Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Side 48
o T I li— ■—» ■s~ '*"■ r~ R fc 1 fl fv Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5,000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Askrift - Oreifing: Sími 127022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989. Atján ára ökumaður beið bana Átján ára gömul stúlka, Ingibjörg Guðrún Hilmarsdóttir Kársnesbraut 27 í Kópavogi, beið bana í bílslysi á Landbrotsvegi skammt frá Kirkju- bæjarklaustri síðdegis á laugardag- inn. Stúlkan ók bílnum. Hún missti stjóm á honum í lausamöl skömmu áður en hún kom að blindhæð við svokallaðan Dalbæjarafleggjara. Bíllinn lenti á vegarskilti, sem skipt- ir hæðinni í tvær akreinar, og valt tvær veltur. Stúlkan kastaðist út og er talið að hún hafi látist samstundis. Tveir farþegar, piltur og stúlka, voru í bílnum. Þau voru flutt á .SJÚkrahús í Reykjavík til rannsókn- ar. Stúlkan hafði fengiö höfuðhögg en meisli hennar eru ekki talin alvar- leg. Pilturinn slapp án meiðsla. Eng- inn sem í bílnum var notaði öryggis- belti. -GK Tvö fjórhjól í árekstri Tveir menn slösuðust þegar öku- maður fjórhjóls keyrði aftan á annað hjól svipaðrar tegundar í Þykkvabæ í morgun. Mennimir voru báðir fluttir á sjúki'ahús á Selfossi en meiðsl þeirra voru ékki talin alvarleg. Ökumenn vora báðir á leið til vinnu í sláturhúsið í Þykkvabæ. Fjórhjólin era töluvert mikið skemmd. _ÓTT Síldarsala: Viðræður við Sovétmenn hefjast í dag Þeir Gunnar Flóvenz, fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar og aðstoðarmaður hans, Einar Bene- diktsson, eru famir til Sovétríkjanna til viðræðna við þarlenda um kaup á verkaðri síld héðan. Síldarútvegsnefnd barst um það til- kynning í síðustu viku að Sovétmenn væru tilbúnir til viðræðna, tilskilin leyfi til síldarkaupa væru fengin. Sovétmenn era langstærstu kaup- endur verkaðrar síldar frá íslandi. í fyrra keyptu þeir 150 þúsund tunnur af hausskorinni og slógdreginni síld. Nokkur árin á undan höfðu þeir - keypt um og yfir 200 þúsund tunnur af heilsaltaðri síld. -S.dór LOKI Hvaö skyldi Stefán Valgeirsson fá fyrir bankastjórasnúðinn? Tveir innbrotsþjófar gerðu víðreist: Stálu tveimur Deninaaskáuum í - voru handteknir við annað innbrot á Hvolsvelli 1 nótt Taliö er fullvist að sömu tveir brotnar upp hurðir og bíl í eigu íra að geyma en ekki peninga. menn hafi veriö að verki við þrjú fyrirtækisins stolíð - skutbíl af Skáparnir eru báðir stórir og innbrot i Kópavogi aðfaranótt gerðinni Toyota Camry árgerð vega hvor um sig hátt í 200 kíló. sunnudagsins og í einu innbroti í 1987. Þá var einnig brotist inn um Þjófarnir gátu því ekki flutt skáp- verslun á Hvolsvelli í nótt. Menn- glugga á annarri hæð að Hamra- ana án þess að hafa til þess farar- irnir vorahandteknir við innbrotið borg 12 þar sem nokkur fyrirtæki tæki á borð við sendibíl. á Hvolsvelli og stóð þá bíll sem erutilhúsa.