Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Side 10
íiio
Uflöríd
í kjölfar umbrotanna í Austur-Evrópu:
Hægri
sveifla
Úrslit kosninganna í Austur-
Þýskalandi, þar sem bandalag
hægri manna bar sigur úr býtum
með töluverðum yfirburðum, stað-
festa þá stefnu Austur-Evrópubúa
að nota kosningar til að kasta af
sér áratugalangri stjórn kommún-
ismans eins fljótt og auðið er.
Og nú, þegar íbúar austurhluta
meginlandsins kjósa í æ ríkara
mæli að halla sér að ijölflokkalýð-
ræði, er aðeins ein spurning sem
þeir leggja fyrir hina nýju stjórn-
málaflokka sem sprottið hafa upp
líkt og gorkúlur: Hver ykkar er
bestur til þess fallinn að afmá af-
leiðingar fjörutíu ára stjórnar
kommúnista og koma á í hennar
stað þeirri hagsæld og velmegun
sem sjá má á Vesturlöndum?
Sigur Kohls í
A-Þýskalandi
„Sósíalismi ei meir“ mátti sjá á
veggspjöldum víða um Austur-
Þýskaland í kosningabaráttunni.
Þetta slagorð er kjarninn í kosn-
ingayfirlýsingum Bandalags fyrir
Þýskaland, samtaka þriggja hægri
flokka, sem sigraði í nýafstöðnum
kosningum í Austur-Þýskalandi.
Bandalagið fékk alls 48 prósent at-
kvæða og er það meira en helmingi
meira fylgi en jafnaöarmenn fengu.
Langmesta fylgi einstakra flokka
í Bandalaginu fékk Kristilegi
demókrataflokkurinn, fjörutíu og
eitt prósent. Það virtist ekki skipta
máli þó að leiðtogi hans, Lothar de
Maiziere, væri ekkert þekktur í
Austur-Þýskalandi aðeins örfáum
dögum fyrir kosningar. Fortíð
flokksins, sem tæki í höndum
kommúnista á valdatíma þeirra,
skipti jafnvel engu í þessum kosn-
ingum.
Hið eina sem vakti og hélt at-
hygli kjósenda í Austur-Þýskalandi
var að hinn nýi flokkur kristilegra
demókrata, eins þriggja flokka
Bandalags fyrir Þýskalands, sem
boðar hraða sameiningu viö Vest-
ur-Þýskaland, virtist geta fært
Austur-Þjóðverjum þá velmegun
sem þeir sjá handan landamær-
anna fljótar en aðrir. „Það eru e.t.v.
ekki allir ánægðir með allt í Vest-
ur-Þýskalandi eins og er en þeir
vilja peningana sína,“ sagði einn
kona í Austur-Berlín.
„Það var Kohl (kanslari Vestur-
Þýskalands) sem sigraði í þessum
kosningum,“ sagði einn vestrænn
stjórnarerindreki. Kohl, sem er í
forsvari kristilegra demókrata í
Vestur-Þýskalandi, hefur heitið
sameiningu gjaldmiðla þýsku ríkj-
anna eins fljótt og auðiö er, að
gjaldeyrisskráning austur-þýska
marksins verði til jafns við það
vestur-þýska, sem og að sparifé
Austur-Þjóðverja verði verndað í
sameinuðu Þýskalandi.
Kommúnistum í Austur-Þýska-
landi tókst ekki að hrista af sér
ímynd fortíöarinnar þrátt fyrir
breytt nafn og breytta stefnuskrá.
Þeir unnu sextán prósent atkvæða
í kosningunum sem að mörgu leyti
er lofsverð frammistaða. Það er
samt sem áður enn eitt merki um
hrörnun stefnu sósíalismans í
þessum heimshluta.
Pólverjarfyrstir
Fyrstu merki þessarar hrörnun-
ar mátti sjá í Póllandi fyrir tæpu
ári. Þá urðu kommúnistar að sætta
sig við að tapa í kosningum fyrir
hinum frjálsu verkalýðssamtök-
um, Samstöðu. í orði kveðnu gerir
kosningalöggjöfin í Póllandi
kommúnistum kleift að vera við
stjórnvölinn en flokknum er
tryggður ákveðinn fjöldi sæta á
þingi. En slíkur var ósigur komm-
únistaflokksins í kosningum að all-
ir bandalagsflokkar hans sneru við
honum bakinu og Samstaða tók viö
völdum.
