Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990.
Iþróttir
Heimsmelstarar Arg-
entínu í knattspyrnu
biðu annan ósigur sinn
á einni viku þegar þeir
töpuðu, 2-0, fyrir Mexíkönum í
leik sem fram fór í Los Angeles í
Kalifomíu. Carlos Munoz og Luis
Roberto Aives skoruðu mörk
Mexíkana sem em í tveggja ára
banni frá alþjóðlegum mótum þar
sem þeir notuðu ólöglega leik-
menn i heimsmeistarakeppni 20
ára landsliða fyrir tveimur árum.
Argentínumenn töpuðu fyrir
franska liðinu Monaco í síðustu
viku.
Dregió í deildabikarnum
Dregið hefur verið um hvaða liö
skuli mætast í undanúrslitum
enska deildabikarsins i knatt-
spymu. Reyndar hefur ekkert liö
enn tryggt sér sæti í undanúrslit-
unum! Sigurvegarinn i leik Tott-
enham og Nottingham Forest
mætir sigurvegaranum úr leik
Coventry og Sunderland og
Southampton eða Oldham mætir
Derby eða West Ham. Leikíð er
heima og heiman 14. og 28. febrú-
ar.
Steaua á kreik
eftir byltinguna
Steaua, rúmensku meistaramír í
knattspymu, léku í fyrrakvöld
fyrsta leik sinn á erlendri grundu
eftir byltinguna í Rúmeníu. Þeir
sigruöu Montpellier, 2-1, i
Frakklandi. Ágóði af leiknum
rennur til bágstaddra í Rúmeniu
en aðeins 2000 áhorfendur mættu.
Steaua, sem er lið rúmenska
hersins og lék við Fram í Evrópu-
keppni meistaraliða í haust, mæt-
ir einnig Nice í Frakklandsfór-
inni.
PSV áfram f
hollenska bikarnum
PSV Eindhoven tryggði sér sæti
í 4. umferð hollensku bikar-
keppninnar í knattspyrnu í fyrra-
kvöld með því aö sigra Feye-
noord, 2-1. Sören Lerby og Juui
Ellerman skoruöu fyrir PSV en
hinn tékkneski Stanislav Griga
fyrir Feyenoord.
Faer Havana heims-
bikarinn í frjálsum?
—1— Havana, höfuðborg
jk, Kúbu, mun sækja um
að fá að haida heims-
bikarkeppnina í frjáls-
um íþróttum árið 1993. Havana
mun þá keppa við Singapore,
Aþenu og Birmingham en þær
borgir vilja allar fá keppnina.
Kúbumenn telja að þeir standi
mjög vei aö vígi þar sem þeir
halda Pan-American leíkana á
næsta ári. Þaö verður ólympíu-
meistarinn 1976 í 400 og 800 metra
hlaupum, Alberto Juantorena,
sem kynnir umsókn Havana á
þingi Alþjóða frjálsíþróttasam-
bandsins í Tókió i Japan.
Grikkír unnu Belga
Ungt og efnilegt lið
Grikkja vann sigur á
Belgum, 2-0, í vináttu-
landsleik í knatt-
spymu sem fram fór í Aþenu í
fyrrakvöld. Tsaloúhides og Apo-
stolakis skoruðu mörkin i síöari
hálfleik. Þetta var fyrsti Uöurinn
í undirbúningi Belga fyrir úrslit
heimsmeistarakeppninnar.
KR-ingar unnu sinn
sautjánda sigur
- þegar liðið sigraði UMFG, 67-76, í Grindavík
KR-ingar unnu mjög dýrmætan
sigur þegar þeir lögðu UMFG að velli
í Grindavík, 67-76. Fyrri hálfleikur-
inn var mjög jafn og liðin skiptust á
aö hafa forystuna en KR-ingar náðu
þó frumkvæðinu undir lok fyrri hálf-
leiks og staðan í leikhléi var 33-40
fyrir KR.
KR-ingar náðu 12 stiga forystu um
miðjan síðari hálfleik, 46-58, en
Grindvíkingar náðu þá með mikilli
baráttu að minnka muninn niður í
þrjú stig og voru þrjár mínútur eftir
af leiknum en þá fór allt í baklás hjá
Grindvíkingum og KR-ingar gengu á
lagið og skoruðu 13 stig gegn 7 á loka-
kaílanum og tryggðu sér verðskuld-
aðan sigur. Grindvíkingar urðu fyrir
áfalli í upphafi leiks þar sem Banda-
ríkjamaðurinn Ron Davis lenti strax
í villuvandræðum og gat lítið beitt
sér eftir það. Bestir í liði Grindavíkur
• Guðmundur Bragason skoraði 33
stig í leiknum.
var Guðmundur Bragason sem átti
mjög góðan leik og Steinþór Helga-
son undir lok leiksins og hefðu
Grindvíkingar mátt spila meira upp
á hann því að hann var í miklu stuði
undir lokin.
