Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 21
MÁNUJ)AGUR 21. ÁGÚST 1989.
21
Úrvalsdeildin í Skotlandi:
Guðmundur og félagar
töpuðu á heimavelli
- Guömundur Torfason fekk slæma útreiö gegn
„Ég hef aldrei fengiö svona slæma
meðferp í einum og sama leiknum.
Einn af vamarmönnum Hearts,
Dave McPherson, hugsaði einungis
um það að sparka mig niður og hann
kom varla nálægt boltanum. Ég er
allur bólginn á löppunum en ég held
að það sé samt ekkert mjög alvar-
legt. Ég er eiginlega hissa á að hafa
sloppið lifandi frá þessum leik-
manni,“ sagði Guðmundur Torfason,
leikmaður hjá St. Mirren, en lið hans
tapaði, 1-2, á laugardag fyrir Hearts
í skosku úrvalsdeildinni.
„Þetta var ekki nógu gott hjá okk-
ur. Við eigum að geta unnið þetta
Hearts-lið án mikilla erfiðleika en
það gekk ekkert upp hjá okkur á
laugardaginn. Það var sárt að tapa á
heimavelli þar sem við vorum búnir
að vinna tvo fyrstu útileikina,” sagði
Guðmundur en hann átti ágætan leik
með liði sínu.
Hearts náði að skora tvö mörk í
byijun leiksins en um miðjan síðari
hálfleik náði vamarmaðurinn Peter
Godfrey að minnka muninn fyrir St.
Mirren. Undir lokin sótti St. Mirren
stíft að marki Edinborgarliðsins en
án árangurs. Guðmundur átti hörku-
skalla sem markvörður Hearts náði
að veija mjög vel.
St. Mirren á leik gegn Motherwell
á miðvikudagskvöld en þá fær Guð-
mundur frí hjá liðinu til að leika með
íslenska landsliðinu gegn Austurríki
í Salzburg.
Rangerstapaði aftur
Hið stjömum prýdda lið Glasgow
Rangers beiö annan ósigur sinn í
jafnmörgum leikjum er liðið fór til
Edinborgar og lék þar gegn Hibem-
ian. Rangers mátti þola 0-2 tap og
gat sá ósigur orðið enn stærri. Gra-
eme Souness keypti á dögunum ísra-
elska landsliðsmarkvörðinn, Bonni
Ginzburg fyrir 300 þúsund pund.
Ginzburg átti mjög slakan leik og
átti sök á báðum mörkum Hibs og
þá sérstaklega því síðara þegar hann
missti knöttinn fyrir fætur Keith
Houchen sem skoraði auðveldlega.
Houchen, sem áður lék með Co-
Hearts
ventry, gerði einnig fyrra mark Hibs
í leiknum.
Celtie hefur byrjað mun betur en
erkifjendumir. Á laugardag vann
Celtic nauman sigur á nýliðunum,
Dunfermline, 1-0. Mike Galloway
skoraði eina mark leiksins í síðari
hálfleik.
Aðalleikur dagsins var nágranna-
slagur Dundee-liðanna. Dundee vann
þá Dundee United, 4-3, í æsispennadi
leik. Dundee United komst í 0-2 í
byijun leiksins með mörkum frá
Gallacher og Pantalinen. Keith
Wright var hins vegar hetja Dundee
en hann skoraði öll fjögur mörk liðs-
ins.
-RR
Norska knattspyman:
Brann komið
í f immta sæti
- Olafur var í leikbanni rnn helgina
Hermimdur Sigmundsson, DV, Noregi:
Brann, lið þeirra bræðra Ólafs og
Teits Þórðarsonar, gerði jafntefli,
2-2, gegn Sogndal í norsku 1. deild-
inni í gærkvöldi.
Brann lék mjög vel í fyrri hálfleikn-
um og komst fljótlega í 2-0 og þannig
var staðan í leikhléi. í síðari hálf-
leiknum tókst liði Sogndai að jafna
metin í 2-2 eftir þunga sókn að marki
Brann.
Ólafurtókút
leikbann
Ólafur lék ekki með Brann í gær þar
sem hann er í leikbanni vegna
margra gulra spjalda. Ólafur hefur
leikið vel með liði sínu í tveimur síð-
ustu leikjum á undan og fékk fyrir
skemmstu næsthæstu einkunn í einu
norsku dagblaðanna.
Brann er komið í 5. sæti norsku 1.
deildarinnar og hðið er nú í barátt-
unni um Evrópusæti. Það eru ár og
dagar síðan Brann hefur gengið
svona vel og greinilegt að Teitur
Þórðarson er að gera mjög góða hluti
með liðið.
Rosenborg
vannTromsö
Önnur úrslit í norsku 1. deildinni um
helgina voru þau að Rosenborg vann
Tromsö, 2-1, í mikilvægum leik í
toppbaráttunni. Lállestræm sigraði
Kongsvinger, 1-0, Molde vann Vik-
ing, 2-0 og loks sigraði Start Mjölne,
2-1.
• Teitur Þórðarson er þjálfari hjá Brann og er að gera góða hluti með
liðið. Brann er nú í 5. sæti norsku 1. deildarinnar.
íþróttir
Frakkland:
Bordeaux
á toppnum
Bordeaux heldur tveggja stiga
forystu í frönsku 1. deildinni eftir
1- 0 sigur á heimavelli gegn St.
Etienne um heigina. Holiending-
urinn Piet Den Boer skoraöi eina
markið seint í síðari hálfleik og
þaö reyndist nyög dýrmætt sigur-
mark. Bordeaux hefur unnið 5
leiki af sex og er á toppnum með
11 stig.
