Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1990, Side 28
36 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1990. Andlát Fanney Stefánsdóttir lést í hjúkr- unardeild Hvítabandsins fimmtu- daginn 18. janúar. 'áverrir Garðarsson, Ránargötu 45, Reykjavík, lést í Landspítalanum 16. janúar sl. Ásgeir Ásgeirsson, Austurgötu 38, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum 18. janúar. Margrét Þorláksdóttir, Selsvöllum 3, Grindavík, lést í Landspítalanum 18. janúar. Jarðarfarir Sigurbjörg Pálsdóttir, sem lést 10. þ.m., verður jarðsungin mánudaginn -22. þ.m. kl. 15 frá Fossvogskapellu. Útför Ástríðar S. Júlíusdóttur, er lést 10. janúar sl. fer fram frá Keflavíkur- kirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14. Páll Tómasson húsasmíðameistari, Skipagötu 2, Akureyri, sem lést á Kristnesspítala þann 16. janúar verð- ur jarðsettur frá Akureyrarkirkju mánudaginn 22. janúar kl. 13.30. Valdimar Sigurðsson, Skálavík, Stokkseyri, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14. Vv*aldimar Jónsson fyrrum bóndi, Kolþemumýri, lést 12. janúar. Hann fæddist 5. febrúar 1900. Foreldrar hans voru hjónin Helga Árnadóttir og Jón Bjarnason. Valdimar giftist Rannveigu Sigríði Þórðardóttur, en hún lést árið 1960. Þau hjónin eignuð- ust íjögur börn. Útfór Valdimars verður gerð frá Breiðabólstað í Vest- urhópi laugardaginn 20. janúar kl. 15. TJkyimingar Fræðslukvöld Kársnessafn- aðar Fræðslukvöld Kársnessafnaðar í Safnaö- arheimilinu Borgum eru fastur liður í safnaðarstarfmu. Fyrsta fræðslukvöld nýbyrjaðs árs verður miðvikudaginn 24. janúar nk. kl. 20.30. Sigríður Guðmunds- dóttir, framkvæmdastjóri Hjálparstofn- unar kirkjunnar, mun kynna starfsemi stofnunarinnar og hlutverk hennar. Mið- vikudaginn 14. febrúar verður annað fræðslukvöld safnaðarins á árinu. Þá kemur Magnús Torfi Ólafsson, fyrrver- andi ráðherra, og spjallar um umbrotin í Austur-Evrópu síðustu misseri og áhrif kirkjunnar á þróunina þar. Allir eru hjartanlega velkomnir til aö hlusta og taka þátt í umræðunum og þiggja kaffi- veitingar. Hjón verða nágrannaprestar Prófastur Austfjarðaprófastsdæmis, sr. Þorleifur Kj. Kristmundsson, stýrði ný- lega kjörmannafundi þar sem fram fór val á sóknarpresti í Djúpavogspresta- kalli. Sr. Sigurður Ægisson, sem hefur þjónað því undanfarin ár, er nú sóknar- prestur í Bolungarvík. Einn umsækjandi var um Djúpavogsprestakall, sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, og var hún valin með atkvæðum flestra kjörmanna. Sjöfn lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1987 og var vígð sem aðstoðarprestur til Kolfreyjustaðarprestakalls haustið 1988 og gegndi því starfi frá jan.-mars 1989. Undanfarið hefur hún þjónað Bjamar- nesprestakalli í Skaftafelísprófastsdæmi í námsleyfi sóknarprestsins þar. Maður sr. Sjafnar er sr. Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur í Heydölum. Verða þau hjónin því nágrannaprestar. Ungir piltar úr vesturbæ gefa út blað Þessir tveir piltar hér á myndinni, sem heita Einar Aron Einarsson og ívar Mey- vantsson, hafa gefið út blað sem þeir selja í vesturbæ Reykjavíkur. í blaðinu er m.a. verðlaunagetraun, brandarar, krossgáta og teikningar og kostar eintakið 30 krón- ur. Fjáröflun íslenska kvennalandsliðsins í körfuknattleik íslenska kvennalandsliðið í körfuknatt- leik mun standa fyrir fjáröflun fimmtu- daginn 25. janúar nk. Þá munu stúlkurn- ar efna til boöhlaups frá íþróttamiðstöð- inni í Laugardal og til Keflavíkur . Hefja þær hlaupið kl. 14 og áætlað er að koma til Keflavíkur rétt fyrir kl. 20, enda er það eins gott þar sem þær veröa með í fórum sínum keppnisbolta þann er nota á í leik ÍBK og ÚMFN í úrvalsdeildinni sem hefst kl. 20 í íþróttahúsinu í Keflavík. Vega- lengdin er u.