Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Qupperneq 26
34
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990.
Afmæli
Sigurður Rúnar Jónsson
Diddi fiðla"
Sigurður Rúnar Jónsson hlómlist-
armaður, Diddi fiðla, Vatnsenda-
bletti 143, Kópavogi, er fertugur í
dag.
Sigurður fæddist í Reykjavík og
þar ólst hann upp. Hann var 11 ár
í tónlistarnámi. Sem unglingur
byrjaði hann að spila með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og lék með henni
af og til til 1974. Hann stundaði tón-
listarkennslu með námi á Selfossi
1969—’71, kenndi við Leiklistarskóla
íslands, í Vestmannaeyjum haustið
1972 og fram aö gosi og aftur 1974-’78.
Hann stjórnaði Verslunarskóla-
kórnum 1973 þegar hann ílutti
„Tommy" og einnig útsetti hann
tónhstina. Sigurður stjórnaði Sam-
kór Vestmannaeyja ásamt barna-
kórum í Eyjum. Hann spilaði í Nátt-
úru 1969-’71 og stjórnaði tónlistinni
í „Hárinu“. Hann hefur unniö mikið
í leikhúsum, t.d. samdi hann tónlist
við mörg leikrit eins og Öskubusku
og Gosa í Þjóðleikhúsinu, stjómaði
tónhst og spilaði í Gísl hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og einnig hefur
hann samið tónhst við sjónvarps-
leikrit. Sigurður hefur unnið mikið
sem útsetjari, hljóðfæraleikari og
stjórnandi við hljómplötuupptökur.
Hann stofnaði upptökufyrirtækið
Studio Stemmu árið 1980 en síðan
hefur hann starfað við upptökur
ásamt því að spila og útsetja. Sigurð-
f r
ur er yfirlýstur herstöðvaandstæð-
ingur og hefur staðið fyrir útgáfu á
tveim hljómplötum gegn her í landi.
Hann samdi tónlistina við kvik-
myndina Magnús, eftir Þráin Bert-
elsson, og er hún byggð á íslenskum
þjóðlögum. Sigurður sinnir íslensk-
um þjóðlögum meira núorðið, fór
t.d. til Frakklands og söng konsert
í beinni útsendingu franska út-
varpsins í nóvember 1988 ásamt
Njáli Sigurðssyni og Báru Gríms-
dóttur. Einnig kom hann fram á
þjóðlagahátíð í Umeá í Svíþjóð í fe-
brúar 1989.
Sigurður kvæntist þann 15.9.1972
Ásgerði Ólafsdóttur, kennara við
Sjónstöð íslands, f. 12.2.1950. For-
eldrar hennar eru Ólafur Kjartan
Guðjónsson, verslunarmaður á
Akranesi, og Filippía Jónsdóttir
húsmóðir.
Sonur Sigurðar og Ásgerðar er
Ólafur Kjartan, f. 24.9.1968, tölvari
hjá SKÝRR, og er unnusta hans Sig-
urbjörgBragadóttir, f. 24.4.1968,
starfsmaður barnaheimilis.
Systkini Sigurðar:
Margrét Rannveig, f. 7.2.1951,
sjúkraliði í Reykjavík, gift Indriða
Benediktssyni og eiga þau fjögur
börn.
Ragnar Már, f. 3.8.1953, drukknaði
í maí 1975, var kvæntur Þórunni
Björg Birgisdóttur og eignuðust þau
eittbarn.
Hildur, f. 2.12.1955, fjölmiðlafræö-
ingur, búsett í Reykjavík, gift Pálm-
ari Ingimarssyni og eiga þau tvö
börn.
Guðrún Ólöf, f. 22.1.1959, ljósmóð-
ir, búsett í Reykjavík og á hún eitt
barn.
Sigrún, f. 12.8.1960, læknir, við
nám í Svíþjóð, gift Birni Geir Leifs-
syni og eiga þau eitt barn.
