Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989. ■ F *• 4 VESTUR ÞÝSK ÚRVALSVARA 400 ltr./MÍN. 2,2 KW • 40 og 90 hr. kútur • TURBO KÆLING/ÞRYSTI - JAFNARI • ÖFLUGUSTU EINS FASA PRESSURNAR Á MARKADNUM GREIÐSLUKJÖR MARKADSÞJÓNUSTAN j Skipholti 19 3.hæð | (fyrir ofan Radíóbúðina) ■ sími; 2 6911 m Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Jörundarholti 230, þingl. eigandi Guð- brandur Þorvaldsson, fer fram á eign- inni sjálfri föstud. 25. ágúst ’89 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur eru Stein- grímur Ejríksson hdl., Landsbanki ís- lands, Útvegsbanki íslands, Lög- mannsstofan Kirkjubraut 11, Veð- deild Landsbanka Islands og Akranes- kaupstaður. Prestahúsabraut 24, þingl. eig. Jóhann Haraldsson, Fjóla Hannibals, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. ágúst ’89 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru Brunabótafélag íslands, Akranes- kaupstaður, Gjaldskil sf. og Baldur Guðlaugsson hrl. Suðurgötu 65 (4. hæð), þingl. eigandi Óttar Einarsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 25. ágúst ’89 kl. 14.00. Úppboðsbeiðendur eru Akraneskaup- staður, Tryggingastofhun ríkisins, Hjalti Steinþórsson hdl. og Veðdeild Landsbanka Islands. BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI Fréttir Málmfríður Sigurðardóttir, Kvennalista: Virðisaukaskattur varla réttlátari en söluskattur „Það er af því góða að ákveðið hef- ur verið að leggja fram fjáraukalög í byrjun þings. Þinginu gefst þá kost- ur á aö fjalla um þær. Að vísu segir Ólafur Ragnar að þessu fé hafi ekki veriö eytt en það getur ekki verið rétt. Það hlýtur að vera búið að eyða sumu af því, til dæmis varðandi nið- urgreiðslur og uppbætur tú ellilíf- eyrisþega sem ákvarðanir hafa þegar verið teknar um,“ sagði Málmfriður Sigurðardóttir, þingmaður Kvenna- lista, við DV. „Varasjóðir ráðuneytanna eru í rétta átt. Það fé sem hefur þurft hing- að til er þá inni í myndinni gagn- stætt því sem áður hefur verið.“ Málmfríður sagði að á samdráttar- tímum væri alveg verjandi að af- gfreiða fjárlög með halla þó ekki væri það góður kostur. En að af- greiða fjárlög eins og stritað hefur verið við, hafa þau hallalaus á papp- írnum um leiö og er vitað væri að það gæti ekki staðist, væri ekki ann- að en blekking. Fjárlagahalla þyrfti að laga með lántökum þar sem ekki væri verjandi að þyngja skattbyrði á fólk. Innlend lántaka gæti hins.vegar hækkað vextina en þá kæmi harðari vaxtapóhtík til. Um tvö þrep virðisaukaskatts sagði Málmfríður: „Mér hefur nú alltaf fundist að 22 prósent væru mörkin. Það er siðlaust að skattleggja brýnustu lífsnauð- synjar eins og hefur verið gert. Ég hef ekki getað gert mér grein fyrir því að virðisaukaskattur yrði eitt- hvað réttlátari en söluskatturinn en strax í áttina að hafa lægra þrep. Þegar öllu er á botninn hvolft held ég að ríkið græddi á að lækka sölu- skatt þar sem veltan ykist.