Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989.
Andlát
Guðrún Jóhannsdóttir kennari,
Hamrahlíð 7, lést aðfaranótt mánu-
dags 21. ágúst í Borgarspítalanum. •
Sigurður Guðmundsson ritstjóri,
Nökkvavogi 2, Reykjavík, andaðist í
Borgarspítalanum mánudaginn 21.
ágúst.
Lúðvík Jakobsson, Jörundarholti
232, Akranesi, lést sunnudaginn 20.
ágúst.
Guðmundur Þórarinsson, Grundar-
braut 6, Ólafsvík, lést að kvöldi 20.
ágúst.
Sigurlaug Sveinsdóttir frá Felli, lésl
að morgni 20. ágúst.
Jarðarfarir
Egill Svavar Egilsson frá Hveragerði,
er látinn. Jarðarforin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þórhalla Ólöf Guðlaugsdóttir, Hverf-
isgötu 57a, lést á heimili sínu 15. þ.m.
Hún verður jarösungin frá Fossvogs-
kirkju fóstudaginn 25. ágúst kl. 10.30.
E. Arnór Sveinbjörnsson, fv. kaup-
maður á Akranesi, Kleppsvegi 18,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum
miðvikudaginn 16. ágúst. Jarðarfór-
in hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Björg Hjörleifsdóttir, Brekku við
Vatnsenda, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 24.
ágúst kl. 15.
Richard Guðmundsson bifreiðastjóri,
Hvammstanga, sem lést 15. ágúst sl.
veröur jarðsunginn frá Hvamms-
tangakirkju föstudaginn 25. ágúst kl.
14.
Kristján Þorsteinsson, Dvalarheim-
ihnu Höfða, Akranesi, verður jarð-
sunginn frá Akraneskirkju fóstudag-
inn 25. ágúst kl. 11.
María Lilja Jónsdóttir, Nónvörðu 2,
Keflavík, verður jarösungin frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 24.
ágúst kl. 14.
Lúðvík Jakobsson, Jörundarholti
232, Akranesi, lést sunnudaginn 20.
ágúst. Útforin fer fram frá Akranes-
kirkju fóstudaginn 25. ágúst kl. 15.30.
Baldur Guðmundsson, Torfufelli 24,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 24. ágúst kl.
13.30.
Jósefína Katrín Magnúsdóttir, Há-
'teigsvegi 11, lést í Landspítalanum
að kvöldi 14. ágúst. Útfórin fer fram
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 24.
ágúst kl. 13.30.
Anna Marta Guðnadóttir frá Karls-
skála, Hagamel 45, lést á Landspítal-
anum 14. ágúst. Útför hennar fer
fram frá Dómkirkjunni í dag, mið-
vikudag, kl. 13.30.
Ragnar Á. Magnússon er látinn.
Hann fæddist 25. mars 1917 að Ketu
á Skaga, sonur hjónanna Magnúsar
Árnasonar og Sigurbjargar Sveins-
dóttur. Ragnar hóf nám í endurskoð-
un á Endurskoðunarskrifstofu N.H.
Mancher og varð löggiltur endur-
skoðandi árið 1949. Arið 1951 hófu
þeir Ragnar og Eyjólfur K. Siguijóns-
son rekstur endurskoðunarskrif-
stofu í Reykjavík. Ráku þeir hana
saman til ársins 1966, en eftir það rak
Ragnar hana einn til ársins 1974 er
fleiri bættust í hópinn hjá honum.
Ragnar var tvíkvæntur. Fyrri kona
hans var §vanlaug Gunnlaugsdóttir.
Áttu þau saman fjórar dætur. Síðari
kona hans var Gróa Bæringsdóttir.
Þau shtu samvistum eftir stutta sam-
búð. Útför Ragnars verður gerð frá
Árbæjarkirkju í dag kl. 15.
