Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1990.
Fréttir
Alþýðubandalagið í Reykjavik:
Vaxandi líkiir eru á að
ekki verði af framboði
fylgi við Nýjan vettvang fer vaxandi innan félagsins
Líkur á að Alþýðubandalagsfélagið
i Reykjavik bjóði fram sérstakan lista
við borgarstjórnarkosningarnar eru
nú heldur litlar. Það hefur vakið at-
hygli að Sigurjón Pétursson, sem
verið hefur leiðtogi Alþýðubanda-
lagsins í borgarmálum í 20 ár, hefur
enn ekki viljað gefa upp hvort hann
gefur kost á sér í forvali félagsins,
sem fyrirhugað var, þrátt fyrir að til
stæði að senda forvalsgögn út um
síðustu helgi. Þá hefur Guðrún
Ágústsdóttir heldur ekki gefið upp
hvort hún gefur kost á sér.
Sigurjón vildi ekkert segja um
þetta mál í morgun annað en það að
hann væri í góðu sambandi við
nefndina sem annast á framkvæmd
forvalsins ef af verður. Hann viður-
kenndi aftur á móti að hugmyndin
um að styðja Nýjan vettvang ætti
„eitthvert fylgi innan Alþýðubanda-
lagsfélags Reykjavíkur," eins og
hann komst að orði.
Samkvæmt öruggum heimildum
DV var Sigurjón Pétursson búinn að
ákveða að hætta, sömuleiðis Guðrún
Ágústsdóttir. Þegar svo samtökin
Nýr vettvangur voru stofnuö var
þrýst á Sigurjón að loka ekki dyrun-
um. Með hann í efsta sæti væri ef til
vill von á að ná manni inn í Reykja-
vík. Því má segja að hann haldi þeim
opnum í hálfa gátt meðan gerjunin
sem nú stendur yflr á sér stað.
Hugmyndir hafa verið uppi innan
Alþýðubandalagsins um aö koma
með alveg nýjan lista, fólk sem ekki
hefur verið á lista hjá félaginu áöur.
Sóst hefur verið eftir því við Hildi
Jónsdóttur, fyrrum fréttaritara Rík-
isútvarpsins í Kaupmannahöfn, að
hún taki 1. sætið. Raunar hefur verið
rætt við fjölda fólks um að taka sæti
á listanum en viðbrögðin verið dauf.
Þess vegna hallast nú æ fleiri innan
félagsins að því að halla sér að Nýj-
um vettvangi. Það er aðeins kjarninn
úr flokkseigendafélaginu ásamt
gömlu Fylkingarfélögunum sem enn
strögglar.
Á framkvæmdastjórnarfundi Al-
þýðubandalagsins, sem haldinn var
í gær, stóö til að leggja til atlögu við
Kristínu Á. Ólafsdóttur sem gefur
kost á sér í forvali Nýs vettvangs.
Þegar til kom lögðu andstæðingar
Kristínar ekki í það og mál hennar
var ekki rætt.
Samkvæmt heimildum DV áttu
Birtingarfélagar fund með Svavari
Gestssyni og Steingrími J. Sigfússyni
i gær. Hvorugur þeirra útilokaði
stuðning félagsins í Reykjavík við
Nýjan vettvang en tóku hugmynd-
inni heldur ekki fagnandi.
Það nýjasta er svo að Æskulýðs-
fylking Alþýðubandalagsins lýsir
yfir stuðningi við Nýjan vettvang.
Sömuleiöis munu allir Birtingarfé-
lagar hafa fallist á að styðja nýja
framboðið en ákveðnir menn innan
Birtingar hafa verið efins, menn eins
og fyrrum ritstjórar Þjóðviljans, Öss-
ur Skarphéðinsson og Mörður Arna-
son.