Pólveijar hunsuðu svo aö segja
alla stjórnmálaflokka og hópa utan
Samstöðu þrátt fyrir að samtökin
hefðu afar óljósa stefnuskrá og í
I mörgum ríkjum Austur-Evrópu fara á næstu vikum fram kosningar sem snúast um framtíð þessa heims-
hluta. Þessi mynd var tekin í Austur-Þýskalandi þar sem kosið var síðastliðinn sunnudag. Simamynd Reuter
fyrstu engin áform um að setja á
laggirnar stjórn. Það voru úrslit
kosninganna sem lögðu línuna fyr-
ir Samstöðu.
Svipaða þróun mátti sjá í úrslit-
um fimm aukakosninga í Ung-
verjalandi í fyrra. í öllum kosning-
unum unnu frambjóðendur stjóm-
arandstöðunnar, samtakanna Lýð-
ræðislegs vettvangs og Bandalags
frjálsra demókrata. Kjósendur
vissu afar lítið um þessa flokka
þegar gengið var til kosninga. Svo
virðist sem helsta aðdráttarafl
þeirra hafi verið sú staöreynd að
frambjóðendur þeirra eru ekki
kommúnistar.
Kommúnisminn að
hruni kominn
Stjórnarandstaðan í Ungverja-
landi nýtur ekki stuönings vel
stæðra vestrænna samtaka og
stjómmálaflokka á sama hátt og
stjórnarandstaðan í Austur-Þýska-
landi gerði í kosningabaráttunni.
En skoðanakannanir sýna að þrátt
fyrir það muni ungverska stjórnar-
andstaöan sigra kommúnista í
komandi þingkosningum síðar í
þessum mánuði og snemma í apríl-
mánuði.
í Tékkóslóvakíu, þar sem kosn-
ingar fara fram þann 8. júní, virð-
ist hið sama upp á teningnum. Þar
í landi á stjórnarflokkurinn mjög
erfitt uppdráttar og hafa margir
háttsettir félagar í honum, þar á
meðal Marian Calfa forsætisráð-
herra, sagt skilið við hann.
Ástandið í Rúmeníu og Búlgaríu
er ekki eins skýrt og skorinort.
Kommúnistaflokkurinn er hrun-
inn til grunna í Rúmeníu en stjórn-
arandstæðingar segja að félagar í
honum séu að reyna að ná völdum
á ný og standi að baki Þjóðfrelsis-
hreyfingunni sem nú fer með völd
í landinu. Frambjóðendur Þjóö-
frelsishreyfingarinnar eru taldir
sigurstranglegir í komandi kosn-
ingum þann20. maí næstkomandi.
I Búlgaríu er kommúnistaflokk-
urinn enn við völd og er, sam-
kvæmt skoðanakönnunum á veg-
um hins opinbera, líklegastur til
að sigra í kosningunum sem eiga
að fara fram í júní. En margt er enn
eftir að ákveða hvað þær kosningar
varðar, þar á meðal hvenær þær
fara fram. Hafa ber í huga að þegar
Búlgarar ganga til kosninga hafa
flestir nágranna þeirra þegar greitt
atkvæði um framtíð sína - að öllum
líkindum stjórn án kommúnista -
og getur það haft áhrif á úrslitin í
Búlgaríu.
Markaðsbúskapur
Nú er ekki tíminn til að hika,
sagði Alan Holmer, einn fulltrúa
Bandaríkjanna, á fundi þrjátíu og
fimm aðildarríkja Röse, Ráðstefnu
um öryggi og samvinnu í Evrópu,
daginn eftir austur-þýsku kosning-
arnar. Á þessum fundi munu rúm-
lega eitt þúsund kaupsýslumenn
og embættismenn ræða hvernig
nýir ráðamenn í Austur-Evrópu
geta sett á laggirnar frjáls mark-
aðshagkerfi að vestrænni mynd í
stað miðstýrðra kerfa sem ráðið
hafa ríkjum á austurhluta megin-
landsins í tugi ára. Markaðsbú-
skapur er nú töfraorðið í Austur-
Evrópu.
