Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
17
Svarthöfði“ kominn
á blað hjá Forest
- Þorvaldur Örlygsson skoraði gegn Auxerre í Frakklandi í gær
Þorvaldur Örlygsson skoraði í gær
fyrsta mark sitt fyrir Nottingham
Forest þegar félagið mætti Auxerre,
einu 4f toppliðum frönsku knatt-
spymunnar, í vináttuleik sem fram
fór í Frakklandi.
Þorvaldur skoraði eftir aðeins
þriggja mínútna leik en Pascal Vahi-
ura jafnaði fyrir heimaliðið á 19.
mínútu. Des Walker kom Forest yfir
á ný á 63. mínútu en Guy Dutuel jafn-
aði á ný fyrir Auxerre sjö mínútum
síðar, og 2-2 urðu lokatölurnar.
Áhangendurnir kalla
Þorvald „Darth Vader“
Þorvaldur hefur byrjað mjög vel með
Nottingham Forest og átt fast sæti í
liðinu aö undanförnu en hann gekk
frá atvinnusamningi við félagið í
nóvember. Hann hefur fengiö já-
kvæða umfjöllun í enskum blöðum
að undanförnu, og meðal annars
sagði Sunday Times nokkuð frá hon-
um þegar það íjallaði um leik Forest
við Tottenham í ensku 1. deildinni
30. desember.
Þar var sagt að Þorvaldur hefði
þegar fengið viðurnefni hjá áhang-
endum Forest - þeir kölluðu hann
Darth Vader, eftir samnefndri per-
sónu í Stjörnustríðsmyndunum, Star
Wars, en Darth Vader nefnist Svart-
höfði í íslenskri þýðingu þeirra
mynda, og er mikill ógnvaldur. Á
íslensku er það mesta öfugmæli því
varla eru margir leikmenn Forest
með ljósara hár en Akureyringurinn!
Sunday Mirror sagði síöasta
sunnudag, þegar fjallað var um
væntanlegan leik Forest við Manc-
hester United þann dag, að tveir ný-
liðar, Þorvaldur og Nigel Jemson,
hefðu staöið sig mjög vel í leikjum
meö félaginu um jól og áramót og
þeir héldu tveimur öflugum leik-
mönnum, Lee Chapman og Brian
Rice, á varamannabekknum. Chap-
man var í gær seldur til Leeds, eins
og fram kemur annars staðar í opn-
unni, og útlit er fyrir að Rice megi
enn um sinn verma bekkinn ef Þor-
valdur heldur sínu striki.
-VS
Kovtoum fór á
kostum í Njarðvík
- og KR-ingar unnu þar mikilvægan sigur, 85-91
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Áhorfendur hér í kvöld fengu að sjá
mjög góðan körfuknattleik hjá
tveimur góðum liðum. Þetta var sæt-
ur sigur fyrir okkur en við lentum í
miklum vandræðum í lokin, eftir að
við misstum Anatólí og Pál út af með
fimm villur en við gátum leyst það
vandamál," sagði Lazslo Nemeth,
þjálfari KR-inga, eftir sigur þeirra,
85-91, á Njarðvíkingum í toppleik
úrvalsdeildarinnar í Njarðvík í gær-
kvöldi.
Leikur heimamanna í gærkvöldi
var mjög köflóttur. Þeir náðu strax
góðri forystu, 23-12, en misstu hana
síðan í hendur KR, 24-25. Njarðvík
var yfir í hálfleik, 48-41, og komst
síðan í 54-44, en sú forysta hvarf á
tveimur mínútum. Um miðjan hálf-
0q X
Urvalsdeild
Njarðvík-KR................85-91
ÍR-Grindavík.................72-76
Valur-Keflavík...............82-90
Tindastóll-Haukar..........frestað
(fer fram á flmmtudagskvöldið)
A-riðill:
Keflavík....17 13 4 1702-1389 26
Grindavík... 17 11 6 1389-1343 22
ÍR..........17 6 11 1338-1473 >Í2
Valur.......17 6 11 1381-1405 12
Reynir.....17 1 16 1181-1573 2
B-riðill:
KR..........17 15 2 1308-1162 30
Njarðvík...16 13 3 1429-1324 26
Haukar.....16 7 9 1426-1341 14
Tindastóll... 16 7 9 1375-1341 14
Þór.........16 4 12 1334-1512 8
Stigahæstir:
Chris Behrends, Val.........442
Guðjón Skúlason, Keflavík...439
Bo Heiden, Tindastóli.......435
Valur Ingimundarson, Tind...419
Guðmundur Bragason, Grind ...406
David Grissom, Reyni........391
Jonathan Bow, Haukum........368
TommyLee,ÍR.................362
Dan Kennard, Þór............356
Patrick Releford, Njarðvík..324
Anatólí Kovtoum, KR.........299
Konráð Óskarsson, Þór.......274
Teitur Örlygsson, Njarðvik..265
Jóhannes Sveinsson, ÍR......262
Bjöm Steffensen, ÍR.........254
ívar Ásgrímsson, Haukum.....245
leik stóð 68-68, en þá skoraði Njarð-
vík aðeins sjö stig á næstu átta mín-
útum, KR-ingar hins vegar 21 og þar
með voru gestirnir komnir með yflr-
burðastöðu og góður endasprettur
heimamanna dugði þeim ekki.
