Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Blaðsíða 9
9
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
Panamabúar skoða skrifstofur Noriega þar sem fólk hefur þegar látið greip-
ar SÓpa. Simamynd Reuter
Orðrómur um
flutning
á Noriega
Manuel Noriega hershöfðingi kom
í annað sinn fyrir rétt í Miami í gær.
Þá var fjallað um beiðni saksóknara
um að Noriega verði ekki sleppt gegn
tryggingu en dómari frestaði úr-
skurði í málinu. Það verður tekið
fyrir á ný 26. janúar næstkomandi.
Talið er að Noriega verði fluttur
úr fangaklefanum í dómshúsinu á
næstunni í öruggari fangageymslur
og þetta hafl því veriö í síðasta sinn
sem hann hafi sést í dómsal. Yfirvöld
hafa lýst yfir áhyggjum sínum yfir
að kólumbískir eiturlyfiasalar kunni
að reyna aö myrða Noriega til að
koma í veg fyrir að hann leysi frá
skjóðunni. Lögfræðingur Noriega
sagðist vera mótfallinn flutningi frá
Flórída þar sem það myndi gera sam-
vinnuna við- hershöfðingjann um
vörn hans erfiðari.
Yfirvöld í Perú hafa veitt hæli fimm
panamískum liðsforingjum, sem
hafst hafa við í sendiráði Perú í Pan-
amaborg frá því að Bandaríkjamenn
gerðu innrásina.
Stjórnaerindrekar eru sagðir hafa
beðið yfirvöld í Panama um að leyfa
liðsforingjunum og fiölskyldum
þeirra að fara úr landi. Utanríkisráð-
herra Panama sagði að þeir fengju
að fara ef þeir ættu ekki yfir höfði
sér ákærur.
Bandaríkjamenn stóðu vörð fyrir
utan sendiráð Perú á mánudaginn
og í gær. Yfirvöld í Perú mótmæltu
því við Bandaríkjastjórn og for-
dæmdu í leiðinni innrásina.
Starfsmaðui' sendiráðs Kúbu í Pan-
amaborg sagði í gær að þrír af tutt-
ugu og sjö sem þar hefðu leitað skjóls
heföu yfirgefið sendiráðið í gær eftir
að yfirvöldu hefðu tryggt að þeim
yrði ekki gert mein. Bandarískir her-
menn hafa einnig umkringt kúb-
anska sendiráðið.
Reuter
Svíþjóö: •
Óánægja með
nýjan ráðherra
Útnefning Rune Molins, varafor-
manns sænska alþýðusambands-
ins, í embætti iðnaðarmálaráð-
herra í gær sætti þegar í stað mik-
illar gagnrýni samtaka umhverfis-
verndarsinna. Kalla þeir hann
steinsteypukrata sem vilji bæði
halda kjarnorkuverum og virkja
ár.
Birgitta Dahl, sem var bæði orku-
og umhverfismálaráöherra, fær nú
eingöngu umhverfismálin á sína
könnu en orkumálin flytjast til iðn-
aðarmálaráðuneytisins. Segja um-
hverfisverndarsinnar að með því
að gera Molin að iðnaðarmálaráð-
herra hafi forsætisráðherrann,
Ingvar Carlsson, greitt götuna fyrir
svikum á loforöi Birgittu Dahl um
að stjórnin myndi leggja niður tvö
kjarnorkuver á árunum 1995 til
1996.
Nýr atvinnumálaráðherra var
einnig útnefndur í gær, Mona Sa-
hlin.
Með uppstokkuninni ætlar for-
sætisráðherrann sænski að endur-
skipuleggja samvinnu ráðher-
ranna. Samvinnan mun fara fram
á þremur sviðum, utanríkis- og ör-
yggismála, samfélagsmála og efna-
hagsmála. tt
Útlönd
w Samskipti Armena og Azera í Sovétríkjimum:
Olgar undir yf irborðinu
Mikil spenna ríkir enn á milli Az-
Yfirvöld í Moskvu þurfa nú að leita leiða til lausnar þjóðernisdeilum í suður-
hluta Sovétrikjanna auk þess að leita sátta við kommúnista í Eystrasaltsríkj-
unum - Lettlandi, Litháen og Eistlandi.
era og Armena í Sovétríkjunum
vegna deilna um héraðiö Nagorno-
Karabakh sem er í lýðveldinu Az-
erbajdzhan. Löngum hefur verið stirt
á milh þessara þjóðarbrota en bæði
lýðveldin vilja yfirráð yfir héraðinu
sem Armenar byggja að mestu. Arm-
enskir kommúnistar í Stepanakert,
höfuðborg héraðsins, gengu út úr
skrifstofum sínum í gær frekar en
að hitta að máh félaga frá nágranna-
lýðveldinu. Þetta sýnir betur en
margt annað hversu mikil spenna
ríkir milli íbúa lýðveldanna tveggja.
Rúmlega eitt hundrað og tuttugu
manns hafa týnt lífi í átökum sem
blossað hafa upp milli Azera og Arm-
ena síðustu tvö ár. Bardagar og
vopnaskak eru daglegt brauð hjá íbú-
um héraðsins.
í héraðinu Nakichevan í
Azerbajdzhan, nærri írönsku landa-
mærunum, hafa mótmæli íbúanna
leitt til þess að yfirvöld hafa gefið
eftir og heitið frjálsari ferðaheimild.
Miklar róstur hafa átt sér stað á
landamærunum og liggja nú nær all-
ar landamæragirðingar á jörðinni.
Azerar vilja nánari samskipti við ír-
ani en beggja vegna landamæranna
búa Azerar sem aðhyllast shíta-
múhameðstrú.
Hugmyndafræðingur sovéska
kommúnistaflokksins, Vadim
Medvedev, sagði í gær að flokkurinn
gæti hagnast af minni miðstýringu
en varði jafnframt hlutverk flokks-
ins sem „leiðandi afls“ í umbóta-
hreyfingu Gorbatsjovs forseta.
Medvedev sagði að á allsherjarfundi
kommúnistaflokksins, sem verður
haldinn í lok þessa mánaðar, yrði
lagt til að kommúnistaflokkar lýð-
veldanna fengju aukið sjálfstæði.
Ummæh Medvedevs, sem nú er
staddur í Litháen, koma í kjölfar
haröorðrar gagnrýni á Litháa.
Kommúnistar í Litháen samþykktu
nýverið að slíta öll tengsl við móður-
flokkinn í Moskvu og setja á laggirn-
ar sjálfstæðan kommúnistaflokk.
Von er á Gorbatsjov til Litháen á
næstunni þar sem hann mun ræða
við ráðamenn um fyrrnefnda
ákvörðun íbúanna. Óljóst er hvenær
heimsókn forsetans hefst en talið var
að hún hæfist í dag. En í gær var
skýrt frá þvi í dagblaði í Litháen að
hann kæmi ekki fyrr en á morgun.
Yfirvöld í Moskvu hafa enn ekki sagt
hvenær ferð forsetans hefst.
Reuter
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán-
aðar.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
Gerið skil tímanlega
RSK
RtKISSKATTSTJÓRI