Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 30
18
30
Iþróttir
Sport-
stúfar
Dómarinn fær
sprengjuhótanir
Hermundur Sigmundason, DV, Noregi;
* Einari Halle, rúm-
lega fertugum knatt-
//• spymudómara hér í
hótað lííláti. Halle hefur fengið
sprengjuhótanir upp á síðkast-
ið og bæöi hann og lögreglan
hafa tekið þetta mjög alvarlega,
eins og skiijanlegt er. Halle er
mjög hræddur um fjölskyldu
sína og lögreglan vaktar hús
hans allan sólarhringinn.
Þannig er mál með vexti aö á
dögunum dæmdi þessi ágæti
dómari, sem hefur oft dæmt á
alþjóðlegum vettvangi, leik
Mjölner og Lilleström. Halle
tók að því er virtist augljósa
vítaspymu af Mjölner og allt
varð vitlaust á vellinum. Þegar
Lilleström skoraði síðan sigur-
mark leiksins skömmu fyrir
leikslok sauö upp úr og vildu
stuðningsmenn Mjölner kenna
dómaranum um ósigurinn.
Lögreglan er nokkuð viss um
að einhveijir ósvífnir stuön-
ingsmenn Mjölner hafi sent
sprengjuhótanimar. Sjálfur
segist Halle ætla að leggja flaut-
una á hilluna að sinni óg taka
sér frí frá dómgæslunni. Hann
segist meta líf fjölskyldunnar
meira virði en dómgæsluna
sem er bara áhugamál hjá hon-
um.
Norðmenn ætla að græða
Eins og kunnugt er munu vetrar-
ólympíuleikamir 1994 fara fram
í Lillehammer í Noregi. Norð-
menn eru byijaðir af fullum
krafti að undirbúa leikana og
mikill hugur er í mönnum.
Norska ólympíunefndin er í skýj-
unum þessa dagana en það hefur
verið gert opinbert að nefndin
fær einkarétt á sölu á öilum hlut-
um þar sem ólympíutáknin eru
auglýst á. Talið er að þetta muni
gefa norsku ólympíunefndinni
alls 80 milljónir norskra króna í
aðra hönd en það eru hvorki
meira né minna en 640 milijónir
ísl. kr. Það er kannski ekki skrit-
iö þó að Norðmenn séu í himna-
skapi þessa dagana.
Maradona enn í fríi
“771 Diego Maradona,
knattspymustjarnan
'' • argentínska, sem
leikur með Napoli á
ítalíu, virðist ekki ætla að
koma aftur úr sumarMinu.
Ekkert hefur spurst til Mara-
dona síöan hann fór heim til
Argentínu í sumarfrí. Forráöa-
menn Napoli eru ævareiðir og
segja aö Maradona hafi lofað
að koma í síðustu viku. Æfing-
ar eru byrjaðar af fullum krafti
á Ítalíu og núna standa einmitt
erfiöar þrekæfinga yfir. Mara-
dona liggur í leti og hvflir sig
heima í Argentínu en það er
augljóslega ekki liðið á ítalíu,
jafnvel þó maðurinn heiti
Maradona. Forráðamenn Na-
poli hafa hótað því að verði
stjaman ekki komin til Ítalíu á
morgun verði dregið verulega
af launum hans. Það er spurn-
ing hvort það verður nóg til að
vekja kappann tfl lífsins.
UBKvann þrefaltá
Gull og silfur-mótinu
Gull og silfúr-móti 3.
og 4. flokks kvenna
lauk í Kópavogi í
gær. Breiðabliks-
stúlkumar sigmðu bæði i A-
og B-liðum 3. flokks og einnig
í B-liði 4. flokks.
*
Þorvaldur æfir
með Forest
Víðir Sgurðeson, DV, Salzburg:
Þorvaldur Örlygsson, leikmaður
úr KA, fór um helgina til æfinga
hjá enska stórliðinu Nottingham
Forest Hann mun dvelja þar í
rúma viku við æfingar.
Síðasta vetur stóð til að Þorvald-
ur færi til Forest eftir áramótin, en
úr varð að hann fór í staðinn til
‘vestur-þýska 3. deildar félagsins
Paderborn-Neuhaus og lék þar til
vorsins.
Þorvaldur neitaói
landsliðssæti
Þegar ljóst varð á föstudaginn að
Atli Eðvaldsson fyrirliði gæti ekki
farið meö íslenska landsliöinu til
Salzburg var haft samband viö Þor-
vald.
Hann neitaði hins vegar að fara
með landsliðinu vegna ferðarinnar
til Englands. Þá var Þorsteinn Þor-
steinsson úr Fram næstur, en hann
gaf ekki kost á sér vegna prófa við
Háskóla íslands.
Gunnar Oddsson
með tilSalzburg
Úr varð aö Gunnar Oddsson,
Keflvíkingurinn úr KR, var kallað-
ur í landsliðshópinn í fyrsta skipti
og fór hann utan með liöinu í gær.
Gunnar hefur venjulega leikið sem
tengiliöur, en í sumar hefur hann
verið aftasti maður í vöm KR með
góðum árangri
Hinn kunni breski knattspyrnuþjálfari og íslandsvinur, George Kirby, var hér á landi á dögunum í þeim tilgangi
að skóla unglinga í knattspyrnu annars vegar og til að anda að sér hreina loftinu hins vegar, að eigin sögn. Hann
kvað mikinn áhuga á knattspyrnu á landinu og góðan efnivið. Kirby, sem er ásamt Haraldi Sturlaugssyni og Lár-
usi Loftssyni á myndinni að ofan, var þjálfari á Skaganum fyrir fáeinum árum og gerði þá lið Akurnesinga nánast
að óvígum her. DV-mynd Hson
Handknattleikur:
HM unglinga á Islandi 1993?