Tilkyniiingar
Opið hús í
Norræna húsinu
Síðasti fyrirlesturinn í „Opnu húsi“ í
Norræna húsinu verður fimmtudaginn
24. ágúst kl. 20.30. Ari Trausti Guðmunds-
son jarðfræöingur talar um jarðfræði og
eldvirkni á íslandi. Ari flytur mál sitt á
norsku og eftir stutt kaffihlé verður sýnd
kvikmyndin Eldur í Heimaey og er hún
með norsku tali. í anddyri Norræna húss-
ins stendur yfir sýning um Vestmanna-
eyjar er lýsir jarðeldunum í Heimaey og
myndun Surtseyjar. Opið verður í bóka-
safni og kaffistofu til kl. 22 á fimmtudags-
kvöld. Á laugardaginn, 26. ágúst, verður
síðasti fyrirlesturinn um Island sem
Borgþór Kjæmested hefur flutt fyrir nor-
ræna ferðamenn í sumar. Kl. 17 talar
hann á sænsku og kl. 18 verður fyrirlest-
urinn fluttur á finnsku. Aðgangur er
ókeypis og allir eru velkomnir í Norræna
húsiö.
Snertilist i Blindrabókasafni
í Blindrabókasafni íslands, Hamrahlíð
17, eru til sýnis þessa dagana nokkur
myndverk eftir Siguijón Ólafsson. Sýn-
ingin stendur til fostudags og em sjón-
skertir lánþegar hvattir til að koma og
sjá og þreifa á listaverkunum.
Tapað fundið
Prinsessa er týnd
Hún hefur ekki sést síðan sl. laugardag
er hún slapp út án hálsólar. Hún á heima
á Laugavegi 137 og er síminn þar 28783
ef einhver hefur orðið hennar var.
Droplaug týnd
Hún er þrílit læða með rauða hálsól og
tapaðist frá Álfaheiði 22 í Kópavogi sl.
fóstudag. Ef einhver hefur orðiö var við
hana eða veit hvar hún er niðurkomin
þá vinsamlegast látið vita í síma 642033
eða 36239.
Ferðalög
Útivistarferðir
Miðvikudagur 23. ágúst kl. 20:
Kvöldganga á Kjalarnestanga. Létt
ganga frá Brautarholtsborg um Nesvík,
Gullkistuvfk, Messing og Borgarvík.
Stórskemmtileg ganga. Verð kr. 700, frítt
f. böm m. fúllorðnum. Fararstj. Einar
Egilsson. Brottfór frá BSÍ, bensínsölu.
Sjáumst.
Fundir
Aglow - kristileg
samtök kvenna
efha til fundar mánudagskvöldið 28.
ágúst nk. Gestur fundarins verður mikil
trúkona frá Akureyri, Ester Jakobsen,
og mun hún tala guðs orð, smurð af hei-
lögum anda. Fundurinn hefst kl. 20 og
verður byijað með kaffiveitingum sem
kosta 250 krónur. Allar konur em hjart-
anlega velkomnar á fundinn.
á veginn!
Hraðakstur
er orsök margra
slysa. Miðum hraða
alltaf við aðstæður,
m.a. við ástand vega,
færð og veður.
Tökum aldrei
Miættu!
Aðalfundur Þrídrangs
verður haldinn fimmtudaginn 24. ágúst
kl. 20.30 á Næstu grösum, Laugavegi 18
A. Félagsmenn eru hvattir til að fjöl-
menna.
Sýningar
Ellefta einkasýning Ríkeyjar
Fimmtudaginn 24. ágúst opnar Ríkey
Ingimundardóttir myndhöggvari einka-
sýningu í Eden í Hveragerði. Þetta er 11.
einkasýning Ríkeyjar, siðast sýndi hún í
Lúxemborg, fyrr á þessu'ári. Á sýning-
unni verða málverk og postulínsmyndir.
Sýningin stendur yfir til 4. september.
Kvikmyndir
Jerry Lee og James Belushi i „K-9“.
Hundakúnstir
K-9
Aðalhlutverk: James Belushi,
Mel Harr-
is
Leikstjóri: Rod Daniel
Handrit: Steven Siegel, Scott Myers
Sýnd i Laugarásbíó.
Thomas Dooley (James Belushi)
er ein harðasta löggan í San Diego.
Honum er illa við að -hafa félaga
og er vanur að bijóta flest boð og
bönn. Dooley er lengi búinn að elt-
ast við þrjót að nafni Lyman (Kevin
Tiege), en Dooley telur að hann
standi á bak við megnið af eitur-
lyfjasölunni í borginni. Dooley á í
erfiðleikum með að sanna nokkuð
á Lyman, en þegar hann kemst að
því að það sé dóp í vöruskemmu í
eigu Lymans, þá reynir hann að fá
sérþjálfaðan lögregluhund að láni.