Evrópubandalagið, EB, hefur lagt
fram róttækar tillögur að breyting-
um í efnahags- og fjármálalífi Aust-
ur-Evrópu. Margar austur-evr-
ópskar þjóðir, með hægri sinnaða
fjármálaráðherra í broddi fylking-
ar, hafa þegar tekið slíkar breyting-
ar upp á arma sína. Má þar til að
mynda nefna Pólland sem nú hefur
innleitt breytingar sem miða að
gjörbreyttu efnahagslífi.
Það veröur ekki auðvelt að um-
breyta efnahag Austur-Evrópu..
„Við ættum allir að hafa í huga að
þær breytingar, sem nú eiga sér
stað í ríkjum sem eru að innleiða
frjáls efnahagskerfi í stað miðstýr-
ingar, eru ekki auöveldar," sagði
Holmer. Sem dæmi um það er Pól-
land, þjóðin sem er fremst í flokki
hvað varðar efnhagsumbætur
Austur-Evrópu. Þar ríkir kreppa
nú þegar aðhaldsaðgerðir stjórn-
valda eru farnar að hafa áhrif á
gang efnhagsmála.
í tillögum EB er minnst á þau
atriði sem hvað erflðast verður fyr-
ir Austur-Evrópu að innleiða, hvað
sem vilja ríkja eins Póllands og
Ungverjalands að innleiða umbæt-
ur líður. Að mati sérfræðinga EB
verða í fyrsta lagi breytingar og
umbætur á verðlagningu Austur-
Evrópu erfiðar, þ.e. að draga úr
þeim gífurlegu niðurgreiðslum sem
haldið hafa verði á matvælum og
orku óeðlilega lágu. Seinna atriðiö
er umbætur á gjaldmiðlum land-
anna en öll eiga ríki Austur-Evrópu
við sama vanda að stríða hvað það
varðar. Hvort ríki eins og Sovétrík-
in, þar sem Gorbatsjov Sovétforseti
berst nú fyrir því að stýra efnahag
þjóðar sinnar í átt að markaðs-
búskap, geti fallist á tillögur EB á
eftir að koma í ljós.
Reuter
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Fálkagata 13, hluti, talinn eig. Halldór
Guðmundsson, föstud. 23. mars ’90 kl.
10.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Fiskislóð 103-119, hluti, þingl. eig. Jón
Steinn Eh'asson, föstud. 23. mars ’90
kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Fífusel 11, íb. 02-02, þingl. eig. Guð-
björg Hulda Ámadóttir, föstud. 23.
mars ’90 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur
eru Veðdeild Landsbanka íslands,
Iðnlánasjóður og Ólafur Gústafsson
hrl.
Flúðasel 90, hluti, þingl. eig. Guðlaug
Sigurðard. og Guðbrandur Haraldss.,
föstud. 23. mars ’90 kl. 11.00. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Frostafold 6, hluti, talinn eig. Steinar
Pálmason, föstud. 23. mars ’90 kl.
11.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík og tollstjórinn í
Reykjavík.
Grýtubakki 30, 2. hæð hægri, þingl.
eig. Gréta Óskarsdóttir, föstud. 23.
mars ’90 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Gyðufell 6, hluti, þingl. eig. Kristinn
Eiðsson og Þórunn Haraldsdóttir,
föstud. 23. mars ’90 kl. 11.30. Uppboðs-
beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Gyðufell 12, hluti, þingl. eig. Ingibjörg
Pétursdóttir, föstud. 23. mars ’90 kl.
11.45. Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík, Fjárheimtan hf.
og Halldór Þ. Birgisson hdl.
Hamraberg 18, hluti, þingl. eig. Berg-
þór Guðmundsson, föstud. 23. mars ’90
kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild
Landsbanka íslarids, tollstjórinn í
Reykjavík og Hróbjartur Jónatansson
hdl.
