Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1990, Side 24
60
MIÐVIKUDAGUR 21. MARS
1990.
Andlát
Guðbjörn Kjartansson bifvélavirki,
Karlagötu 6, Reykjavik, lést á elli-
heimilinu Grund mánudaginn 19.
mars.
Jarðarfarir
Útfor Skúla Þorleifssonar frá Þver-
læk, til heimilis á Grandavegi 47,
Reykjavik, fer fram frá Háteigs-
kirkju föstudaginn 23. mars kl. 15.
Útför Guðrúnar Valdimarsdóttur,
fyrrv. ljósmóður, Dalbraut 27, fer
fram frá Háteigskirkju fimmtudag-
inn 22. mars kl. 13.30.
Útför Stefáns Guðmundssonar, fyrr-
verandi símasmiðs, Brávallagötu 22,
verður gerð frá kapellunni í Fossvogi
fimmtudaginn 22. mars kl. 10.30.
Sigríður Erlendsdóttir, Alfaskeiði 92,
Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Hafnarfiaröarkirkju fóstudaginn 23.
mars kl. 13.30.
Jón Sigurðsson bifreiðarstjóri,
Mávahlíð 2, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju föstudaginn 23. mars
kl. 13.30.
Guðjón Árnason vélstjóri, Hrafnistu,
Hafnarfirði, áður Ölduslóð 6, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði fimmtudaginn 22. mars kl. 15.
Helga Lovísa Kemp lést 8. mars. Hún
fæddist 17. júní 1925 á Illugastöðum
í Laxárdal í Skagafirði, dóttir hjón-
anna Lúðvíks Kemps og Elísabetar
Stefánsdóttur. Eftirlifandi eigin-
maður hennar er Hrafnkell Helga-
son. Þau hjónin eignuðust þrjú börn.
Útför Helgu verður gerð frá Garða-
kirkju í dag kl. 13.30.
Katrín Magnúsdóttir lést 12. mars.
Hún fæddist í Purkey á Breiðafirði
5. október 1897 en fluttist 1899 með
foreldrum sínum til ísafiarðar og ólst
þar upp. Foreldrar hennar voru
Magnús Guðbrandsson og Helga
Helgadóttir. Katrín giftist Kristjáni
Einarssyni en þau slitu samvistir.
Þau eignuðust fimm börn og eru þrjú
á lífi. Utför Katrínar verður gerð frá
Fossvogskapellu í dag kl. 15.
Fundir
Fundur ITC deildarinnar
Gerðar
verður haldinn miðvikudaginn 21. mars
kl. 20.30 í Kirkjuhvoli, Garðabæ. Stef
fundarins er: Betri er bót en gloppa. Á
dagskrá er m.a.: Edda Þórarinsdóttir leið-
beinir í framsögn. Upplýsingar veitir
Bjamey í síma 641298. Gestir velkomnir.
Mætið stundvíslega.
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg fimmtudag-
inn 22. mars kl. 20.30. Gunnbjörg Óladótt-
ir guðfræðinemi kemur á fundinn, syng-
ur og segir frá Brasilíuferð. Kaffiveiting-
ar og aö lokum helgistund.
ITCdeildin Björkin
heldur opinn fund í kvöld kl. 20 að Síðu-
múla 17. Fundarstef: Samvinna og góöur
andi okkar takmark. Á dagskrá eru
óundirbúnar kappræður.
Áhugahópur um íslenskar
kvennarannsóknir
Áhugahópur um íslenskar kvennarann-
sóknir heldur fund miðvikudagskvöldið
21. mars og hefst hann kl. 20.30 í Skólabæ
(Suðurgötu 26). Fundarefni: Marta Jens-
dóttir segir frá rannsókn sinni á atvinnu-
þátttöku kvenna i dreifbýli. Allar þær
sem áhuga hafa á framgangi kvenna-
rannsókna á íslandi em hvattar til þess
aö mæta og taka þátt í umræðunni.
Fyrirlestrar
Háskólafyrirlestur
Dr. Karl-Ludwig Selig, fyrmm prófessor
í spænskum bókmenntum við Columbia-
háskóla i Bandaríkjunum, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla íslands fimmtudaginn 22. mars
kl. 17.30 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn
nefnist: „Don Quixote and the Art of the
Novel“ og verður fluttur á ensku. Dr.
Selig lét af starfi í fyrra vegna aldurs.
Hann hefur verið útgáfustjóri fjölmargra
bókmenntatímarita í Bandaríkjunum og
er einkum kunnur fyrir fræðistörf og
greinaskrif um verk Cervantes og Garcia
Lorca. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fyrirlestur hjá Geðhjálp
Fyrirl^stur verður haldinn á vegum Geð-
hjálpaí fimmtudaginn 22. mars kl. 20.30.
Efni: Þroskaskeið á lífsleiðinni - fullorö-
insárin. Fyrirlesarar: Baldur Bjarnason
Búnaöarbankamótið:
Enn bíta
gömlu jaxlarnir
Tveir keppendur Búnaðarbanka-
mótsins eru skáksagan holdi klædd.
