Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990. 13 Lesendur Vio viljum prófkjör Jóhann Ólafsson skrifar: Ég íinn mig knúinn til þess að láta í ljós óánægju með þá ákvörð- un Sjálfstæðisflokksins, ef hún verður þá endanlega ofan á, að við- hafa ekki prófkjör hér í Reykjavík eins og ávallt hefur verið tíðkað hin seinni ár. Þetta er orðin slík hefð að ég hélt að ekki kæmi annað til greina. Og þá einnig fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Ég tel það mikla afturfór í póli- tísku viðhorfi ef prófkjör verður ekki í þetta sinn hjá Sjálfstæðis- flokknum hér í borginni og verkar á mig sem eins konar uppgjöf gagn- vart hinum flokkunum, sem alltaf hafa reynt að koma sér hjá próf- kjöri með einhverju móti. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur kannski einmitt verið svo sigurstranglegur hingað til hér í borginni vegna þess að hann er tahnn frjálslyndari og opnari en hinir flokkarnir. Ég held að prófkjör, hvernig svo sem fyrirkomulagið er, sé bara spuming um álit og ímynd flokks- ins út á við. Verði því hafnað að viðhafa prófkjör fyrir næstu kosn- ingar óttast ég minnkandi kjörfylgi við þennan ágæta flokk sem ég hef ávallt kosið og fylgt í borgarmálum. Það em nefnilega margir sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn þótt þeir kjósi annað í alþingis- kosningum. Við skulum gæta að því. Og við skulum líka muna að fyrir því em gildar ástæður. Þurfum á styrk að halda Hafnfirðingur hringdi: Ég tek undir skrif í lesendabréfi sem birtist í DV í dag (8. jan.) þar sem ungur kjósandi (kýs nú í fyrsta sinn) hefur af því áhyggjur ef hann fær ekki að taka þátt í að velja full- trúa á framboðslista flokks síns vegna væntanlegra borgarstjóm- arkosninga í Reykjavík. Hér í Hafnarfirði var viðhaft prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum vegna komandi bæjarstjómar- kosninga og sami háttur var hafður á í nágrannakaupstaðnum Kópa- vogi. Breytingar á hstunum urðu umtalsverðar á báðum stöðum. Þetta er tímanna tákn, að vilja breyta til og fá að hafa sjálfdæmi um það hveijir eigi að gegna opin- bemm trúnaðarstörfum fyrir okk- ur tiltekið tímabil. - Lýðræði í framkvæmd. Reykjavík hefur verið í farar- broddi hvað prófkjör varðar og það er ekki vænlegt til árangurs ef aht í einu á að segja við kjósendur; jæja, nú er ekki þörf á prófkjöri lengur, það er ekki æskhegt núna því það voru svo góðir menn kosn- ir síðast að allir eru ánægðir með að hafa þá áfram, alla vega næstu fjögur árin! - Við sjáum svo til hvað setur eftir fjögur ár! Nei, ég held að þetta sé mjög röng aðferð hjá Sjálfstæðisflokknum ef hann ætlar að halda völdum í höf- uðborginni. Það hefur enda ekki heyrst mikið frá andstöðuflokkun- um eftir að yfirlýsing um að efna ekki til prófkjörs í Reykjavík birt- ist. - Þegar ástandið í stjórnmálum er eins og nú þá þurfa sjálfstæðis- menn á öllum þeim styrk að halda sem fáanlegur er og hann fæst ekki með því að læsa úti lýðræðið held- ur með því að opna gáttir og halda þeim opnum. Hvað segja atkvæðin? Helga hringdi: Það hefur vakið undmn margra við að heyra að e.t.v. eigi ekki að hafa prófkjör hér í Reykjavík fyrir næstu borgarstjómarkosningar. Þetta er ekki sú snjallasta hug- mynd sem fram hefur komið til að efla Sjálfstæðisflokkinn og halda þeim styrk sem hann þó hefur hér í borginni. Ég er þess fullviss að