Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990. 25 Opinberir reikningar ekki í samræmi við lög um virðisaukaskatt Símareikningar, sem neytendum eru nú sem óðast að berast, inn- heimta gjald fyrir söluskattsskylda þjóijustu og einnig fyrir þjónustu sem ber virðisaukaskatt. Það er ann- ars vegar fyrir notkun fram í tímann frá 1. janúar til 1. apríl sem ber virð- isaukaskatt og hins vegar fyrir skrefanotkun þrjá mánuði aftur í tímann með söluskatti. Lög um virð- isaukaskatt gera ekki ráð fyrir að tveimur skatttegundum sé blandað saman og því óheimilt að senda út reikninga sem fela í sér hvorttveggja. Hjá embætti ríkisskattstjóra feng- ust þær upplýsingar að vissulega væri þetta ekki í samræmi við lög en engu að síður væri vandséð hvern annan hátt hefði mátt hafa á. „Við erum að ganga gegnum ákveðið aðlögunartímabil þar sem búast má við ótal vandamálum af þessu tagi og þau verða leyst,“ sagði fulltrúi skattstjóra í samtali við DV. itið sama á við um nótur sem menn fá frá tollstjóra. Þar skortir talsvert á að heildarupphæð virðisaukaskatts sé sérstaklega merkt og tilgreind. Kennitölur og skattnúmer vantar einnig. FuUtrúi ríkisskattstjóra sagði að það mál yrði skoðað sérstaklega en hafði efasemdir um að nótur úr toll- inum féllu undir ákvæði laganna um bókhaldsskyld gögn. -Pá Menn feli sig ekki bak við virðis- aukaskattinn „Neytendasamtökin gera þá kröfu að menn séu ekki að hækka sína vöru og kenna gildistöku virðisauka- skatts um hækkunina og fela sig bak við skattinn," sagði Jóhannes Gunn- arsson, formaður Neytendasam- takanna, í samtali við DV. „Skattkerfisbreytingin ein og sér á ekki að hafa áhrif til hækkunar vöru- verðs og ég bendi á að virðisauka- skatturinn er 0,5% lægri en sölu- skatturinn. Vissulega eru nokkur dæmi um þjónustu sem hækkar beinlínis vegna skattsins, s.s. olía, póstburðargjöld og tlutningataxtar, en almennt á skatturinn að hafa áhrif til lækkunar,“ sagði Jóhannes. Um áramótin tók gildi ný reglugerð um aukatekjur ríkissjóðs sem fól í sér verulega hækkun á ýmissi þjón- ustu hins opinbera, einkum atvinnu- leyfum af ýmsu tagi og skírteinaút- gáfu. Hækkunin var að meðaltali um 60% en dæmi um einstakar hækkan- ir um allt að 1400%. „Ég tel að ríkið gangi þarna á und- an með afar slæmu fordæmi og harma þessar hækkanir sem eiga eftir að hafa slæm áhrif," sagði Jó- hannes. -Pá Hagkaup: Umbúðir ekki vegnar með í nóvember sendi Hagkaup bréf til allra aðila sem verslunin kaupir pakkaðar kjötvörur af þar sem farið var fram á að framvegis yrðu um- búðir ekki vegnar með innihaldi. Hagkaup sjálft hefur, að sögn Jón Ásbergssonar forstjóra, haft þann hátt á um langt skeið að vega ekki umbúðir með þeim vörum sem fyrir- tækið pakkar sjálft. Frá og með áramótum verður geng- ið eftir því að þessum tilmælum verði fylgt. Flestir hafa, að sögn Jóns, tekið vel í þetta og margir þegar lagfært vinnuaðferðir sínar. Kannanir Verðlagsstofnunar snemma á síðasta ári sýndu að lang- flestir áleggsframleiðendur vógu umbúðir með innihaldi sem getur munað um 10% á heildarþyngd. -Pá % LífsstUI Starfandi skottu- læknir á Melunmn - ótvírætt lögbrot, segir aðstoðarlandlæknir I heildversluninni Mico á Birkimel 10 er tekið við tímapöntunum fyrir Ólaf Inga Sveinsson hómópata, eða skottulækni. Hann tekur fólk í viðtöl í bakherbergi í búðinni á fimmtu- dagskvöldum. Hver tími kostar 900 krónur og að loknu viðtali fær sjúkl- ingurinn í hendur hsta yfir vítamín og bætiefni sem seld eru frammi í versluninni. Dæmigerður nokkurra vikna skammtur getur kostað 2-3.000 krónur. Þetta er ótvírætt brot á læknalögum og flokkast undir ólög- lega lækningastarfsemi. Heildverslunin Mico flytur inn heilsuvörur og vítamín. Magnús Marteinsson, eigandi Mico, neitaði þvi alfarið í samtah við DV að nokk- ur tengsl væru milli verslunarinnar og starfsemi Ólafs Inga og fullýrti að hann vísaði á fleiri lyf og bætiefni en þau sem fást í Mico. „Ölafur er fyrst og fremst hómó- pati og ég hef tröllatrú á aðferðum þeim sem hann beitir, vítamíngjöfum og svæðanuddi einhvers konar,“ I þessu húsi við Birkimel 10 er rekin olögleg lækningastarfsemi. Hómóp- ati tekur fólk í tíma og skrifar út heimagerða lyfseðla á vörur sem verslun- in selur. DV-mynd KAE sagði Magnús Marteinsson heildsali. „Við leyfum honum að starfa