Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 29
31
29
PÍPI '”1' í'- 'c í’ >f ;r1'/ '-1'
MANUDAGUR 21. ÁGÚST 1989.
Siglfirðingar
komnir í 2. deild
- sigruöu Hugin 0-2
Siglfirðingar tryggðu sér sæti í sæti í 2. deild á næsta ári þeg-
ar þeir sigruðu Hugin, 0-2, á Seyðisfirði. Óli Agnarsson og
Hlynur Eiríksson gerðu mörk Siglfirðinga á Seyðisfirði.
Á Neskaupstað vann Þróttur stórsigur á Kormáki, 7-0. Norð-
firðingar voru í miklu stuði og þá sérstaklega þeir Hörður Rafnsson og
Þorlákur Árnason en þeir gerðu þrjú mörk hvor. Guðbjartur Magnason
bætti því sjöunda við.
Reynir frá Árskógsströnd gerði góða ferð á Grenivík og vann þar 2-1
sigur á Magna. Ágúst Sigurðsson og Þorvaldur Þorvaldsson skoruðu
fyrir,Reyni en Magnús Helgason minnkaði muninn fyrir Magna.
Austri vann Val frá Reyðarfirði, 2-0, á Eskifirði í gærkvöldi. Sigurjón
Kristjánsson og Hjalti Einarsson skoruðu mörk heimamanna.
Haukar unnu Skotfélag Reykjavíkur
Haukar unnu sigur á Skotfélagi Reykjavíkur, 3-0, í úrshtakeppni 4. deild-
ar. Þetta var fyrsti leikurinn í úrshtakeppninni en auk þessara liða berjast
Ármenningar um sæti í 3. deild. Haukarmr léku vel á gervigrasinu og upp-
skáru öruggan sigur með tveimur mörkum frá Páh Poulsen og einu frá
Guðjóni Guðmundssyni þjálfara.
TBA er komið í úrslitakeppnina eftir 3-1 sigur á Neistanum. Pétur Bjarna-
son gerði tvö mörk fyrir TBA og Sigurkarl Aðalsteinsson eitt. Mark Neistans
gerði Oddur Jónsson.
HSÞ-b vann stórsigur á Efhngu, 7-1. Viðar Sigurjónsson gerði 4 mörk og
þeir Ófeigur Fanndal, Ari Hahgrímsson og Stefán Guðmundsson eitt mark
hver. Einar Jónsson gerði eina mark Eflingar.
Æskan tapaði á heimavelh fyrir UMSE-b, 1-2. Arnar Kristinsson 'kom
heimamönnum á blað en Rúnar Hermannsson og Ingólfur Samúelsson gerðu
mörk UMSE-b.
Hvöt vann 4-0 sigur á SM á Blönduósi. Hermann Arason, Indriði Jósafats-
son, Ragnar Guðjónsson og Kristinn Guðmundsson gerðu alhr eitt mark hver.
KSH sigraði Leikni á Fáskrúðsfirði í E-riðh. Þetta var frestaður leikur sem
fór fram í gærkvöldi. Jónas Ólafsson skoraði tvö mörk og Vilberg Jónasson
gerði eitt mark. Ágúst Sigurðsson og Jakob Atlason skoruðu fyrir Leikni.
-RR/KH/MJ
EM í sundi:
Okkar menn náðu
sér ekki á strik
um helgina
- Helga stóð upp úr
íslensku sundmennirnir hafa ekki náð sér almennilega á strik
á Evrópumeistaramótinu í sundi sem nú er afstaðið í Bonn í
V-Þýskalandi.
í gærmorgun keppti Helga Sigurðardóttir 50 metra skrið-
sundi. Hún synti á 27,61 sekúndum. Ragnar Guðmundsson synti sömu
vegalengd í karlaflokki á 28,14 sekúndum.
Arnþór Ragnarsson keppti í 200 metra fjórsundi og synti á tímanum
2:15,93 mínútur. Hann varð í 30. sæti í þessari grein.
Á fostudag synti Ragnheiður Runólfsdóttir á 1:13,16 mínútum í 100
metra bringusundi. Hún var aðeins tæpri sekúndu frá íslandsmeti sínu.
Arnþór synti á fostudag 200 metra bringusund og kom í mark á tíman-
um 2:26,65. Ragnar Guðmundsson og Magnús Ólafsson tóku þátt í 200
metra skriðsundi. Ragnar synti á 4:05,42 mínútum en Magnús varö síð-
astur í sundinu á tímanum 4:10,51 mínútur.
Enginn íslensku sundmannanna komst áfram í 16 manna úrslit og eru
það nokkur vonbrigði. Helga Sigurðardóttir hefur staðið sig einna best
og hún hefur náð að bæta sig í öllum sundum sínum. Hinir keppendurn-
ir hafa hins vegar ekki náð að bæta sig og allir verið nokkuð frá sínu
besta.
-RR
Bikarkeppni FRÍ - 2. deild:
Eyfirðingar urðu
hlutskarpastir
í annarri deildinni
- keppa í 1. deild að ári
Eyfirðingar urðu sigurvegarar í 2. deild bikarkeppni Frjáls-
íþróttasambands íslands sem lauk á Akureyri í gær.
Eyfirðingar hlutu 150 stig eða 8 stigum meira en Skagfirðing-
ar sem höfnuðu í ööru sæti á samanlagt 142 stigum.
