Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
Grímuball á gamlárskvöld
Fólk gerir sér ymislegt til gamans á gamlárskvöld. Dansstaðir eru yfirleitt lokaðir svo fólk verður að gera sér dagamun upp á eigín spýtur eins og hópur
ungs fólks gerði er það leigði sér sal og hélt grímuball fyrir útvalda. Var mikið hlegið og dansað eins og meðfylgjandi mynd sýnir sem tekin var upp
úr áramótunum. DV-mynd S
Rokklingarmr saman kommr til að taka a moti platinuplotum.
Rokklingamir fá platínuplötu
Þaö fór ekki fram hjá neinum að
mikil plötusala var fyrir síðustu jól
og gátu nokkrar plötur státaö af að
seljast í yfir 7500 eintökum. Þar á
meðal var barnaplatan Rokklingarn-
ir þar sem ungir krakkar sungu
þekkt dægurlög sem sett voru upp í
syrpur. Og þegar kom aö því að veita
Rokklingunum platínuplötu fyrir
góöa sölu var öllum krökkunum, sem
sungu á plötunni, hóað saman og
hvert og eitt þeirra fékk eintaka af
paltínuplötunni. Ljósmyndari DV
var á staðnum og myndaði hina ungu
söngvara með verðlaun sín.
Veraldar-
skemmtun
Árviss viðburður er kynningar
ferðaskrifstofa á sumaráætlunum
sínum og er ekkert sparað til aö búa
þessar skemmtanir sem best úr
garði. Ferðaskrifstofan Veröld reið á
vaðið að þessu sinni með mikilli
skemmtun á Hótel íslandi á fóstu-
dagskvöldið. Komu þar fram margir
landsþekktir skemmtikraftar og
dans- og tískusýningar voru einnig.
Ljósmyndari DV var á staðnum og
tók meðfylgjandi myndir.
Róleg áramót
hjá Slökkviliðinu
Aramótin voru einstaklega róleg hjá Slökkviliði Reykjavíkur og gátu slökkvi-
liðsmenn notið rólegrar miðnæturmáltíðar eins og sést á þessari mynd sem
tekin var i matsal starfsmanna. Á myndinni sést Rúnar Bjarnason slökkvi-
liösstjóri innan um starfsmenn sína. DV-mynd S
Sigrún Hjálmtýsdóttir skemmti gest- Hótel Island býður upp á skemmtilega aðstöðu fyrir tískusýningar, þar sem Þetta glæsilega par var hluti af dans-
um með söng og skemmtilegri fram- bæði lýsing og tónlistaraðstaða er hin fullkomnasta og það kunni það að og tískusýningunni á Hótel íslandi.
komu. notfæra sér, þetta vel klædda unga fólk sem sýndi samkvæmistískuna.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Barbra Streisand
hefur verið í karatetímum nokk-
uð lengi. Hún fékk óvænt tæk-
ifæri til að nota hæfileika sína
þegar hún kom að ókunnum
manni sem var að sniglast við
villuna hennar. Með miklum til-
burðum rétti hún honum eitt kar-
atehögg á hálsinn. Maðurinn féll
við og Streisand lét sér þetta ekki
nægja enda hélt hún að um inn-
brotsþjóf væri að ræða. Hún tók
manninn hálstaki og hélt honum
niðri og kallaði á hjálp. Þegar loks
losnaði um aumingja manninn
gat hann loks stunið upp að hann
væri nýi garðyrkjumaðurinn sem
hún hefði ráöið.
Bruce WiIIis
hefur eins og margir aðrir leikar-
ar unnið sem þjónn. Var þetta að
sjálfsögðu áður en farið var að
gera Moonlighting þættina. Var
'hann barþjónn í New York um
tíma. Sú reynsla hans kom hon-
um að góðum notum um daginn
þegar hann var með vinum sín-
um á bar einum á Manhattan.
Einn vina hans pantaði drykk
sem kallast Long Island Iced Tea.
Ekki bragðaðist drykkurinn rétt
svo að Willis fór bak við barborð-
ið til að sýna þjóninum hvernig
ætti að gera þennan frekar sjald-
séða drykk. Á meöan hann var
þar komu viðskiptavinir, sem
ekki áttuðu sig á hver maðurinn
var, og báðu um drykki. Willis
tók þessu vel og var í meira en
klukkutíma bak við barborðið
viðskiptavinum til mikillar
ánægju þegar þeir uppgötvuðu
hver barþjónninn var.
Justine Bateman
sem leikur systur Michael J. Fox
í Fjölskylduböndum, þykir skap-
heit stúlka og hefur oft lent upp
á kant við framleiðendúr þátt-
anna. Hún hefur í nokkurn tíma
verið í tygjum við popparann
fyrrverandi, Leif Garret. Þau
voru stödd í samkvæmi einu í
Hollywood fyrir stuttu. Þegar
Bateman leit aðeins af sínum
heittelskaða notaði drengurinn
tækifærið og gerð sér dælt við
fallega stúlku sem var í meira
lagi brjóstastór. Þegar Bateman
sá hvað vrða vildi fauk heldur
betur í hana. Hún rauk á Gar-
rett, skellti honum í gólfið, reif
blússuna frá sér og öskraði: „Eru
þessi ekki nógu góð handa þér.“