hér svo hann hafi einhverja aðstöðu. Önnur tengsl eru ekki milli okkar og það er ekkert samkomulag í gangi um að hann vísi aðeins á okkar efni,“ sagði Magnús. Ótvírætt lögbrot „Þetta er tvímælalaust ólöglegt at- hæfi. Það er brot á læknalögum að taka fólk í viðtal af þessu tagi gegn gjaldi og ráðleggja því hvað það á að taka inn til lækninga," sagöi Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir í samtali við DV. „Þegar svona mál koma inn á borð hjá okkur þá eru þau yflrleitt send th rannsóknarlögreglunnar til mefl- ferðar," sagði Guðjón. „Þetta samstarf þessa manns og verslunarinnar nær auðvitað ekki nokkurri átt. Þetta er svipað og ef læknar stæðu sjálfir í innílutningi lyfia og vísuðu eingöngu á sínar vör- ur.“ ’ -Pá Ólafur Ingi Sveinsson hómópati: „Ég sé ekki að þetta sé neitt á skjön við lögin. Það getur ekki verið ólög- legt að hjálpa fólki sem þarf að fá lausn á sínum vanda,“ sagði Ólafur Ingi Sveinsson hómópati í samtali við DV. Ólafur tekur fólk í viðtal gegn gjaldi á Birkimel 10 á fimmtudags- kvöldum og tekur 900 krónur fyrir. Neytendur Hann tekur fólk einnig í nudd sam- kvæmt svokölluðu punktakerfi í heimahúsum á kvöldin. Fyrir hvert skipti kveðst hann taka 2.000 krónur. - hef stundað þetta í 15 ár „Ég hef stundaö þetta undanfarin 15 ár og það er mína eina menntun í þessu fagi. Ég veit ekki hvort á að kalla mig hómópata. Ég kýs að kalla mig náttúrulækni. Til mín kemur fólk sem á við vanda að stríða og ég reyni að finna út hvað er að hjá því. Ég hef engin tengsl við þessa versl- un að neinu leyti og ég ráðlegg fólki aðeins að taka bestu fáanleg efni. Þetta sem ég vísa á er svona algildur grunnkúr af vítamínum og steinefn- um,“ sagði Ólafur en hann starfar sem sölumaður á hjólbarðaverk- stæði á daginn. Oröabók Menningarsjóðs skil- greinir hómópata sem skottulækni Lyfseðill frá Ólafi Inga. Öll efnin, sem talin eru upp, eru seld i versluninni eða ólærðan lækni, gervilækni eða Mico. Fyrir efnin á þessum seðli þurfti að greiða 3.000 krónur. Auk þess lélegan lækni. kostaði viðtaliö 900 krónur. -Pá OLYMPUS iwíJLIa a 'fba^C AT.P. ficícSopk S'oo á v i ,, , / Ri'cjl l / $ Í'C xZ JLcJl M <i-íj Xg/?g / /x^—, iB. /XX Ráðuneytið hafnar málaleit- an kaupmanna „Eg sé ekki rökin fyrir því að haga endurgreiðslu á þennan hátt,“ sagði Mörður Ámason, upplýs- ingafulltrúifiármálaráðuneytisins, í samtali við DV. Kaupmenn hafa farið þess á leit við hið opinbera að endurgreiða- mismun á verði eldri kjötbirgða og kjöts á nýju verði samkvæmt gildistöku virðis- aukaskatts. Þetta vilja kaupmenn að verði gert til þess að verð á kjöt- i geti lækkað strax í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um lægra verð í kjölfar'Virðisauka. „Þessi skattbreyting hefur lengi staðið til og síðan í sumar vissu kaupmenn að til stóð að kjötverð lækkaði. Því var þeim í lófa lagið að forðast birgðasöfnun og það kemur þeim í koll núna,“ sagði Mörður. Kaupmenn hafa bent á fordæmi fyrir endurgreiðslu af þessu tagi. Mörður sagði þau fordæmi ekki standast vegna þess aö áður hefði verið um breytingu á niðurgreiðsl- um að ræða og því auðveldara að koma því í kring. Nú væri skatt- breyting á ferðinni og því tækni- lega mjög erfitt ef ekki ófram- kvæmanlegt að láta endurgreiðslu ná til eldri birgða. -Pá Hrogn, lifur, gellin og kinnar - veróa niðurgreidd og lækka í verði „Sá misskilningur sem uppi var varðandi orðalag í reglugerð um virðisaúkaskatt hefur verið leiðrétt- ur. Því munu hrogn, lifur, gellur og kinnar eftirleiðis njóta sömu niður- greiðslu og annar neyslufiskur," sagði Mörður Árnason, upplýsinga- fulltrúi fiármálaráðuneytisins, í samtali við DV. Ráðuneytið hefur sent embætti rík- isskattstjóra bréf þar sem öll tvímæh eru af tekin um að það hafi ávallt verið ætlun ráðuneytisins með setn- ingu reglugerðarinnar að þessar teg-. undir nytu sömu niðurgreiðslu og annar fiskur. Má því reikna með að urpræddar tegundir lækki í verði sem nemur 7-9% frá því seip verið hefur síðustu daga. Markaðsverö hefur þó talsverð áhrif hér á. Misskilningurinn byggðist á því að litið var á hrogn, lifur, gellur og kinn- ar sem sjálfstæðar fiskafurðir sem fyrir vikið nytu ekki niðurgreiðslu. -Pá tíæsr™ „Égheld ég gangi heim“ Eftireinn -eiakineinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.