Jón Hörður, f. 1.9.1963, deildar-
stjóri hjá SKÝRR og flugmaður, bú-
settur í Garðabæ, kvæntur Önnu
Nikulásdóttur og eiga þau eitt barn.
Jóhanna Kristín, f. 14.6.1966, við
balletnám í New York.
Foreldrar Sigurðar eru Jón Sig-
urðsson, Jón bassi, kontrabassa-
leikari við Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, f. 14.3.1932, og JóhannaUnn-
ur Erlingson Gissurardóttir þýð-
andi, f. 16.1.1932.
Jón er sonur Sigurðar Z., prests á
Þingeyri, Gíslasonar, Sigurðar b. á
Egilsstöðum, Helgasonar, b. á Geir-
úlfsstöðum í Skriðdal, Hallgríms-
sonar. Móðir Sigurðar var Jónína
Hildur Benediktsdóttir, b. á Kolls-
stöðum á Völlum, Rafnssonar.
Eitt af systkinum Sigurðar prests
var Benedikt frá Hofteigi, afi Kol-
beins Bjarnasonar flautuleikara.
Bróðir Jónínu Hildar var Þórarinn,
faðir Jóns Þórarinssonar tónskálds.
Móðir Jóns kontrabassaleikara
var Guðrún Jónsdóttir, b. í Hvammi
á Landi, Gunnarssonar, b. í
Hvammi, Árnasonar, b. á Galtalæk,
Finnbogasonar, b. á Reynifelli,
Þorgilssonar.
Móðir Gunnars í Hvammi var
Margrét Jónsdóttir, smiðs í Hágarði
í Vestmannaeyjum, Jónssonar.
Móðir Jóns í Hvammi var Guðrún
Brandsdóttir, b. á Felli í Mýrdal,
Brandssonar, b. á Víkingslæk, Hall-
dórssonar. Móðir Guðrúnar Jóns-
dóttur var Ólöf Jónsdóttir, b. í Lun-
ansholti á Landi, Eiríkssonar, b. í
Tungu, Jónssonar, b. á Rauðnefs-
stöðum, Þorgilssonar, bróður Finn-
boga.
Móðir Jóns í Lunansholti var Guð-
rún, systir Eyjólfs, langalangafa
Davíðs Oddssonar borgarstjóra.
Guðrún var dóttir Odds, b. á Fossi
á Rangárvöllum, Guðmundssonar.
Móðir Guðrúnar var Margrét Ólafs-
dóttir, b. á Fossi, Bjarnasonar, bróð-
urBrandsáFelli.
Jóhanna, móðir Sigurðar Rúnars,
er dóttir Gissurar, fyrrv. umdæmis-
stjóra Pósts og síma, Erlingssonar,
grasalæknis og búfræðings frá Eið-
um, Filippussonar, silfursmiðs og
b. í Kálfafellskoti, Stefánsonar. Syst-
ir Gissurar er Ásta grasalæknir.
Móðir Erlings var Grasa-Þórunn.
Móðir Gissurar og Ástu var Kristín
Sigurður Rúnar Jónsson.
Jónsdóttir frá Gilsárvöllum í Borg-
arflrðieystra.
Móðir Jóhönnu var Mjallhvít
Margrét Linnet, dóttir Jóhanns Pét-
urs Péturssonar frá Skagafirði, en
hún var ættleidd af Kristjáni Linn-
et, sýslumanni og bæjarfógeta. Móð-
ir Mjallhvítar var Jóhanna Júlíus-
dóttir frá Gilsfirði á Barðaströnd,
systir Játvarðar Jökuls rithöfundar.
Mjallhvít er systir Bjarna, fóður
Jóhönnu Linnet söngkonu, Hinriks,
föður Vernharðs Linnet, og Elísa-
betar, móður Hlífar Svavarsdóttur,
stjórnanda íslenska dansílokksins
og Guðrúnar Svövu myndlistar-
konu.