Þarvorahurðirbrotn- í fyrstu var talið að tveimur bfl- þeir höfðu stolið í Kópavogi fyrir ar og pningaskáp stolið. í honum um hefði verið stolið en svo reynd- utan innbrotsstað. Mennimir voru vora ýmsir pappírar en engir pen- ist þó ekki þar sera annar Toyota í gæslu i nótt en játning þó lá ekki ingar. sendibíll var í notkun hjá einum fyrir í morgun. Aö sögn lögregl- Hljómplötuútgáfa Steinars fékk starfsmanni Toyotaumboðsins. unnar eru verksummerki svipuð á einnig heirasókn þessa nótt. Þar Mennimirvorafluttirígæsluvarð- öllura stöðunum. var eins farið að og á fyrri staðnum; hald í nótt en Rannsóknarlögreglan Fyrst var brotist inn hjá Toyota- hurðir brotnar og peningaskáp vinnur að rannsókn málsins ásamt umboðinu við Nýbýlaveg. Þar vora stoliö. Haxm hafði þó aðeins papp- lögreglunnií Kópavogi. -GK/-ÓTT Það var mikið um dýrðir i útvarpshúsinu við Efstaleiti í gær þegar sérstök barnabókavika var formlega hafin. Vigdís Finnbogadóttir forseti setti vikuna og fjöldi barna, sem var á staðnum, undi við tónlist og söng. Barnabóka- vikan er haldin að frumkvæði Félags íslenska bókaútgefenda og samhliða verður sérstök málræktarvika í grunn- skólum landsins. DV-mynd S Veðrið á morgun: Úrkoma og strekkings* vindur Á morgun verður austan- og suðaustanátt og strekkingsvind- ur á landinu. Heldur hlýnandi veður í bili. Úrkoma verður víða um land, einkum sunnan- og austanlands. Víðast rigning á lág- lendi en slydda til fjalla. Hitinr verður 3-7 stig. Vestfirðir: Vetrarfærð á Ijallvegum Vegimir vestur frá ísafirði um Breiðadalsheiði og Botnsheiði hafa verið þungfærir um helgina vegna snjóa og hálku. Heiðamar lokuðust þó ekki alveg og hafa vel búnir bílar komist um þær. Heiðarnar vora mokaðar á laugar- daginn en síðan hefur veðrið, sem gekk um norðanverða Vestfirði um helgina, lægt og nú eru allir vegir greiðfærir. Töluverð hálka var á Steingrímsfj arðarheiði og einnig á Hrafnseyrarheiði en þær lokuðust ekki. Alhvítt varð niður í byggð við ísa- fjarðardjúp á laugardaginn og hefur snjó ekki tekið upp. Veturinn fylgir því dagatalinu í að boða komu sína. -GK Norrænt græningjaráö: Kvennalisti er ekki með „Allt okkar samband við græningja annars staöar á Norðurlöndunum hefur verið fremur lauslegt og frum- kvæðið verið þeirra," sagði Kristín Halldórsdóttir, starfsmaður Kvenna- listans, en samkvæmt fréttaskeyti sænsku fréttastofunnar TT þá tók Kvennalistinn þátt í stofnun Norður- landaráðs græningja um helgina. Hvorki Kristín, Guðrún Agnarsdótt- ir né Danfríður Skarphéðinsdóítir kannast við það. Þær sögðu að þrátt fyrir nokkurt samstarf við samtök græningja á Norðurlöndunum þá hefðu þær ekki bundist samtökum við þá enda væri Kvennalistinn ekki græningjaílokk- in-. Áherslur þeirra í umhverfismál- um hefðu þó stuðlað að því að þeim væri oft boðið á fundi græningja. Samkvæmt fréttaskeytinu var stofnað Norðurlandaráð græningja um helgina og er hlutverk þess að stuðla að meira samstarfi Norður- landa fyrir utan Efnahagsbandalag- iö- -SMJ Stefnuræða Steingríms Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra mun flytja stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Umræðan hefst kl. 20 og verður sjónvarpað frá umræðunni. Stefnuræðan er flutt í upphafi hvers þings og þar gerir for- sætisráðherra gera grein fyrir stefnu ríkisstjómarinnar sem hefur tekið breytingum frá síðasta þingi. Um- ræður verða um ræðuna eftir á. -SMJ NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR Kgntucky Fried Chicken Hjallahrauni ij, Hafnarfirði Kjúklingarsem bragð eraó. Opið alla daga frá 11—22.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.