti. Sérstaklega með hlið- sjón af þvi að þá skákum við bæði Svíum og Finnum en þeir hafa ver- iö framarlega í spjótkastinu síðustu árin. Róbert Róbertsson Draumurinn getur orðið að veruleika

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.