Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Blaðsíða 15
51 Iþróttir 34 blaðamenn frá 33 löndum völdu bestu handknattleiksmenn ársins 1989: Kristján á miðjum lista yfir þá bestu í heimi Kristján Arason, landsliðsmaöur í handknattleik, er í 5. sæti á lista yfir bestu handknattleiksmenn heimsins á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýjasta hefti tímaritsins World Handball en þar er birtur listi yfir þá handknattleiksmenn sem höfn- uðu í tólf efstu sætunum að þessu sinni. Það voru 34 blaðamenn frá 33 lönd- um sem kusu í kosningu tímaritsins. Suður-Kóreumenn geta verið ánægð- ir með útkomuna því leikmenn frá Suður Kóreu urðu efstir í karla- og kvennaflokki. Kang Jae-Won, sem nú leikur með svissneska liðinu Grasshoppers Zurich, hlaut 348 at- kvæði og 21 blaðamaður af 34 settu hann í efsta sætið. Kim Hyun-Mee varð efst hjá konunum en hún var í 12 skipti í efsta sætinu. Annars líta listarnir þannig út (atkvæði í sviga): • Kristján Arason er í 5. sæti yfir bestu handboltamenn á síðasta ári. • Kang Jae-Won trá S-Kóreu, besti handboltamaður heims á síðasta ári. • Kim Hyun-Mee varð ólympíu- meistari með liði S-Kóreu og best í heiminum 1989. Karlar 1. KangJae-Won, S-Kóreu....................................348 2. Vyacheslav Atavin, Sovétríkjunum........................330 3. Zlatko Portner, Júgóslavíu..............................211 4. Magnus Wislander, Svíþjóð............................. 183 5. KristjánArason,íslandi..................................162 6. JochenFraatz, V-Þýskalandi..............................147 7. Frank Michael Wahl, A-Þýskalandi........................141 8. PeterKovacs,Ungverjalandi...............................115 9. AlexanderKarshakevich, Sovétríkjunum....................102 10. Juan „Melo“ Munoz, Spáni............................:....87 11. Michai Barda, Tékkóslóvakíu..............................84 12. Wieland Schmidt, A-Þýskalandi....:.......................48 Konur 1. Kim Hyun-Mee, S-Kóreu 318 2. JasnaMerdan, Austurríki 279 3. Heidi Sundal, Noregi 252 4. NataliaAmssimova.Sovétríkjunum 201 5. Mia Hermansson, Svíþjóð 153 6. Xiulan Sun, Kína 138 7. Csilia Elekes, Ungverjalandi 108 8. NatschaKolega, Júgóslavíu 93 9. MariaDurisimova, Tékkóslóvakíu 93 10. Elena Leonte, Frakklandi 66 11. Leora Sam Jones, Bandaríkjunum 57 12. Ingrid Steen, Noregi 48 „ twíwsj '-■‘Í& : Guðnl Bergsson fær loks tækifæri með Tottenham: Guðni settur til höfuðs Barnes • Guðni Bergsson er i byrjunar- liði Tottenham i kvöld gegn Liverpool. Terry Venables, framkvæmda- stjóri Tottenham, ákvað eftir æf- ingu liðsins í gær að iáta Guðna Bergsson til höfuðs Jolm Bames í leik liðanna í 1. deildinni á White Hart Lane í London í kvöld. Guðni Bergsson tekur stöðu Chris Hough- ton en þetta er í fyrsta skipti í tvo mánuði sem Guðni fær að spreyta sig með aðalliði Tottenham. „Ég verð ekki öfundsverður af hlutverki mínu á White Hart Lane í kvöld en ég er staöráðinn að standa mig vel. John Barnes er í feiknalegu góðu formi þessa dag- ana en ég er hvergi banginn enda verð ég helst af öllu að komast vel frá leiknum til að festa mig í sessi hjá aðalliðinu. Það eru orðnir tveir mánuðir síðan að ég lék síðast með aðalliðinu, þannig að ég var ekki ánægður með gang mála,“ sagði Guðni Bergsson í samtali við DV í gærkvöldi. Crystal Palace sýndi Guðna mikinn áhuga Samkvæmt öruggum heimildum DV sýndi Crystal Palace mikiim áhuga að fá Guðna Bergsson til liðs við félagið. DV bar þetta undír Guðna í gærkvöldi: „Ég heyrði ávinning af þessu máli og vissi reyndar að félagið var að njósna um mig á dögunum. Það heföí hins vegar aldrei komið til greina af minni hálfu að leika með Crystal Palace. Ég er á samning hjá Tottenham og vil umfram allt sanna mig hjá félaginu áður en ég tek ákvörðun að halda á önnur mið. Ég settist við nokkru niður með Terry Venables og ræddum við málin saman. Venables sagði mér þá að ég yrði að halda áfram aö berjast fyrir stöðu minni í aðal- liðinu. Ég er ákveðinn að berjast og vonandi ganga þessir hlutir upp á næstunni," sagði Guðni Bergs- son, í samtalinu við DV í gær- kvöldi. Mikill áhugi er fyrir leiknum á White Hart Lane en leiknum verð- ur ennfremur sjónvarpað beint um Bretlandseyjar. Liverpool berst sem kunnugt er harðri baráttu við Aston Villa um efsta sætið i 1. deild og verður helst að hafa sigur gegn Tottejiliam í kvöld. -JKS Fylkismenn taka á móti - 1 bikarkeppni KSÍ-UBK, fær Val í heimsókn í Grindavík kvennaflokki Einn innbyrðisleikur verður á milli 2. deildar liða í 1. umferð bikar- keppni KSÍ sem verður leikin þann 29. mai í vor. Fylkir og Grindavík mætast á Árbæjarvelli og má þar búast við hörkuleik. Eftirtalin félög mætast í 1. um- ferðinni: ÍR-Víkverji Reynir S.