Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990. 31 dv Smáauglýsingar - Sími 27022 Verslun omeo m icu Yndislegra og fjölbreyttara kynlif eru okkar einkunnarorð. Höfum frábært úrval hjálpartækja ástarlífsins f. döm- ur og herra o.m.fl., einnig blöð. Lífg- aðu upp skammdegið. Einnig úrval af æðislegum nærfatnaði á frábæru verði á dömur og herra. Við minnum líka á plast- og gúmmífatnaðinn. Sjón er sögu ríkari. Ath., póstkr. dulnefnd. Opið 10-18 virka daga og 10-14 laug- ard. Erum á Grundarstíg 2 (gengið inn frá Spítalastíg), sími 14448. Otto vörulistinn (sumarlistinn ) er kom- inn. Aldrei meira úrval af fyrsta flokks vörum fyrir alla. Póstsendum. Otto Versand umboðið. Verslunin Fell, s. 666375. Verð kr. 350 + burðargjald. ■ BOar til sölu Til sölu Voivo Lapplander '80, kom á götuna*Ö3, radialdekk og white spoke, gírspil, 40 rása CB, útv/segulb. og kassettutæki. Uppl. í s. 91-641420, 91-44731 eftir kl. 20 og 91-13393. Range Rover ’83 til sölu. Range Rover ’83, 4 dyra, beinskiptur, álfelgur, litað gler, ný dekk og dráttarkúla. Bíll í toppstandi, skipti á ódýrari eða jafn- vel 2 bílar. Uppl. í s. 91-622424, Harald- ur, og 91-686168 á kvöldin. Dráttarbeisli - Kerrur Dráttarbeisli, kerrur. Framleiðum allar gerðir af kerrum og vögnum, dráttar- beisli á allar teg. bíla. Áratuga reynsla. Allir hlutir í kerrur og vagna. Hásingar 500 kg - 20 tonn, með eða án bremsa. Ódýrar hestakerrur og sturtuvagnar á lager. Vinnuskúrar á hjólum, 5-10 manna. Veljum íslenskt. Víkurvagnar, Dalbrekku, símar 91-43911, 45270. DRÖGUM ÚR FERÐ AÐUR EN VIÐ BEYGJUM! ■ Þjónusta Traktorsgrafa og Bobcat (smágrafa) til leigu. Uppl. í símum 985-28340 og 985- 28341. ■ Ferðalög RENTACAR LUXEMBOURG Ferðamenn athugið! Ódýrasta íslenska bílaleigan í hjarta Evrópu. Hjá okkur fáið þið úrval Fordbíla og Mitsubishi minibus. íslenskt starfsfólk. Sími í Luxemburg 433412, telex 1845 og 60610, fax 348565. Á íslandi Ford í Framtíð við Skeifuna, Rvík, s. 685100. Ýmislegt 1-MANNS ÞYRLA FLUGPRÓF ÓPARFT Ódýr smíði og viðhald. Flughraði ea 100 km í 7000 feta hæð. Smíðakostnað- ur frá kr. 75 þús. Smíðateikningar og leiðbeiningar aðeins kr. 1.700. Sendum í póstkröfu um land allt. Sími 623606 kl. 17-20. Geymið auglýsinguna. LdUydlUdyd, U.UU — Itt.VU | Sunnudaga, 18.00 - 22.00 Þvarhoiti 11 s: 27022 pv_____________________________ Fréttir 26 ára Englendingur lagði illa búinn á Öræfajökul: Hann varð bara hissa þegar við reyndum að stöðva hann - sagði Sigrún Sæmundsdóttir, húsfreyja að Hofi „Það var alveg vonlaust að tala við manninn þó ég væri búin að segja honum að ég væri búin að tala við lögreglu og reyndi að fá hann ofan af þessu með góðu og illu. Það dugði ekkert. í hans augum virtist þetta vera allt í lagi. Hann ætlaði bara að fara þarna upp og varð bara hissa þegar við reyndum að stöðva hann. Hann sagðist vera búinn að ákveða ferðina á jökuhnn fyrir löngu. Þegar ég sagði honum aö ég hefði ekki vald til að stöðva hann en vildi fá ein- hverja