Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1989, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989.
,,Ég hef aldrei drukkið
vín eða reykt tóbak"
- segir Aldís Einarsdóttir, elsta kona á Islandi, sem á 105 ára afmæli í dag
Aldis Einarsdóttir, eista kona á íslandi.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri:
„Nei, ég hef aldrei gifst, ætli það
sé ekki, þess vegna sem ég er orðin
svona gömul,“ segir Aldís Einars-
dóttir, vistmaður aö Kristneshæli í
Eyjaíirði, en hún á 105 ára afmæli í
dag og mun vera elsta konan hér á
landi. Aldís er furðuern, hefur fóta-
vist og prjónar sokka og vettlinga
hvem dag og er hress en heyrnin er
aðeins farin að gefa sig.
„Ég er fædd í Núpufelli í Saurbæj-
arhreppi í Eyjafirði 4. nóvember 1884.
Foreldrar mínir voru ,Einar Sigfús-
son og Guðríður Brynjólfsdóttir,"
segir Aldís. Aldís bjó í Núpufelli til
þriggja ára aldurs en ílutti þá að
Hrísum, sem er næsti bær við Núpu-
fell, og þar bjó hún til 6 ára aldurs.
Þá flutti fjölskyldan að Stokkahlöð-
um í Hrafnagilshreppi og þar bjó
Aldís þar til hún varð 101 árs og
flutti í Kristneshæli þar sem hún
hefur dvalið síðan. Hún hefur því frá
4. nóvember 1884 átt sitt heimili í
Eyjaflrði.
„Það er þetta litla borð sem stendur
þarna,“ segir Aldís og bendir á lítið
borð í herbergi sínu þegar hún er
spurð um elstu minningu sína.
„Amma mín í Núpufelli kom með
borðið á sumardagsmorguninn
fyrsta þegar ég var þriggja ára og gaf
okkur systrunum það, en þá tíðkað-
ist það aö gefa sumargjafir, og borö-
inu fylgdi þennan morgun heitt kakó
og eitthvert meðlæti.
Lífið í sveitinni á mínum fyrstu
áram var frekar skemmtilegt, við
gerðum ekki eins miklar kröfur þá
og nú er orðið og bömin vora ánægð
ef þau máttu vera hjá foreldrum sín-
um.
Það var engin skólaskylda og farið
yfir miklu minna námsefni þá en
núorðiö, en það var lært vel það sem
lært var. Piltar úr Hólaskóla og
Möðruvelhngar, sem kallaðir voru
svo, feröuðust um og kenndu, þeir
voru í 4-6 vikur á hverjum bæ og
þangað komu krakkar af næstu bæj-
um saman til að læra hjá þeim. Fólk-
ið var því ekki alveg menntunar-
laust. Við lærðum lestur, skrift og
kristinfræði sem við tókum fullnað-
arpróf í til fermingar. Þessi lærdóm-
ur fór yfirleitt fram á árunum 10 ára
til fermingar án þess að það væru
nokkrar reglur til um þaö.“
Aldís fór í kvennaskóla í tvo vetur.
„Það er nú ekki orö á því gerandi.
Þó þótti það gott þá að geta verið í
slíkum skóla í 1-2 ár en núna eru
menn hálfa ævina að læra,“ segir
hún.
- Hvernigvaraðbúnaðurinnáheim-
ilum á þessum tíma?
„Það var auðvitað fátæklegt miðað
við það semnú er. Það voru hlóðaeld-
hús á mínum fyrstu áram en síðan
komu eldavélar til sögunnar og um
aldamótin var þetta að breytast mik-
ið.“
- Manstu eftir aldamótunum?
„Já, ég man vel eftir þeim. Það var
ákaflega mikil vakning, stórskáldin
ortu kvæði sem voru mikið sungin
og lesin. Ég man eftir aldamótahátíð
sem haldin var á Grund í Eyjafiröi,
séra Matthías var þar fremra og tal-
aði, og það vora haldnar hátíðar-
guðsþjónustur.“
Aldís hefur orð á því að upp úr
aldamótunum hafi viðhorfið til
ýmissa hluta farið að taka breyting-
um. „Það þótti sjálfsögð dyggð að
vera ekki skuldugur og eyða aldrei
meira en maður aflaði. En þetta hef-
ur nú breyst eins og svo margt ann-
að. Seinna stríðinu fylgdu miklar
breytingar. Þá kom peningaflóð inn
í landið og hugsunarhátturinn
breyttist mikið með þessu peninga-
floði. Þá þótti það kotungsháttur að
eyða ekki sem mestum peningum í
stað þess að spara sem mest eins og
áður var.“
Aldís hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á ræktunarmálum og stundað
það áhugamál sitt nær alla ævi. „Ég
fór á námskeiö í Gróðrarstöðinni á
Akureyri skömmu eftir aldamótin
hjá Sigurði Sigurðssyni búnaðar-
málastjóra, en þá voru haldin þar
námskeiö á vorin fyrir stúlkur. Þá
var allt unnið með hestverkfærum
og engar vélar tfl. Hólasveinar unnu
þarna við að plægja en konumar sáu
um aðra vinnu.