-Árvakur Haihir-Víðir Skallagrímur-Leiknir R. Nj arð vík-Ármann Þróttur R.-Ægir Breiðablik-Snæfell Fylkir-Grindavík Hveragerði-BÍ Víkingur Ó.-Afturelding Fjölnir-Haukar Ernir-Keflavík Selfoss-TBR Dalvík-KS TBA-Magni Leiftur-V ölsungur Langnesingar-Reynir Á. Valur Rf.-Þróttur N. Höttur-Einherji Leiknir F.-Austri E. Huginn-Sindri ÍK, Grótta, Stokkseyri, Tindastóll, Hvöt, HSÞ-B og Neisti Hofsósi sitja hjá í 1. umferð en að henni lokinni verður dregið til 2. umferðar. Stórleikur í bikarkeppni kvenna . Stórleikur verður í 1. umferö bikar- keppni kvenna en þar eigast við Breiðablik og íslandsmeistarar Vals. Annars mætir Stokkseyri Aftureld- ingu, Þór á Akureyri fær Þrótt frá Neskaupstað í heimsókn og KA leik- ur við KS. Lið FH, Akraness, Dalvík- ur og KR sitja hjá í 1. umferð. -VS Sport- stúfar Fjórir leikir fóru fram í NBA-deildinni í gær og urðu úrslit þessi: Atlanta-Dallas 110-117 NJ Nets-76ers.....94-108 Phoenix-SA Spurs..102-113 Utah Jazz-Sacramento.105-97 Maradona þarf að leggja fram stórfé Knattspyrnumaðurinn Diego Maradona hjá Napolí þarf aö greiða háa sekt vegna þess að hann mætti ekki á tvær æfmgar hjá liði sínu. Þann 29. desember á síðasta ári skrópaði hann á æf- ingu fyrir deildai'leik gegn Lazio og svo aftur fyrir bikarleik gegn Fiorentina. Samtals þarf Mara- dona að greiða 250 þúsund krón- ur sem telst hin þokkalegasta upphæð fyrir venjulegt fólk en smáaurar einir þegar Maradona á í hlut. Þess má geta að áður hafði ítalska knattspyrnusam- bandið sektað kappann fyrir að gagnrýna dómara aö leik loknum á Ítalíu. Þá þurfti hann að greiða um 870 þúsubnd krónur. Krol til Servette Peter Pazmandy, þjálfari Ser- vette, sem leikur í 1. deild sviss- nesku knattspyrnunnar, hefur verið rekinn frá félaginu vegna lélegs árangurs liðsins í vetur. Hollendingurinn Ruud Krol tek- ur við af honum. Pazmandy er 52 ára og tók við liði Servette fyr- ir þetta tímabil en áður hafði hann þjálfað liðið á árunum 1976-82. Sá spánski fékk endurnýjaðan samning Spánski landsliðsþjálfarinn í knattspyrnu, Luis Suarez, hefur gert nýjan fiögurra ára samning við spánska knattspyrnusam- bandið og mun hann stjórna spánska liöinu fram yfir HM í Bandaríkjunum 1994. Á þessum fiórum árum fær hann dágóðar tekjur eða um 85 milljónir króna. Romario ætti að verða leikfær eftir 5-6 vikur Brasilíski landsliðsmaðurinn Romario, sem leikur með hol- lensku meisturunum PSV Eind- hoven, fótbrotnaði í leik í hol- lensku deildinni fyrir tveimur vikum eins og komið hefur fram. Forráðamenn PSV Eindhoven vonast nú til þess að Brasilíu- maðurinn, sem þykir einn besti leikmaðurinn i hollensku knatt- spyrnunni, verði tilbúinn í slag- inn eftir 5-6 vikur. Hann ætti því að ná síðustu leikjum PSV á keppnistímabilinu. Romario er laus við gifsið og æfir sig nú af kappi heima hjá sér en hann gengur við hækjur. Romario fót- brotnaði í leik PSV gegn Den Haag en leikinn vann PSV, 9-2. Romario er markahæsti leikmað- urinn í hollensku 1. deildinni og hefur skorað 23 mörk. Óvíst með Libregts Enn hefur ekki verið ákveðið hvort Thijs Libregts heldur áfram sem landsliðsþjálfari Hollands í knattspyrnu en samn- ingur hans rennur út 1. júlí í sum- ar. Knattspymusambandið hol- lenska hefur fundað stíft um málið en ekki komist að niður- stöðu. Fyrirliði hollenska lands- liðsins, Ruud Gullit, hefur enn á ný lýst yfir vonbrigðum sínum með þjálfarann en víst er að hol- lenska knattspyrnusambandið er í vanda statt sökum þess hve skammt er í lokakeppni HM á ít- alíu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.