Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 23. ÖKTÓBER 1989. PV Fréttir Útvegurinn fær ekki jafngott ár næstu árin - segir Þorsteinn Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samheija á Akureyri Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri á aflaskipinu Akureyrinni EA-10, i stólnum sfnum f brú skipsins og Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, við hlið hans. DV-mynd gk Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: Útgerðarfyrirtækið Samherji hf. á Akureyri er í augum margra háifgert undrafyrirtæki og frændurnir þrír, sem standa að baki fyrirtækinu, eru álitnir hálfgerðir galdramenn í út- gerðinni. Það er ekki síst fyrir þeirra tílstiUi að Akureyri er orðin sá bær á landinu þar sem mest aflaverð- mæti berst á land samkvæmt tölum Fiskifélags íslands og Samheiji er það fyrirtæki sem skilaði mestu verðmæti landaðs afla á síðasta ári, aflaverðmætið nam 757 milljónum króna samkvæmt sömu heimildum. Þorsteinn Már Baldvinsson og bræðurnir Þorsteinn og Kristján Vil- helmssynir eru „Samheijaþremenn- ingamir" svokölluðu og það er eng- um blöðum um það að fletta að þeir hafa unnið stórvirki á sínu sviði. Þeir eru lítt íjölmiðlaglaðir menn sem eru lítíð fyrir titlatog en Þor- steinn Már, sem er framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, féllst þó á að ræða stuttlega við DV um fyrirtæki þeirra. Verksvið bræðranna er hins vegar það að Þorsteinn Vilhelmsson er skipstjóri flaggskips fyrirtækisins, aflaskipsins Akureyrarinnar EA-10, og Kristján fæst við ýmis störf í landi og myndi sennilega falla undir þá skilgreiningu að vera útgerðarstjóri. Okkar áhugamál Segja má að ævintýrið hafi hafist árið 1983 er þeir keyptu megnið af hlutabréfum í Samheija hf. En hvers vegna fóru þeir út í þetta? „Það er varla hægt að svara því hvers vegna menn velja sér ákveðið starf. Okkur finnst þetta vera eðlileg- ur starfsvettvangur fyrir okkur, þetta er okkar áhugamál, sjávarút- vegurinn, og því eðlilegt að við störf- um viö hann,“ segir Þorsteinn Már, sem er verkfræðingur að mennt, Kristján er vélfræðingur og bróðir hans, Þorsteinn, var áður skipstjóri hjá Útgerðarfélagi Akureyringa. Togarinn Guðsteinn fylgdi með í kaupunum á Samheija og það var ráðist í að breyta þessu 9 ára gamla skipi í frystitogara. Og því er ekki að leyna að margir áhtu sem svo að þetta væri óðs manns æði. Þorsteinn segir hins vegar að þetta hafi litið ágætlega út á pappírunum og þeir hafi gert raunhæfar rekstraráætlan- ir sem hafa staðist. Togurunum fjölg- aði síðan. Margréti keyptu þeir 1986 og það skip fór í rekstur ári síðar, Oddeyrin, sem Samheiji á 30% hlut í, fór í rekstur í lok ársins 1986, Þor- steinn kom haustið 1987. Tvö skip hafa svo bætst við á þessu ári og bera þau í dag nöfnin Hjalteyrin 1. og 2. Að auki á Samherji eitt skip, bátinn Þorlák Helga, sem var lagt og hefur ekki verið gerður út. Farsæll rekstur Sumir hafa haldið því fram að Sam- herjamenn hafi haft heppnina með sér varðandi útgerðina og kaup á skipum. Hvað segir Þorsteinn Már um það? „Æth það megi ekki fremur segja sem svo að þetta hafi verið farsælt hjá okkur og útgerð Akureyrarinnar hefur gengið mjög vel, tekjumar hafa verið góðar og skipið hefur verið okkur tiltölulega ódýrt í rekstri. Það hefur verið farið mjög vel með alla hluti, sama hvort það eru tæki, veið- arfæri eða annaö, þannig