Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1989, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1989.
íslendingar eiga mjög erfitt uppdrátt-
ar gegn ríkisvaldinu.
Dómstólar eiga
að vera hlutlausir
Það kemur oft fyrir að menn vilja
fara í réttindamál þrátt fyrir að þeim
sé gerð grein fyrir-að á brattann verði
að sækja. Ef menn eru tilbúnir til að
fara í málarekstur eigi að síður þá
hef ég stundum verið tilbúinn að taka
mál að mér.“
- Þú segir að dómstólar séu haliir
undir ríkisvaldið. Ef rétt er er dóms-
kerfið þá ekki stórlega gallaö?
„Það hefði ég haldið. Eg tel auðvit-
að, og vona að allir ærlegir íslending-
ar telji, að dómstólar eigi að vera al-
gjörlega hlutlausir og beita hlutlaus-
um lagareglum. Þeir mega ekki láta
múgæsingu, sérstaka ríkishagsmuni
eða annað valda því að þeir dæmi
ekki eftir hlutlausum lögfræðilegum
mælikvarða. Þetta er að mínu áliti
mjög þýðingarmikið atriði og ég tel
að þetta sé ekki nægilega í heiðri
haft hér á landi, því miður.“
- Nú hefur þú haldið margar langar
ræður í dómsölum. Skipta ræðurnar
miklu máh? Dómararnir hafa fengið
öll gögn málsins og kynnt sér þau og
eru þessar ræður þá ekki þýðingar-
litlar þar sem engir kviðdómendur
eru?
„Ég held að málflutningurinn
skipt-
i miklu máli. Það er rétt að grundvöll-
inn er búið að leggja í skjölum máls-
ins - og þar birtist það sem málið
snýst um. Ég held engu að síður að
góður málflutningur geti oft ráðið
úrshtum í málum. Ég reyni að leggja
hart að mér í málflutningi þar sem
ég hef þá trú að málflutningurinn
skipti máh. Ég hef að vísu ekki flutt
mál fyrir kviðdómi, nema einu sinni
í sjónvarpsþætti, en það hlýtur að
vera töluvert öðruvísi að flytja mál
þannig en fyrir framan þjálfaða lög-
fræðinga. Ræðuflutningur er náttúr-
lega alltaf ræðuflutningur og það
skiptir máh að flytja ræðu þannig aö
þeir sem eiga að hlusta sofi ekki.
Stjórnmálamenn
sláryki
Fyrir dómi eru kröfumar um efni
ræðunnar mjög strangar. Ég get bor-
ið saman að flytja ræðu fyrir dómi
eða póhtíska ræðu. Þetta er eins og
svart og hvítt. Stjómmálamenn
reyna að slá ryki í augu þeirra sem
á horfa og hlýða og reyna að drepa
málum á dreif. Þetta gengur aldrei í
málflutningi fyrir dómi. Eitt dæmi: í
máh Magnúsar Thoroddsen kom
fram að það vom óútskýrðar áfengis-
úttektir á vegum ráðherra frá fjár-
málaráðherratíð Jóns Baldvins. Enn
hafa ekki fengist skýringar á þessum
úttektum. Síðar varð Jón Baldvin
uppvís að því að gefa kunningja sín-
um áfengi til veisluhalda. Hann hélt
blaðamannafund og lagði fram hsta
yfir ahar opinberar móttökur sem
haldnar vom eftir að hann tók við
embætti utanríkisráðherra og sagði
að hann hefði gert hreint fyrir sínum
dyrum. Hann skoraði á aðra að leggja
einnig fram slíka hsta. Það hafði eng-
inn haldið því fram að utanríkisráðu-
neytið héldi ekki opinberar móttök-
ur. Hann svaraði engu um það sem
máhð snerist um. Það em þessar
óútskýrðu áfengisúttektir. Það mátti
lesa í blöðum lesendabréf þar sem
fólk sagði að Jón Baldvin hefði gert
hreint fyrir sínum dymm. Þetta er
dæmi um það hvemig stjórnmála-
manni tekst aö slá ryki í augu al-
mennings með behibrögðum. Svona
málflutningur gengi ekki fyrir dóm-
stólum."
- Þú minnist á stjórnmál. Hefurðu
haft afskipti af þeim?
„Á mínum yngri árum tók ég þátt
í starfi Heimdahar og Sambands
ungra sjálfstæðismanna. Ég hef ekki
síðan tekið, að neinu marki, beinan
þátt í póhtísku starfi."
Stjómmálin
á lágu plani
- Ert þú með þingmanninn í magan-
um?
„Ég hef ekki áhuga á að fara þá
Jón Steinar með tvö af þremur yngstu börnunum, Hlyn, rúmlega ársgamlan, sem situr í fangi föður síns, og Konráð, fimm ára. Heimasætan, Hulda
Björg, þriggja ára, var sofnuð þegar myndasmiðurinn kom í heimsókn. DV-myndir GVA
braut. Það eru margir galvaskir
menn sem ég treysti ágætlega til að
sinna því starfi."
- Ert þú sáttur við forystu þíns
flokks?
„Ég tel að ýmislegt hefði mátt betur
ganga þar upp á síðkastið. Ég tek þó
fram að ég met mikils formanninn,
Þorstein Pálsson, sem reyndar er
góður vinur minn.“
- Hvaða augum htur þú stjómmáhn
hér á landi?
„Því miður verð ég að segja að
stjórnmáhn hér á landi eru á lágu
plani. Til dæmis er alltof algengt að
staðreyndum sé snúið við í stjórn-
málunum. Iðulega er beitt belhbrögð-
um í stjómmálaumræðum og ahtof
algengt að hér sé verið að deila um
staðreyndir í stað þess að ræða sam-
an um þær. Menn búa sér til mismun-
andi forsendur þannig að fólk veit
ekki hvað snýr upp og niður. Ég held
að víða erlendis líðist mönnum ekki
svona vinnubrögð. Þar að auki hefur
ýmislegt verið að gerast í stjórn-
málum sem er að mínu áhti áhyggju-
efni. Th dæmis standa óprúttnir
stjómmálamenn fyrir aðför að
mönnum án þess að þeir fái að njóta
sjálfsagðs réttaröryggis. Stjómmála-
menn færa sig upp á skaffið þar sem
þeir komast upp með ýmsa hluti. Ég
get nefnt eitt dæmi: aðgerðir íjár-
málaráðuneytisins við innheimtu á
söluskatti. Því fer fjarri að þar hafi
verið gætt eðhlegra réttarhagsmuna
borgaranna. Þar er gengið fram með
lokunum á fyrirtækjum þannig að
jafnvel skiptir ekki máh hvort þeir
sem lokað er hjá skulda skattinn eða
ekki. Svona stjómsýsla veldur mikl-
um áhyggjum.“
Jón Steinar er önnum kafinn mað-
ur. í gær varð hann mæta hjá hinum
ýmsu dómstólum vegna þriggja mála.
Hann er með fjölda mála í gangi.
Hafskipsmálið mun taka mikinn tíma
þegar yfirheyrslur hefjast í Sakadómi
Reykjavíkur áttunda janúar. Hætt er
við að dagskrá Jóns Steinars og ann-
arra lögmanna riðhst mikið fyrstu
vikur næsta árs vegna þessa um-
fangsmikla máls.
-sme