Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1990, Page 28
28
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1990.
Andlát
Tómas Guðmundsson, Skipholti 21,
lést í Landspítalanum 8. janúar.
Torfi Þorsteinsson fræðimaður, frá
Haga í Homafirði, lést að Skjólgarði
8. janúar.
Jaröarfarir
Jónfríður Gísladóttir lést 27. desemb-
er. Hún fæddist 18. október 1901 í
Austmannsdal í Ketildalshreppi í
Arnarfirði, dóttir Ragnhildar Jens-
dóttur og Gísla Árnasonar. Jónfríður
giftist Kristjáni Ingvaldi Benedikts-
syni en hann lésl árið 1964. Þau hjón-
in eignuðust þrjú börn og eru tvö á
lífi. Utför Jónfríðar verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag kl. 15.
Dagbjört Eiríksdóttir lést 31. des-
ember sl. Hún fæddist 26. júlí 1918.
Foreldrar hennar voru Eiríkur Jó-
hannesson og Þorbjörg Jónsdóttir.
Dagbjört lauk námi frá Fóstmskóla
íslands. Hún helgaði sig fóstrustörf-
um æ síðan, lengst á geðdeild Barna-
spítala Hringsins. Eftirlifandi eigin-
maöur hennar er Hermann Jónsson.
Útför Dagbjartar verður gerð frá
Áskirkju í dag kl. 15.
Lára Magnúsdóttir lést 25. desember.
Hún fæddist 4. október 1903 í Hafnar-
hólma, Seltjörn, Kaldrananeshreppi
í Strandasýslu. Foreldrar hennar
voru Guðrún Mikaelsdóttir og Magn-
ús Kristjánsson. Lára giftist Bjarna
Böðvarssyni en hann lést árið 1955.
Þau hjónin eignuðust þrjú börn og
em tvö á lífi. Utför Láru verður gerö
frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Freyja Þorsteinsdóttir, Hvassaleiti
59, lést í Borgarspítalanum 7. janúar.
Minningarathöfn fer fram í Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 11. janúar
kl. 16.30. Jarðsett verður á Dalvík.
Guðrún Snorradóttir, Hrafnistu,
Reykjavík, sem lést 31. desember,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju mánudaginn 15. janúar kl.
13.30.
Herdis Guðmundsdóttir ljósmyndari,
sem lést á hjúkmnarheimilinu
Hrafnistu, Hafnarfirði, mánudaginn
8. janúar verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju þriðjudaginn 16. jan-
úar kl. 13.30.
Friðleifur Heiðar Hallgrimsson,
Bjamarhóh, Dalvík, lést á heimili
sínu 31. desember. Útförin fer fram
frá Dalvíkurkirkju.
Andrés Guðmundsson frá Syðri-
Gróf, til heimilis á Háaleitisbraut 93,
sem lést í Borgarspítalanum aðfara-
nótt 30. desember sl., verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 12. janúar nk. kl. 15.
Guðrún Árnadóttir hjúkrunarkona,
Sólheimum 23, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Langholtskirkju í dag,
10. janúar, kl. 13.30.
Útför Sigriðar Jóhannesdóttur frá
Garði, Skagaströnd, Hátúni lOb,
verður gerð frá Fossvogskapellu
föstudaginn 12. janúar kl. 15.
Guðbjörg Kristjana Guðjónsdóttir
frá Arnarnúpi verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 11.
janúar kl. 13.30.
Bragi Þór Guðmundsson frá Sjónar-
hóh, Grindavík, verður jarðsunginn
laugardaginn 13. janúar.
Fundir
ITC Melkorka
Opinn fundur ITC Melkorku verður
haldinn í dag, 10. janúar, kl. 20 í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti.
Steffundarins er: Fáir etja kappi við sjálf-
an sig. Ýmislegt verður á fundinum, s.s
bókakynningar og fl. Allir eru veikomnir
á fundinn. Mætið stundvíslega. Upplýs-
ingar gefur Guðrún í síma 46751.
