Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1990, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990.
íþróttir
Er til fordæmi í máli Vals?
Valsmenn hafa
sent greinargerð
- Bogdan kallaöi liö Armanns af leikvelli
| . j Það var stórleikur á
I ÍCsl daeskrá 1 NBA-deild-
I// I inni í körfuknattleik í
fyrrakvöld. LA Lakers
sótti þá S A Spurs heim og sigruðu
j æsispennandi leik eftir frain-
lengingu, 114-115. Önnur úrslit í
ieikjunum í fyrrakvöld uröu
þessi:
Charlotte-Portland......94-104
Orlando Seattle.......102-117
Atlanta-Washington......107-110
New Jersey-Milwaukee....102-10
Minnesota-Houston.......97-92
Phoenix-Boston.........120-99
Sacram-LA Clippers......99-90
Valsmenn hafa sent inn greinar-
gerð varðandi atvikið sem kom upp
á dögunum þegar liðið gekk af leik-
velli í miðjum leik á alþjóðlega
handknattleiksmótinu sem fram
fór í Garðabæ um síðustu helgi.
„Málið hefur verið þingfest og við
höfum fengið í hendurnar greinar-
gerð frá Valsmönnum um atvikið.
Þeir hafa einnig óskað eftir munn-
legum greinargerðum sem við í
dómstólum verðum við. Við viljum
reyna að aflétta biðinni og finna
lausn á málinu sem fyrst og ég skil
að Valsmenn vilji flýta fyrir af-
greiðslu málsins," sagði Valgarður
Sigurðsson, formaður dómstóls
HSÍ, í samtali við DV í gærkvöldi.
Eftir því sem DV kemst næst hef-
ur slíkt gerst hér á landi að þjálfari
hefur kallað leikmenn sína af leik-
velli í miðjum leik. Bogdan Kowalz-
cyk landsliðsþjálfari mun hafa gert
slíkt þegar hann þjálfaði hand-
knattleikslið Ármanns og heimildir
DV segja að hann hafi verið sektað-
ur um 10.000 krónur og fengið eins
eða tveggja leikja bann.
-GH
PSV vilja semja
viö Romario til 1996
Forráðamerm hol-
lenska knattspyrnu-
liðsins PSV viija nú
ólmir semja við brasil-
íska ieikmanninn Romario Far-
iaz um að hann leiki áfram með
félaginu til ársins 1996 en samn-
ingur hans rennur út í vor. Rom-
ario, sem á dögunum var út-
nefndur besti knattspymumað-
urinn í hollensku deildinni, kom
tfl PSV áriö 1988 frá Vasco da
Gama og kostaði 28 milijónir ís-
ienskra króna. Hann hefur verið
mjög marksækinn í hoilensku
knattspymunni og hefur skorað
meira en 50 mörk fyrir félagið.
Forseti PSV, Kees Ploegma, sagði
aö hann vonaðist til að Romario
skrifaði undir nýjan samning,
sem mundi gilda til ársins 1993,
hið fyrsta og að viðræður væru í
gangi við Romario um að hann
seradi til ársins 1996, Forráða-
menn PSV vilja ganga frá samn-
ingi við Brasílíumanninn áður en
úrslitakeppni HM í knattspyrnu
hefst og eru smeykir um að stóru
félögín á Spáni og á Ítalíu renni
hýru auga til kappans og bjóði
honum samning.
Spennandi keppní hjá
Púttklúbbi Ness
Nýlega var haldin
holukeppni á vegum
Púttklúbbs Ness. Þátt-
taka keppenda var
mjög góð og fór mótið hið besta
fram. Mótið var strangt og langt
og þurfti að leika tíu holur til að
úrslit fengjust. Haraldur Ársæls-
son sigraöi, Villhjáimur Hall-
dórsson hafnaði í ööru sæti og i
þriðja sæti varð Bergþór Jónsson.
Púttklúbburinn skorar á alla fé-
laga aö mæta vel á æfingar og
taka með sér nýja félaga. Upplýs-
ingar eru veittar í síma 26746.
Tekur fisk
með sér
- til Tékkóslóvakíu
íslenska landsliðið í handknattleik
mun hafa um 10 kg af harðfiski með
sér til Tékkóslóvakíu. Einnig mun
hðið taka með sér ferskan fisk í
keppnina. íslenska hðið var á keppn-
isferðalagi í Bratislava í nóvember
síðastliðnum og voru þá landshðs-
mennimir ekki ánægðir með matinn
sem var á boðstólum.
