Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Síða 10
10
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
Firma- og félagshópkeppni KR
í innanhússknattspyrnu 1990
Keppnin verður haldin 5.-19. mars í stóra sal KR-
heimilisins. Leikið verður í 5 liða riðlum, í 4ra manna
liðum á handknattleiksmörk. Óheimilt erað nota leik-
menn sem léku í 1. eða 2. deild 1989. Þátttaka til-
kynnist fyrir fimmtud. 1. mars í síma 27181 milli kl.
13 og 18.
Knattspyrnudeild KR
Til fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna
i Reykjavík
Munið fulltrúaráðsfundinn í Átthagasal
Hótel Sögu í kvöld kl. 17.30.
Fundarefni:
Ákvörðun framboðslista.
Stjórnin
t í/yV Auglýsing
^ um rannsóknastyrki frá
'gjjSJgF J.E. Fogarty
g— ' international Research
Foundation
J.E. Fogarty-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa
erlendum vísindamönnum til rannsóknastarfa við vísindastofnanir
f Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavett-
vangi til rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina
(biomedical or behavioral sciences), þar með talin hjúkrunar-
fræði. Hver styrkur er veittur til 12 eða 24 mánaða frá miðju ári
1991 og á að standa straum af dvalarkostnaði styrkþega (18.000
til 22.000 Bandaríkjadalir), auk ferðakostnaðartil og frá Bandaríkj-
unum. Einnig er greiddur ferðakostnaður innan Bandaríkjanna.
Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækjendur
að leggja fram rannsóknaáætlun í samráði við stofnun þá í Banda-
ríkjunum sem þeir hyggjast starfa við.
Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dagbjartsson lækn-
ir, barnadeild Landspftalans (s. 91-601000). Umsóknir þurfa að
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja-
vfk, fyrir 15. júlf nk.
Menntamálaráöuneytið,
16. febrúar 1990
I
i ___________
t,_Ci^áocnvno
,£¥
Síðmkart
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
Þú gefur okkur upp:
nafn þitt og heimilisfang,
síma, kennitölu og
gildistíma og númer
greiðslukorts.
•
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 6.000,-
•
SMÁAUGLÝSINGADEILD
ÞVERHOLTI 11
SÍMI 27022
, £i\
SZíimkori.
Uflönd
Vaclav Havel í Bandaríkjimum:
Bandaríkjamenn
ættu að styðja
Sovétmenn
Havel, forseti Tékkóslóvakíu, ásamt
Bush Bandaríkjaforseta.
Símamynd Reuter
Vaclav Havel, forseti Tékkóslóvak-
íu, hitti að máli Bush Bandaríkjafor-
seta í gær og var það annar fundur
þeirra á skömmum tíma. Á þeim
fundi samþykkti Havel að dvöl
bandarískra hersveita í Evrópu
stuðlaði að öryggi og stöðugleika á
meginlandinu að því er fram kom í
máh embættismanna bandaríska
forsetaembættisins í gær. En tékk-
neski forsetinn hefur einnig sagt op-
inberlega að engin þörf sé lengur
fyrir þandaríska hermenn í Evrópu.
En í yfirlýsingu sem gefm var út að
síðari fundi forsetanna loknum í gær
sagði að Bush og Havel hefðu verið
sammála um aö „vera bandarískra
hermanna ætti þátt í að stöðugleiki
og öryggi ríkti í Evrópu".
Havel, sem fer til Moskvu til fundar
við sovéska ráðamenn á mánudag,
ávarpaði bandaríska þingmenn í
gær. Þar hvatti hann Bandaríkin til
að veita Sovétríkjunum aöstoð á leið
þeirra til lýðræðis. Ekki er hægt að
snúa við umbótaþróuninni í ríkjum
Austur-Evrópu sagði forsetinn og
þessi þróun mun einhvern tíma leiða
til þess að bandarískir hermenn geti
snúið heim á ný. Tékkneski forsetinn
hét því að þjóð sín myndi ekki láta
af hendi lýðræði sitt sem hefði verið
keypt svo dýru verði. Reuter
Gengur Ungverjaland í Nato?
Svo gæti farið að Ungverjaland
gangi til liðs viö Nato, Atlantshafs-
bandalagið, einhvern tíma í fram-
tíðinni að því er fram kom í máli
ungverska utanríkisráðherrans,
Gyula Hom, í gær. Horn vill að
ákvæöi Helsinki-sáttmálans, frá
árinu 1975, verði ítarlegri og verði
smám saman breytt í skuldbind-
ingar fyrir aöildarríkin. Þijátíu og
fimm þjóðir hafa undirritað Hels-
inki-sáttmálann um landamæri
evrópskra ríkja og mannréttindi.
„Slíkt gæti haft í fór með sér ný
viðhorf og í þvi ljósi er ekki hægt
að útiloka að Ungveijaland gangi
til liðs við Nato,“ var haft eftir
Horn í MTI, hinni opinberu frétta-
stofu.
Vestrænir stjórnarindrekar furö-
uðu sig á ummælum Horn en svo
virðist sem þau stangist á við fyrr-
um yfirlýsingar ungverskra emb-
ættismanna þess efnis aö bæði
hernaðarbandalögin skyldu lögð
niður og að Ungverjar vildu vera
hlutlaus þjóð. Þeir segja að þetta
kunni að vera kosningabragð fyrir
fyrirhugaðar kosningar í næsta
mánuði.
Stjórnvöld í Búdapest eiga nú í
viðræðum viö Moskvustjórnina
um brottflutning sovéskra her-
manna frá Ungveijalandi. Einn
fulltrúa ungverska utanríkisráðu-
neytisins sagði í gær að samninga-
menn beggja aðila myndu ræðast
við þann 28. þessa mánaðar og und-
irrita samning um tímasetningu
brottflutnings um miðjan mars.
Reuter
Nýtt blóðbað í uppsiglingu
Stríðandi fylkingar kristinna í
austurhluta Beirút voru í viöbragðs-
stööu í morgun og var óttast að hörð-
ustu bardagarnir hingað til í borg-
arastríðinu í Líbanon stæðu fyrir
dyrum. „Það er eins og maður standi
frammi fyrir aftökusveit meö galopin
augu og bíði eftir aö hleypt veröi af,"
sagöi einn Beirútbúa.
Heimildarmenn sögðu aö samn-
ingamenn heföu verið í stööugum
viöræöum viö Michel Aoun, yfir-
mann herafla kristinna, og andstæð-
ing hans Samir Geagea, yfirmann
sveita þjóövarðliða, til aö koma í veg
fyrir aö bardagamir hæfust á ný.
Alls hafa sjö hundruð manns látiö
lífiö í bardögunum undanfarnar
þijár vikur.
Þúsundir íbúanna í austurhluta
Beirút, borgarhluta kristinna, hafa
notaö tækifæriö á meöan vopnahléö
hefur ríkt og tekið saman fóggur sín-
ar til aö forða sér undan blóöbaöi sem
allir óttast. Þaö hefur þó ekki veriö
áhættulaust þar sem jarösprengjur
eru úti um allt í íbúðarhverfunum.
Heimildarmenn Aouns segja að
samningamönnum hafi ekki oröiö
ágengt í friöartilraunum sínum. Ge-
Krlstnlr fbúar austurhluta Belrút hafa flúlð boraina undanfarna daga á
meðan vopnahlé hefur rlkt.
agea kveöst munu halda áfram aö
berjast, jafnvel þótt allt svæði krist-
inna verði jafnaö viö jöröu. Herfor-
Slmamynd Reuter
ingjarnir tveir berjast um yfirráðin
yfir kristnum.
Reuter