Eyfirðingar og Skagfirðingar komast þar með upp í 1. deild og munu
keppa þar á næsta ári.
Armenningar urðu í þriðja sæti á mótinu og KR-ingar í því fjórða.
Borgnesingar og Ungmennafélagið Úlfljótur urðu í botnsætunum og
falla því í 3. deild.
-RR
Iþróttir
Veióimenn eru ótrulega hressir þessa dagana. Veiðin mætti þó vissulega vera miklu betri en stórir og vaen-
ir Iaxar kæta veiðimennina. DV-mynd G.Bender
Staðan á veiðitoppnum í gærkvöldi:
Laxá í Kjós verður vart
skákað úr toppsætinu
- veiðitölur úr 13 efstu veiðiánum
„Veiðin var í lagi en ekki meira en
það. Ég og Aöalsteinn Pétursson
fengum 28 laxa á stöngina og allt
hollið veiddi 145 laxa. Þaö er ekki
mikíð af laxi í Laxá í Dölum," sagði
hinn þekkti veiðimaður, Þórarinn
Sigþórsson tannlæknir í gærdag.
Hann var við veiðar í Laxá í Dölum
fyrir fáum dögum.
Laxá í Dölum hefur aðems gefið
700 laxa í sumar og annað hoh ís-
lenskra veiðimanna, sem fór í ána,
veiddi 61 lax. Við veiðar í Laxá eru
Patreksfirðingar og þeir eiga ör-
ugglega eftir að fá nokkra laxa því
þeir þekkja ána vel. Laxá í Dölum
var önnur besta veiðiáin í fyrra en
kemst varla inn á listann yfir þær
besm núna. Það er af sem áður
var. En það koma betri dagar og tíö.
Laxá í Kjós er ennþá efst og hefur
gefið 1720 laxa, veiðin á dag er
kringum 25 laxar, veiðast fiskamir
umahaá.
Laxá í Aðaldal kemur næst og
hefur gefiö 1430 laxa, reytingsveiði
hefur verið í ánni.
Þverá og Kjarrá í Borgarfirði hafa
gefiö 1220 laxa, fyrsta holl eftir út-
lendinga veiddi 50 laxa og sá stærsti
úr ánum er 22 pund.
Elliðaárnar eru ágætar þessa
dagana og hafa gefiö 1100 laxa, sá
stærsti er 16,5 pund. Eitthvað er
ennþá að ganga af fiski í ána og
flugan gefur vel þessa dagana.
Miðfjaröará í Húnavatssýslu er í
1000 löxum og hann er 23 punda sá
stærsti, veiðimenn hafa verið í
reytingsveiði í ánni, en ein og ein
stöng hefur veitt betur en aðrar.
Sverrir Kristinsson og félagar voru
fyrir fáum dögum, fengu þeir 16
laxa á eina stöng, þótti þaö gott
Grímsá í Borgarfirði hefúr gefið
950 laxa og hefúr veiðin verið slark-
fær, sumir hafa veitt þokkalega,
aðrir minna og sumir ekki neitt
Laxá í Leirársveit hefur gefiö 930
laxa og laxarnir eru dreifðir um
aha á, mest þó ofarlega í henni.
Norðurá í Borgarfirði hefur gefiö
910 laxa og styttist í lokin í henhi
eins og Þverá/Kjarrá, Laxá á Ásum
og Laxá í Aöaldal.
Næstar koma þrjár veiðiár jafnar
með 720 laxa, Víðidalsá í Húna-
vatnssýslu, Laxá í Dölum og Selá í
Vopnafirði. Víðidalsá hefur eitt
umfram þessar þijár, þar hefur sá
stærsti veiðst í sumar, 26 punda
bolti.
Svo komar jafnar Laxá á Ásura
og Hofsá í Vopnafirði með 660 laxa
báðar, en Laxá á Ásum hefur vinn-
inginn því aðeins er veitt á tvær
stangir í henni
En veiðin er ekki eins og veiði-
menn áttu von á, fáir laxar og sum-
ir mjög smáir. Vonin þessa dagana
er að fiskurinn komi í höfuð-
straumnum, því laxar hafa víða
sést fyrir utan veiðiárnar. En ég
segi nú bara eins og veiöimaðurinn
um daginn „það verður erfitt að
plata mann í dýra veiðitúra næsta
sumar“ og svo eftir smástund „og
þó, lætur maður ekki ahtaf plata
sig,“.Eða er komið nóg?
G.Bender
Vigfús Orrason sleppir 22 punda laxinum i Hvammsvikinni.
DV-mynd ÓS
„Rétt fyrir helgi slepptum við einurn 22
punda laxi og við vonum að hann taki hjá
veiðimönnum næstu daga,“ sagði Ólafur
Skúlason, framkvæmdastjóri Laxalóns, í
gærdag, en sá stóri er kominn i vatniö og
kannski tekur hann hjá veiðimönnum á
næstu mínútum, við skulum vona það. „
Við erum búnir að sleppa yfir hundrað
löxum og þessi 22 punda er sá stærsti,
10-15 laxar hafa veiðst núna,“ sagði Ólafur
ennfremur.
G.Bender
Veiðimenn:
Eiga von
á þeim
stóra