kjósendur hér vilja hafa eitthvað um það að segja hveijir eru í kjöri fyrir flokkinn í höfuðborginni. Það er ekki víst að allir vilji að sömu menn sitji lengur en eitt kjör- tímabil í borgarstjóm. Aðrir vilja fá að votta þeim traust sitt á ný og enn aðrir telja að eðlilegt sé að skipta á aðalmönnum og vara- mönnum. Til þess séu varamennn, að þeir gangi upp í aðalsæti. Próf- kjör veitir kjósendum tækifæri til að ráða þessu. Hvað ef aldrei hefði verið próf- kjör? Hefðu þeir aðilar sem nú sitja í borgarstjórn verið kosnir eða valdir á lista af einhverri nefnd eða ráði innan flokksins? Það er alls ekki víst. Og þótt sumir segi sem svo að núverandi Usti sé jafngóður og hann var fyrir síðustu kosning- ar þá er þetta álit náttúrlega ekki skothelt gagnvart öllum kjósend- um flokksins. - Er ekki ráð að spyrja þá sjálfa? - Atkvæðin, hvað segja þau? I „Fuji((-skógi í Sjónvarpinu Ur Guttormslundi i Hallormsstaðaskógi. Hann var m.a. til umræðu i nefnd- um sjónvarpsþætti. E.H. skrifar: Ég held, að það hafi verið Stöð 2 sem fyrst kynnti þann möguleika, sem lengi hefur tíðkast erlendis, að fyrirtæki ábyrgðist eða kostaði sjón- varpsþætti sem væru svo sýndir, venjulega með gagnkvæmum ávinn- ingi fyrirtækisins og sjónvarpsstöðv- arinnar. - Svona nokkuð hafði verið fordæmt hér á landi. Og helst mátti ríkisfjölmiðitl ekki koma nálægt neins konar samskiptum við fyrir- tæki á hinum fijálsa markaði - nema taka við auglýsingum og helst gegn staðgreiðslu! Þetta er nú að breytast og viðhorf hins opinbera hljóta að taka mið af því hvað hinir fijálsu fjölmiðlar gera. Ég er ekki frá því að Ríkissútvarpið hafi tekið upp ýmislegt það sem kynnt hefur verið hjá hinum frjálsu fjölmiðlum þótt andstaða hafi verið í byrjun. Það þótti t.d. ekki bjóðandi að leika tónhst undir auglýsinga- lestri hjá Ríkisútvarpinu. Viðhorfiö breyttist eftir að fijálsu útvarps- stöðvarnar ruddu brautina. Ég held jafnvel að þetta hafi byrjað með „Fréttaútvarpinu“ sem DV setti á fót í verkfalli hérna um árið. En það sem mér fannst vera athygl- isvert í gærkvöldi er ég var að horfa á þáttinn „Hallormsstaðaskógur vís- ar veginn", ágæta og mjög fróðlega sjónvarpsmynd, að hún var sögð gerð að tilstuðlan eða kostuð af Fuji- fyrirtækinu (Ég man nú ekki ná- kvæmlega hvemig þetta var orðað því að það var ekki sérstaklega skýrt í dagskrá blaðanna t.d.). Þetta finnst mér vera framfor hjá hinum ríkisreknu fjölmiðlum að þora að hafa samvinnu við fyrirtæki á hinum fijálsa markaði um að fá svona myndir gerðar. Eg man líka eför að Flugleiðir kostuðu eða styrktu gerð raðþátta um þróun flug- véla og var það líka skemmtilegur þáttur. - Það er vonandi farinn af að fullu þessi heimóttarháttur hjá Rík- isútvarpinu að þora ekki að tengja saman viðskipti og hagsmuni. Hjá því verður aldrei komist og guð láti gott á vita. Fyrir nuddstofu, sjúkraþjálfara eða aðra skylda starfsemi. Til leigu mjög góð aðstaða I samstarfi við heilsurækt- arstöð. Nuddpottur, góðar sturtur og rúmgóð kaffi- stofa, aðstaða fyrir Ijósabekki o.fl. Hagstæð leigu- kjör. Uppl, í síma 43323. REYKJIðlÍKURBORG AUGLYSING UM FASTEIGNAGJÖLD Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík 1990 og verða álagningarseðlar sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjaldanna. Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars og 15. apríl. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi. Fasteignagjaldadeild Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 18000. Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar hafa fengið lækkun á fasteignaskatti samkvæmt reglum sem borgarstjórn setur og framtalsnefnd úrskurðar eftir, sbr. 4. mgr. 5 gr. laga nr. 91/1989 um tekjustofna sveitarfélaga. Vegna mistaka við tölvuvinnslu var sama hlutfallsleg lækkun og ákveðin var á árinu 1989 reiknuð inn á álagningarseðla vegna ársins 1990. I mörgum tilvikum og sennilega flestum mun þessi lækkun reynast rétt. í öðrum tilvikum kunna elli- og örorkulífeyrisþegar að eiga rétt á meiri lækk- un gjaldanna og í örfáum tilvikum minni lækkun. Þegar framtöl hafa verið yfirfarin, sem vænta má að verði í mars- eða aprílmánuði, verður viðkomandi tilkynnt um niðurstöður, ef um breytingu verður að ræða. Borgarstjórinn í Reykjavík, 9. janúar 1990 Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57, föstud. 12. jan 1990 kl. 11.00: Mánabraut 6B, þingl. eigandi Lífeyiis- sjóður Vesturlands, talinn eigandi Eggert Guðmundsson. Uppboðsbeið- endur eru Lögmannsstofan Kirkju- braut 11, Veðdeild Landsbanka ís- lands og Ásgeir Thoroddsen hdl. Presthúsabraut 26, þingl. eigandi Ól- afía S. Grímsdóttir. Uppboðsbeiðend- ur eru Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. og Valgarður Sigurðsson hdl. Reynigrund 28, þingl. eigandi Rúnar Pétursson. Uppboðsbeiðandi er Akra- neskaupstaður. Einigrund 9, 02.01., þingl. eigandi Haraldur Hjaltason. Uppboðsbeið- andi er Akraneskaupstaður. Esjuvellir 3, þingl. eigandi Sigríkur Eiríksson. Úppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands, Veðdeild Lands- banka íslands og Ingólfur Friðjónsson hdl. Sandabraut 6, efri hæð, þingl. eigandi Guðlaugur J. Ragnarss. & Guðrún Birgisdótth'. Uppboðsbeiðendur era Hróbjartur Jónatansson hdl. og Lög- menn Hamraborg 12. Esjuvellir 9, þingl. eigandi Eiríkur S. Jóelsson. Uppboðsþeiðandi er Veð- deild Landsbanka íslands. Skólabraut 37, efri hæð, þingl. eigandi Bára K. Guðmundsdóttir. Uppboðs- beiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Garðabraut 45, 01.05., þingl. eigandi Jóna Sveinbjörg Jónasdóttir, talinn eigandi Ólafur Jónsson Vestmann. Uppboðsbeiðandi er Ásgeir Þór Áma- son hdl. Sóleyjargata 8, efh hæð, þingl. eig- andi Sigurrós Allansdótth. Uppboðs- beiðendur era Akraneskaupstaður, Lögmannsstofan Khkjubraut 11 og Andri Ámason hdl. Garðholt, þingl. eigandi Guðmundur S. Sveinsson, talinn eigandi Guðný Haraldsdóttir. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki Islands, Veðdeild Lands- banka íslands og Guðjón Armann Jónsson hdl. Suðurgata 103, efri hæð, þingl. eig- andi V alur Þór Guðjónsson. Uppboðs- • beiðandi er Lögræðiskrifstofan Lög- vísi sf. Vallarbraut 9, 02.02., þingl. eigandi Helga Jónsdótth, talinn eigandi Ólaf- ur Ottó Eríendsson. Uppboðsbeiðandi er Tryggingastofíiun ríkisins. Höfðabraut 1, rishæð, þingl. eigandi Elís R. Víglundsson. Uppboðsbeiðandi er Lögmannsstofan Kirkjubraut 11. Vesturgata 35, 2. hæð, þingl. eigandi Sigurður S. Pálsson. Uppboðsbeiðend- ur era Baldur Guðlaugsson hrl. og Landsbanki íslands. BÆJARFÓGETINN Á AKRANESI Lerkigrund 3, 01.01., þingl. eigandi Helgi Lárus Guðlaugsson. Uppboðs- beiðandi er Veðdeild Landsbanka ís- lands. Lflnu EKKI 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.