Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. 13 Bætt staða íslenskrar ftamleiðslu á erlendum mörkuðum Yirðisaukaskattur tekur við af söluskatti um næstu áramót. Hann tryggir að gagnvart skatdagningu stendur ísienskur útflutmngur jaúifætis annarri framleiðslu í viðskiptalöndum okkar. íslensk útflutningsfyrirtæki búa nú við það að aðföng þeirra hafa borið söluskatt sem safnast upp í fram- leiðslukostnaðinum og leiðir til hærra vömverðs. Reynt hefur verið að meta þessi uppsöfnunaráhrif og endurgreiða síðan ígildi skattsins til útflutnings- fyrirtækjanna úr ríkissjóði. Sú aðferð hefur gefist misjafnlega. Þegar virðisaukaskattur leysir söluskattinn af hólmi verður uppsöfnun skatts í vömverði hins vegar úr sög- unni vegna þess að virðisaukaskattur er gerður upp á hveiju stigi framleiðslunnar og er þá ömggt að útflutn- ingsvörur bera ekki skatt hérlendis. Upptaka virðis- aukaskatts styrkir því samkeppnisstöðu íslenskrar ffamleiðslu á erlendum mörkuðum. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.