tryggingu borgaði hann mér alla dollara og aðra peninga sem hann hafði steinþegjandi og hljóða- laust. Þegar ég fór inn í herbergið hans eftir að hann var farinn sá ég að hann hafði skihð eftir bæði vega- bréf, flugfarseðh og ýmislegt smádót. Hann virtist greinilega ætla að koma aftur. Við vonuðumst eiginlega til að hann ætlaði eitthvað á puttanum en það virtist ekki vera. Hann ætlaði upp á jökulinn hvemig sem hann færi,“ sagði Sigrún Sæmundsdóttir, húsfreyja á Hofi í Öæfum, í samtali við DV í mrogun. 26 ára Englendings, Steven William Reader, hefur verið saknaö frá því á mánudag þegar hann hélt áleiðis á Hvannadalshnjúk frá bænum Hofi í Öræfum. Hann ætlaði að vera kom- inn niður aftur á miðvikudag og bað heimilisfólkið á Hofi um að hafa ekki af sér áhyggjur fyrr en á miðviku- dagskvöld. Allsherjarleit er nú hafin að manninum en björgunarsveitirn- ar í Öræfum, á Höfn og á Kirkjubæj- arklaustri taka þátt í leitinni. Leitað var án árangurs í gær en þá skall á hið versta veður á þessum slóðum. í dag er frekar hlýtt í Öræfasveitinni og frekar þungt færi. Björgunarsveit- armenn ætluðu af stað í birtingu, bæði gangandi, á vélsleðum og á snjóbíl. Leist þeim ekki vel á færið í mrogun og eins hafði ekki verið farið á vélknúnum farartækjum á jökul- inn beint upp frá Fagurhólsmýri áö- ur. Þá ætlaði Landhelgisgæslan að leita úr lofti. „Hann ætlaði að fara inn í Sandfell um 10 kílómetra frá okkur og þar upp á Hvannadalshnjúk. Svo fréttum við að pósturinn hafði séð hann þar sem hann hafði snúið austur aftur. Þá fórum við að grennslast eftir förun- um og sáum að þau lágu aðeins fyrir vestan okkur. Hann hefur skellt sér á fjalliö beint fyrir ofan okkur í stað þess að fara þá leið sem hann lýsti fyrir okkur.“ Virkar svolítið villtur Englendingurinn kom til landsins fimmtudaginn 11. janúar og kom austur að Hofi með rútu á sunnudag- inn. Segir húsfreyjan að hann hafi gist hjá Hjálpræðishernum í Reykja- vík. - Hvernig kemur maðurinn fyrir? „Hann kemur fyrir eins og rólegur unglingsstrákur en virkar svolítið villtur þegar maður fer að tala meira við hann. Það er eins og hann viti ekki hvað hann vilji.” - Hafði hann einhverjar hugmynd- ir um jökulinn? „Ég held að hann hafi ekki gert sér grein fyrir hvað hann var að fara út í. Hann hafði reyndar lesið eitthvað um Hvannadalshnjúk og það var greinilega takmark hans aö komast þarna upp. Ég held bara að hann hafi alls ekki áttaö sig á árstímanum eða aðstæðum. Við marglýstum fyrir honum hve hættulegt þetta væri, að snjórinn væri allt öðruvísi þarna uppi en hér niðri en það virtist ekk- ert duga á hann. Við reyndum að lýsa fyrir honum hve illa farnir menn hefðu verið þegar þeir hefðu komið niður af jöklinum en það beit ekkert á hann.