þ.b. 50 km. Taka 10 stúlkur þátt í hlaupinu og hlaupa þær því 5 km hver. Framundan er Norðurlandamót kvenna í körfuknattleik sem haldið verð- ur í Finnlandi í lok apríl nk. Eru stúlk- umar aö afla fjái til þessa verkefnis. FBA-samtökin FBA (fullorðin börn alkóhólista) samtök- in em sjálfshjálparhópar þar sem fólk hittist og deilir reynslu sinni, styrk og vonum til að losna undan áhrifum þess að hafa alist upp við vanvirkar fjöl- skylduaðstæður. FBA samtökin em opin öllum sem samkenna sig þessum til- gangi, bæði fuUorðnum börnum alkóhól- ista og öðram sem hafa alist upp við ann- ars konar vanvirkar úölskylduaðstæður. Frá síðustu áramótum fluttu þær deildir, sem vora í Þverholti 20, í annað hús- næði. Þriðjudagsdeild og fimmtudags- deild flytja í Langagerði 1 og hefjast fund- ir sem fyrr kl. 21. LaugardagsdeUdin sem var í græna húsinu kl. 11 feUur niður en aðrar deUdir era óbreyttar sem hér seg- ir: MiðvikudagsdeUd kl. 21 í kjallaranum Frikirkjuvegi 11, og sunnudagsdeild kl. 11 í Bústöðum (félagsmiðstööin í kjallara Bústaðakirkju). ' Happdrætti Heimsmeistarahappdrætti Handknatt- leikssambands íslands 8. janúar sl. var dregið í happdrætti Handknattleikssambands Islands. Suzuki Vitara kom á miöa nr. 139.708, Suzuki Swift kom á eftirtalin númer: 34.437, 75.662 , 86.958 Og 146.746. Hand- knattleikssambandið minnir á að sami miði gildir líka 12. febrúar nk. en þá verða dregnir út 20 bUar. Kvenréttindafélag Islands fær grafíkmynd að gjöf Á jólafundi KRFÍ þann 12. desember sl. færði Haukur HaUdórsson myndUstar- maður félaginu grafíkmynd að gjöf. Myndin er af tveimur konum og heitir Styrkurinn. Formaður félagsins, Gerður Steinþórsdóttir, veitti myndinni viðtöku og þakkaði listamanninum höfðinglega gjöf. Haukur er kunnur myndhstarmað- ur og hefur haldiö margar sýningar hér heima og erlendis. Á myndinni er Hauk- Fréttir Hafskipsmálið 1 Sakadómi: Féllust á launalækkun - „leymreiknmgamir“ hugsaðir sem launauppbót Þrír fyrrverandi stjómarmenn í Hafskip mættu fyrir Sakadóm í gær. Þaö voru Ólafur Ólafsson í Miðnesi, Jón Snorrason í Húsa- smiðjunni og Sveinn R. Eyjólfss.on hjá Frjálsri fjölmiðlun. Þeir tveir sáu um að semja um launakjör þeirra Björgólfs Guömundssonar og Ragnars Kjartanssonar. í framburðum Ólafs og Sveins kom fram að tékkareikningar, sem vora í vörslu Björgólfs og Ragnars og hafa oft verið kallaðir leyni- reikningar, voru hugsaðir sem launauppbót. Þær skýringar feng- ust að færslur vegna reikninganna hefðu ekki verið færðar í bókhald Hafskips þar sem hitt þótti þægi- legra. Þá sögðu þeir báðir að endur- skoðandi Hafskips, Helgi Magnús- son, hefði átt að hafa eftirlit með notkun reikninganna. Ólafur og Sveinn gerðu sam- komulag við þá Ragnar og Björgólf um launamál. Meðal annars var samið um launalækkun. Laun þeirra höfðu hækkað mikið þar sem þau voru bundin við dollar. Páll Bragi Kristjónsson og Ragnar Kjartansson ganga brosandi úr réttar- salnum. Tíu menn af þeim fjórtán, sem sátu í stjórn Hafskips, hafa nú boriö vitni. Þeir hafa allir sagt að æöstu starfsmenn Hafskips hafi ekki beitt blekkingum. DV-mynd GVA Fengu færri en vildu Þá kom fram í framburði stjórn- armannanna að þeir hefðu ekki vitað að ekki hefði safnast allt þaö hlutafé sem tilkynnt var til Hluta- félagaskrár. Þeir sögðust ekki hafa átt von á öðru en allt hefði safnast þar sem mikill áhugi var