Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989.
Fréttir
Sextug kona dæmd í Sakadómi:
Hafði tvær íbúðir og
milljón af gamaimenni
- nýtti sér ellisljóleika, einmanaleika og ósjálfstæði
1 Sakadomi Reykjavikur hefur
veriö kveöimr upp dómur \Tir sex-
tugn konu. Konan var dæmd til
fimm mánaöa fangelsisvistar. Þar
sem konan haföi ekki áöur gerst
sek um brot' á hegningarlögum
þótti dómaranum ástæöa til aö
fresta refsingunni og fella hana
niður eftir þrjú ár brjóti konan
ekki af sér á þeim tima.
Konan var dæmd fyrir aö hafa
n\Tt sér ellisljóleika. einmanáleika
og ósjálfstæöi gamals manns og
fengiö til' sín með þeim hætti tvær
íbúðir. um eina milijón í peningum
og fengið hann til að arfleiða sig
af einum þriöja eigna sinna eftir
sinn dag.
Efnislega samhijóma álit sér-
fræðinga var á þá leið aö gamli
maðurinn heföi ekki getað gert sér
grein f\Tir hvað hann var að gera
þegar hann undirskrifaði tvo kaup-
samninga. færði peninga á milli
bankareikninga og undirritaði nýja
eifðaskrá.
Nær engin samskipti í 40 ár
Maðurinn giftist móður konunn-
ar árið 1933. Þau skiidu árið 1947.
Eftir skilnaðinn höfðu konan og
maðurinn nær engin samskipti.
Þau kynntust á ný rétt um fjörutíu
árum síðar. Eftir að þau endurnýj-
uðu kynni sín varð samgangur
milli þeirra mikill. Gamli maður-
inn hafði gifst aftur en hafði verið
ekkjumaður í um áratug er hann
og konan endurnýjuðu kynni sín.
Eina dóttur átti maðurinn en hún
fæddist f\TÍr f>Tra hjónaband hans.
íbúðirnar tvær eru í sama húsi.
Gerðir voru tveir kaupsamningar.
Konan var kaupandi á öðrum og
dótturdóttir hennar á hinum. Það
sem .dótturdóttirin hafði greitt
vegna kaupanna rann til ömmu
hennar. Samkvæmt mati tveggja
fasteignasala var söluverð íbúð-
anna talsvert lægra en eðlilegt gat
talist og greiðslufyrirkomulag
óvenjulegt. Auk þess komu engar
greiðslur fyrir íbúðirnar. Kaup-
samningarnir voru báðir dagsettir
5. júní 1986.
26. maí 1986 fékk konan gamla
manninn til að færa innstæður af
bankareikningum sínum yíir á
reikninga sem voru hennar eign. í
Landsbankanum við Langholtsveg
voru færðar 394.104,62 krónur af
bankabók mannsins yfir á banka-
bók konunnar. í Samvinnubankan-
um voru færðar 36.973,89 af bók
mannsins yfir á bók konunnar. 30.
maí voru færðar 489.719,42 af
bankabók á nafni mágkonu manns-
ins, en hún var búsett í Bandaríkj-
unum, yfir á bók konunnar í
Landsbankanum. 8. mai tók konan
alla innstæðuna út af bók sinni í
Landsbankanum.
2. júní fór konan með gamla
manninn með sér á skrifstofu borg-
arfógetaembættisins þar sem gerð
var ný erfðaskrá. Samkvæmt
henni átti konan að erfa einn þriðja
hluta eigna gamla mannsins.
Mundi ekkert
Konan hefur stöðugt haldið því
fram að gamli maðurinn haíi átt
frumkvæði að gerð kaupsamning-
anna og eins hafi það verið hans
vilji og alfarið hans verk að færa
innstæður úr bankabókunum yfir
á hennar bækur og að hann hafi
viljað gera nýja erfðaskrá. Við yfir-
heyrslur hefur gamli maðurinn
nánast ekkert munað. Konan hefur
áfrýjað dómi Sakadóms til Hæsta-
réttar.
Bróðir gamla mannsins hefur
sagt að í ágúst 1986 hafi gamli mað-
urinn haft samband við sig og sagst
hafa gert vitleysu. Hann sagðist
hafa ráðstafað eignum sínum án
þess að vita hvað hann væri að
gera. Annar bróðir gamla manns-
ins var nýlátinn er kynni konunn-
ar og mannsins hófust á ný. Gamli
maðurinn hafði treyst mikið á hinn
nýlátna bróður sinn. í niðurstöðu
dómsins segir að það þyki sannað
að konan haíi notað sér eUisljó-
leika, einmanaleika og ósjálfstæði
mannsins.
Dóminn kvað upp Helgi I. Jóns-
son sakadómari.