Tapað fimdið
Gullhringur tapaðist
Gullhringur á litlafingur tapaðist á leið-
inni frá Þjóðleikhúskjallaranum að Fóg-
etanum á laugardagsnóttina sl. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 23975 á kvöld-
in. Fundarlaun.
Hefur þú fundið tösku
í bílnum þínum?
Skilin var eftir af vangá leðurtaska í
gráum fólksbíl á Laugaveginum á mánu-
daginn sl. Finnandi vinsamlegast hafi
samband við Melkorku í síma 42131.
Tilkyimingar
Happdrætti Sjálfsbjargar
Á aðfangadag var dregið í happdrætti
Sjálfsbjargar. Nýlega var einn af vinning-
unum, bifreið af gerðinni Toyota Corolla
1300 St hatchback, afhent vinningshafa,
Fjólu Einarsdóttur, Bessastaðahreppi. Á
mynd er vinningshafi að taka við bifreið-
inni.
Ritverkaverðlaun
Á fundi sínum 31. desember sl. ákvað
verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðsson-
ar að eftirtalin ritverk skyldu hljóta verð-
laun úr sjóðnum fyrir árin 1988 og 1989:
Bolli Gústafsson: Inngangur og útgáfa á
ljóðmælum séra Björns Halldórssonar í
Laufási. Kr. 500.000. Finnur Magnússon:
Um þurrabúðarfólk á Eyrarbakka og
Stokkseyri. Kr. 300.000. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson: Family and Household in
Iceland. Kr. 300.000. Hörður Ágústsson:
Dómsdagur og helgir menn á Hólum. Kr.
750.000. Sveinbjöm Rafnsson: Byggðaleif-
ar í Hrafnkelsdal og á Brúardölum. Kr.
450.000. Þorleifur Friðriksson: Gullna
flugan ásamt framhaldi þess. Kr. 300.000.
Gítarinn hf. -
ný verslun
Nýlega opnaöi Hljóðfæraverslunin Gítar-
inn hf. að Laugavegi 45, í verslunarhús-
inu Kúlunni. Eigendur eru Anton Kröyer
og Sigurbjörg Steindórsdóttir. Verslunin
sérhæfír sig í gíturum og strengjahljóð-
færum.
Merming
DV
Til John Cage
A tónleikum Tónlistarfélagsins í gærkvöld í Lang-
holtskirkju komu fram þau Paul Zukofsky fiðluleikari
og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari.
Efnisskráin samanstóð af aðeins einu tónverki: for
John Cage eftir bandaríska tónskáldið Morton Feld-
man.
Ómur þagnarinnar
Tónverkið samdi Morton Feldman árið 1982 í tilefni
af sjötugsafmæli Johns Cage, en þeir voru nánir vin-
ir. Verkið er ákaflega hægferðugt og hljóðlátt, og það
tekur um 75 mínútur í flutningi, en í því eru engin
þáttaskil. Jafnframt því að vera óvenjulegt er það þó
dæmigert fyrir höfundinn. Nefna má t.d. Strengja-
kvartett hans nr. 2 sem tekur fiórar klukkustundir í
flutningi. Það var árið 1950 sem Feldman kynntist
Cage og næstu árin umgekkst hann mikið vini hans
og listmálara sem störfuðu í New York, en hvort
tveggja átti eftir að hafa mikil áhrif á tónsmíðaferil
hans. Þaðan er m.a. runninn skilningur hans á músík
sem e.k. litatjaldi tímans þar sem hver þráður tjalds-
ins hefur sinn lit.
Helstu einkenni verksins for John Cage eru tónfrymi
sem innihalda frá einni upp í fimm nótur þar sem
hvert frum er margendurtekið áður en annað tekur
við. Á fiðluna er leikið víbratólaust nánast allan tím-
ann og svo hljóðlátt að er á mörkum þess mögulega.
Mikið er um kvarttóna og ritmískt er verkið mikil en
hljóðlát (vart heyranleg, oft á tíðum) glíma. Það má
því ljóst vera að hér er um gífurlega erfitt verk í flutn-
ingi að ræða, en það er það reyndar ekki síst vegna
þeirrar gífurlegu einbeitingar sem flutningur þess
krefst.
