Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
Fréttir
Fæddi bam með hjálp nágrannakonunnar 1 blokk 1 Kópavogi:
Þegar ég kom að rúminu
var kollurinn kominn í Ijós
segir Rósa Birgisdóttir, úrræðagóð „ljósmóðir“ úr Kópavogi
Peningaskápur brotinn upp í Veggfóðraranum við Fákafen:
„Ég var að koma elsta stráknum
mínum af stað í skólann þegar það
var bankað á dymar hjá okkur.
Strákurinn fór til dyra og þá stóð
Egill litli af efri hæðinni á stigapall-
inum og bað mig um að koma upp.
Hann sagði að það væri eitthvað að
hjá mömmu hans sem var ófrísk. Ég
fór í buxur innundir náttkjólinn og
stökk berfætt upp stigann. Ásta var
þá komin upp í rúm og sagði að lík-
lega væri fæðingin komin í gang.
Hún hafði ekki hringt á sjúkrabíl svo
ég gerði það. Þá þvoði ég mér um
hendurnar. Eftir að ég hafði safnað
saman nokkrum bleium og hand-
klæði og kom að rúminu var kollur
barnsins kominn í ljós svo þá voru
góð ráð dýr. En höfuðiö kom fljótt.
Ég tók í það og þar sem engin fyrir-
staða var kom bamið alskapað í
heimixm. Ég hreinsaði frá andlitinu
qg hristi bamið til þar sem það var
svolítiö blátt í framan. Ég reyndi að
láta það hafa munninn opinn og
hristi þaö aðeins aftur þar til það fór
að gráta. Um leiö og ég lagði bamiö
á maga Ástu stukku sjúkraflutninga-
menn og læknir inn í svefnherberg-
ið,“ sagöi Rósa Birgisdóttir í samtali
viðDV.
Rósa var fyrir þeirri óvenjuiegu
reynslu snemma á þriðjudagsmorg-
un að taka á móti bami nágranna-
konu sinnar sem býr í sama stiga-
gangi í blokk viö Ásbraut í Kópa-
vogi. Barnið, sem er 15 marka og 50
Rósa Birgisdóttir „ljósmóðir“,t.v., ásamt Ástu Georgsdóttur og nýfæddum
syni Ástu. Það var Rósa sem tók á móti barninu í íbúð nágrannakonu sinnar
í blokk í Kópavogi klukkan atta á þriðjudagsmorgun. DV-mynd GVA
Tóku ekki verðmæti einnar
og hálfrar milljónar króna
- stálu seðlunum en skildu eftir ávísanir og verðmæt skjöl
Páll Sigmundsson, startsmaður, við peningaskápinn á innbrotsstað. Tvöfald-
ur botn var sprengdur upp. í skápnum voru geymd verðmæti um tveggja
milljóna króna. DV-mynd GVA
Stór og rammgerður sextíu ára
gamall peningaskápur var sprengd-
ur upp í versluninni Veggfóðraran-
um við Fákafen um helgina. Gjald-
eyri að verðmæti tvö hundruð þús-
und krónur og fimmtíu þúsund krón-
um í skiptimynt var stolið úr skápn-
um. Andvirði einnar og hálfrar millj-
ónar króna í ávísunum, skjölum og
víxlum var hins vegar skilið eftir.
Einnig lét sá eða þeir sem brutust inn
það ógert að hreyfa við ferðatékkum
og erlendum ávísunum að andvirði
150 þúsund krónur.
Að sögn Sigvalda Einarssonar í
Veggfóðraranum var gengið mjög
snyrtilega um innbrotsstaðinn. Því
virtist sém hér hefði verið um „fag-
menn“ að ræða. „Þeir sem brutust
inn hafa greinilega vitað hvað þeir
voru að gera - öll ummerki báru
þess merki. Það er öruggt að þjófam-
ir vissu af skápnum og hafa því kom-
ið hingaö áður. Þeir sprengdu upp
glugga á snyrtilegan hátt og komust
þannig inn. Þeir veltu síðan peninga-
skápnum við og tókst að sprengja
upp botninn á honum til þess aö
komast að verömætunum,“ sagði
Sigvaldi í viðtali við DV.
