Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990, Útgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÚNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Þjóðleikhúsið Mál Þjóðleikhússins hafa tekið undarlega stefnu. Stjórnendur og starfsmenn leikhússins hafa á undan- förnum árum bent á það að leikhúsið við Hverfisgötu hggi undir skemmdum. Bæði er að húsið er gamalt og úrelt og viðhald hefur verið vanrækt með þeim afleiðing- um að lagnir eru ónýtar, raki í herbergjum og leki í byggingunni allri. Vinnuaðstaða er óviðunandi með öllu fyrir starfsfólk og í rauninni ábyrgðarhluti að halda starfsemi gangandi við aðstæður sem þessar. Lengi vel töluðu þjóðleikhúsmenn fyrir daufum eyr- um. Fjárveitingavaldinu þótti víst nóg um að fylla götin í taprekstri leikhússins þótt ekki þyrfti einnig að fylla götin á hriplekum útveggjum þessa sama húss. Sumir menntamálaráðherrar hafa í gegnum tíðina gert heiðar- legar tilraunir til að vekja athygli á neyðarástandinu en aht hefur komið fyrir ekki þar til svokölluð bygging- arnefnd var sett á laggirnar til að gera tillögur um úr- bætur og forgangsverkefni. Fyrstu fréttir af niðurstöðum þeirrar nefndar voru þær að breytingar á Þjóðleikhúsinu gætu kostað hátt á annan mihjarð króna. Til samanburðar má minna á að Borgarleikhúsið var reist fyrir nokkurn veginn sömu upphæð. Fjárveitinganefnd léði ekki máls á þessum th- lögum en ákvað engu að síður að verja rúmum fimm hundruð milljónum á þessu og næsta ári th viðhalds og endurbóta. Voru þær tillögur nefndarinnar sam- þykktar á íjárlögum. Nú mætti ætla að starfsfólk og stjórnendur leik- hússins fógnuðu því að loks væri fundið fé til viðhalds og viðgerða. Aðstandendur leikhússins gætu þá komið sér saman um það í bróðerni hvaða verkefni hefðu for- gang. En þá bregður svo við að byggingarnefndin svo- kallaða leggur til að hafnar verði framkvæmdir við sal hússins án þess að nokkur hafi vitað til þess að salurinn lægi undir skemmdum eða væri að hruni kominn. Þessi ákvörðun nefndarinnar kemur því meira á óvart að upphaflega hafði þessi sama nefnd verið sammála um að salurinn gæti beðið og raunar ekki hróflað við núver- andi gerð hans. Eftir því sem skilja má hefur erlendum sérfræðingi frá Ungverjalandi tekist að snúa nefndinni og telja mönnum trú um að setja þurfi brekku á sæti í sal, rífa efstu svahr og bæta þannig sjónlínu áhorfenda upp á sviðið. Hvenær var minnst á sjónlínu áhorfenda þegar kvartað var undan skemmdum á Þjóðleikhúsinu? Hve- nær hafa menn haft áhyggjur af áhorfendum þegar þeir hafa varað við að leikhúsið væri að hrynja? Fyrir nú utan það að bæði húsameistari ríkisins og húsfriðunarnefnd hafa varað við fyrirhuguðum breyt- ingum á salnum. í upphafi var þess krafist að nauðsynlegt viðhald færi fram á Þjóðleikhúsinu. Er ekki rétt að halda sér við þau áform í stað þess að byggja aht húsið upp á nýtt? Fjárveitingavaldið hefur verið rausnarlegt með fimm hundruð milljón króna fjárveitingu. Er ekki rétt að nýta þá peninga í þau verk sem mest eru aðkah- andi? Ef menn vhja laga Þjóðleikhúsið þá eiga þessir sömu menn ekki að spiha því nauðsynjaverki með deil- um um smekksatriði