Marseille vann 2-0 sigur á
Montpellier og eru meistararnir
í 2.-3. sæti ásamt Paris St. Germa-
in en þessi lið hafa 9 stig. Mar-
seUle lék mjög vel gegn Mont-
pellier og Franck Sauzee og Car-
los Mozer gerðu mörkin.
Paris St. Germain vann Liile
2- 1. Jean-Francois Charbonnier
og Júgóslavinn Safet Susic skor-
uöu tvívegis í fýrri hálfleik fyrir
Parísarliðið en Gaston Mobasti,
landsliðsmaður frá Zaire, minnk-
aði rauninn fyrir Iille í síðari
hálfleik.
Nantes og Nice gerðu 2-2 jaöi-
tefli í spennandi leik. Nantes náði
að jafiia á síðustu 10 mfnútum
leiksins með mörkum fiá Joel
Henry og Dragan Jacovljevic.
Nice leikmanninum Frederic Gi-
oria var vikið af leikvelli óg var
það 10 rauöa spjaldið sem er á
lofti í sex umferðum í 1. deildinni
í Frakklandi
-RR
Jafnt hjá
Luzern
Luzern, liö Sigurðar Grétars-
son, gerði enn eitt jafnteflið í
svissnesku 1. deildinni ura heig-
ina. Luzem gerði nú 2-2 jafntefli
við Lugano á heimavelli
-RR
Bayem Munchen sigraði
Eintracht Frankfurt á útivelli,
0-1, í vestur-þýsku bikarkeppn-
inni á laugardag. Bayem fer því
áfram í 2. rnnferð.
-RR
Anderlecht náði aðeins
jafntefli í Antwerpen
- Amór lék með varaliðinu um helgina
Kns$án Bemburg, DV, Beigíu:
Amór Guðjohnsen lék með vara-
liöi Anderlecht um helgina en það
var í fyrsta skipti sem Araór leikur
eftir langvarandi meiðsli. Arnór
lék fyrri hálfleikinn og stóð sig
ágætlega en var tekinn af velli í
hálfleik þar sem þjálfari liðsins
vildi ekki taka neina áhættu með
Arnór.
„Ég fann mig mjög vel og það eina
sem vantar er úthald. Það kemur
án efa straxog ég fer að æfa af full-
um krafti. Ég vonast tO að komast
í toppform á næstu vikum og ég
mun sennilega spila heilan leik
með varaiiðinu í vikunni,“ sagöi
Amór, 1 stuttu spjalli eftir leikinn
á laugardag.
Aðallið Anderlecht lék um helg-
ina og mátti sætta sig við 2-2 jafn-
tefli gegn Antwerpen. Anderlecht,
með margar stórstjömur innan-
borðs, réð gangi leiksins lengst af
og korast tvívegis yfir. Belgíski
landsliðsmaðurinn Nilis kom And-
erlecht yflr en Lehnhoffjafhaði fyr-
ir leikhlé. 15 þúsund áhorfendur
sáu 5 gul spjöld á lofti í höröum og
spennandi síöari hálfieik þar sem
allt var lagt í söluraar. Anderlecht
komst aftur yfir þegar Van der
Linden skoraöi eftir sendingu frá
Finnanum Ukkonen. Skömmu síð-
ar fékk Antwerpen vítaspymu er
Grtin handlék boltann innan víta-
teigs en Van Roij skaut i slána úr
vítinu. Á siðustu raínútunni náði
Curcic aö jafna við mikinn fögnuð
heimamanna.
Meistaramir KV Mechelen vora
heppnir að vinna 1-0 sigur á Eker-
en. Preuthomme átti stórleik i
marki Mechelen og varði oft glæsi-
lega. Þegar 4 mínútur vora til leiks-
loka náði Emmers aö tryggia KV
Mechelen sigurinn.
FC Liege, andstæðingar Skaga-
manna í Evrópukeppninni, lékn
mjög vel um helgina og unnu St.
Truden, 2-0. Bæði raörkin vora
skorað í fyrri hálfleik.
Önnur úrslit urðu þau Genk vann
Charieroi, 3-1, Lokeren sigraði
RAC Mechelen, 4-3, Standard vann
stórsigur á Lierse, 4-0, Waregem
vann Cercle Bragge,' 2-1, Club
Bragge og Kortrijk gerðu 1-1 jafii-
tefli og Beveren og Beerschot gerðu
0-0 jaöitefli.
íþróttafélagið Gerpla
Fimleikadeild - Innritun
Áhugahópar - Baðverðir
Innritun fimleikadeildar Gerpiu er hafin og stendur til
1. september.
Tekið á móti innritunarbeiðnum og upplýsingar veittar
kl. 14-20 alla virka daga í símum 74925 og 74907.
Fimleikar fyrir stúlkur og drengi, leikfimi fyrir fuilorðna.
Stundaskrár verða afhentar mánudaginn 4. september
samkvæmt nánari auglýsingu síðar.
Foreldrum er sérstaklega bent á hentuga morguntíma
fyrir unga byrjendur.
Tekið verður á móti beiðnum um leigu á íþróttasal
Gerplu að Skemmuvegi 6 á sama tíma og innritunar-
beiðnum.
Gerpla óskar eftir að ráða baðverði um kvöld og helgar
í vetur. Upplýsingar í símum 74925 og 74907 milli kl.
16 og 20 næstu daga. Umsóknir berist í síðasta lagi
25. þ.m. á skrifstofu félagsins að Skemmuvegi 6, Kópa-
vogi, á ofangreindum tíma.
Geymið auglýsinguna.