Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 6
H;i£XAÖU>íIV'tttM MlÐVIKUDAGUR 21. MARS 1990. $ Viðskipti______________________________________________________________________________dv Það er af sem áður var: Gamli miðbærinn bæði Ivflaus og niðurlægður Þeir sem eiga leiö niöur Laugaveg- inn og um gamla miðbæinn, Kvos- ina, hafa sjaldan eða aldrei tekið eft- ir eins miklu tómu verslunarhús- næði og um þessar mundir. Kaup- menn segja sjálfir aö þvi miður hafi Kvosinn sett mjög niður sem versl- unarhverfi og til eru þeir sem halda að hún sé búin að vera. Þyngdar- punktur verslunarinnar hafi færst upp í Kringluna, Múlahverfið, Skeif- una og síðast en ekki síst Mjóddina. Kreppan kom við Kvosina Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, segir Verðbréfaþing íslands - kauptilboð vikunnar FSS= Fjárfestingarsjóður Sláturfélags Suðurlands, GL = Glitnir, IB = Iðnaðar- bankinn, Llnd = Fjármögnunarfyrirtækið Lind, SlS = Samband islenskra sam- vinnufélaga, SP = Spariskírteini ríkissjóðs Hæsta kaupverð Einkenni Kr. Vextir BBLBI86/01 4 173,92 8,5 BBLBI87/01 4 170,04 8,3 BBLBI87/034 159,65 8,0 BBLBI87/054 153,48 7,9 SKSIS85/2B 5 239,45 12,1 SKLYS87/01 3 163,86 12JS SKSÍS87/01 5 223,12 12,0 HÚSBR89/1 99,99 6.6 SPRIK75/1 17760,64 6,7 SPRIK75/2 13313,59 6,7 SPRIK76/1 12462,65 6,7 SPRIK76/2 9674,95 6,7 SPRl K77/1 9032,66 6,7 SPRIK77/2 7477,08 6,7 SPRl K78/1 6124,59 6,7 SPRIK78/2 4776,59 6,7 SPRl K79/1 3991,90 6,7 SPRÍK79/2 3106,82 6,7 SPRIK80/1 2574,13 6,7 SPRÍK80/2 1986,85 6,7 SPRÍK81/1 1631,38 6,7 SPRIK81/2 1232,15 6,7 SPRIK82/1 1136,24 6,7 SPRIK82/2 861,05 6,7 SPRÍK83/1 660,17 6,7 SPRÍK83/2 450,26 6,7 SPRIK84/1 452,88 6,7 SPRIK84/2 491,10 7,6 SPRIK84/3 478,34 7,5 SPRIK85/1A 404,15 7,0 SPRIK85/1B 273,40 6,3 SPRIK85/2A 313,87 7,0 SPRIK85/2SDR 273,16 9.8 SPRIK86/1A3 278,72 7,0 SPRIK86/1A4 315,92 7,7 SPRIK86/1A6 335,73 7,8 SPRIK86/2A4 263,21 7,2 SPRIK86/2A6 277,26 7,3 SPRÍK87/1A2 222,80 6,5 SPRIK87/2A6 202,86 6,7 SPRIK88/1D3 180,83 6,7 SPRÍK88/2D3 142,20 6,7 SPRIK88/2D5 148,33 6,7 SPRÍK88/2D8 146,11 6,7 SPRÍK88/3D3 140,41 6,7 SPRÍK88/3D5 142,00 6,7 SPRIK88/3D8 141,18 6,7 SPRl K89/1 D5 137,05 6,7 SPRl K89/1 D8 136,13 6,7 SPRIK89/2D5 113,55 6,7 SPRIK89/1A 114,08 6,7 SPRIK89/2A10 94,07 6,7 SPRIK89/2D8 111,33 6,7 SPRl K90/1 D5 100,71 6,7 Taflan sýnirverð pr, 100 kr. nafnverðs og hagstaeðustu raunávöxtun kaupenda I % á ári miðað við viðskipti 19.03/90 og dagafjölda til áætlaðrar innlausnar. Ekki er tekið tillit til þóknunar. Forsendur umverðlagsbreytingar: Viðskipti á Verðbréfaþingi fara fram hjá eftirtöldum þingaðilum: Fjárfestingarfé- lagi Islands hf., Kaupþingi hf„ Lands- banka Islands, Samvinnubanka Islands hf„ Sparisjóði Hafnarfjarðar, Sparisjóði Reykjavíkurog nágrennis, Útvegsbanka Islands hf„ Verðbréfamarkaði Iðnaðar- bankans hf. og Verslunarbanka Isl. hf. - Kvosin búin að vera sem verslunarstaður? Þessi mynd var tekin í Austurstræti í gær. Veðrið var fúlt og autt yfir Kvos að líta. Við blasir autt verslunarpláss i Austurstræti 6 þar sem áður var Skóverslunin Rima. Aldrei hefur verið eins mikið um autt verslunarhúsnæði í Kvosinni og einmitt