að skipið hefur skilað góðri afkomu. Rekstur Margrétar og Oddeyrarinnar hefur einnig gengiö ágætlega." - Hvað um togarann Þorstein sem skemmdist mikiö í ísnum úti fyrir Norðurlandi snemma á síðasta ári? „Það má segja að það sé eina veru- lega áfahið sem við höfum orðið fyr- ir en við höfðum bolmagn til þess að þola þaö. Það er hægt að vera vitur eftir á og sennilega hefði verið hag- kvæmast að byggja skipið upp aftur á þeim tíma sem þetta gerðist." Nýtt skip ísmíðum - Og nú eruð þið að láta smíða fyrir ykkur togara á Spáni, hvenær kemur hann? „Það er langt þangað th og ég á varla von á því að það verði á næsta ári. Það væri rétt að orða það þannig að Spánvetjarnir tækju sér góðan tíma í að smíða skip og ég held að áætlun afhendingartíma sé ekki sterkasta hhð þeirra. Það verður bara að koma í ljós hvenær þeir af- henda skipið.“ - Og þegar það skip kemur æthð þið að setja Þorstein og Þorlák Helga í úreldingu? „Jú, sennilega bæði þessi skip og hugsanlega eitthvað meira. En ég held, hvort sem það erum við eða aðrir, að menn fari ekki út í úreld- ingu á skipum að neinu marki fyrr en það er ljóst hvort fiskveiðistefna komi til lengri eða skemmri tíma. Ég viðurkenni það mjög fúslega að flotinn er of stór og tel æskilegt að hann minnki. Þá verða menn hins vegar að geta treyst því að sú stefna, sem verður mótuð, haldi til ein- hverra ára. Ef kvótakerfið verður afnumið í núverandi mynd þá reikna ég með að menn fari út í svokallaða fijálsa sókn, innan ákveðinna marka þó, og þá fækkar skipunum ekki. En þótt flotinn sé stór þá þýðir það ekki að ekki eigi að smíða ný skip. Þama gildir það sama og fyrir menn sem em með gamlan bíl sem krefst það mikhs viðgerðarkostnaðar aö það kemur sá tími að réttlætanlegt er að kaupa nýjan.“ Ekki allt á hausnum - Þegar útgerðarmál berast í tal kem- ur Samheiji oft inn í þá umræðu og menn undrast það hvemig ykkar útgerð getur gengið svona vel á sama tíma og útgerð virðist víða vera á hausnum. Hver er galdurinn? „Ég held að það sé ekki öh útgerð á hausnum og th ahrar hamingju er th töluvert af stöndugum útgerðar- fyrirtækjum. Þó ég segi sjálfur frá held ég að ég geti sagt aö við séum með vel rekið fyrirtæki en ég held að það sé sums staðar skortur á því. Sjávarútvegurinn hefur sérstöðu í atvinnulífi íslendinga, stjórnmála- menn hafa blandað sér miklu meira inn í rekstur á sjávarútvegsfyrir- tækjum en öðrum fyrirtækjum sem hefur orðið th þess að fjárstreymið th margra fyrirtækja hefur oröiö mjög óeðhlegt. Byggðastofnun hefur sí og æ sam- þykkt stórar flárveitingar th fyrir- tækja sem hafa bæði verið iha stödd og iha rekin og fjármunir hafa verið afhentir þessum fyrirtækjum án þess að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á rekstri þeirra. Það er hægt að fara hringinn í kringum landið og finna fyrirtæki sem ekki hafa ver- ið höfð nein póhtísk afskipti af, eins og Útgerðarfélag Akureyringa, ísa- fjarðarfyrirtækin, Ögurvík og mörg önnur og mörg þessara fyrirtækja standa mjög vel. Það sem hefur skort á í vinnu- brögðum banka og sjóða er að það hefur sjaldnast verið farið ofan í rekstur fyrirtækjanna. Það er hægt að sjá dæmi eins og á Raufarhöfn um vel rekin útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtæki sem ganga vel. Það væri ekki óeðhlegt að farið væri ofan í rekstur þeirra fyrirtækja, menn myndu draga af því lærdóm og nýttu sér hann áður en opinberir sjóðir halda áfram að fjármagna tap margra ann- arra fyrirtækja.