Sigrún Finnsdóttir
Sigrún Finnsdóttir húsmóðir,
Kleppsvegi 68, Reykjavík, er sjötug
ídag.
Sigrún fæddist í Skriðuseli í Aðal-
dal í Suður-Þingeyjarsýslu og þar
ólsthúnupp.
Árið 1945 fór hún að búa með El-
íasi Sigurjónssyni verkamanni, f.
23.5.1922, en þau slitu samvistum
1970. Hann er sonur Siguijóns Jó-
hannssonar, verkamanns í Reykja-
vík, og Ólafar G. Elíasdóttur.
Böm Sigrúnar og Elísar eru:
Hallfríður, f. 12.3.1943, húsmóðir
í Reykjavík, gift Guðmundi Haralds-
syni rafvirkja og eiga þau fjögur
börn.
Ólöf G„ f. 1.11.1946, var gift Guö-
mundi Sigursteinssyni verkamanni,
þau slitu samvistum. Þau eignuðust
fjögurböm.
Jenný S„ f. 19.1.1948, húsmóðir í
Reykjavík, á eitt bam.
Elías, f. 21.8.1949, blikksmiður í
Reykjavík, kvæntur Svövu Eyland,
þaueigaþrjúbörn.
Kristján S„ f. 16.12.1950, umsjón-
armaður, kvæntur Stefaníu Þórar-
insdóttur, þau eiga þrjú börn.
Jens, f. 29.11.1953, verkamaður,
búsettur í Kópavogi, var kvæntur
Björk Guðmundsdóttur en þau shtu
samvistum, þau eignuðust fjögur
böm.
Aðalsteinn, f. 16.5.1957, vélvirki,
búsettur í Reykjavík, býr með Helgu
Sigurðardóttur, þau eiga tvö börn.
Margrét, f. 1.4.1959, húsmóðir, býr
með Þorfinni Jóhannssyni stýri-
manni, þau eiga eitt bam.
Marína, f. 9.7.1960, búsett í
Reykjavík, gift Má Jóhannssyni
húsasmið, þau eiga tvö börn.
Systkini Sigrúnar: Baldur Finns-
son, f. 30.3.1915, ekkill Huldu
Óskarsdóttur, d. 1984, og eignuðust
þau fimm börn; Indriði, f. 12.11.1916,
d. 1968; Dýrleif, f. 9.9.1922, gift
Bjarna Tryggvasyni og eiga þau
þijú börn; Gestur, f. 22.10.1923,
kvæntur Guörúnu Magnúsdóttur og
eiga þau eitt barn; Eiður, f. 24.5.1926,
d. 1986, var kvæntur Bergþóm
Magnúsdóttur; Anna Sigríður, f. 9.1.
1929, var fyrst gift Friðbimi Guð-
mundssyni en þau skildu, þau eign-
uðust þijú börn, seinni maður henn-
ar er Gísli Víglundsson og eiga þau
Sigrún Finnsdóttir.
eitt barn; Unnur, f. 6.4.1931, gift
Halldóri Garðarssyni og eiga þau
tvö börn; Haukur, f. 8.2.1933, d. 1975.
Foreldrar Sigrúnar voru Finnur
Valdimar Indriðason, b. og með-
hjálpari í Skriðuseli í Aðaldal, f.
10.1.1889, d. 1979, og Hallfríður Sig-
urbjörnsdóttir húsmóðir, f. 7.9.1891,
d. 1943.
Til hamingju með
afmælið 19. janúar
----------------- Zophonías Jósepsson,
Ægisgötu25, Akureyri.
AnnaKummer, ---------------------------
Dalbraut27,Reykjavík. 60 BVB
Lára M. Vigfúsdóttir, ---------------------------
Hringbraut 50, Reykjavík. Halldór Hörður Arason,
Borgan'egi 32, Njarö\ik. Hann
—----------------------------- verðuraðheimanídag.