eða með því að sólunda peningun- um í andhtslyftingar. Við viljum að Þjóðleikhúsið sé lagfært í þágu þeirra sem þar starfa og þangað koma, ekki ungverskra sérfræðinga sem vhja reisa sér minnis- varða á kostnað íslensks almennings. Ellert B. Schram . ■ Frá hjólastólaakstri fatlaóra Akureyri-Reykjavik sl. haust. Málefni fatlaðra í fjölmiðlum Það er býsna margt að gerast á vettvangi fatlaðra og skal ekki nán- ar greint frá einstökum atriðum heldur aðeins minnt á það hversu fatlaðir sjálfir og félög þeirra eru ötul í allri baráttu, ótrauð í fórn- fýsi og viljakrafti. Ég fmn oft til þess hversu orka mín nýtist illa einfaldlega af eigingjarnri leti og verður þá oft til þeirra hugsað sem leggja í baráttu og bein verk allt sitt afl, hvort sem er til hugar eða handar. Að svo mæltu er máske ástæða til þess aö snúa sér að efninu. Nauðsyn öllum samtökum Á aðalfundi Öryrkjabandalagsins í miðjum október sl. var nokkuö rætt um hlut fjölmiðla almennt í umfjöllun um málefni fatlaðra. Formaðurinn, Arnþór Helgason, fór þar nokkuð yflr þessi mál sem einhver þau brýnustu er hags- munasamtök fatlaðra ættu nú sem verkefni sem vinna yrði að. Það er ekki aö ástæðulausu sem Arnþór gerir þetta aö sérstöku umræðuefni því allir vita hver nauðsyn það er öllum-samtökum - öllum félagsskap - að fá þá kynn- ingu og þá athygli um leið sem ein- mitt fjölmiðlarnir eru öllum færari um að koma á framfæri. Og hið sama á ekki síður viö um hin ein- stöku áhuga- og baráttumál. Arnþór fór yfir atburðina þrjá í október sem allir heföu átt að vera nokkurra tíðinda virði, allnokk- urrar athygli verð úti í samfélag- inu. Þar átti hann við fjöldagöngu og útifund á Austurvelli, sameigin- legt landsþing hjá Öryrkjabanda- laginu og Þroskahjálp og svo aðal- fundi beggja samtaka í kjölfarið. Það eina sem einhverja umíjöllun fékk var fyrsttaldi atburöurinn en þó vitum við ekki hversu til hefði tekist heíðum við ekki látlaust ver- ið í sambandi við fjölmiðlana með sérstökum tengiliö við þá og marg- beðið þá um kynningu og frásagnir og lagt okkar af mörkum með fréttatilkynningum og greinaskrif- um. Við létum hinna atburðanna þar rækilega getið og væntum ein- hverra viðbragða frá einhverjum en án alls árangurs. Áhuginn var einfaldlega af svona skomum skammti. Ekki andstaða, ekki illvilji Við höföum leitað til ríkissjón- varpsins okkar um liðsinni í um- ræðuþætti eða umfjöllun í Hringsjá eða Kastljósi en ekkert gerðist á þeim bæ þrátt fyrir góð orð og vissulega var ákveðin óvissa á þessum verkfallsdögum, en vel aö merkja var verkfallið úr sögunni þegar að atburðunum kom. Nú er rétt aö benda á að um 10 þúsund manns eru í öryrkjabanda- KjaHarinn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi ÖBÍ lagsfélögunum einum en þau eru 16 talsins og taka til hinná marg- breytilegustu fatlana. Þaö ætti því aö vera áhugaefni einhverra á öll- um fjölmiðlum að fjalla um málefni einhvers hópsins eða allra. Þaö á nefnilega ekki að þurfa til að koma einhver æsiatburður, að ekki sé sagt voðaatburður, eða þá eitthvað til upphrópunar eða at- hlægis, til þess að þaö megi ná aug- um og eyrum fólks þó óhugnanlega sé þaö orðið áberandi. Ég