Bestur í liði Njarðvíkinga var
Patrick Releford en þó hefði hann
mátt spila betri varnarleik. Hinir
náðu sér ekki á strik og þó Teitur
Örlygsson hafi skoraö 21 stig virðist
hann vera í lægð um þessar mundir
og á meðan leikur Njarðvíkurliðið
ekki eins og það getur best. Greini-
legt er að Njarðvík vantar sterkan
frákastara ef það áað ná langt í úrsli-
takeppninni.
Anatólí Kovtoum átti stórleik með
KR, skoraði grimmt, sérstaklega úr
langskotum, og hirti 25 fráköst. Einn-
ig voru þeir Páll Kolbeinsson og Axel
Nikulásson sterkir og Matthías Ein-
arsson var vesturbæingum mjög
dýrmætur undir lokin. Birgir Mika-
elsson og Guðni Guðnason áttu einn-
ig ágæta spretti í síðari hálfleik.
KR-ingar eiga nú mesta möguleika á
efsta sætinu í B-riðli eftir þennan sig-
ur.
Stig Njarðvíkur: Patrick Releford
29, Teitur Örlygsson 21, ísak Tómas-
son 14, Friðrik Rúnarsson 7, Jóhann-
eskristbjörnsson 6, Friðrik Ragnars-
son 6, Kristinn Einarsson 2.
Stig KR: Anatólí Kovtoum 21, Páll
Kolbeinsson 15, Birgir Mikaelsson 15,
Axel Nikulásson 14, Matthías Einars-
son 13, Guðni Guðnason 10, Böðvar
Guðjónsson 2, Lárus Árnason 1.
Leikinn dæmdu Bergur Stéin-
grímsson og Helgi Bragason og voru
mistækir.
Úrvalsdeildin 1 körfuknattleik:
Magnús sýndi
stórleik gegn ÍBK
- skoraði 35 stig en það dugði ekki til
Keflavik sigraði Val, 82-90, í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik í
íþróttahúsi Vals í gærkvöldi. Það
voru Valsmenn sem höfðu undirtök-
in í leiknum mestallan tímann. í hálf-
leik hafði Valur 14 stiga forskot,
51-37, og það var ekki fyrr en á tveim-
ur síðustum mínútum leiksins sem
Keflvíkingar sigu fram úr.
Valsmenn, sem töpuðu óvænt fyrir
Reyni um síðustu helgi, komu mjög
ákveðnir til leiks og komu Keflvík-
ingum í opna skjöldu með góðum
leik. Keflvíkingar skoruðu fyrstu
þijú stigin þegar Guðjón Skúlason
skoraði með þriggja stiga skoti en
eftir það tóku Valsmenn leikinn í sín-
ar hendur og höföu eins og áður sagði
14 stiga forystu í hálfleik.
í síöari hálfleik höföu Valsmenn
áfram frumkvæðið í leiknum og
leiddu leikinn með þetta sex til tíu
stigum yfir. Leikmenn Vals lentu í
villuvandræðum og á 6. mínútu síð-
ari hálfleiks þurfti Matthías Matthí-
asson að yfirgefa völlinn með fimm
villur og skömmu síðar fékk Chris
Behrends sína fjórðu villu. Keflvík-
ingar náðu þá að saxa á forskot Vals-
manna og jöfnuðu leikinn, 72-72, og
um leið fékk Behrends sína fimmtu
villu og varð að fara út af og þá sjö
mínútur eftir. Keflvíkingar reyndusf
sterkari á lokakaflanum og tryggðu
sér sigur á tveimur síöustu mínútum
leiksins.
Magnús Matthíasson var allt í öllu
hjá Val og skoraði hann samtals 35
stig í leiknum auk þess sem hann
hirti mörg fráköst í sókn og vörn,
Chris Behrends átti ágætan leik.
Keflvíkingar voru seinir í gang og
virtist sem þeir heföu vanmetiö Vals-
menn eftir tapleik þeirra gegn Reyni.
Guðjón Skúlason og Sandy Anderson
stóðu sig hest Keflvíkinga en þeir
fóru seint í gang eins og aUt Uðið.
• Stig Vals: Magnús 35 stig, Be-
hrends 17, SvaU 10, Matthías 6, Bjöm
Zoega 6, Ari Gunnarsson 3, Ragnar
2 og Einar 1 stig.
• Stig ÍBK: Guðjón 24, Anderson
21, Magnús 14, Falur 13, Einar 8,
Nökkvi 6 og Sigurður, 4 stig.