Einar Þorvarðarson, eigandi fyrir-
tækisins, sagðist hissa á því að inn-
brotsþjófar hefðu augastað á þessu
fyrirtæki og sagði að sýnilega væri
engiim óhultur fyrir slíkum mönn-
um. Peningaskápurinn er sextíu ára
gamall og hefur verið í notkun hjá
fyrirtækinu frá því að það var stofn-
að fyrir jafnmörgum árum. Skápur-
inn er tvöfaldur með um fimm sentí-
metra millirúmi fylltu af sandi. Einar
sagði að langan tíma hefði tekiö að
ryksuga sandinn upp á staðnum því
að augljóslega hefði millirúmið
sprungið upp af miklu afli þegar
hann opnaðist og sandurinn þyrlast
út um allt.
-ÓTT
Euro og Visa hlusta á ASÍ
Greiðslukortafyrirtækiri Euro og
Visa hafa ákveðið að hækka gjöld sín
minna en þau ráðgerðu, að beiðni
Alþýðusambands íslands. Eurocard
hækkar þjónustugjöld sín um 10 pró-
sent í stað 20 prósenta og Visa um
6,7 prósent í staö 16,7 prósenta.
Kortagjald Visa hækkar úr 1.500
krónum í 1.600 krónur á ári. Korta-
gjald Euro hækkar úr 1.500 krónum
í 1.650 krónur.
Mánaðarlegt útskriftargjald Euro
hækkar úr 100 í 110 krónur. Úskrift-
argjald Visa er tvenns konar, 50 og
100 krónur. Það verður framvegis 60
og 120 krónur.
-JGH
sentímetra langur strákur, er nú með
móður sinni á sængurkvennadeild
Landspítalans og heilsaðist þeim
mæðginum prýðilega þegar blaða-
maður og ljósmyndari DV heimsóttu
þau ásamt „ljósmóðurinni“ í gær.
Sallaróleg
„Ég var alveg sallaróleg allan tím-
ann og hafði varla tíma til að hafa
neinar áhyggjur. Ég fékk engar hríö-
ir og þegar ég sendi Egil niður til
Rósu fann ég fyrir smáverk sem
varla er hægt að kalla því nafni. Ég
var alltaf að bíða eftir hríöunum en
þær komu aldrei. Ég fór bara upp í
rúm og þetta gekk satt að segja eins
eðlilega og það gat gengið. Það liðu
varla nema 10 mínútur frá því aö ég
sendi Egil og þar til strákurinn var
kominn í heiminn," sagði hin lukku-
lega móðir, Ásta Georgsdóttir.
Alin upp í sveit
„Ásta reyndi að halda aftur af sér
þar til hjálp kæmi en fæöingin var
byijuð og ekkert að gera nema vera
tilbúin. Maður varð að bregðast við.
Ég á fjögur böm og er alin upp í sveit
þar sem ég hef oft upplifað sauðburð.
Sú reynsla kom sér satt að segja
ágætlega og það var aldrei spuming
hvað ætti að gera. Þegar læknirinn
kom var barninu gefið súrefni,
hreinsað upp úr því og það skilið frá
móöur sinni. Síðan fóm þau mæðgin
upp á spítala. Eftir að þetta var af-
staöiö varð algert spennufall og þá
man ég reyndar að það fyrsta sem
ég hugsaði eftir að ég kom upp var
að hita vatn. Sú hugsun kom ósjálfr-
átt en ég náði aldrei að hita neitt
vatn. Þetta var einstök upplifun og
tengir okkur nágrannakonurnar
óneitanlega nokkuð saman. Svo
finnst mér líka að ég eigi soldið í
þessu kríli, “ sagði Rósa.
Hvellur
Ásta segir að hún hafi verið skrifuð
inn á fæðingadeildina 22. febrúar en
vildi satt að segja fæöa þann 20. þar
sem það er fertugsafmælisdagur Sól-
veigar systur hennar. Það gekk, en á
mjög svo eftirminnilegan hátt. Hún
er þakklát fyrir að eiga svona úr-
ræöagóðan nágranna og þakkar
sjúkraflutningamönnunum og lækn-
inum einnig hjálpina.
Þær Ásta og Rósa vora hissa á því
hve rólega Egill litli, sem er 5 ára, tók
þessu. Hann fór inn í herbergi að
leika sér viö kisuna sína og var eitt-
hvað á vappi. Egill var hálffeiminn
við blaðamann og vildi ekkert segja
frá fæðingu bróður síns.