“ Engar faglegar kröfur - Með þessu ert þú auðvitað að segja að póhtísk afskipti séu af hinu vonda. „Þau eru það á meðan ekki hafa verið gerðar kröfur til faglegri vinnubragða, hvort sem það er af hendi t.d. Byggðastofnunar, þegar hún hefur verið að moka út pening- um, eða annarra lánastofnana. Póht- ísk afskipti eru nauðsynleg að mínu mati en það hefur skort á fagmennsk- una í þeim afskiptum.“ Snúum okkur aftur að Samherja. Það er gjaman rætt um að yfirbygg- ing þessa fyrirtækis sé mjög lítil. „Yfirbyggingin er bara í samræmi við það sem undir er en ég hef ekki sett mig inn í hvað tíðkast annars staöar. Við reynum að reka þetta með þeirri yfirbyggingu sem er nauðsynleg til að starfsemin sé eðh- leg, menn fái sína reikninga greidda, starfsmenn launin sín og skipin geti komið inn og farið út á eðhlegum tíma. Við erum alls 8 sem störfum við þetta í landi og þar af eru 4 á litlu vélaverkstæði sem við rekum.“ Gerum miklar kröfur - Þið þykiö nokkuð harðir hús- bændur, þiö gerið miklar kröfur til ykkar manna en jafnframt segja menn að þiö látið menn heyra það þegar vel er gert. Eruð þið harðir húsbændur sem gerið miklar kröfur? „Já, við gerum kröfur tíl okkar manna, það hggur fyrir enda næst ekki árangur öðruvísi. Það segir sig sjálft að um borð í frystitogara verð- ur að gera miklar kröfur vegna þeirr- ar vinnslu sem þar fer fram. Styrkur fyrirtækisins verður að hggja í því að sú vara sem er framleidd sé fyrsta flokks. Samherji framleiðir aha vöru undir sínu eigin merki. Viö segjum okkar mannskap að það vörumerki eigi að þýða að þar sé á ferðinni besti fiskur í heimi, mesta gæðavara sem framleidd er. Það er okkar krafa th mannskapsins að kaupendur úti í heimi geti treyst þessari vöru og þar með þeirra vinnubrögðum fullkom- lega.“ - Þú vht ekki gera mikið með þær tölur sem segja að ykkar fyrirtæki hafi skhað mestu aflaverðmæti á land á síðasta ári. Það er ekki hægt að segja aö tölur Fiskifélagsins séu rangar enda gefa þeir sér ákveðnar forsendur sem leiða th þessarar niöurstöðu sem kom mér reyndar mjög á óvart. Það er hins vegar ekki samanburðarhæft að taka þessar tölur um aflaverð- mæti okkar á fuhunnum afla og hins vegar tölur fyrirtækja sem vinna afl- ann í landi.“ Mjög gott ár - Þessar tölur voru fyrir síðasta ár. Hvemig htur yfirstandandi ár út? „Ég held að árið 1989 hti svipað út og þessi sömu fyrirtæki verði í efstu sætunum. Sjávarútvegurinn á ís- landi fær ekki jafngott ár og í ár næstu árin, alveg sama hversu mikið menn tala rnn taprekstur. Aflabrögð hafa verið góð, gott verð á mörkuð- um erlendis og sölumálin hjá fyrir- tækjum í íslenskum sjávarútvegi hafa gengið vel. Ég held að viö fáum ekki jafngott ár, a.m.k. ekki næstu fimm árin. Staða sjávarútvegsins mun því ekki lagast nema með innri breytingum.“ 3 náusí Borgartúni 26, sími 62 22 62 ATIET LAGERLYFTARAR 1000 — 1250 kg Lyftihæð upp í 6 m Nýir eða notaðir rafmagns- og diesel lyftarar Vélaverkstæði Sigurjóns Jónssonar hf SÍMi (91)62 58 35 Rimlagluggatjöld í yfir 20 litum. Sérsniðin fyrir hvern glugga eftir máli. pli-sol Pli-sol gluggatjöld í mörg- um litum og gerðum. Tilval- in í sólhúsið, glugga mót suðri og alla vandamála- giugga. <1? Einkaumboð á íslandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.