“ llla útbúinn - Hvernig var hann útbúinn? „Ég veit að hann er með ísexi, brodda og skóflu. Þá er hann með svefnpoka, pínuhtið tjald, lítið gas- hiturnartæki og vettlinga. Úlpan fannst mér ekki góð þar sem hún var aðeins vatteruð. Mér fannst hann alls ekki nógu vel búinn þó hann teldi þaö sjálfur.” - Hafði hanri eitthvað að borða? „Ég vissi ekkert um nestið hans fyrr en snemma á mánudagsmorgun. Þá var hann að tala um að fara af stað og sagði mér að hann hefði súkkulaði. Ég spurði þá hvort hann væri ekki með eitthvað annað og þá er það sem hann svarar að hann æth að lifa á berjum. Ég hváði náttúr- lega og þá áttaði hann sig á að það var ekki hægt. Hann tvísté fyrir framan bæinn til um klukkan sjö, þegar ég sá hann leggja af stað niður á þjóðveg. Þá bað ég manninn minn að fara til hans með poka með brauði, áleggi og ávöxtum. Ég gat ekki vitað af honum svöngum. Það bjargar hon- um kannski. En hann kvaddi ekki þegar hann fór og tók við pokanum án þess að segja aukatekiö orð. Gat ekki stöðvað hann Það er verst að ég gat ekkert gert. Mér var ráðlegt að hindra hann ekki þar sem ég gat það ekki lagalega séð.“ Eftir heimildum Sigrúnar er Stev- en einstæðingur. Fékk hún ekkert upp úr honum hvaö hann gerði þar sem hann svaraði þeim spurningum aldrei. „Ég vona að þessi atburður verði til að svæðið verði hreinlega lokað fyrir svona mönnum. Það er æ al- gengara að fólk ætli sér þarna upp eitt síns liðs og mikið um að maöur þarf að telja fólki hughvarf. Sem dæmi um atvik má nefna þegar mað- ur ætlaði yfir jökuhnn einn og alls- laus og sagðist tætla aö láta guð leiða sig. Ég vona að það verði eitthvað gert úr þessu.” -hlh' Vík í Mýrdal: Snjóbíll til hjálpar Björgunarsveitin í Vík í Mýrdal fór á snjóbíl, þegar veðrið var hvað vérst í gær, til aðstoðar fólki sem var í vandræðum. Meöal annars var fólki, sem hafði verið í biluðum bíl í þrjár klukkustundir, hjálpað til byggða. Eins var farið á snjóbílnum á móti skólabíl. Ekkert amaði að börnun- um. Veður var mjög slæmt í Mýrdaln- um frá hádegi og fram að kvöldmat. Hífandi rok, mikil bhnda og snjó- koma. í morgun var komið ágætt veður í Vík og byrjað var að ryðja. Reiknað er með að flestir vegir verði orðnir færirídag. -sme Vestfirðir: Bílstjóri lenti í miklum þrengingum Illfært var um vegi á Vestfjörð- um í morgun. Að sögn lögreglunn- ar á ísafirði var skyggnið með því móti að vart var hægt að komast leiðar sinnar á bil. Ökumeim sáu ekki lengra en fram á vélarhlíf í snjókófmu. Mikið snjófok var í hvassri norðanátt og lentu öku- menn í erfiðleikum. Slæmt veður var á þessum slóðum í alla nótt. Vitað var um mann sem reyndi einn síns liðs aö komast á Ladaj- eppa frá Bolungarvík til ísafiarðar snemma í morgun en hann varð að snúa við. Maðurinn var í á aðra klukkustund að komast örfáa kíló- metra áfram. Hann missti bílinn út af veginum á einum stað og þurfti að moka sig út út miklum þrengingum. Vegurinn frá ísafirði til Hnífsdals var ruddur í morgun en ekki var tahnn möguleiki á að ryðja veginn til Bolungarvíkur fyrr en veörinu slotaði. Botnsheiði og Breiðadals- heiði voru ófærar í morgun. Flestir vegir á þessum slóðum voru ófærir ímorgun. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.