núna. Fyrir nokkrum árum börðust menn um hvern krók og kima sem losnaði í gamla miðbænum. þetta um ástandið í Kvosinni: „Það fer ekki fram hjá neinum að ástandið í verslun og kaupmennsku hefur sennilega aldrei verið jafnslæmt og núna í Kvosinni. Það er af sem áður var þegar verslun í miðbænum blómstraði. Ég held að það sé tvennt sem ræður mestu um hvernig nú er komið. Með Kringlunni komu marg- ar nýjar verslanir sem strax drógu til sín mikil viðskipti. í annan stað lenti viðskiptalífið í kreppu á árinu 1988 sem stendur enn yfir. Með minni kaupmætti er augljóslega minna keypt. Þess vegna held ég að ástand- iö í Kvosinni eigi eftir að batna. Að núverandi staða sé aðeins tímabund- ið ástand." Einn kunnasti kaupmaður í borg- inni, Skúli Jóhannesson í Tékk- Kristal, en hann rekur bæði verslun í Kringlunni og við Laugaveginn, segir að því miður búi gamli mið- bærinn núna viö niðurlægingu. Hann hafi sett mjög mikið niður og mjög sé óvíst að verslun nái sér á strik aftur. „Eftir að hafa rekið verslun í gamla miðbænum í yfir tuttugu ár þá slær hjarta mitt í honum. Það er samt heldur ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að verslun hefur snarminnkað í Kvosinni. Ef ekkert verður gert af hálfu borgaryfirvalda mun enn draga úr verslun í gamla miðbænum og við tekur daufleg mið- borg stofnana. Borgaryfirvöld verða að skilja að verslunin segir til um það hvort líf sé í bænum eða ekki.“ Kvosin nötraði við rassíu stöðumælavarðanna Skúli segir ennfremur að Kringlan hafi sannað sig sem verslunarstaður en engan veginn sé hægt að kenna Kringlunni eingöngu um það hvem- ig nú er komið fyrir gamla mið- bænum. „Miðbærinn stóð illa að vígi þegar Kringlan kom til sögunnar. Þar hafði engin uppbygging átt sér stað í áraraðir. Eða hvaö era margar nýbyggingar í miðbænum? Ekki bætti þó úr skák að borgaryfirvöld hófu rassíu í stöðumælasektum á sama tíma og Kringlan tók til starfa. Við þetta skalf miðbærinn allur. Hann bókstaflega nötraði. Fyrir vik- Hver verslunarbyggingin af annarri hefur risið upp i Skeifunni að undan- förnu þrátt fyrir offramboð á markaðnum. Afleiðingin er autt verslunar- húsnæði. Þessi mynd er af nýju húsi í Faxafeni og við blasir tómleikinn innandyra. Nýjar tölur frá Þjóðhagsstofnun: Hrikaleg kreppa í smásöluverslun Hrikalegur samdráttur varð í smá- söluverslun á síðasta ári miðað við árið 1988, samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðhagsstofnun. Salan dróst saman um 7 prósent að raunvirði á milli áranna. Verslunin í landinu velti alls um 97 milljörðum á síðasta ári borið saman við rúma 85 milljarða árið 1988. Velta smásöluverslunar var 41,5 milljarðar en heildverslunar 55,4 milljarðar. í heildsölunni hefur samdrátturinn orðið mestur í sölu á bílum. í smá- söluversluninni varð samdrátturinn mestur í sölu búsáhalda og hús- gagna. Þetta er veltubreytingin í einstök- um greinum verslunar á milli ár- anna 1988 og 1989 þegar tekið hefur verið tillit til verðbólgu: Heildverslun: Byggingavöruv.................-8% Sala nýrra bíla..............-28% Önnur heildverslun.............1% Smásala: Fiskbúðir....................-10% Matvörur......................