Á þessu árstíma er framboð á nýj-
um fiski í lágmarki í Tékkóslóvakíu
og þá sérstaklega í borgum úti á
landsbyggðinni. Forráðamenn
heimsmeistarakeppninnar hafa samt
lofað að maturinn, sem eldaður verð-
ur í keppendur, verði fyrsta flokks.
Jón Hjaltalín Magnússon, formað-
ur HSÍ, sagði á blaðamannafundi í
fyrrakvöld að læknir íslenska hðsins
hefði hönd í bagga með hvernig
ferski fiskurinn yrði matreiddur.
______________________-JKS
Körfubolti
í kvöld
Tveir leikir eru á dagskrá í úrvals-
defidinni í körfuknattleik. í Keflavík
taka heimamenn á móti Reyni frá
Sandgerði og á Seltjarnarnesi leiða
saman hesta sína KR og Þór. í 1. deild
karla er stórleikur þegar ÍS og Vík-
verji mætast í íþróttahúsi Kennara-
háskólans og á Laugarvatni leika
UMFL og Léttir. Alhr leikirnir hefj-
ast kl. 20.
Framarar tryggðu sér sigur á
endanum í 2. deild karla í hand-
knattleik þegar liðið vann Hauka,
25-24, í miklum baráttuleik. í
sömu deild léku á Hlíðarenda
Selfyssingar og B-lið Vals og sigr-
aði Selfoss, 20-23, og í Njarðvík
töpuðu heimamenn fyrir liði
Keflvíkinga með 23 mörkum gegn
34. Það er mikil barátta um annað
sætið í deildinni. Selfoss er komið
í annað sætið með 18 stig, Haukar
hafa 17 og UBK er með 16 stig en
hefur leikið einum leik minna.
í bikarkeppni kvenna sigraði
Fram lið KR, 34-23. -GH
Bordeaux í
efsta sæti
Heil umferð var leikin í gærkvöldi
í 1. deild frönsku knattspyrnunar og
uðru úrsht sem hér segir: Brest-Bórdeaux ....2-0
Caen-Auxerre ....1-0
Lihe-Nice ....1-1
Metz-Toulouse ....3-0
Monaco-Cannes ....0-0
MontpeUier-Nantes R. Paris-Lyon ....2-1 ....0-1
St. Etienne Mulhouse ....3-0
Tnnlnn ParisSG .0-3
• Bordeaux er í efsta sæti með 39 stig en Marseihe er í öðru sæti með 36 stig og í þriðja sæti er Mónakó með 31 stig.
Handknattleikur:
C-keppnin heitir
nú AHukeppni
25% reglan gildir 1 forriðlinum 1 Tékkó
Runar tapaöi stórt
i úrslitakeppninni
Hermundur Sgimmdason, DV, Noregi:
Fyrstu leikimir í úrsli-
takeppninni í norsku
1. deildirmi í hand-
knattleik voru í fyrra-
kvöld. Þá áttust viö Urædd og
Runar, lið Steinars Bigissonar,
og vatm Urædd stórsigur, 25-18.
Bengt Svele, þjálfari Urædd og
leikmaöur, fór á kostum í leikn-
um og átti stóran þátt í sigri hös-
ins. Leikmönnum Runar, gekk
mjög erfiðlega í sókninni og kom-
ust htt áleiðis gegn sterkri vörn
Urædd. í hinura undanúrshta-
leiknum áttust við Sandeíjörd og
Stavanger og sigraði Sandetjörd
í miklum baráttuleik, 16-12. Þetta
voru fyrri viðureigmr höanna en
sigurliðin í leikjunum tveimur
samanlagt leika til úrshta um
norska meistaratitilinn í hand-
knattleik.
Ljóst er að baráttan um efstu sætin
í heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik verður gífurlega hörð.
Þjóðimar, sem lenda í sjö efstu sæt-
unum, muna tryggja sér sæti á
ólympíuleiknum í Barcelona 1992.
Ef Spánverjar, sem leika í sama riðli
'og Islendingar, verða á meðal sjö
efstu þjóðanna, munu átta þjóöir
tryggja sér sæti á ólympíuleikunum.