“ Málmfríður sagðist ekki sjá efni til kosninga nú umfram það sem verið hefði en kvennalistakonur tækju kosningum eins og öðru. -hlh Svifflug- vél hrap- aði i flugtaki Svifflugvél hrapaði í flugtaki á sjöunda tímanum í gær. Verið var að draga vélina á loft á Sandskeiði er dráttarspil bilaði með þeim af- leiðingum að véhn féll til jarðar. Talið er að hún hafl verið í 12 til 15 metra hæð er hún féh. Flugmaðurinn var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. Hann mun ekki vera alvarlega slasaður - kvartaði aðahega um verki í baki. Vélin skemmdist nokkuð. -sme Suðureyri Nýr umboðsmaður óskast á Suóureyri frá og með 1. september. Uppl. gefur Sigríður Pálsdóttir, sími 94-6138, eða afgreiðsla DV, sími 91-27022. STOFNLÁNADEILD LANDBUNAÐARINS Laugavegi 120, 150 Reykjavík Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1990 þurfa að berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1990 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember nk. Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk. Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild land- búnaðarins, búnaðarsamböndum og útibúum Bún- aðarbanka Islands en í þeim kemur fram hvað fylgja þarf með umsókn. Eyðublöðin ber að fylla greinilega út. Það skal tekið fram að það veitir engan forgang til lána þótt framkvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin á því að Stofnlánadeild land- búnaðarins er óheimilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántak- endum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá Lífeyrissjóðum öðr- um en Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðilum sem eru með veð í viðkomandi jörð. Stofnlánadeild landbúnaðarins Margrét Frímannsdóttir um aukafl árveitingar: Reglur enn aðeins hugmyndir á blaði „Fjárveitínganefad er sammála nefnd Alþingis, í samtali við DV. þannig hingað til að Ijárveitingar um að setja reglur um fjárveitingar Sagöi Margrét aö ekki eingöngu hafa verið afgreiddar fyrir mörg sem þörf er á utan fjárlaga. Við væri um smáfrárveitingar að ræöa ár i einu. Reglur um hvemig standa höfum verið að vinna í hóp fimm þegar aukafjárveitingar væru ann- skuli aö aukafjárveitingum verða saman og enn sem komið er höfum ars vegar og því brýnt að ákveðnar ekki settar fyrr en í vetur. Þingið við ekki annaö en hugmyndir á reglur væru fyrir hendi um af- þarf að fjaha um þær og koma þær blaði. Engar formlegar thlögur greiðslu þeirra. í fyrsta lagi til framkvæmda á hafa enn koraið fram,“ sagði „Þær aukafjárveitingar sem búið næsta ári - ef af verður. Það er Margrét Frímannsdóttir, fulltrúi er að ákveða á árinu veröa af- ekki útséð með það ennþá.“ Alþýðubandalagsins í fjárveitinga- greiddar í ár en þetta hefur verið -hlh Lafitte aftur til Reykjavíkur - nauðlenti skammt frá Kulusuk Franski flugmaðurinn Andrés- Georges Lafitte þurfti að nauðlenda flugvél sinni á eyju sem er um 25 sjómílur frá Kulusuk í gærkvöldi. Hann slapp ómeiddur en flugvéhn er stórskemmd. Lafitte lenti í miklum hrakningum eftir að hafa vihst af leið. Hann reyndi í margar klukkustundir að finna leiðina til flugvaharins í Kulu- suk en varö síðan að taka th þess ráðs að nauðlenda á eyjunni eftir 12 tíma flug frá Reykjavík. Að sögn Jans Rasmussen þyrlu- flugmanns, sem bjargaði Lafitte um 15 mínútum eftir nauðlendingu á eyjunni, var mjög skýjað og slæmt skyggni þegar hann lenti. „Svo virtist sem siglingatæki Frakkans hafi ekki virkað eins og skyldi og því fór sem fór. Lafitte sagði við mig að hann ætlaði ekki að reyna aö fljúga áfram, enda er véhn stór- skemrnd," sagði Jan í samtali við DV í morgun. Lafitte er væntanlegur í dag til Reykjavíkur með flugvél frá Leigu- flugi Sverris Þóroddssonar sem fylgdi honum til Grænlands. -ÓTT • Kulusuk ^*-*^*^ GrænUmds- u , haf mjxj Hvarf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.