-1% Tóbak og sælgæti.............-11% Blómabúðir.....................2% Vefnaður og fót..............-13% Skófatnaður..................-12% Bækur og ritföng...........-11 % Lyfjabúðir.....................7% Búsáhöld og húsgögn..........-24% Úr, ljósmyndavörur.............6% Snyrtivörur..................-22% Sportvörur og fl..............-2% Blönduð verslun................0% Af þessu sést aö það eru aðeins apótek, úra- og ljósmyndavöruversl- anir og loks blómaverslanir sem búið hafa við raunaukningu í veltu. Önn- ur verslun hefur búið við samdrátt. -JGH ið segir fólk og hugsar: Niður í bæ fer ég ekki. Þrátt fyrir að síðan hafi bæst við ný stæði við Bergstaða- stræti og Vesturgötuna er það ein- hvern veginn svo að fólk nýtir sér þau ekki sem skyldi.“ Og Skúli bætir við: „Borgaryfirvöld verða að koma með einhverja gulrót handa kaupmönnum til að blása nýju lífi í verslun í miðbænum. Þau verða að létta á bílastæðunum og lækka fasteignagjöldin. Það verða að vera verslanir í miðbænum vilji menn hafalífiíhonum." -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3-5 LB.Bb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 4-6 Ib 6mán. uppsögn 4,5-7 Ib 12mán.uppsögn 6-8 Ib 18mán. uppsögn 15 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Sp Sértékkareikningar 3-5 Lb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 sP Innlángengistryggð Bandaríkjadalir 6,75-7,25 Sb Sterlingspund 13,5-14,25 Sb Vestur-þýskmörk 6,75-7,25 Sb.lb Danskarkrónur 10,5-11,2 Bb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 18,5-19,75 Bb.Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 18,5-19 Ib.Bb,- Sb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(vfirdr.) 25-26,5 Ib.Bb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,5-8.25 Lb.Bb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 17,5-19,5 Ib SDR 10,95-11 Bb Bandaríkjadalir 9,95-10 Bb Sterlingspund 16,75-17 Lb.Bb Vestur-þýskmörk 10,15-10,25 Bb Húsnæðislán 4,0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 30 MEÐALVEXTIR överðtr. mars 90 22,2 Verðtr. mars 90 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala feb. 2806 stig Lánskjaravísitala mars 2844 stig B^ggingavísitala mars 538 stig Byggingavísitala mars 168,2 stig Húsaleiguvísitala 2.5% hækkaói 1. jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4.786 Einingabréf 2 2,616 Einingabréf 3 3,154 Skammtímabréf 1,628 Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,103 Kjarabréf 4.738 Markbréf 2,524 Tekjubréf 1,978 Skyndibréf 1,420 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,292 Sjóðsbréf 2 1,726 Sjóðsbréf 3 1,610 Sjóðsbréf 4 1,361 Vaxtasjóðsbréf 1,6270 Valsjóósbréf 1,5310 HLUTABRÉF Söluveró að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv Sjóvá-Almennar hf. 600 kr. Eimskip 500 kr. Flugleiðir 165 kr. Hampiðjan 180 kr. Hlutabréfasjóður 174 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr. Skagstrendingur hf. 373 kr. Islandsbanki hf. 158 kr. Eignfél. Verslunarb. 158 kr. Olíufélagið hf. 403 kr. Grandi hf. 160 kr. Tollvörugeymslan hf. 118 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.