Ég hef haft afskaplega gaman af
ræktunarmálum og fengist talsvert
við ræktun,“ segir Aldís, og garður-
inn við bæinn Stokkahlaðir, sem
þykir mjög fallegur, er hennar verk.
Aldís fékkst við gróðrarstörf alveg
þar til hún fór á Kristneshæli þegar
hún var að verða 101 árs.
- Fylgist þú vel með fréttum af því
sem er að gerast í þjóðfélaginu í dag?
„Ég les dálítið í blöðunum en ann-
ars er ekki orðið neitt gaman að því
lengur. Mér finnst orðið allt of mikið
um neikvæðar fréttir í dag. Nú er
hugsunin líka sú að koma íslandi
sem mest í samband við önnur lönd,
en áður átti aö reyna að halda
landinu sem mest út af fyrir sig. Á
þessu er mikill munur og ég held að
það hafi ýmislegt gengið betur áður
en þessi breyting átti sér stað án þess
að ég æth að fara að dæma um það.“
- Hefur þú eitthvað umgengist ungt
fólk síðustu árin og hvernig finnst
þér unga fólkið í dag?
„Já, ég hef gert það. Mér finnst
áberandi að unga fólkið talar ekki
nógu góða íslensku í dag. Eins er það
slæmt að krakkar eru ekki vandir á
að þakka fyrir sig og heflsa þegar
þeir hitta fólk, þaö eru bara rekin
upp einhver hljóð eins og hæ og svo-
leiðis. Það var lögð miklu meiri
áhersla á það hér áður fyrr að krakk-
• ar væra kurteisir og þökkuðu fyrir
sig. En þessu verður sjálfsagt ekki
breytt héðan af.“
- Þú hefur sjálfsagt verið spurð að
því áður hveiju þú þakkar það að
hafa lifað svona lengi, vfltu svara
þeirri spurningu núna í lokin?
„Ég veit það varla. Ég hef aidrei
drukkið vín eða reykt tóbak. Annars
er manni það ekki í sjálfsvald sett
og yfirhöfuð er ekki gaman að vera
gamall, því ellinni fylgir meiri og
minni lasleiki. Ég hef hins vegar ver-
ið svona í meðallagi heilsuhraust,"
sagði Aldís að lokum, hún var búin
að fá heimsókn í herbergið sitt í
Kristneshæli. „Þetta er líka orðið
meira en nóg hjá okkur, þetta hefði
alveg mátt vera styttra,“ bætti hún
við.
AÐRAR FERÐIR OKKAR:
Mallorka perla
Miðjarðarhafsins.
Vetrardvalarferðir:
Sólskinsparadis, vetur, sumar, vor og haust.
Appelsínuuppskeran í janúarlok. 2ja, 3ja og
fimm mánaða ferðir. Brottdarardagar: 20. des.,
3. jan. og 21. febr. Fjölbreytt þjónusta. Islensk
fararstjórn. Islenskt bókasafn. Tómstunda- og
tungumálanámskeið. Val um dvöl á lúxus
íbúðahóteli og hóteli með fæði, kostar minna
en að vera heima.
Mallorka-j ólaferð
Kr. 59.000 - 2 í íbúð
Thailandsferðir á Kanarí-
eyjaverði
Brottför alla miðvikudaga. 9, 16, 23 eða 30
daga ferðir. Islenskur fararstjóri. Örugg sól-
skinsparadís. Sjórinn, sólskinið og skemmt-
analífið eins og fólk vill hafa það og ævintýra-
heimur Austurlanda að auki. Kostar loksins
ekkert meira en venjulegar Kanaríeyjaferðir.
Verð frá kr. 69.700. -Takmarkað sætaframboð.
21. des. - 18 dagar eða 25 dagar
Óvenjuleg jólaferð:
Landið helga -
Egyptaland - Nílarsigling
Ævintýraferð sem aldrei gleymist. - Aðfangadagskvöid í Betlehem -
Heimsóttir sögustaðir Biblíunnar: Jerúsalem - Getsemane - Jeríkó
- Dauðahafið - Nasaret - Galíleuvatn. Ekið um bedúínabyggðir Sínaí-
eyðimerkur til Kaíró. Nílarsléttan, pýramídarnir miklu, sigling á Níl
með lúxus skemmtiferðaskipi.
Vel skipulögð rólegheitaferð um fögur lönd og
ógleymanlega sögustaði.
Athugið verðið - það er ótrúlegt. Ferðin kostar ekki meira en sólarlandaferð. Farar-
stjóri Guðni Þórðarson sem farið hefur með á tug íslenskra hópa um þessar slóð-
ir. Kynnið ykkur góða ferðaáætlun og einstakt verð. Pantið fljótt því þegar eru yfir
100 farþegar bókaðir og fáum sætum er óráðstafað.
FLUGFEROIR
= SOLRRFLUG
Vesturgötu 12, Rvík.
Símar 22100 og 15331