Sesselja Magnúsdóttir,
Vatnsnesvegi 13, Keilavík
75 ára
Bergþóra Lárusdóttir,
Víðilundi 24, Akureyri.
Sveinbjörg Jónsdóttir,
Lyngbrekku 13, Kópavogi.
Trausti Eyjólfsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
50 ára
Ásbjörg ívarsdóttir,
skrifstofumaður, Grænuhlíð 13,
Reykjavík. Hún er erlendis um
þessar mundir ásamt eiginmaniii
sínum Jóni Sigurðssyni trompet-
leíkara.
Guðrún Steindórsdóttir,
Smáratúni 11, Selfossi.
Hjalti M. Hjaltason,
Fjarðarstræti 14, ísafirði.
Óskar Egill Axelsson,
Hverfisgötu 32B, Reykjavík.
Vilhjálmur Olafsson
Vilhjálmur Olafsson stýrimaður,
Laufvangi 1, Hafnarfirði, er sextug-
urídag.
Vilhjálmur er fæddur í Grænu-
mýri á Seltjarnarnesi og þar ólst
hann upp. Hann hefur alla tíð verið
til sjós, á togumm, fiskiskipum og
einnig vann hann hjá Eimskip. Vil-
hjálmur var búsettur í Svíþjóð
1979-88 og starfar nú á oliuskipi
fyrir Svía.
Vilhjálmur kvæntist þann 13.12.
1980 Guömundu Guðrúnu Björg-
vinsdóttur, f. 23.6.1942, starfar við
veitingarekstur. Hún er dóttir
Önnu Bjamadóttur húsmóður og
Björgvins Guðmundssonar vél-
stjóra.
Böm Vilhjálms með fyrri eigin-
konu sinni, Nannýju Björnsdóttur,
f. 15.9.1938, eru: Linda, f. 1.6.1958;
Hafdís, f. 22.1.1960; og Ásta, f. 24.8.
1962.
Sonur Vilhjálms og Guðmundu
Guðrúnar er Ólafur, f. 7.9.1981.
Bræður Vilhjálms: Ingólfur, f.
8.11.1916, vélstjóri; Jón Jason, f.
21.9.1918, fiskimatsmaður; Eiríkur,
f. 23.11.1919, d. 1989, loftskeytamað-
ur; og Ásgeir, f. 7.7.1928. Auk þess
átti Vilhjálmur þrjú önnur systkini
sem eru látin fyrir löngu.
Foreldrar Vilhjálms voru Olafur
Jónsson, f. 28.12.1874, d. 1949, gjald-,
keri hjá Kveldúlfi, og Ingibjörg Ei-
ríksdóttir, f. 30.3.1894, d. 1972, hús-
móðir.
Foreldrar Olafs voru Jón Jason-
arson, veitinga; og verslunarmaður
á Borðeyri, og Ásta María Ólafs-
dóttir.
Vilhjálmur er erlendis um þessar
mundir.
Vilhjálmur Olafsson.
70 ára 40ára
Jón Egilsson,
Kirkjuteigi 13, Reykjavík.
Rósa Eiríksdóttir,
Hörðalandi 10, Reykjavík,
Valgeir Guðmundsson,
Sigtúni 45, Reykjavík.
Elsa Ásdís Sigurðardóttir,
Álakvísl 33, Reykjavík.
Helgi Jóhannsson,
Lyngbergi 19B, Hafnarfirði.
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir,
Barónsstig 18, Reykjavík.
Magnús
Stein-
grímsson
Magnús Steingrímsson, fyrrv.
fisksali, Álftamýri 18, Reykjavík,
verður sjötugur á morgun, 20. jan-
úar.
Magnús, eiginkona hans, Sigríður
Meyvantsdóttir, og börn hans munu
taka á móti vinum og vandamönn-
um í Kiwanishúsinu, Brautarholti
26, eftir kl. 19 í dag, 19. janúar.
Magnús Steingrimsson.