• Dómarar í leiknum voru Leifur
S. Garðarsson og Kristinn Alberts-
son og stóðu þeir sig vel, ásamt því
að þurrka svita leikmanna á gólfi
íþróttahússins.
-GH
• Anatóli Kovtoum hirti 25 fráköst
fyrir KR-inga og skoraði 21 stig.
Grindavík
lagði ÍR
- 72-76 í Seljaskóla
Grindvíkingar ættu að vera endan-
lega öruggir með sæti í undanúrslit-
um úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik eftir sigur á ÍR-ingum í Seljaskól-
anum í gærkvöldi, 72-76.
Leikurinn var í jafnvægi lengst af,
Grindavík var 36-39 yfir í hálfleik,
en þegar staðan var 57-57 misstu
ÍR-ingar Tommy Lee og Björn Bolla-
son út af með fimm vfilur. Þeir héldu
samt í við Grindvíkinga allt til leiks-
loka en SuðurnesjaUðið hélt boltan-
um síðustu 20 sekúndurnar og Guð-
mundur Bragason innsiglaði sigur-
inn með tveimur vítaskotum í lokin.
Liðin léku ágætis körfubolta og
miðað við mannskap sýndi ÍR merki-
lega góðan leik. Lee var bestur með-
an hans naut viö og Björn Bollason
og Jóhannes Sveinsson voru einnig
góðir.
Guðmundur bar af hjá Grindavík
og Steinþór Helgason var einnig
drjúgur, skoraði fjórar 3ja stiga körf-
ur á mikilvægum augnablikum. Ron
Davis var einnig sterkur en lék þó
Utið þar sem hann var kominn með
4 vfilur eftir aðeins 5 mínútur!
Stig ÍR: Tommy Lee 26, Jóhannes
Sveinsson 14, Bjöm Bollason 12,
Björn Leósson 8, Björn Steffensen 4,
Sigurður Einarsson 4, Magnús Am-
arson 2, Kristinn Einarsson 2.
Stig Grindavíkur: Guðmundur
Bragason 24, Steinþór Helgason 16,
Ron Davis 10, Hjálmar HaUgrímsson
8, Rúnar Árnason 5, Evjólfur Guð-
laugsson 3, Marel Guðlaugsson 3,
Guðlaugur Jónsson 2.
Jón Bender og Jón Otti Ólafsson
höföu sænuleg tök á leiknum.
-JKS/VS
íþróttir
• Helgi Bjarnason.
Helgi í
Víking
Helgi Bjamason, knattspyrnu-
maðurinn eínUegi úr Fram, hefur
gengið frá félagaskiptum yfir til
Víkinga og hyggst leika með þeim
í 1. deildinni í sumar. Helgi er
tvítugur og lék 11 leiki með Fram
í 1. deUdínni síðasta sumar.
„Ég fékk næg tækifæri með
FramUðinu síðasta sumar sem
knattengUiöur en sá ekki fram á
að komast aö í vöminni þar sem
ég tel mig best eiga heima. Þess
vegna skipti ég um félag, og mér
líst ipjög vel á mig hjá Víkingum
og hef trú á að Uðið standi sig vel
í sumar,“ sagði Helgi í samtali
við DV í gærkvöldi.
-VS
Howard WiUdnson,
Iramkvæmdastjóri Le-
eds, gekk í gær frá
kaupum á Lee Chap-
man, miðheija Nottingham For-
est. Kaupverðið var 400 þúsund
sterlingspund og gerði Chapman
samning tU þriggja og hálfs árs.
Þeir WUkinson og Chapman
þekkja vel hvor tíl annars, WUk-
inson var framkvæmdastjóri hjá
Sheffield Wednesday fyrir nokkr-
um árum og Chapman lék með
liðinu.
Chapman, sem er þrítugur, hef-
ur verið einn aðalmarkaskorari
Forest undanfarin keppnistíma-
bil en hefur átt erfitt uppdráttar
upp á síðkastið og setið á vara-
mannabekknum. Wilkinson hef-
ur verið iðinn við að kaupa leik-
menn og eytt 3,5 miUjón sterlings-
punda í kaupin. Liði Leeds hefur
gengið allt í haginn á leiktimabil-
inu og er í efsta sæti í 2. deild og
stefnir aUt í það að liöið leiki á
meðal þeirra bestu á næsta
keppnistímabiU.
• Ama Steinsen.
Arna þjálfar
KR í knattspyrnu
Arna Steinsen, sem leikið hefur
með KR í knattspyrnu undanfar-
in ár, hefur vérið ráðin þjálfari
meistara- og 2. flokks KRíknatt-
spyrnu. Arna hefur í huga að
leika einnig með liðinu. Nýlega
barst félaginu Uðsaukí þegar
tvær stúlkur, sem léku með
Stjömunni á síöasta keppnis-
tímabiU, skiptu yfir í KR, þær
Anna Sigurðardóttir og Guðný
Guðnadóttir.