Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1989, Blaðsíða 5
hvert félag fyrir sig innan BSRB fer 1 sérstakar samningaviðræður
Samkvæmt heimildum DV hefur
verið bæði hik og tregða hjá ríkis-
stjóminni í þeim könnunarviðræð-
um sem Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja hefur átt við fulltrúa hennar
um nýjan kjarasamning.
Bæði Ólafur Ragnar fjármálaráð-
herra og Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra hafa lýst því yfir
að þeir vilji að samningar við opin-
bera starfsmenn bíði fram yfir samn-
inga á hinum almenna vinnumark-
aði. Þeir fara ekki í gang fyrir alvöru
fyrr en eftir áramótin. Þessu hafa
forystumenn opinberra starfsmanna
algerlega hafnað. Þeir hafa bent á
nauðsyn þess að fyrst verði samið
um launajöfnuð innan félaga opin-
berra starfsmanna áður en eiginleg-
ar samningaviðræður um gerð nýs
heildarkjarasamnings hefiast.
Ríkisstjórnin viðurkennir að þetta
verði að gera og því verði ekki slegið
á frest lengur. Hins vegar munu ráð-
herrar vera hræddir við að sú leið-
rétting, sem opinberum starfsmönn-
um hefur verið lofað fyrir löngu,
muni leiða til þess að almenni mark-
aðurinn miði sig við þessa leiðrétt-
ingu þegar að almennu samningun-
um kemur. Þess vegna vilja ráö-
herramir að samningar opinberra
starfsmanna bíði fram yfir samning-
ana á almenna markaðnum.
Nú hefur verið ákveðið að hvert
félag fyrir sig innan BSRB fari í
samningaviðræður. Vitað er að mjög
heitt er orðið í kolunum hjá mörgum
þeirra. Því er spáð að aukin harka
færist í þetta mál á næstunni, jafnvel
fyrir jól.
„Eftir þær könnunarviðræður sem
fram hafa fariö milh okkar og full-
trúa ríkisstjórnarinnar hefur verið
ákveðið að hvert félag fyrir sig innan
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
fari í samningaviðræður við ríkið.
Það er öllum ljóst að um langtíma
heildarsamning getur ekki orðið að
ræða fyrr en búið er að ganga frá
samræmingu launa innan félaganna
eins og oft hefur verið bent á. Og
auðvitað kemur ekki til greina að við
sættum okkur við að bíða fram yfir
samninga á hinum almenna launa-
markaði," sagði Ögmundur Jónas-
son, formaður bandalagsins.
Einar Ólafsson, formaður stærsta
félagsins, Starfsmannafélags ríkis-
stofnana, tók mjög í sama streng.
Hann sagöi að jafnvel þótt opinberir
starfsmenn vildu vera samstiga Al-
þýðusambandinu við gerð kjara-
samninga að þessu sinni gæti það
ekki orðið fyrr en launamisréttið
hefði verið leiðrétt.
-S.dór
HÖLDUM
ÍSLENSI ^ '
Langar þig til að kynnast ísiensku jólasveinunum?
Þú getur eignast bóndabæ og gömlu jólasveinana, sem þú setur saman
sjálf(ur), ef þú safnarmerkium og sendir þau til:
SÓL merkin finnur þú framan á NEKTAR safa og Hreinum safa
frá QU (sjá mynd). Merkin klippir þú út og safnar þar til þú ert
búin að fá lOstykki. Þá getur þú beðið pabba og mömmu, afa
og ömmu að hjálpa þér. Miðana setur þú svo í umslag ásamt
nafni þínu og heimilisfangi og sendir til okkar.
NEKTAR AVAXTADRYKKUR
Nýju ávaxtadrykkirnir frá BCTl heita NEKTAR, en það er
ævafornt heiti á ódáinsdiykk guða Grikkja og Rómverja. NEKTAR
er mildari en óblandaður safi og fer því betur í maga.
Magnl títrt
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1989.
Fréttir
Stefnir 1 hörku í kj arasamningum opinberra starfsmanna:
Hæstaréttardómur:
Þjóðviljinn sektað-
ur um 100 þúsund
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm
í máh Þjóðviljans og Guðmundar G.
Þórarinssonar alþingismann. Hæsti-
réttur tekur mun mýkra á málinu
en gert var í undirrétti. Refsisekt er
felld út og eins er Þjóðviljanum ekki
gert skylt að birta dóminn á forsíðu.
Blaðinu er þó skylt að birta dóminn
með áberandi hætti innan tveggja
daga frá útgáfu dómsins.
Guðmundur stefndi ritstjórum
Þjóðviijans vegna fréttar þar sem
sagði að fyrirtækið Þýsk-íslenska
hefði verið tekið til rannsóknar
vegna gruns um stórfelld skattabrot.
í fréttinni var sagt að Guðmundur
væri einn hluthafa og hann hefði
verið stjórnarformaður á hluta þess
tímabils sem skattrannsóknin náði
yfir. Hæstiréttur, svo og borgardóm-
ur, dæmdu þessi ummæh dauð og
ómerk.
„Stjórnarformaður fyrirtækisins
og annar framkvæmdastjóri þess
fram á haustdaga 1984 var Guðmund-
ur G. Þórarinsson. . . Hann er einn
af stærstu hluthöfum fyrirtækisins."
Þessi ummæli voru einnig dæmd
dauð og ómerk.
Ritstjórunum Árna Bergmann og
Össuri Skarphéðinssyni var gert að
greiða Guðmundi G. Þórarinssyni
100 þúsund krónur í miskabætur,
auk vaxta frá 30. janúar 1986. Össuri
og Áma var gert aö greiða máls-
kostnað, alls 150 þúsund krónur. En
málskostnaður vegna Útgáfufélags
Þjóðviljans var felldur niður.
Þá var Össuri og Árna gert að
greiða Guðmundi 50 þúsund krónur
til að kosta birtingu dómsins í opin-
berum blöðum.
Mál þetta dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Guðmundur Jónsson, Bjarni
K. Bjarnason, Haraldur Henrýsson
og Hrafn Bragason og Arnljótur
Björnsson prófessor. Bjarni og Am-
ljótur skiluðu sératkvæði. Þeir voru
sammáia meirihlutanum að öllu leyti
nema því að þeir töldu ástæðulaust
að felia niður refsisektina. -sme
Hik ogtregða hjá stjórninni
Eða þú kemur með þá í afgreiðslu Sóiar I
Þverholti 19.
Þekkir þú
einhvern sem heyrir illa
í sjónvarpi eða útvarpi?
Kíktu í smáauglvsinga-
dálkinn „TIL SÓLU“,
„Einkahlustarinn“.