Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1989, Blaðsíða 28
40
LAUGARDAGÚR 4. NÓVEMBER 1989.
Afmæli
Sigríður Bjömsdóttir
um.
Sigríöur Björnsdóttir myndlistar-
maöur, myndþerapisti og kennari,
Nönnugötu 1, Reykjavik, veröur
sextugámorgun.
Sigríður er fædd á Flögu í Skaft-
ártungu og alin upp í Skaftártungu,
á Barðaströnd, Skagaströnd og í
Reykjavík.
Sigríöur var viö nám í Verslunar-
skóla íslands 1943-47, í Handíða- og
myndlistarskóla íslands 1947-52 og
lauk burtfararprófi sem mynd-
menntakennari 1952. Árin 1953,1955
og 1956 var hún í The Central Scho-
ol of Arts and Crafts í London og
viö verklegt nám í sérkennslu, leik-
þerapíu og myndþerapíu á The
Hospital for Sick Children í London
og á Dronning Louises Bornehospit-
al í Kaupmannahöfn og barnadeild
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn. Á
árunum 1983-84 fékk hún post-
graduate diploma í myndþerapíu frá
University of London.
Sigríöur vann við skristofustörf
1947-49, viö myndmenntakennslu í
Kvennaskólanum í Reykjavík
1952-53,1957-58 og 1960-61, við mynd-
menntakennslu og mynd- og leik-
þerapíu á barnadeild Landspítalans
og Barnaspítala Hringsins 1957-73. Á
árunum 1973-75 vann hún sem
frumkvöðull að fyrsta norræna
námsþinginu í myndþerapíu og á
árunum 1974-89 hefur hún farið íjöl-
margar fyrirlestrarferöir á dlþjóð-
leg barnalæknaþing og myndmenn-
takennaraþing. A árunum 1975-80
var hún meö námskeiðahald í
my ndþerapíu fyrir börn og full-
orðna, 1979 sérstök námskeið í
my ndþerapíu fyrir blandaða hópa
af fótluðum og ófötluðum börnum
og ungmennum, 1982-83 leikþerapíu
á barnadeild Landakotsspítala. Á
árunum 1985-89 með kennslu og
myndþerapíu á barnadeild Landa-
kotsspítala og námskeiðahald í
myndþerapíu fyrir fagfólk í uppeld-
is- og heilbrigðisþjónustu. Á árun-
um 1969-83 hélt Sigríður níu einka-
myndlistarsýningar á íslandi og
fjórar einkasýningar erlendis, einn-
ig hefur hún tekið þátt í fjölmörgum
samsýningum, bæði hérlendis og
erlendis. A árunum 1977-80 var hún
ritari í stjórn Félags íslenskra
myndlistarmanna og ísíandsdeild
Norræna myndlistarbandalagsins.
Fulltrúi íslands i NORDFAG (hags-
munasamtökum norrænna mynd-
listarmanna) 1977-80, forseti ís-
landsdeildar The International
Association of Art, IAA, AIAP,
(UNESCO) 1978-87. Síðan 1988 hefur
hún verið ritari í stjórn The Intern-
ational Academy of Pediatric Trans-
disciplinary Education. Hún tók
einnig þátt í undirbúningi að stofn-
un Norræna félagsins um þarfir
sjúkra barna, NOBAB1978-79. Sig-
riður hefur líka ritað greinar um
leik- og myndþerapíu sem birst hafa
í alþjóðlegum barnalæknatímarit-
Þann 31.7.1957 giftist Sigríður Di-
eter Roth myndlistarmanni, f. 21.4.
1930. Hann er sonur Karls Roth, sem
nú er látinn, og Veru Roth, en þau
bjuggu í Þýskalandi og Sviss. Sigríð-
ur og Dieter skildu 1965.
Börn Sigríðar eru:
Guðríöur Adda Ragnarsdóttur, f.
13.5.1950, tilraunasálfræðingur, bú-
sett í Reykjavík, býr með Jóhanni
Þórarinssyni.
Karl Roth Karlsson, f. 17.11.1957,
tölvunarfræðingur, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Láru Magnús-
ardóttur og eiga þau þrjú börn.
Björn Roth Karlsson, f. 26.4.1961,
myndlistarmaður, búsettur í Mos-
fellsbæ, býr með Þórunni Svavars-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Vera Roth Karlsdóttir, f. 17.2.1963,
nemi, búsett í Mosfellsbæ, býr með
Gísla Jóhannssyni og eiga þau tvö
börn.
Systkini Sigríðar eru:
Ingibjörg Linnet, f. 14.9.1925, yfir-
póstafgreiðslumaður, búsett í Hafn-
arfirði, gift Bjarna Linnet. Hún er
móðir Jóhönnu Linnet söngkonu.
Vigfús, f. 20.1.1927, bókbands-
meistari og rithöfundur, búsettur á
Akureyri, kvæntur Elísabetu Guð-
mundsdóttur og eiga þau sjö börn.
Oddur, f. 25.10.1932, leikritaskáld,
búsettur í Reykjavík, býr með'Berg-
ljótu Gunnarsdóttur, en hann á tvö
börn með fyrrv. eiginkonu sinni,
Borghildi Thors. Hann er faðir
Hilmars Oddssonar kvikmynda-
gerðarmanns.
Sigrún, f. 11.11.1942, leikkona og
dagskrárgerðarmaður, búsett í
Reykjavík, gift Ragnari Björnssyni
og eigaþautvöbörn.
Foreldrar Sigríðar voru Björn O.
Björnsson, f. 21.1.1895, d. 19.9.1975,
prestur og ritstjóri tímaritsins Jarð-
ar, og kona hans, Guðríður Vigfús-
dóttir, f. 2.6.1901, d. 12.4.1973, hús-
freyja.
Faðir Björns var Oddur, prent-
smiðjumeistari á Akureyri, Björns-
son, b. síðar á Hofi í Vatnsdal, Odds-
sonar, b. á Marðarnúpi, Björnsson-
ar.
Björn O. Björnsson var bróðir Sig-
urður O. Björnsson, afa Valgerðar
H. Bjarnadóttur, fyrrv. forseta bæj-
arstjórnar á Akureyri.
Móðir Odds Björnssonar var
Rannveig Ingibjörg Sigurðardóttir,
b. á Eyjólfsstöðum i Vatnsdal, Sig-
urðssonar.
Móðir Björns O. Björnssonar var
Ingibjörg Benjamínsdóttir, b. á
Skeggjastöðum á Skagaströnd, Guð-
mundssonar, og konu hans, Ragn-
heiðarÁrnadóttur.
Guðríður, móðir Sigríðar, var
dóttir Vigfúsar, b. á Flögu í Skaftár-
tungu, Gunnarssonar, b. á Flögu í
Skaftártungu, Vigfússonar. Faðir
Gunnars Vigfússonar var Gunnar
Jónsson snikkari en kjörfaðir hans
Sigríður Björnsdóttir.
var Vigfús Bótólfsson.
Móðir Gunnars Vigfússonar var
Sigríður Ólafsdóttir. Móðir Vigfúsar
var Þuríður Ólafsdóttir, b. á Syðri-
Steinsýri, Ólafssonar, og konu hans,
Margrétar Gissurardóttur.
Móðir Guðríðar var Sigríður
Sveinsdóttir, prests í Ásum í Skaft-
ártungu og alþingismanns, Eiríks-
sonar, b. í Hlíð, Jónssonar. Bræður
Sigríðar voru Gísli Sveinsson, fyrsti
forseti Sameinaðs Alþingis, Páll
menntaskólakennari, faðir séra
Páls Pálssonar á Bergþórshvoli, og
Sveinn, b. á Fossi á Síðu, afi Brynju
Benediktsdóttur leikkonu og Sveins
Runólfssonar landgræðslustjóra.
Móðir Sveins var Sigríður Sveins-
dóttir, landlæknis Pálssonar. Móðir
Sigríðar, móður Guðríðar, var Guð-
ríður Pálsdóttir, prófasts og alþing-
ismanns á Síðu, Pálssonar, og Guð-
ríðar Jónsdóttur frá Kirkjubæjar-
klaustri.
Sigríður mun taka á móti gestum
í sal Lögreglufélags Reykjavíkur,
Brautarholti 30, laugardaginn 4.
nóvemberkl. 17.
HVERAGERÐJ
ATHUGIÐ!
BREYTTUR OPNUNARTÍMI
OPIÐ AÐEINS UM HELGAR,
LAUGARDAGA OG
SUNNUDAGA KL. 13-19
Já... en ég nota nú
yfirleitt beitið!
|| UMFEROAR
^
100 ára:
Steinunn Guðmundsdóttir
Steinunn Guðmundsdóttir, hús-
freyja og ljósmóðir að Skriðinsenni
í Óspakseyrarhreppi, er hundrað
áraídag.
Steinunn fæddist að Dröngum í
Árneshreppi á Ströndum og ólst upp
þar upp í foreldrahúsum fram á full-
orðinsár. Hún stundaði nám við
Kvennaskólann á Blönduósi í einn
vetur og lauk ljósmæðraprófi frá
Ljósmæðraskóla íslands 1914.
Steinunn var ljósmóðir í Árnes-
hreppsumdæmi 1914-20, í Óspaks-
eyrarhrepps- og Fellshreppsum-
dæmi 1926-57 en að hluta á móti
annarri ljósmóöur 1932^40 og
1946-57.
Steinunn er stofnfélagi Kvenfé-
lagsins Fjólu í Óspakseyrarhreppi
og fyrsti formaður þess.
Steinunn giftist 2.6.1923 Jóni
Lýðssyni, b. og hreppstjórá að
Skriðinsenni, f. 13.5.1887, d. 17.8.
1969, en foreldrar Jóns voru Lýöur
Jónsson, b. og hreppstjóri að Skrið-
insenni, og Anna Magnúsdóttir frá
Óspakseyri.
Steinunn og Jón eignuðust fimm
börn. Þau eru Anna Jakobína, f.
26.4.1924, húsmóðir og starfsmaöur
Pósts og sima á Hólmavík, gift
Kristjáni Jónssyni, póst- og sím-
stöðvarstjóra á Hólmavík, og eiga
þau sjö böm; Lýður, f. 17.9.1925,
bifreiðarstjóri í Reykjavík, kvæntur
Mundheiði Gunnarsdóttur frá
Hólmavík og eiga þau fjórar dætur;
Ólafía, f. 10.11.1928, ljósmóöir og
forstöðumaður Sjúkrahússins á
Hólmavík; Lilja, f. 19.8.1931, hús-
freyja, gift Hákoni Ormssyni, b. í
Skriöinsenni, og eiga þau þrjú börn,
og Anna Guðrún, f. 1.11.1932, hjúkr-
unarforstjóri á Hlíð á Akureyri, og
á hún einn son.
Steinunn átti þrjú systkini sem öll
eru látin. Þau vom Anna, f. 1891,
húsmóðir í Reykjavík, átti Sigurjón
Sigurðsson, bankastarfsmann hjá
Búnaðarbankanum; Finnbogi, f.
1893, garðyrkjumaöur á Eyrar-
bakka, en ekkja hans er Guðrún
Diðriksdóttir húsfreyja og eignuð-
ust þau tvö börn, og Eiríkur, f. 1895,
b. að Dröngum og síðar búsettur á
Akranesi og loks í Kópavogi, átti
Ragnheiði Pétursdóttur sem einnig
er látin en þau eignuðust níu börn.
Foreldrar Steinunnar vom Guð-
mundur Pétursson, f. 10.5.1854, d.
Steinunn Guðmundsdóttir.
10.1.1910, b. aö Dröngum, og kona
hans, Anna Jakobína Eiríksdóttir,
f. 19.8.1856, d. 1.8.1948.
Guðmundur var sonur Péturs, b.
á Melum og síðar að Dröngum, bróð-
ur Guðmundar á Finnbogastöðum,
langafa Magnúsar Óskarssonar
borgarlögmanns, föður Óskars, lög-
fræöings ogfyrrv. fréttastjóra DV.
Pétur var sonur Magnúsar, hrepp-
stjóra á Finnbogastöðum, Guð-
mundssonar, b. á Finnbogastöðum,
Bjarnasonar, forföður Finnboga-
staðaættarinnar. Móðir Péturs var
Guðrún Jónsdóttir, b. á Látrum á
Látraströnd, Ketilssonar og konu
hans, Karítasar Pétursdóttur, syst-
ur Jóns prófasts á Steinnesi, langafa
Sveins Björnssonar forseta. Jón á
Steinnesi var langafi Jóns Þorláks-
sonar forsætisráöherra og Þórunn-
ar, móður Jóhanns Hafsteins for-
sætisráðherra. Guðrún var dóttir
Jóns, b. í Stóm-Ávík í Víkursveit,
Péturssonar, b. á Dröngum, Magn-
ússonar. Móðir Guðmundar á
Dröngum var Hallfríður, systir
Jóns, afa Finnboga alþingismanns,
ritstjóra og bæjarstjóra í Kópavogi,
og Hannibals Valdimarssonar, föð-
ur Jóns Baldvins íjármálaráðherra
og Arnórs, heimspekings og prófess-
ors. Hallfríður var dóttir Jóns, b. á
Melum, Guðmundssonar. Anna
Jakobína var dóttir Eiríks, b. á
Haugi í Miöfirði, Eiríkssonar og
Önnu Þorleifsdóttur.
w
Soffia Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Sveinbjörn Sigurgeir Kristjánsson.
Gullbrúðkaup
Gullbrúðkaup eiga í dag hjónin
Soffía Sigurbjörg Jóhannesdóttir og
Sveinbjörn Sigurgeir Kristjánsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Sveinbjörn er fæddur 24.5.1908 á
Hamri í Hörðudal, en Soffía er fædd
24.7.1919 á Fremri-Þorsteinsstöðum
í Haukadal. Þau giftu sig í Reykja-
vik hjá séra Bjarna Jónssyni.
Fyrstu árin bjuggu þau í Stóra-
Skógi í Dalasýslu en árið 1943 fluttu
þau til Reykjavíkur og hafa búiö þar
síðan, að undanskildum árunum
1981-86 er þau bjuggu í Búðardal.
Þau hjónin eiga eina dóttur, Jó-
hönnu, bankastarfsmann í Reykja-
vík, f. 22.5.1950. Synir hennar eru
Hálfdán Sveinbjörn bakaranemi, f.
12.1.1970, og Jóhannes Agnar, f. 17.9.
1979.
Bogi Petur Guðjónsson
Bogi Pétur Guðjónsson, Kirkju-
hvoh, Hvolhreppi, Rangárvalla-
sýslu, veröur sjötugur á morgun.
Bogi er fæddur á Brekkum í Hvol-
hreppi og ólst þar upp. Hann vann
við almenn sveitastörf, auk þess
sem hann var margar vertíðir í
Vestmannaeyjum. Bogi giftist árið
1971 Önnu Hákonardóttur og bjuggu
þau í Kópavogi en leiðir þeirra
skildu árið 1981. í Reykjavík vann
Bogi sem byggingarverkamaður.
Árið 1986 flutti hann til Akraness
og bjó þar hjá Höllu dóttur Önnu til
ársins 1988 að hann fór að Kirkju-
hvoU.
Bogi átti þrjá bræður og fimm
systur. Af þeim eru tveir bræður og
tvær systur á lífi. Systkini Boga:
Ingigerður, húsmóðir í Kirkjulækj-
arkoti í Fljótshlíð, látin; Guðni,
fyrrv. bóndi að Brekkum, nú á Sel-
fossi; Katrín Jónína, húsmóðir í
Króktúni í Hvolhreppi, látin; Guð-
jón, fornbókasali í Reykjavík, lát-
inn; Guðný, síðast búsett í Þorláks-
höfn, látin; Anna, húsmóðir í Hvera-
geröi; Björgvin Kristinn, verkamað-
ur í Þorlákshöfn; og Guörún, hús-
móðir á Eyrarbakka.
Bogi Pétur Guðjónsson.
Faðir Boga var Guðjón, bóndi og
söðlasmiður á Brekkum, Jóngeirs-
son, bónda í Mörk, Jóns hómópata,
b. í Mörk. Kona Jóngeirs var Gunn-
vör Jónsdóttir, b. í Hlíðarendakoti,
Ólafs, prests í Eyvindarholti. Kona
Ólafs var Helga Jónsdóttir, eld-
prests Steingrímssonar.
Móðir Boga var Guðbjörg Guðna-
dóttir, b. á SkækU (nú Guðnastöð-
um) í Landeyjum, og fyrri konu
hans, Járngerðar Sigurðardóttur.