Þetta eru sovésku stórmeistararnir
frægu, Efim Petrovits Geller og Dav-
íð Jónovits Bronstein. Þeir eru ald-
ursforsetar mótsins, Geller 65 ára og
Bronstein árinu eldri.
Þeir áttu undir högg að sækja þar
til í gær. Þá tefldi Geller fallega skák
gegn Englendingnum Howell - í
Skák
Jón L. Árnason
dæmigerðum „Geller-stH“ og Bron-
stein spann laglegt net úr litlum efni-
við.
Sigur Bronsteins var því miður á
kostnað landans en Margeir, sem
hafði lengstum undirtökin og jafn-
teflið í hendi sér, teygði sig of langt
í vinningstilraunum. Þar með fékk
Bronstein færi á að flétta. „Hann tók
mig á úthaldinu" sagöi Margeir eftir
skákina en við grípum niður í hana
eftir 46 leiki er Margeir (svart) er
nýbúinn að seilast eftir peði meö
riddara sínum:
a
w & i i
if k
i :k %
A &
n A'4>
ABCDE FGH
47. Da8! Rf5
Svarið við 47. - Df2 yrði 49. Hd2 og
verst hótununum. Og ef 47. - Kg7,
þá er 48. De8 óþægilegt.
48. Dh8!
Drottningin þeysist enda á milli!
Nú gengur ekki 48. - Rg7 vegna 49.
Bh6.
48. - g5 49. Dxh5+ Kg7 50. De8! D66
51. Hel!!
t
Hjartans þakkir til þeirra mörgu er votiuðu mér og
börnum mínum samúð og vinarhug við andlát og útför
minnar elskulegu eiginkonu og móður okkar,
Magneu Símonardóttur
Ottó Þorvaldsson og börn
geðlæknir og Anna Valdimarsdóttir sál-
fræðingur. Fyrirlesturinn verður hald-
inn á Geðdeild Landspítalans, kennslu-
stofu á 3. hæð. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyflr.
Tilkyimingar
Ráðstefna um upplýsinga-
miðla sam-
tímans og varðveislu þeirra
Mánudaginn 26. mars nk. verður haldin
ráðstefna um varðveislumál að Hótel
Loftleiðum á vegum Félags um skjala-
stjórn og Bókavarðafélags íslands undir
yfirskriftinni Heimildir fyrir framtíöina:
Ráðstefnu um upplýsingamiðla sam-
tímans og varðveislu þeirra. Ráðstefnan
verður haldin í Höfða (áður Kristalssal)
að Hótel Loftleiðum og stendur frá kl. 9
árdegis til kl. 17 síðdegis. Hún skiptist í
tvo hluta. Fram til kl. 15 verða haldin
stutt erindi um hina ýmsu upplýsinga-
miðla og varðveislu þeirra og hvatt til
umræðna að þeim loknum. Síðan veröa
pallborðsumræður, þar sem fjallað verð-
ur um pappír sem notaður er í bækur í
skjöl. Ráðstefnan er opin öllum áhuga-
mönnum um þetta efni og þátttökugjald
kr. 3.500. Þátttakendur þurfa að skrá sig
fyrir 22. mars nk. til Olafar Benedikts-
dóttur vs. 25540, hs. 686271, Stefaníu Júl-
íusdóttur vs. 694542, hs. 45041, Svanhildar
Bogadóttur vs. 18000, hs. 688943 eða Ragn-
hildar Bragadóttur vs. 672255, hs. 15216.
Hægt er að sækja pallborðsumræðurnar
sérstaklega, en þær hefjast kl. 15 og er
öllum heimill ókeypis aðgangur að þeim
meðan húsrúm leyfir.
Samtök gegn astma
og ofnæmi
Félagsfundur í Múlabæ, Ármúla 34, 3.
hæð, annaö kvöld, fimmtudagskvöld 22.
mars, kl. 20.30. Sverrir Bergmann læknir
er gestur fundarins og flytur erindi um
höfuðverk og svarar fyrirspurnum fund-
argesta. Allir eru velkomnir á fundinn.
Kaffiveitingar.
Merming
Lockwood tríóið.
Öndvegis píanódjass
Sumir þeir sem fylgjast vel með djassmúsík kannast
ef til vill við nafn djass- og rokkfiðluleikarans Didiers
Lockwood, en hann er oft talinn í flokki fiðlara á borö
við M. Urbaniak og Jean-Luc Ponty. En trúlega eru
þeir færri sem þekkja til yngri bróðurins, Francis
Lockwood, þótt það geti átt eftir að breytast. Sá er
píanóleikari, ekki af verri endanum og hefur leitt eig-
ið tríó frá 1984. Þetta tríó hefur leikið á tónieikum víða
um heim og t.d. gert víöreist um Suður-Ameríku. Auk
Lockwoods eru núna í tríóinu Gilles Naturel bassaleik-
ari, sem leikiö hefur með Ray Bryant, Michei Legrand
o.fl. og Peter Gritz trommari, sem hefur m.a. talið í
hjá Steve Lacyu og Kenny Wheeler. Píanistinn hefur
svo að sögn leikið inn á plötur með ekki ómerkari
mönnum en Tony Williams og N.H.0.P.