Alþýðubandalagið í Reykjavík er
að falla á tíma í framboðsmálum sín-
um og því er ákvörðunar að vænta
íþessariviku. -S.dór
Arnar Jensson, yfirmaður flkniefnadeildar:
Kannanir á fjölda fíkniefna-
neytenda eru fáar og lélegar
Hluti bilanna sem lentu í átta bíla árekstri á Arnarneshæð. Fólk, sem var í bílunum, varð að leita skjóls í vinnus-
kúrum Hagvirkis sem eru á hæðinni. Eignatjón varð mjög mikið. Enginn slasaðist hættulega. DV-mynd S
Blindbylur, ófærð og
100 bílar í árekstrum
Um 100 bílar lentu í árekstrum á
höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun
þegar gerði mikinn blindbyl. Víða
skóf í skafla og vegir og götur urðu
þungfærar. Talið er aö um 100 bílar
hafi skemmst vegna árekstra og
nokkur slys urðu á fólki - engin mjög
alvarleg.
í Kollafirði varð átta bíla árekstur.
Þar, sem og víðar, varð mikið eigna-
tjón. Eins var átta bíla árekstur á
Arnarneshæð. Þar varð einnig mikið
tjón.
Hjá lögreglu varð mikið annríki og
víða voru björgunarsveitir kallaðar
út til aðstoðar.
Skömmu eftir hádegi í gær var
komið ágætt veður á höfuðborgar-
svæðinu og umferö komst í eðlilegt
horf á ný.
-sme
„Við höfum oft heyrt sögur um aö
heróín og krakk sé í umferð og höfum
margsinnis tekið efni úr umferð sem
áttu að vera krakk en reyndust síöan
vera eitthvaö annað,“ sagði Arnar
Jensson, yfirmaöur fíkniefnadeilar
lögreglunnar, í samtali við DV.
Arnar segir að Breiðholt hafi fengið
athygli vegna tuga ungmenna sem
voru handteknir í síðastliðinni viku.
„Við höfum aldrei handtekið svo
margt ungt fólk í einu en það var á
aldrinum 15 til 20 ára. Hins vegar
höfum við oft handtekið og kært
svipaðan fjölda af eldri fikniefna-
neytendum í einu í Reykjavík - það
hefur verið víðs vegar um borgina. Á
hinn bóginn er ekkert hægt að al-
hæfa hvort hægt er að eingangra
fíkniefnaneyslu við Breiöholt,“ sagöi
Arnar.
DV barst vitneskja í gær um að
enginn þeirra sem var handtekinn í
síðustu viku hefði veriö úr Fella-
skóla. Grunnskólanemi í Breiðholti
og viðmælandi DV í gær, lét að því
liggja að hassneysla nemenda úr
þeim skóla og víðar væri algeng.
Arnar sagðist ekki geta staðfest að
enginn þeirra handteknu væri úr
ofangreindum skóla því nákvæmar
upplýsingar á eftir að taka saman
vegna handtakanna.
„Tilgangurinn með handtökuað-
gerðum eins og í fyrri viku miöast
við að stöðva neysluna eins og kostur
er. í framhaldi af málum eins og þess-
um eru fyrirhugaðar aðgerðir og að-
stoð við viökomandi - það veröur
rætt við skólana, foreldra og aðra
aðila. Það sem ber að leggja meginá-
herslu á er forvarnarstarf gegn því
að þeir yngri byrji á að neyta fíkni-
efna,“ sagði Arnar.
Arnar sagðist telja hlutfall fíkni-
efnaneytenda vera lægra en fram
kom í máli ofangreinds nemanda og
neytanda í samtali við DV í gær.
Hátt hlutfall getur þó átt við í einum
bekk í einhverjum skóla. Kannanir
vegna tíðni fíkniefnaneyslu eru hins
vegar fáar og of lélegar. Samkvæmt
einni slíkri kemur þó fram að 30 pró-
sent úr aldurshópnum 15-30 ára hafa
einhvern tíma prófað hass. Hlutfall
þeirra sem neyta þess að staðaldri
er svo aðeins hluti af þeirri tölu. En
rétt er að benda á að fíkniefnaneysla
er lögbrot - þess vegna fara hand-
tökur fram.
„Þeir sem eru langt komnir í fíkni-
efnaneyslu eiga það oftast sameigin-
legt að hafa byrjað á að fikta við og
drekka áfengi. Hass kemur seinna til
sögunnar þegar krakkarnir kynnast
nýjum kunningjum. í framhaldi af
því kemur svo amfetamín,“ segir
Amar.