kannast svo sem líka mætavel við þá mótbáru að þetta og hitt sé ekki fréttaefni sem slíkt eða ekki nógu sérstaklega merkilegt til þess að um megi fjalla. Það eru fleiri málefni en þeirra fötluðu sem fyrir því veröa. Ekki dettur mér í hug að hér sé um einhverja andstöðu að ræða, því síöur illvilja, en tregðan er und- arleg og auðvitað er friðsamlegt á fundum öryrkjafélaga og banda- lags þeirrak engar stórpólitískar kosningar, ekki laumuspil og bak- tjaldamakk sem forleikir að hallar- byltingum eða aftökum í óeigin- legri merkingu. En svo vel þekki ég til fjölmiðla- fólks að þó að fréttafíkn þess sé eðlilega talsvert tengd einhveiju spennandi og tilþrifaríku þá veit ég aö til tilbreytingar frá því þykir mörgum gott að fást við hin mann- legu mál frá margs kyns sjónar- hornum og til þess verks þykja mér margir færir sem gjarnan mættu iöka þá iðju meir. Það er óeðlilegt, þegar unnt er að leggja fleiri síður eða klukkutíma undir íþróttir af ótrúlegasta tagi, að ekki sé unnt að gera betur í þessum málaflokki - málefnum fatlaðra. Jafnrétti er þeirra krafa Þótt fatlaðir heyi haröa baráttu og iðki allnokkra kröfugerð um betri tíð og bjartari þá má fullvissa fjölmiðlunga um það að þar er einnig að fmna margt skemmtilegt og spennandi, ekki síst fyrir hinn almenna lesanda eða áhorfanda eða heyranda sem allir vilja ná sem allra best til. Þið megið trúa því að fjölbreytnin er mjög mikil og menn skulu einn- ig gæta að því að í mörgu eiga hin- ir fötluðu möguleika til miðlunar, mörgu sem hvorki er hversdagslegt né venjulegt. Og vilja almennir fjöl- miðlagleypendur ekki eitthvað slíkt að ykkar mati? Og svo viljið þið leggja ykkar af mörkum, eða ekki svo, til að bæta og lagfæra, gera örlítiö bjartara og betra í kringum okkur öll og ég efa að þið finnið ákjósanlegri vettvang. Ekki vorkunnsemi eöa „aumingjagæði" því með það hafa fatlaðir ekkert að gera, það er þeim eitur. Jafnrétti í þjóðfélaginu er þeirra krafa. En lifandi og vekjandi um- ræðu, frásagnir af vettvangi, svip- myndir af lífi og starfi án allrar upphafningar - allt þetta ásamt beinum frásögnum af því helstá á félagslegum vettvangi - þetta þarf aö koma, einfaldlega af því að fjöl- miðlarnir eiga að gefa spegilmynd af þjóðlífmu öllu, ekki bara hluta j þess - ekki einu sinni „sporf‘hlut- anum. Hugsið ykkur nú ef öllu bjórbölinu á þessu ári hefði nú ver- ið sleppt eða a.m.k. svona helming- aö en rými og tími farið í umfjöllun um málefni fatlaðra á einhvern veg. Haldið þiö ekki jafnvel að þeim liði öllu betur og væru a.m.k. óbrenglaðri í kollinum á eftir sem þetta iðkuöu? Þessi boð til fjölmiðla eru hér og nú blaðfest ef vera mætti að einhver læsi og tæki sig til. Það er illt og nánast neyðarúr- ræöi að koma sér upp tengli á hverjum fjölmiðli til að sjá svo til að eitthvað verði að gert. Vilja menn nú ekki verða fyrri til? Það væri vel þegið af mörgum, ekki síst lesendum, heyrendum og horfend- um. -- HelgiSeljan „Við höfðum leitað til ríkissjónvarps- ins okkar um liðsinni í umræðuþætti eða umfjöllun í Hringsjá eða Kastljósi, en ekkert gerðist á þeim bæ þrátt fyrir góð orð.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.