Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Síða 26
26
& MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
Fréttir
Gífurlegt tjón af völdum ofsaveðursins á Eyrarbakka og Stokkseyri:
hafa
sannað mikilvægi sitt
- segir Magnús Karel Hannesson, oddviti Eyrarbakka
„Sjávarvarnargarðarnir, sem voru
gerðir í sumar, stóðust álagið meðan
þeir gömlu gáfu sig á stöku stað svo
sjórinn fossaði inn í bæinn með til-
heyrandi grjótkasti, leirburði og
eyðileggingu. Þessir nýju sjávar-
varnargarðar hafa svo sannarlega
sannað mikilvægi sitt og mikilvægi
þess að veita íjármuni í endurnýjun
gömlu varnargarðanna," sagði
Magnús Karel Hannesson, sveitar-
stjóri á Eyrarbakka, þegar blaða-
maður og ljósmyndari DV lögðu leið
sína á Eyrarbakka um hádegisbil í
gær.
Þegar komið var austur var veðrið
aUs ekki gengið alveg niður. Mjög
hressilegar rokur gengu yfir með
sand- og særoki svo menn áttu fullt
í fangi með að standa uppréttir, sér-
staklega þegar þeir gengu fram á
fjörukambinn. Þar úti fyrir hamaðist
brimið.
Verksummerki eftir fárviðrið, sem
gekk yfir sunnanvert landið í fyrri-
nótt, var hvarvetna að sjá. Allt var
bókstaflega á tjá og tundri. Fólk var
í óðaönn að dæla sjó úr kjöllurum
húsa sinna og þar sem áður voru
snyrtilegir garðar var nú ekki annað
en forarsvað með torfi og fjörugrjóti
af öllum stærðum um allt.
Einhverjar mestu skemmdirnar,
sem veðrið olli á Eyrarbakka, voru
á salthúsi frystihússins. Þak salt-
hússins lyftist af í einu lagi og barst
eina hundrað metra í veðurofsanum.
Veggir hússins, sem hggur nánast
niðri í fjöru, gáfu sig síöan undan
briminu en sjógangur var gífurlegur
þegar verst lét á háflóðinu um fjögur-
leytið í fyrrinótt. Það sem menn hafa
frá ómunatíð kallað bryggju er varla
hægt að kalla því nafni 1 dag eftir
meðferð veðurguðanna. Er óvíst að
bryggjan eigi nokkum tíma eftir að
bera nafn með rentu, ekki síst þar
sem samband hefur komist á við
Þorlákshöfn með tilkomu brúarinn-
ar yfir Ölfusárósa.
Á leiðinni austur að Stokkseyri tók
ekki betra við. Vegurinn þarna á
milli var óskaplega illa farinn. Mynd-
ast höfðu hvörf 1 veginn á stöku stað
og grafist undan honum hlémegin.
Þá hafði malbikið flest af á stómm
hluta og lá það á víð og dreif meðfram
veginum. Þar sem malbikið hafði
ekki beinlínis losnað af veginum var
hann allur í bylgjum. Leifarnar af
þessum beina og breiða vegi voru
ömurlegar. Það þykir furðu sæta að
bílar skyldu komast á milli þorpanna
eftir þessar hamfarir og þurfti mikla
lagni til. Um miðjan dag hófust síðan
viðgerðir á veginum.
Þegar komið var yfir til Stokks-
eyrar blasti við öllu verri sjón en á
Eyrarbakka. Var eins og sjórinn
hefði gengið mun lengra inn í byggð-
ina og valdið meiri usla. Norðan ak-
brautarinnar inn í bæinn vom hús
ötuö auri og stórar tjamir í húsa-
görðum og á túnum þar á bak við.
Bílarnir stóðu í aumgum innkeyrsl-
unum og þar sem einu sinni var
snotrasta glerhýsi var nú aðeins
rúst. í miðju þorpinu var stöðuvatn
á gatnamótum og gangstéttir gengn-
ar til.
Þegar litið var á húsin næst fjöru-
kambinum blöstu við veðurbarin
hús og aurugir garðar, fullir af fiöru-
gijóti. Nokkur hús við Strandgötu,
nálægt frystihúsinu, voru frekar illa
farin. DV-menn komu að tveimur
mönnum sem unnu við að tjasla bíl-
skúr saman til bráðabirgða. Höföu
veöurofsinn og brimið rifiö helming
skúrsins með sér, barið húsið utan
og beyglað og brotið stofugluggann.
Að sögn mannanna voru þeir við
austur í húsinu alla nóttina og
reyndu að halda í horfinu eins og
þeir gátu. Næstu hús virtust hafa
sloppið sæmilega en garðarnir voru
mjög illa farnir.
Vestar með fiörukambinum haföi
stór verkfæra- og áhaldaskúr oltið á
hhðina og við frystihúsið var það
sem einu sinni var vegur ekki lengur
til. Þar var aðeins urð og grjót. Hurð
hafði gengið inn á frystihúsinu en
frystiklefi rétt fyrir innan slapp þó
við skemmdir.
Á báðum stöðum voru menn í óða-
Vegurinn milli Eyrarbakka og Stokkseyrar flettist bókstaflega ofan af vegarstæðinu á löngum kafla og var slitlagið
að sjá eins og eggjaskurn meðfram veginum. Verksummerkin gefa hugmynd um hvaða öfl hafa verið að verki.
DV-myndir GVA
önn að byija tiltektir og safna saman
upplýsingum til að gera sér mynd af
tjóninu sem hlaust af þessu ofsa-
veðri. Þegar DV-menn héldu af vett-
vangi höfðu menn ekki gert sér í
hugarlund hve mikið tjónið var eða
hversu umfangsmikið en byijað var
að raða brotunum saman. Þótti ljóst
að tjónið skipti tugum milljóna.
-hlh
Þaklð á salthúsi frystihússins á Eyrarbakka fauk af í heilu lagi og lenti í
porti skammt frá. Veggurinn þoldi ekki álagið frá briminu og rokinu og lét
því undan á löngum kafla. Ljósmyndarinn stendur niðri í fjörunni.
Mikill vatnselgur var á götum Stokkseyrar og á lóðum. Þessi mynd var tekin
Þessi skúr fór illa í veðurofsanum á Stokkseyri. Menn voru að reyna að gera við skúrinn til bráðabirgða þegar í miðjum bænum þar sem menn frá hreppnum voru að reyna að opna niður-
DV-menn bar að. íbúðarhús, til vinstri við skúrinn, var barið að utan og allt f kring lá fjörugrjót og leðja. föll.