Aðspurður um gróf ofbeldisverk,
sem framin eru undir áhrifum fíkni-
efna, sagði Arnar að það væri staö-
reynd að amfetaminneytendur æst-
ust mikið upp af neyslu þess enda
væri það mjög örvandi. „Amfetamíni
fylgir oft mikið ofbeldi. Menn vilja
gangast upp í því að vera harðir og
töff. Ofbeldis- og skemmdarverk
tengjast þó oftast áfengi,“ sagði Arn-
ar Jensson.
-ÓTT
Ummæli grunnskólanema og fíkniefnaneytanda í DV 1 gær:
„Passa ekki við okkar upplýsingar“
- segir Örlygur Richter, skólastjóri Fellaskóla
Reykjavíkurskákmótið:
Karl og Helgi
í efstu sætum
í 4. umferð Búnaöarbankaskák-
mótsins sigraði Helgi Ólafsson
bandaríska stórmeistarann Joel
Bepjamin glæsilega. Karl Þor-
steins geröi jafnteíli við Dolmatov
og sömuleiöis geröi Jón L. jafit-
tefli við Wojkíewicz frá Póllandi.
Margeir tapaði hins vegar fyrir
David Bronstein.
Polugaevsky vann Azmaypar-
ashvili og er einn efstur meö 4
virininga. Helgi, Karl og Kamsky,
sem er aöeins 15 ára, eru næstir
með3,5vinmnga. -SMJ
„Þær upplýsingar, sem fram komu
í DV í gær, um fjölda og hlutfall nem-
enda, sem neyta fíkniefna í Breið-
holti, eiga ekki við um Fellaskóla.
Það sem fram kom hjá viömælanda
blaðsins finnst okkur skrýtið og
passar ekki við þær upplýsingar sem
við höfum. Við höfum lagt rækt við
íþrótta- og félagsstarf og við vinnum
náið með nemendum, til dæmis í
Fellahelli," sagði Örlygur Richter,
skólastjóri Fellaskóla, í samtali við
DV.
Örlygur segir að drykkja hafi ekki
tíökast á skólaskemmtunum i Fella-
skóla - ekki einu sinni á skólalóð-
inni. 16 ára piltur, sem er nemandi í
einum grunnskólanna í Breiðholti,
sagði í DV í gær að í Reykjavík væri
hlutfallslega mest um fíkniefna-
neyslu í Hóla- og Fellahverfi. Hann
sagðist telja að um fimmti hver
grunnskólanemandi reykti „stund-
um“ hass.
„Mér finnst að okkur vegið með
þessum ummælum. Ég held að fíkni-
efnaneysla hljóti að dreifast um
borgina. Ég hef ekki trú á að hún sé
meiri í Breiðholti en annars staðar í
Reykjavík. Fólk er oft tilbúið til gefa
Breiöholti einhvern óréttmætan
stimpil," sagði Örlygur.
Aðspurður um aðgerðir til að
sporna við fíkniefnaneyslu sagði Örl-
ygur að hann væri hlynntur því aö
ræða fíkniefnavandamál. „Þaö er
full ástæða til að halda mönnum viö
efnið," sagði Örlygur. „Það sem helst
þarf að taka á er: Hvað ætlarðu að
gera þegar þú verður var við fíkni-
efnaneyslu? Við höfum ekki orðið
vör við þennan vanda. Kynningu
þarf að efla 'varðandi það hvernig á
að þekkja einkenni vegna vímuefna.
Þegar ég settist niður í gær með
kennurum hér kom það upp á yfir-
borðið að við höfum ekki þurft að
glíma við fíkniefnavandamál í þess-
um skóla. Ef slíkt kæmi upp mynd-
um við vafalaust vinna með nemend-
um sjálfum, foreldrum og ef til vill
leita til unglingadeildar Félagsmála-
stofnunar. Mér finnst umfiöllun um
þessi mál eiga rétt á sér en hún verð-
ur líka að vera af hinu jákvæða,"
sagði Örlygur Richter. -ÓTT