fyrir hlut- aíjárútboðinu og að í raun hefðu ekki alhr fengið eins mikið og þeir vildu. Lífeyrissjóður verslunar- manna var nefndur í því sambandi. Ólafur Ólafsson, Jón Snorrason og Sveinn R. Eyjólfsson töldu þaö af og frá að stjórnendur Hafskips hefðu blekkt þá. Eins sögðust þeir ekki telja að Útvegsbankinn hefði verið beittur blekkingum. Eitt þeirra atriða, sem mikið er deilt um, er eignfærsla upphafs- kostnaðar vegna Atlantshafssigl- inga Hafskips. Ólafur Ólafsson sagðist muna að mikil umræða hefði verið um þetta atriði. Sveinn R. Eyjólfsson sagðist hafa viljað eignfæra meira en gert var. Hann sagðist hafa fært þetta í tal við Helga Magnússon en Helgi sagt sér að ekki' væri hægt að eignfæra meira en gert var. Þá sagði Sveinn að hann hefði einnig nefnt þetta við bankastjóra Útvegsbankans. Áttu miklar innstæður Stjórnarmennirnir staöfestu að Ragnar Kjartansson og Björgólfur Guðmundsson hefðu átt talsverðar íjárhæðir inni hjá Hafskip og samið ídómsalnum Sigurjón M. Egilsson heföi veriö viö þá um að þeir keyptu hlutabréf fyrir innstæðurn- ar. Þeir mundu ekki til þess að Ragnari og Björgólfi hefðu verið veitt sérstök vaxtakjör vegna hlutabréfakaupa. Um skipaverð á þeim tíma, sem ákæran nær yfir, sögðu stjórnar- mennirnir að miklar umræöur heföu verið í gangi innan stjórnar Hafskips. Sveinn R. Eyjólfsson sagði að verð á skipum væri svei- flugjarnt og það vissu þeir sem störfuðu við útgerð. Stjórnarmenn virðast hafa verið sammála um að skipaverð gæti ekki annað en hækkað, svo lágt hafl það veriö orðið. Sveinn R. Eyjólfsson sagði, þegar spurt var um áætlanir vegna At- lantshafssiglinganna, að til liðs við Hafskip hefði komið maður sem hafði starfað lengi að kaupskipaút- gerð og hann hefði haft mesta trú allra á þessu. Sveinn átti þar við Finnboga Kjeld. Allir stjórnar- mennirnir þrír sögðu að allir hefðu verið þess meðvitaðir að um áhættu væri að ræða, enda hefði rekstur Hafskips veriö áhættu- rekstur. í samráði við Jónatan Tveir rannsóknarlögreglumenn komu fyrir Sakadóm. Arnar Guð- mundsson svaraði, þegar hann var spurður hvort hann hefði farið í öllum tilfellum eftir rannsóknar- fyrirmælum, aö hann hefði unnið í sambandi við sérstakan ríkissak- sóknara og fulltrúa hans. Hörður Jóhannesson sagöi að þeim sem eru ákærðir hafi verið gefinn kostur á að leggja fram öll þau gögn sem þeir hefðu óskað. Aðspurður sagðist hann ekki hafa kynnt þeim þann rétt sinn að fyrra bragði. Hörður sagðist hafa fengið aðstoð tveggja sérfræðinga, Valdi- mars Guönasonar endurskoðanda og Ragnars Hall. Hörður sagði að Valdimar hefði leiðbeint sér við eitthvert smotterí. Hörður sagðist hafa séð, við rann- sókn málsins, kaupleigusamninga yfir gáma frá fyrirtækinu Consafe. -sme Laun áhafnarinnar á Andra BA: Höfum staðið við samninginn - segir Þorbjöm Jónsson hjá útgerðinni „Kjaramálin á Andra BA standa þannig að það eru til samningar við áhöfnina og ég veit ekki annað en að þeir standi," sagði Þorbjörn Jóns- son hjá útgerð Andra BA i Reykjavík. Eins og fram hefur komið í DV er óánægja hjá íslendingunum um borð með kjör sín. í samtali við DV í gær sagði Ásmundur Ólafsson að laun þeirra hefðu ekki reynst í samræmi við það sem þeir áttu von á. „Samningurinn miðast við meðal- kaup á íslenskum frystitogurum og við höfum í engu vikið frá honum nema þeim í hag. Benedikt Valsson, hagfræðingur Farmanna- og fiski- mannasambandsins, hefur farið yfir samninginn og ekki séð ástæðu til að gera athugasemdir við hann,“ sagði Þorbjörn Jónsson. GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.