Ýmis stílbrigði
Fimmtudagskvöldið 15. mars var fremur fámennt
en góðmennt á Hótel Borg er fyrrnefndir félagar létu
þar gamminn geisa og léku við hvern sinn fingur.
Vonandi hafa fleiri mætt næstu kvöld á eftir, því að
hér mátti heyra virkilega fína músík. Ég man ekki
eftir að hafa heyrt annan eins píanóleik á tónleikum
síðan Herbie Hancock kom hingað um árið.
Tæknin virtist ekki vefiast mikið fyrir Lockwood,
er hendur hans sópuðust upp og niður hljómborðið
og aðeins einu sinni virtist hann hika örlítið. Annars
var ekkert lát á hugmyndum og ýmis stílbrigði minntu
mann á ýmis nöfn, s.s. landa hans Jacques Loussier,
og meðan píanistinn óf sig gegnum blús og bop, úr
latin-hljómaslætti yfir í modal-spuna og glitti í klassísk
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
áhrif í leiöinni, var eins og McCoy Tyner eða Corea
væru einhvers staðar nálægir. Tilgangurinn með því
að nefna þessi nöfn hér er aðeins sá að reyna að gefa
einhverja hugmynd um hvers lags píanisti Lockwood
er en ekki að gefa í skyn að hann sé einhver hermi-
kráka. Langt því frá.
Helst til stuttir
Forleikirnir að sumum lögunum, sem píanómaður-
inn spann einn, voru svo hugljúfir að maður vildi
helst að þeir tækju engan enda, en svo þegar bassi og
trommur bættust við var það hið besta mál, enda var
samspil þeirra þriggja mikið og gott. - Stundum var
þó eins og salurinn gerði músíkinni smágrikk með því
að gleypa í sig stöku píanóhljóma og bassatóna, meðan
hver andardráttur úr trommuskinnum barst manni
að eyrum að bragði. - Á efnisskránni voru lög eftir
Miles Davis, „Laura“, „All the Things You are“ o.fl.
úr „Bókinni" , og að endingu lék tríóið frumsamið
verk, „Monk“, sem að sjálfsögðu er tileinkað sam-
nefndum píanóleikara fornum. Það var eiginlega alveg
frábært. Tónleikarnir voru bara helst til stuttir, en
kannski réð þar um fæð áheyrenda.
Fjölmidlar
Framhaldsmyndaflokkar
Á fyrstu árum sjónvarpsíns nutu
framhaldsmyndaflokkar mikilla
vlnsælda. Fólk sem fiárfesti í sjón-
varpstæki var ákveðið í að nýta fiár-
festinguna til fullnustu og horfði á
allt sem sýnt var. Þetta er liðin tíð.
Fólk er farið að velja og hafna úr
dagskrá sjónvarpsstöðvanna.
Þess vegna er það furðulegt að enn
skuli sýndirframhaldsmyndaflokk-
ar í 6 til 12 þáttum eða jafnvel fleir-
um eins og er á báðum sjónvarps-
stöðvunum. Aðeins er sýndur einn
þáttur í viku þannig að sýning
myndaflokksins stendur yfir í einn
og hálfan upp í sex mánuði.
Víða erlendis er það þannig að ef
langir myndaflokkar eru sýndir í
sjónvarpi eru þeir sýndir kvöld eftir
kvöld þar til þeim er lokið. Með því
móti er afsakanlegt aö sýna fram-
haldsþætti. Hitt er óþolandi að þurfa
að binda sig yfir sjónvarpi hvert
mánudags-, þriðjudags- eða mið-
vikudagskvöld i ef til vill einn og
hálfan til sex mánuði ef fólk hefur
áhuga á að sjá viðkomandi þátt.
Þegar sýning á einum af þessum
maraþon-framhaldsmyndaflokkum
hófstígærkveldi skipti ég yfir á rás
2 og hlustaði á þátt helgaðan sjó-
mönnum. Blítt og létt heitir hann
og er undir sfiórn Gyðu Drafnar
Tryggvadóttur. Þetta er afar þægi-
legur þáttur að hlusta á, tónlistin
vinaleg og rabb sfiórnandans við
sjómenn skemmtilegt. Það eina sem
ég myndi vilja brey ta er að fá fleiri
viðtöl við karlana úti á sjó. Það er
nefnilega ekkert tæpitungumái sem
þeir tala og tilbreyting frá hinu sett-
lega og stífa rabbi sem maður heyr-
ir hjá flestum viðmælendum loft-
miðlafólks.
Sigurdór Sigurdórsson