Bestir í liði KR var Anatolí Kouv-
ton sem átti mjög góðan leik og einn-
ig var Guðni Guðnason góður.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason
33, Steinþór Helgason 14, Hjálmar
Hallgrímsson 4, Rúnar Árnason 4,
Ron Davis 4, Guðlaugur Jónsson 2,
Eyjólfur Guðlaugsson 2, Ólafur Jó-
hannsson 2 og Bergur Hinriksson 2.
Stig KR: Kouvton 27, Guðni Guðna-
son 16, Lárus Árnason 9, Axel Nikul-
ásson 7, Bigir Mikaelsson 6, Matthías
Einarsson 5, Páll Kolbeinsson 4, Bðð-
var Guðjónsson 2.
Dómarar leiksins voru Helgi
Bragason og Kristinn Albertsson og
voru þeir slakastir á vellinum og öll
vafaatriði féllu KR í hag. Furðulegt
er að Kristinn skuh dæma hjá KR
vegna tengsla hans við leikmenn hjá
liðinu og best væri fyrir báða aðila
að hann hætti að dæma leiki hjá KR
áður en stórvandræða kemur.
Fyrsti sigur Torfa
gegn Valsmönnum
- Haukar sigruðu Val 1 úrvalsdeildinni, 89-75
Haukar sigruðu Valsmenn nokkuð
örugglega, 89-75, í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Hafnafirði í gær-
kvöldi. Leikur liðanna hafði svo til
enga þýðingu upp á deildina að gera
og leikurinn var eftir því.
Haukamenn byrjuðu mun betur í
leiknum og höfðu frumkvæðið allan
leiktímann. í leikhléi var staðan,
49-33, Haukum í vil. í síðari hálfleik
náðu Valsmenn að minnka muninn.
Haukarnir virkuðu þá kærulausir en
náöu þó að hrista af sér sleniö undir
lok leiksins og tryggðu sér sigur með
fiórtán stiga mun. Torfi Magnússon
sem áður lék með Val um árabil
stjórnaði nú sínum mönnum til sig-
urs gegn sínum gömlu félögum í Val.
Jonathan Bow var lang atkvæða-
mestur í liði Hauka og þeir Jón Arn-
ar Ingvarsson og Pálmar Sigurðsson
komust einnig vel frá sínu en aðrir
voru undir meðallagi. Hjá Vals-
mönnum var Chris Behrends yfir-
burðarmaður og án hans væri liðið
hvorki fugl né fiskur.
• Leikinn dæmdu þeir Jón Otti Ól-
afsson og Guðmundur Matthíasson
og dæmdu þeir leikinn þokkalega.
• Stig Hauka: Bow 28, Jón Amar
Ingvarsson 17, Pálmar sigurðsson 14,
Henning Henningsson 11, ívar Ás-
grímsson 8, ívar Webster 5, Reynir
Kristjánsson 4 og Eyþór Árnason 2
stig.
• Stig Vals: Chris Behrends 37,
Svali Björgvinsson 13, Matthíass
Matthíason 9, Ragnar Jónson 6, Aðal-
steinn Jóhannsson 4 Einar Ólafsson
4, og Guðni Hafsteinsson 2 stig.
-RR
Broddi og Þórdís
tvöfaldir meistarar
- áttundi sigur Þórdísar 1 röð á meistaramóti TBR1 badminton
• Broddi Kristjánsson, Þorsteinn Páll Hængsson, Jóhann Kjartansson og
Guðmundur Adolfsson með verðlaun sin eftir hörkuspennandi úrslitaviður-
eign í tvíliðaleik karla.
Broddi Kristjánsson og Þórdís Ed-
wald úr TBR urðu tvöfaldir sigurveg-
arar í meistaraflokki á meistaramóti
TBR sem fram fór í húsi félagsins
við Gnoðarvog um síðustu helgi.
Broddi sigraði Guðmund Adolfs-
son, TBR, 15-8 og 17-16, í úrslitum í
einliðaleik karla og endurheimti titil-
inn sem hann missti til Þorsteins
Páls Hængssonar í fyrra. Broddi og
Þorsteinn Páli sigruðu síðan í tvíliða-
leik, unnu Guðmund og Jóhann
Kjartansson, TBR, í spennandi úr-
slitaviðureign, 18-13,14-17,15-12.