Háagerði 11, þingl. eig. Lovísa Guð-
mundsdóttir, föstud. 23. mars ’90 kl.
11.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Hátún 39, hluti, þingl. eig. Jónas
Yngvi Ásgrímsson, föstud. 23. mars ’90
kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur eru
Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild
Landsbanka íslands og Ólafur Sigur-
geirsson hdl.
Hjallavegur 35, talinn eig. Hafþór
Kjartansson, föstud. 23. mars ’90 kl.
10.15. Uppboðsbeiðandi er Ólafur Sig-
urgeirsson hdl.
Hjaltaþakki 10, hluti, þingl. eig. Sig-
ríður Ágústsdóttir, föstud. 23. mars ’90
kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Holtsgata 21, þingl. eig. Elsie Júníus-
dóttir, föstud. 23. mars ’90 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Hólaberg 24, hluti, þingl. eig. Hjálm-
týr G. Hjálmtýsson, föstud. 23. mars
’90 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Hólmaslóð 8, hluti, þingl. eig. Steinar
sf., vélsmiðja, föstud. 23. mars ’90 kl.
13.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Hólmgarður 35, hluti, þingl. eig. Þor-
björg Kristjánsdóttir, föstud. 23. mars
’90 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er Ólaf-
ur Gústafsson hrl.
Hrísateigur 31, hluti, þingl. eig. Guð-
laug Friðriksdóttir, föstud. 23. mars ’90
kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Hvassaleiti 151, þingl. eig. Ásgeir Ein-
arsson, föstud. 23. mars ’90 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru Bjöm Jónsson
hdl. og Ólafur Axelsson hrl.
Hverfisgata 42, hluti, þingl. eig. Sam-
hjálp hvítasunnumanna, föstud. 23.
mars ’90 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Hverfisgata 86, hluti, þingl. eig. Karl
Albert Manúelsson, föstud. 23. mars
’90 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Hverfisgata 102A, hluti, þingl. eig.
Már Gunnþórsson o.fl., föstud. 23.
mars ’90 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Hyrjarhöfði 5, hluti, þingl. eig. Þór
Snorrason, föstud. 23. mars ’90 kl.
14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
BORGARFÓGETAEMBÆTriD í REYKJAVÍK
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Grensásvegur 16, hluti, þingl. eig.
Nývirki h£, fer fram á eigninni sjálfri
föstud. 23. mars ’90 kl. 15.30. Uppboðs-
beiðendur eru Gjaldheimtan í Reykja-
vík, Hákon H. Kristjónsson hdl. og
Fjárheimtan hf.
Gnoðarvogur 76, hluti, þingl. eig.
Daníel Þórarinsson, fer fram á eign- -
inni sjálfrí föstud. 23. mars ’90 kl.
16.30. Uppboðsbeiðendur em Gjald-
heimtan í Reykjavík, Sigurberg Guð-
jónsson hdl., Þorfmnur Egilsson hdl.,
Sigurður Georgsson hrl., Óskar
Magnússon hdl., Hróbjartur Jónat-
ansson hdl„ Þómnn Guðmundsdóttir
hrl., íslandsbanki, Gústaf Þór
Tiyggvason hdl, Skúli J. Pálmason
hrl., Símon Ólason hdl. og Kristinn
Hallgrímsson hdl.
Grettisgata 86,2. hæð, þingl. eig. Guð-
björg F. Torfadóttir, fer fram á eign-
inni sjálfri föstud. 23. mars ’90 kl.
17.00. Uppboðsbeiðendur em Ingólfur
Friðjónsson hdl., Byggðastofiiun,
Skúli J. Pálmason hrl. og Þórólfur
Kr. Beck hrl.
Grýtubakki 4, 3. hæð t.v., þingl. eig.
Þóra Jónsdóttir, fer fram á eigninni
sjálfrí föstud. 23. mars ’90 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur em Veðdeild
Landsbanka íslands, Gjaldheimtan í
Reykjavík og Guðjón Armann Jóns-
son hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTm) í REYKJAVÍK