-sme
Júlíus Sólnes um stjómarþátttöku:
Margir okkar
flokksmanna vilja
kosningar
ákveðnar tillögur og hugmyndir í
vor, um breytta efnahagsstefnu og
önnur mál sem við vildum taka
öðruvísi á en gert hefur verið, en
ekki fengið nein svör.“
- Hafa nýjar tillögur í ríkisstjóm-
inni einhver áhrif á vilja ykkar til
stjórnarþátttöku?
„Við bíðum alltaf eftir svari við
okkar hugmyndum. Þegar það
kemur tökum við á þessum spum-
ingum. Ef menn hafa eitthvert til-
boð til okkar í erminni verða þeir
að koma með þaö. Við höfum ekki
fengiö neitt tilboð undanfarið.
Annars em margir í okkar flokki
á þeirri skoðun að kosningar séu
æskilegastar úr því sem komiö er
og eins íinnst mér ansi mikið kosn-
ingahljóð í sumum stjómarsinn-
um.“ -hlh
„Við höfum tekið þátt í málef-
naumræðu í sumar og stundum
hefur mér virst að þetta væri eins
og að vera í málfundafélagi. Þetta
er eins og að nokkrir áhugamenn
um velferð íslensku þjóðarinnar
hafi verið að ræða um hin ýmsu
vandamál á málfundi, velt fyrir sér
hugmyndum og lausnum á þeim.
Þannig hef ég htið á þetta. Þetta
hefur reyndar veriö ágætis tímabil
fyrir okkur því við sitjum nú uppi
með mjög góðan málefnagrundvöll
sem þróast hefur í gegnum þessar
málfundaumræður," sagði Júlíus
Sólnes, formaður Borgaraflokks-
ins, í samtali viö DV.
„Annars höfum við aldrei haft
áhyggjur af þeim þætti mála hvort
við yrðum þátttakendur í stjóm
eða ekki. Við settum bara fram
Þorsteinn Pálsson:
Kosið verði
fyrir þingbyrjun
„Ríkissfjómin gaf útflutningsat-
vinnuvegunum skýr fyrirheit í
tengslum við kjarasamningana í
vor um aö rekstrargrundvellinum
yrði komið í viðunandi horf og þaö
er víðsfjarri að því marki hafi verið
náð. Forsætisráðherra getur ekki
stungið höfðinu í sandinn vegna
þess máls. Eins var lofaö aö endur-
skoða kjarasamninga launþega-
hreyfmganna reglulega. Vandi rík-
isstjómarinnar er meðal annars sá
að hún gaf misvísandi loforð eftir
því við hvem var rætt. Það er ekki
hægt að leysa svoleiöis hnút nema
ríkisstjómin fari frá,“ sagði Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæöisflokksins, viö DV um gengis-
fellingarkröfur þær sem komið
hafa fram af hálfu formanns
Vinnuveitendasambandsins.
„Við settum fram kröfu í vor um
að gengið yrði úl kosninga áður en
þing kæmi saman í haust svo hægt
yrði að mynda nýja ríkisstjórn fyr-
ir upphaf þingstarfa. Sú krafa
stendur enn. Ábyrgð þeirra manna
sem tefja tímann er mikil. Þeir
koma í veg fyrir að ákveðin séu ný
valdahlutfoll og mynduð sé ný rík-
isstjóm. Þráseta ríkisstjómarinnar
tefur fyrir því að spilin séu stokkuö
upp á nýtt.“
-hlh
Eins og sjá má eru ,,túttubyssurnar“ engar venjulegar teygjubyssur. Þessi, sem lögregluþjónn heldur á, hefur til
dæmis sex hlaup. DV-mynd S
Hafnarfj arðarlögreglan:
Hefur lagt hald á
tugi „túttubyssa“
Byssurnar sem lögreglan lagöi hald á I gær - alls fimmtán byssur. „Þaö
er auðséð hvert fyrirmyndin er sótt,“ sagöi einn lögregluþjónanna.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur upp
á síðkastið lagt hald á tugi svokall-
aðra túttubyssa - bæði í Hafnarfirði
og Garðabæ. Hópur krakka, flestir á
aldrinum 10 til 12 ára, voru með slík-
ar byssur í Garðabæ í gær.
Þegar lögreglan kom á vettvang
höfðu krakkamir skotið á bíl og
skemmt hann talsvert.
Lögreglan segist ekki áður hafa
orðið vör við skemmdir vegna þessa
vafasama leiks krakkanna.
„Þetta getur verið stórhættulegt.
Ef hörðum hlutum er skotið úr þess-
um byssum af stuttu færi er eflaust
hægt að skaða fólk, ég tala ekki um
ef það sem skotiö er úr þessu fer í
augu fólks. Við höfum gmn um að
krakkamir skjóti mest smásteinum
úr þessum byssum,“ sagði lögreglu-
þjónn í Hafnarfirði.
•sme