Þórdís sigraði í einliöaleik kvenna,
áttunda árið í röð. Hún vann Guð-
rúnu Júlíusdóttur í úrslitaleik, 11-5
og 11-2. Þórdís vann síðan tvíliða-
leikinn ásamt Ingu Kjartansdóttur,
TBR. Þær sigruðu Bimu Petersen og
Guðrúnu Júlíusdóttur, TBR, 15-11,
15-11, í úrslitum.
Guðmundur Adolfsson og Guðrún
Júlíusdóttir vörðu titil sinn í tvennd-
arleik og töpuðu ekki leik í mótinu.
í öðm sæti urðu Árni Þór Hallgríms-
son, TBR, og Ása Pálsdóttir, ÍA.
Reynir vann tvöfaldan
sigur í A-flokki
Reynir Guðmundsson, HSK, varð
tvöfaldur sigurvegari í A-flokki.
Hann vann Karl Viðarsson, ÍA, í úr-
slitum í einliðaleik karla, 15-12,15-5.
Reynir vann síðan tvenndarieikinn
ásamt Hönnu Lára Köhler, TBR. í
tvíliðaleik karla urðu hins vegar þeir
Andri Stefánsson og Kristján Krist-
jánsson úr Víkingi sigurvegarar.
Sigrún Erlendsdóttir, TBR, vann
Sigríði Geirsdóttur, UMSB, í úrslit-
um í einliðaleik kvenna, 8-11, 11-7,
11-8. Anna Steinsen og Elsa Nielsen,
TBR, unnu tvíliðaleik kvenna.
í B-flokki sigraði Ástvaldur Heið-
arsson, TBR, í einliðaleik karla og
þeir ívar Öm Gíslason og Njörður
Lúðvíksson, TBR, í tvíliðaleik karla.
Keppendur á mótinu vom 76 tals-
ins og komu frá átta félögum.
-VS
• Hér sjást þeir Sigurður Eínarsson og Einai
þriðja og fjórða sæti á heimsafrekalistanum i
o q Körfubolti
1 /y
Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik
eftir leikina í gærkvöldi er þessi:
A-riðill:
Keflavík.............18 14 4 1808-1493 28
Grindavík............19 11 8 1524-1503 22
ÍR...................19 7 12 1484-1623 14
Valur................19 7 12 1539-1562 14
Reynir...............19 1 18 1297-1770 2
B-riðill:
KR...................19 17 2 1467-1292 34
Njarðvík.............18 15 3 1620-1453 30
Haukar...............19 9 10 1682-1551 18
Tindastóll...........18 8 10 1523-1501 16
Þór..................18 4 14 1505-1701 8
„Toddi“ í
aðalhlut-
verkinu
- segir Sunday Express
Þorvaldur Örlygsson fær frábæra dóma
í enska blaðinu Sunday Express fyrir
frammistöðu sína meö Nottingham Forest
gegn Millwall í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar um síðustu heigi.
í fyrirsögn blaðsins segir: „Forest Ice-
man too Hot for Millwall to Handle“ eða
„ísmaðurinn hjá Forest of heitur fyrir
Millwall". í greininni segir síðan meðal
annars:
„Forest getur að raestu þakkaö sigurinn
góðum leik á kantinum hjá hinum 23 ára
gamla íslensica landsiiösmanm, „Toddi“
Orlygsson en hann gerði usla í vörn Mill-
wall allan ieikinn." Síðan kemur fram að
Þorvaldur hefur farið sérstakiega iila með
tan Dawes, bakvörð Miilwall, áttnákvæm-
ar fyrirgjatlr fyrir mark Millwall og í eitt
skiptið hafi hann fallið í vítateignum eftir
að hafa leikið Dawes grátt en dóinarinn
hafi talið hann vera að reyna að krækja í
vítaspyrnu og látiö leikinn halda :ifram.
Forest vann leikinn, 3-1, og er komið í
5. sæti 1. deildar en var 111. sætinu þegar
Þorvaldur fór að leika með liðinu í des-
ember. Hann hefur nú leikiö firom deilda-
leiki með Forest, þrir hafa unnist og tveir
endað með jafntefli og Þorvaldur hefur því
einungis verið í tapliöi þegar Forest lá
gegn Manchester United 1 bikarkeppninni
fyrr í þessum mánuði.