Paul Zukofsky og John Cage á íslandi árið 1980.
Tónlist
Áskell Másson
Hugleiðsla
Erfitt er að ímynda sér þetta stóra verk betur leikið
en hér var gert. Einbeiting flytjendanna var með ólík-
indum og var undir lokin farin að minna á e.k. hug-
leiðslu eins og yoga eða þvílíkt, þar sem tímaskyn tap-
ast um stund (eða breytist). Þetta voru enda stuttar
75 mínútur. Tækni og öryggi Pauls Zukofsky á fiðluna
var á þann veg að með eindæmum hlýtur að teljast.
Nefna má t.d. rúmlega þriggja áttunda stökk, þar sem
nákvæmlega þarf að ná kvarttón fyrir ofan eða neðan
ákveðnar nótur og bogastrok sem eins og kalla smátt
og smátt fram tóna úr ríki þagnarinnar. Þetta voru
stórkostlegir tónleikar.
Frá sýningu þeirra Helga & Hallgríms að Kjarvalsstöðum. DV-mynd GVA
Andlitsmyndir og ímyndir
Hugmyndin að baki portrettmyndasýningu þeirra
Helga Þorgils Friðjónssonar og Hallgríms Helgasonar
að Kjarvalsstöðum er út af fyrir sig ekki óskemmti-
leg.
Tveir vahnkunnir nákvæmnismenn í listinni afráða
að draga upp myndir hvor annars með reglulegu milli-
bili um nokkurra ára skeið, sýna svo árangurinn
ásamt öðru tilfallandi efni af sama toga.
Svona sýning gæti verið bæði myndlistarlegur og
sálfræðilegur ávinningur, veitt innsýn í listrænan við-
gang sýnenda og hleypt nýju blóði í íslenska andlits-
myndagerð.
Því miður er eins og minna hafi orðið úr ásetningi
listamannanna í tímans rás því það sem uppi hangir
að Kjarvalsstöðum er einungis fremur tilviljunar-
kenndur og tilbreytingarlítill samtíningur andlits-
mynda sem sennilega tæki sig best út á ganginum
heima hjá Helga Þorgils sjálfum.
A yfirborðinu
Tilbreytingarleysi þessara mynda lýsir sér helst í
því að alls staðar er um að ræða framsæ og aðþrengd
andlit á nánast hlutlausum bakgrunni. Sjálf með-
höndlun andlitanna er sömuleiðis mjög hlutleysisleg,
á yfirborðinu fremur en á sálardýptina.
En slíkt hlutleysi getur verið listrænt markmið í
sjálfu sér, og ef við lítum myndir þeirra Helga & Hall-
gríms þeim augum eru þær ekki alveg gjörsneyddar
aðdráttarafli.
Þótt þeir noti svipuð meðul hafa þeir félagir í raun-
inni mjög ólík viðhorf til andlitsmyndagerðar.
Hallgrímur hefur meiri áhuga á aö búa til huglæga
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
ímynd andhts heldur en hlutlæga „eftirmynd" þess,
málar því myndir af fólki eftir minni eöa hentisemi,
jafnvel þótt fyrirmyndin sé hann sjálfur.
Viðkvæm planta
Sjálfur bregður hann sér í ýmissa kvikinda líki, set-
ur sig til dæmis ýmist í stehingar hofmóðugs ungnas-
ista eða úrkynjaðs glaumgosa. í meðförum hans verð-
ur Helgi svo eins og viðkvæm planta eða vera frá ann-
arri plánetu.
Hallgrímur er ekki eins glamorös í myndunum sem
Helgi málar af honum, enda hefur sá síöarnefndi fyrst
og fremst áhuga á andlitinu sem hlutlægri staðreynd,
alveg burtséð frá því sem það dylur eða opinberar um
mannlegt innræti.
Með elskulegu nostri dregur hann fram sérkenni
nokkurra andlita sem margir kannast við, til að mynda
myndlistarmannanna Tuma Magnússonar og Eggerts
Péturssonar, alhæfir hins vegar meir í myndum sínum
af kvenfólki.
Sýningu þeirra félaga lýkur þann 21. janúar nk.
-ai.