- „góður undirbúningur fyrir A-mótið,“ segir Jón Hjaltalin
Víðir Sigurðsson, DV, Salzburg:
Á sambandsstjórnarfundi HSÍ á
laugardaginn var samþykkt að sækja
um að ísland fengi að halda heims-
meistarakeppni unglinga, 21-árs og
yngri, í handknattleik árið 1993.
„Það yrði mjög mikilvægt fyrir
okkur að fá keppnina árið 1993, ekki
síst vegna þess að við höldum A-
heimsmeistarakeppnina tveimur
árum síðar. Þetta yrði góður undir-
búningur fyrir þann mikla viðburð,“
sagði Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður HSÍ, í samtali við DV í gær.
HM stúlkna hér árið 1997?
Á fundinum var ennfremur ákveðið
að stefna aö því að heimsmeistara-
keppni stúlkna, 20 ára og yngri, verði
haldin hér á landi árið 1997.
„Við höfum markað þá stefnu að
sinna handknattleik kvenna meira á
næstu árum en hingað til. Áhersla
verður lögð á handboltaskóla yngri
stúlkna og síðan stúlknalandslið,
meö það að markmiði aö eiga sterkt
20 ára lið árið 1997. Á meðan verða
A-liði kvenna jafnframt útveguð
verkefni við hæfi,“ sagði Jón Hjalta-
lín.
Jón var samferða knattspyrnu-
landsliðinu til Austurríkis í gær en
hann er þar í einkaerindum. í leið-
inni mun hann ræða við forseta Al-
þjóða handknattleikssambandsins,
sem er austurrískur, og jafnframt
heimsækja forkólfa Adidas í Vestur-
Þýskalandi. Hann stefnir jafnframt
að því að vera meðal áhorfenda á
knattspyrnulandsleik Austurríks og
íslands í Salzburg á miðvikudaginn.
Áfall hjá íslenska landsliðínu:
Óvíst um Sigga Grétars
- er meiddur og óvíst að hann leiki gegn Austurríki
Víðir Sigurösson, dv, Saizburg: vikudaginn. Hann fer til læknis í dag og þá kemur
— ------------------- Sigurður meiddist á æfingu með í ljós hvort hann kemur til móts við
Ovíst er að Sigurður Grétarsson félagi sínu, Luzem f Sviss, á fóstu- íslenska landsliðið í Salzburg.
geti leikið landsleikinn mikilvæga daginn, og gat ekki leikið með því í
gegn Austurríkismönn um á mið- þarlendu 1. deildinni um helgina.
Wíl ";Oí)V if 'U-O/fl'JMM
MÁNUDAGUR 2Í. ÁGÚST‘l989.
Afreksmannasjóður:
HSÍ vill
virkari
stefnu
Víðir Sigurðsson, DV, Salzburg:
Handknattleikssamband íslands
ákvað á laugardaginn að boða til ráð-
stefnu um virka afreksstefnu í íþrótt-
um.
„Afreksmannasjóður ÍSÍ veitir í ár
aðeins 2,4 mflljónum króna til
íþróttamanna, og þar af hefur HSÍ
fengið eina milljón. Heildarkostnað-
ur HSÍ við heimsmeistarakeppnia í
Tékkóslóvakíu á næsta ári er um 20
milljónir þannig að þetta hefur lítið
að segja. Okkur vantar virka afreks-
mannastefnu til að styðja við bakið
á okkar besta íþróttafólki," sagði Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ,
í samtali við DV í gær.
Ísland-Austurríki:
Held
kom í
einkaþotu
Víðir Sigurðsson, DV, Salzburg:
Sigfried Held, landsliösþjálfari ís-
lands, kom til móts viö landsliðið í
morgun.
Hann kom í nótt með einkaþotu frá
Jógóslavíu, en sem kunnugt er þjálf-
ar hann þar 1. deildar félagið Galat-
asaray.
Held var um helgina að „njósna“
um fyrstu mótherja Galatasaray í
Evópukeppninni.
Flaug hann beint úr þeirri ferð til
Austurríkis.
Hann átti síðan að stjórna fyrstu
æfingu íslenska landsliðsins í Salz-
burg í morgun, klukkan 10 að staðar-
tíma.
ísland - Austurríki:
Lítill
hópur í
Saltborg
Víðir Sigurðsson, DV, Salzburg:
Það var þunnskipaður hópur sem
fór frá íslandi til Áusturríkis í gær
vegna landsleiksins í Salzburg á miö-
vikudaginn.
Aðeins fimm leikmenn fóru frá ís-
landi, en hins vegar sex úr farar-
stjórn.
Utan í gær fóru markverðirnir
Bjarni Sigurðsson, Guðmundur
Hreiðarsson þá Gunnar Oddsson,
Rúnar Kristinsson og Sævar Jóns-
son, Guðni Bergsson, Sigurður Jóns-
son og Guðmundur Torfason eru
væntanlegir frá Bretlandi í dag. Þeir
töfðust vegna verkfallsaðgerða í
Bretlandi. Það voru því aðeins fimm
leikmenn á fyrstu æfingunni í Salz-
burg, sem hófst kl. 8 að íslenskum
tíma í morgun.
Um hádegisbilið í dag voru leik-
mennirnir frá Norðurlöndum vænt-
anlegir, þeir Gunnar Gíslason, Ágúst
Már Jónsson og Ólafur Þórðarson.
Síðdegis í dag mæta síðan Framar-
arnir til leiks, þeir Ómar Torfason,
Viðar Þorkelsson, Ragnar Margeirs-
son og Pétur Arnþórsson.
Þá var óljóst hvað yrði um Sigurð
Grétarsson sem á við meiðsli að
stríöa.