Þjóðimar, sem hafna í 9.-12. sæti,
munu leika í B-keppninni á næsta
ári. Löndin, sem lenda í 13.-16. sæti,
leika í Álfukeppninni í Finnlandi í
marsmánuði. Svonefnd C-keppni er
ekki lengur við lýði heldur var
ákveðið á síðasta IHF-þingi að kaha
keppnina hér eftir Álfukeppni.
Hin margumtalaða 25% regla verð-
ur höfð th hliösjónar í forriðlunum
í Tékkóslóvakíu en ekki í milhriðlun-
um og úrslitakeppninni í Prag.
-JKS
Firmakeppni
Skallagríms í innanhússknattspyrnu fer fram dagana
2. og 3. mars. Uppl. gefa Þór Daníelsson, sími
93-71200, MSB og Skarphéðinn, sími 93-71200,
kjötvinnslan. Heimasímar: Þór 93-71193, Skarphéð-
inn 93-71990.
Þátttaka tilkynnist fyrir 27. febrúar.
Knattspyrnudeild Skallagríms
Bogdan Kowalczyk landsliðsþjálfara í handknattleik, var í fyrral
Pétur Baldvin og verður ekki annað sagt en honum hafi tekist þetta verkefni frál
blaðamannafundinum þar sem landsliðshópurinn var tilkynntur sem leikur í heimsr
Sigurðsson, aðstoðarmaður Bogdans, afhenti honum myndina en Davíð mun vera
ur stjórnað islenska landsliðinu allar göturfrá árinu 1983.
Úrslitakeppnin 1 blaki
Stúdentar eru á t
-1 báðum deildum eftir tvær um
Fjögurra hða úrslitakeppnin er komin
á fullan skrið og í gærkvöldi lauk ann-
arri umferð. Kvennalið Víkings og
Breiðabliks öttu kappi í langri viðureign
og þar á eftir leiddu Þróttarar og HK-
menn saman hesta sína.
Víkingur - Breiðablik 2-43
Fyrstu þijár hrinurnar voru nokkuö
dæmigerðar fyrir þessi hð. Breiðabhk
vann nokkuð auðveldlega í þeirri fyrstu,
15-10. Síðan unnu Víkingar í tveimur
næstu hrinum, 15-11 og 15-10, og satt að
segja töldu líklegast flestir að þar með
væri „Víkingsvéhn" komin í góöan gang.
En það reyndist öðru nær því að Breiða-
bliksstúlkum, undir forystu Hildar Grét-
arsdóttur, tókst með góðri baráttu og
góðum uppgjöfum að sigra, 15-4. Víking-
ar virtust ekki vita í þennan heim né
annan og voru bara hissa á þessum
ósköpum. Úrslitahrinan fór á svipaðan
veg, Breiðabliksstúlkur harðákveðnar
að sigra en Víkingar langt frá sínu besta,
enda lauk hrinunni með 15-7 sigri UBK.
Það var Hhdur Grétarsdóttir sem reif
sína menn upp úr deyfðinni eftir þriðju
hrinu með góðum leik og hörkubaráttu* 1-
og á hún stærstan þátt í sigri síns liðs.
Hjá Víkingum átti enginn góðan dag.
Dómgæsla í höndum Kjartans Páls
Einarssonar hefði mátt vera ákveðnari.
Þróttur - HK 3-1
Þróttarar, sem fyrr í vetur afrekuðu það,
eitt hða, að tapa fyrir gárungunum í
Fram, eru nú loks að komast á skriö.
Þeir eru til ahs líklegir nú og ætla sér
greinilega að ná langt í slagnum um titil-
inn.
Fyrstu tvær hrinur voru Þróttara
(15-10, 15-10). HK-ingar áttu í erfiðleik-
um með að taka á móti uppgjöfum þeirra,
einkum Einars Ásgeirssonar og Sveins
Hreinssonar, og þar af leiðandi náðu
þeir ekki sterkum sóknum. í þriðju hrinu
snerist dæmið hins vegar viö og HK tókst
að merja sigur með ágætum uppgjöfum
og sóknum. Fjórða hrinan varð síðan
slæm útreið fyrir HK-inga (4-15), sem
tóku iha á móti og sóttu af afar veikum
mætti.
Bestir Þróttara voru Einar Ásgeirsson
og Jason ívarsson en hjá HK átti Karl
Sigurðsson góðan leik.