Eftir vöruskipti við lögreglumann
sem sér um K-9 (þjálfunarstöð fyrir
lögregluhunda), þá fær hann hund-
inn Jerry Lee (skírður í höfuðið á
Jerry „the Killer“ Lee Lewis).
Jerry er virkilega sérvitur og sér-
lunda og lætur ekki bjóða sér hvað
sem er. Dooley situr uppi með
Jerry og líkar það illa fyrst í stað.
Tracy (Mel Harris) er sambýlis-
kona Dooleys og hún tekur Jerry
vel þegar hann kemur með hund-
inn heim um kvöldið. Dooley og
Jerry takast á við Lyman í samein-
ingu og smátt og smátt öðlast Jerry
virðingu og vináttu Dooleys. Ly-
man gerir hvað hann getur til að
stoppa Dooley og grípur til þess
ráðs að ræna Tracy. Jerry og Doo-
ley leggja til atlögu við Lyman.
James Belushi er að festast í
sama lögguhlutverkinu og hann
hefur leikið nú um nokkurt skeið.
í myndunum „Real Men“ og „Red
Heat“ leikur hann sama karakter-
inn og hér í K-9. í stað þess að hafa
Swartzenegger sem félaga, þá hefur
hann fengið hundinn Jerry Lee í
staðinn. Það er einmitt hundurinn
•sem stelur senunni og heldur
myndinni uppi því glæpasagan er
gömul lumma sem allir þekkja en
með því að láta hundinn leika aðal-
hlutverkið þá vottar fyrir smá
frumleika.
Hundar hafa oft verið notaðir í
stór hlutverk allt frá Lassie til Mike
(í Down and out in Beverly Hills)
og er Jerry Lee lílega nýjasta hetj-
an í hundaröðinni. Kevin Tiege
brosir sýnu blíðasta og er falsk-
heitin uppmáluð sem stórkrimm-
inn.
Rod Daniel (Teen Wolf, Like fat-
her like son) tekst ágætlega upp á
köflum, einkum í atriðunum með
Jerry Lee, en nær ekki að blása
neinu lífi í klisjukennt handritið.
Jerry Lee sýnir margar hunda-
kúnstir og sannar hið fornkveðna
að mapurinn er besti vinur hunds-
ins. K-9 er blanda af löggumynd og
gamanmynd, þar sem gamanið
ræður ferðinni, einkum í meðfór-
um ferfætlingsins.
Stjörnugjöf: ★ ★ 'A
Hjalti Þór Kristjánsson
Fjölmiðlar
Framúrstefna
■ ■ aiiiMi aiiwiiia
í fyrirsögnum
Fyrr á árum voru fyrirsagnir í
Tiraanum ágætt eöii í dæmisögur
fyrir rökfræðinga. Ein birtist í
blaðinu um miðjan sjöunda áratug:
„Aðeins ein leið til - hin leiöin“
Önnur fyrirsögn var í NT, eins
og Tíminn hét þann tíma sem
gömlu nautin treystu nokkrum
ungum kálfum fyrir blaðinu með
óskaplegum afleiðingum fýrir fjár-
hag Framsóknarflokksins:
„Tonn af þorski vegur meira en
tonn af ýsu“
Ég hélt í sakleysi mínu, aö gömlu
nautin hefðu tekiö aftur við blað-
inu. En svo viröist sem framúr-
stefnumenn með sérkennileg
áhugamál velji nú fyrirsagnir. Eftir
síðustu verslunarmannahelgi birt-
ust til dæmis flennistórar fréttir
um fimm þúsund smokka hátíö í
Húnaveri.
Og laugardaginn 19. ágúst hrökk
ég viö yfir morgunverðinum. Við
mér blasti risafyrirsögn á baksíðu
Tímans:
.JÞurrka af sprautum í skeini-
pappírinn“
Viö íhaldsmenn viljum auðvitað
hvorki gerast teprur né nöldur-
skjóður. En við hljótum að spyija
framúrstefnufólkið á Tímanum í
hjartans einlægni: Má ekki taka
varlegar til orða í fyrirsögnum, svo
að lesendur blaðsins missi ekki alla
matarlyst á morgnana?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson