Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Blaðsíða 4
íf8ei aaaMaaaa.? íiuoaoutmmr FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1989. Fréttir 500 tonn af rotmassa fyrir svepparækt flutt inn frá Englandi: sýni af þeim og skýtur sú meðferð dálítið skökku við miðað við það skeytingarleysi sem rotmassinn nýt- ur. Yfirdýralæknir er umsagnaraðili þegar kemur að innflutningi og mun hann ásamt RALA hafa komist að því að innflutningur væri í lagi ef tryggt væri aö húsdýraáburður væri ekki í massanum og hann fengi ger- ilsneyðingu. Hitameðferðin felst í því að mass- inn hitnar upp í 60 til 70 gráður vegna rotnunarinnar sem verður þegar hann er unninn. Samkvæmt heimild- um DV er fráleitt að tala um ger- ilsneyðingu með þeim hætti. Staö- festi Sigurgeir að hæpið væri að tala um gerilsneyðingu á massanum og hann væri engan veginn líflaus. Eitt- hvað af bakteríum og sveppum væri í honum áfram og væri þannig flutt til landsins. Þá styðst RALA yið vottorð sem breská landbúnaðarráðuneytið sendir með hverjum farmi en þar kemur fram að farmurinn sé hættu- laus gagnvart plöntusjúkdómum. Um búfjársjúkdóma er hins vegar minna um svör. Beðið eftir svari síðan 21. júní Sigurgeir bað nm lögfræðilegt álit frá landbúnaðcirráðuneytinu 21. júni í sumar þar sem túlkað væri hvort innflutningurinn væri í lagi. Hann íttrekaði þessa ósk 21. september og hefur rekið enn frekar eftir því síð- ar. Þrátt fyrir það hefur hann engin svör fengiö ennþá. „Það er Ijóst að það er ekki hægt að bíða fram að áramótum með þetta. Ef ekki fæst þessi túlkun ráðuneytis- ins verðum við að stöðva þennan innflutning," sagði Sigurgeir. -SMJ í landbúnaöarráðuneytinu er nú verið að kanna hvoft heimilt sé að flytja inn rotmassa fyrir svepparækt en rúmlega 500 tonn af slíku efni hafa verið flutt inn frá því í ágúst 1988. Þá var veitt undanþága frá lög- um númer 11 frá 1928 um vamir gegn því að gin- og klaufaveiki og aðrir alidýrasjúkdómar berist til landsins. Þetta var gert þrátt fyrir að engin heimild væri fyrir því að veita und- anþágu til slíks innflutnings. Undan- þágan var veitt af landbúnaðarráðu- neytinu að fenginni umsögn yfir- dýralæknis. Hálmur er meginuppistaða í rot- massanum og að sögn Sveinbjörns Eyjólfssonar, deildarstjóra í land- búnaðarráöuneytinu, eru skýrar lín- ur um það að innflutningur á hálmi er óheimill. Innflutningur á þessum 500 tonnum virðist því stangast á við lög. Rotmassinn aldrei rannsak- aður Rotmassinn kemur hingað í gám- um og er eftirlit með innihaldi hans í höndum Rannsóknastofnunar land- búnaöarins. Svo ber þó við að rot- massinn hefur aldrei verið rannsak- aöur og sagði Sigurgeir Ólafsson hjá RALA að ástæða þess væri mannfæö og peningaleysi. Þess má hins vegar geta að þegar kartöflur voru fluttar inn fyrr á árinu voru reglulega tekin Verulegur sparnaður Rotmassinn, sem er fluttur inn frá Englandi, er notaður til að rækta sveppi í og þarf að vinna hann sér- staklega til þess að hann gagnist sem slíkur. Gerð rotmassans er nokkuð dýr og því spara sveppaframleiðend- ' ur töluverða fjármuni meö því að flytja hann inn. í massanum er hálmur og sam-. kvæmt upplýsingum frá Hensby Compost í Englandi, en það er fyrir- tækið sem framleiðir rotmassann, er einnig húsdýraáburður í þeim rot- massa sem framleiddur er fyrir Eng- land. Því var hins vegar neitað að húsdýraáburður væri í þvi efni sem flutt er til íslands og var sagt fyrir- tækið gerði sér grein fyrir að slíkt væri bannað hér. Hér er verið að athuga hita í rotmassanum en hann er meðal annars notaður i sveppabúinu á Artúnshöfðanum þar sem um 60% af sveppaframleiðslunni verða til. Eftir notkun er massinn settur út þar sem hann blandast jarð- veginum. DV-mynd KAE Innf lutningur sem stang ast á við gildandi lög - beðið eftir lagatúlkun landbúnaðarráðuneytisms síðan í sumar I dag mælir Dagfari Ráð að engu höfð George Bandaríkjaforseti hringdi í Steingrím Hermannsson á dögunum. Georgie vildi fá ráö hjá Denna utn hýað hann ætti að segja við Gorba. Þetta var stutt hringing heim í Arnameseið þar sem Denni var um það bil aö faraí báð, svona eins og þegar kunningjar slá á þráðinn til að héyra hljóðið hvqr í öðrum. Enda fór vel á meö þeim Denna og Georgie og sá síöarhefndi hitti síðan Gorba á Möltu til að ræða um alþjóðamál eftir aö hafa fengið góö ráð úr baökerinu á Arn- amesi. Eitt af því sem Denni ráðlagði Bandaríkjaforseta var að draga úr vígbúnaði á höfunum. Einhvem pata hefur Gorbatsjof haft af ráð- leggingum Denna því aö Sovétmað- urinn var á undan forsetanum að nefna þetta með afvopnun í höfun- um og hefur sennilega viljað hafa frumkvæðiö úr því að Denni hafði hreyft þessari skoðun. En af ein- hveijum óskiljanlegum ástæðum hafnaði Bandaríkjaforseti uppást- ungu þeirra Denna og Gorba og vildi fyrst ræða um afvopnun á meginlandi Evrópu. Sennilega hef- ur Georg ekki skiliö Rússann nógu vel, eða þá farið í fýlu yflr þvi að hafa ekki látið sér detta þetta í hug á undán hinum. Alla vega var Bandaríkjaforseti öfugur og snúinn i þessu máli og niðurstaðan er sú að kafbátar og kjamorka munvaða uppi í Norður-Átléntshafinu ineð- an menn keppast við að afvopnast-: í Evrópu. j v , Á Natófundirium eftir leiðtoga- fundinn tók Denni málið uþp i nýjan'Ieik.TÍann skammaði Banda-. ríkjaforseti fyrir að gegna sér pkiki V1 - og nú talaöi Denni ekki lenga^fel' baðkarinu heima hjá sér heldúriúr- ræðupúltinu hjá Atlantsháfs- bandalaginu. Denni sagði að það væri til lítils að fækka vopnum á meginlandinu ef öllum vígbúnaðin- um væri síðan hrúgað ofan í Atl- antshafiö. Hann sagði þeim að ís- lenskir framsóknarmenn væru al- gjörlega á móti því að George Bush Bandaríkjaforseti væri á móti því að Gorbatsjof væri á móti því að fækka bara vopnum á meginland- inu. Og menn taka eftir því sem Denni segir. Hann er búinn að fara vítt og breitt um heiminn og gefa mönnum góð ráð í efnahagsmálum og hann hefur auk þess tvo fræga alþjóðastjómmálamenn í ríkis- sljóm sinni, sem vita hvað þeir era að tala um. Ólafur Ragnar Grímsson er heimsfrægur fyrir störf sín í Heimsfriðarsambandi þingmanna og er nú sá eini sem heldur völdum af leiðtogum þeirra samtaka eftir að Alfonsin og Gandhi voru reknir frá völdum fyrir spillingu. Jón Baldvin Hannibalsson er kannske ekki heimsfrægur ennþá, en hann er orðinn mjög frægur í Evrópu og svo mikilvægur að hann verður að biðjast afsökunar á því þegar hann getur ekki mætt á fundum í útlönd- um vegna þess að stjómarandstað- an er að tefja fyrir honum hér heima. Enda varð Jón Baldvin bæði móðgaður og reiður út í Þor- stein og þingið fyrir aö dirfast að flytja vantrauststillögu á sig í þann mund sem hann var að fara á fund. Það verður aldeilis neyðar- ástandið í málefnum Evrópu þegar Jón Baldvin verður að hætta að vera utanrikisráöherra vegna þess að íslenskir kjósendur vita ekki hvað hann er merkilegur í öðmm löndum. Ef allt fer í upplausn þegar Jón getur ekki mætt á einn fund hvernig verður þá ástandið þegar hann hættir að mæta yfirleitt? Nei, þeir mega fara að passa sig hjá stórveldunum þegar þetta þrí- stirni frá íslandi byrstir sig á fund- um hjá Nató og satt að segja yröi það miklu sterkara fyrir friðinn og þróunina í alþjóðamálum að láta íslensku ráðherrana ráða ferðinni í staðinn fyrir Georgie og Gorba. Það kom líka í ljós að Möltufundur- inn var fíaskó og þó voru þeir bún- ir að fá Jón Hákon Magnússon lán- aðan til að segja þeim hvernig halda ætti svona leiðtogafund. Það er ekkert vit í neinu lengur nema íslendingar komi þar við sögu og þetta eiga menn að vita í útlöndum og vita í rauninni þótt þeir séu enn að streitast við að ráða einhveiju, leiðtogamir í Bandaríkjunum og Sovét. Næst þegar Georgie hringir í Denna í baðið heima í Arnarnesi þá á hann aö taka mark á honum ef Bandaríkjaforseti ætlar að hafa einhver áhrif á annað borð. Denni lætur ekki bjóða sér þaö tvisvar í röð aö hafa ráö sín að engu. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.