Litli bróðir var ósköp vær þrátt
fyrir flass ljósmyndarans. Þær ná-
grannakonur, móðirin og „ljósmóö-
irin“, gerðu að gamni sínu á fæðing-
ardeildinni og höfðu strax fundið
gælunafn á þann stutta. Hvellur var
þaö heillin.
-hlh
Umhverfisraöuneytið:
Borgarar kref jast
afgreiðslu strax
„Við höfum bent á að þetta er
eitt af forgangsverkefnum ríkis-
stjórnarinnar og átti reyndar að
afgreiðast fyrir áramót. Við getum
einfaldlega ekki beðið frekar eftir
því að málið verði afgreitt," sagði
Júlíus Sólnes, hagstofuráðherra og
væntanlegur umhverfisráðherra,
en ekki tókst aö afgreiða frumvarp
um stofnun umhverfisráðuneytis í
nótt þrátt fyrir langa fundarsetu í
efri deild. Málið var klárað til
þriðju og síðustu umræðu og er
ætlunin að ljúka henni í dag. Ekki
liggur þó fyrir samkomulag í þing-
inu um það.
Samkvæmt heimildum DV hafa
Borgarar krafist þess að frum-
varpið verði afgreitt fyrir Norður-
landaráðsþing sem hefst hér í
Reykjavík í næstu viku. Júlíus vildi
ekki staöfesta þessa kröfu en sagði
að þessi umræða um frumvarpið
væri orðin út í hött. Þá tefði hún
fyrir því að nefndir yrðu skipaðar
til að undirbúa lagasetningu um
gróðurvemd fyrir næsta þing.
Þá er komin upp óánægja í neðri
deild Alþingis þar sem framsókn-
armenn hafa flutt breytingartillögu
um að skerða úrskurðarvald um-
hverflsráöuneytis um friðlýsingu
svæða. Felur tillagan í sér að land-
búnaöarráöuneytið hafi úrskurð-
arvald í þessu efni. Það eru sérstak-
lega alþýðubandalagsmenn sem
hafa hreyft mótmælum við þessu
en Júlíus taldi tillöguna ekki
skerða valdsvið umhverfisráöu-
neytis svo neinu næmi. Hann virð-
ist því sætta sig við hana.
-SMJ
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavik:
Engar breytingar á efstu sætm
Fyrstu þrjú sæti á framboðslista
Sjáffstæðisflokksins í Reykjavík, við
borgarstjómarkosningamar 26. maí,
verða skipuð sama fólki og við síö-
ustu kosningar, samkvæmt tillögu
uppstillingarnefndar.
Davíð Oddsson verður í fyrsta sæti,
Magnús L. Sveinsson í öðm og Katr-
ín Fjeldsted í þriðja. Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, sem var í fimmta sæti
1986, verður í fjórða sæti. Anna K.
Jónsdóttir varaborgarfulltrúi veröur
í fimmta sæti en hún var áður í þrett-
ánda sæti.
Árni Sigfússon og Júlíus Hafstein
eru í sjötta og sjöunda sæti nú og
færast báðir upp um eitt sæti. Páll
Gíslason færist úr fjórða sæti í það
áttunda. DV greindi frá skipan efstu
átta sæta á mánudaginn.
Guðrún Zoega verður í níunda sæti
en hún var í 17. sæti síðast. í tíunda
sæti verður nýliði, Sveinn Andri
Sveinsson laganemi og blaðamaður
á Morgunblaðinu.
Hilmar Guðlaugsson, en hann var
í sjötta sæti, verður í 12. sæti og Jóna
Gróa Sigurðardóttir, sem var í 9.
sæti, fellur í 11. sæti. Hulda Valtýs-
dóttir, Guðmundur Hallvarðsson og
Margrét Theódórsdóttir verða, sam-
kvæmt tillögum uppstillingamefnd-
ar, í 13. til 15. sæti framboöslistans.
Uppstillingamefnd kynnir þessar
tillögur á fundi fulltrúaráðs sjáff-
stæöisfélaganna í Reykjavík á fundi
á Hótel Sögu síðar í dag.
-sme