Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 31. MARS Í990.
Fréttir
Framleiðnisjóður:
Kaupir öll
loðskinn sem
ekki seljast
Ríkisstjómin samþykkti í gær
aö beina þeim tilmælum til Fram-
leiönisjóös að hann yfirtæki öll
óseld loðskinn í landinu ásamt
áhvílandi afurðalánum. Þetta var
samþykkt án vitneskju um
hversu mörg skinn verða ekki
seid þar sem Kaupmannahafnar-
uppboðinu er nýlokið og Oslóar-
uppboðið verður eftir helgi. Fyrir
þessi uppboð voru um 200 þúsund
minkaskinn í landinu. Á þeim
hvíla um 170 milljóna króna af-
urðalán.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
um Framleiðnisjóð, sem birt var
fyrir ári, segir aö sjóðurinn geti
ekki gegnt hlutverki sínu sam-
kvæmt lögum vegna tilmæla rík-
isstjórnarinnar til stjórnar sjóðs-
ins um að veita fé til loðdýrarækt-
ar. Ríkisendurskoðun taldi þá að
ríkisstjórnin mætti ekki frekar
nota sjóðinn til tímabundinna
aðgerða til aðstoðar loðdýrarækt
Nú leggur ríkisstjórnin til að
sjóðurinn kaupi öll óseld skinn
og auk þess að um 17 milljónum
af sjóðsfé verði varið til niður-
greiðslu á fóðri til viðbótar við
þær 20 milljónir sem ríkisstjórnin
lét sjóðinn leggja fram í nóvemb-
er.
Auk þess aö beita sjóðnum til
bjargar loðdýrum leggur rikis-
sjóður 12 milýónir í niðurgreiðsl-
ur á fóöri og Byggðastofnun legg-
ur 25 til 30 milljónir i fóðurstöðv-
ar. Ríkissjóður mun síðan borga
Byggðastofnun þessa íjárhæð til
baka þegar Alþingi samþykkir
það í haust við afgreiðslu
fjáraukalaga.
-gse
Mengum loft
meira en
margar
Koltvísýringsmengun íslend-
inga sarasvarar um 10 tonnum á
ári á hvert mannsbarn. Þetta er
meiri mengun en þjá mörgum
Evrópuþjóöum þrátt fyrir að
tveir þriðju allrar orkunotkunar
landsmanna komi frá vatnsorku
og jarðvarma.
, Þetta kom meðal annars fram í
erindi Jakobs Bjömssonar orku-
málastjóra á ársfundi Orkustofn-
unar i gær.
Mengun íslendinga er samt
mínni en Bandaríkjamanna en
þar er loftmengun tæplega helm-
ingi meíri en á íslandi.
Astæðan fyrir mikilli koltvísýr-
ingsmengun íslendinga þrátt fyr-
ir jarðvarma og vatnsor ku er stór
bílafloti, vélvæddur fiskiskipa-
floti og miklar samgönguþarfir
vegna strjálbýlis og legu landsins.
-gse
KEA fækkar
um þrjátíu
Gylfi Krisjánssan, DV, .rkureyii
Um 30 manns hefur verið sagt
upp störfum hjá Kaupfélagi Ey-
fxrðinga og em í þeim hópi tveir
af æðstu mönnum fyrirtækisins.
Uppsagnir þeirra taka gildi um
mánaöamótin.
Bjöm Baldursson, sem veriö
hefur yfirmaöur verslunarsviðs,
og Kristján Ólafsson, yfirmaður
sjávarútvegssviðs, fengu báðir
uppsagnarbréf og hætta störfum
nú um mánaðamótin. Alls munu
þessar ummsagnir ná til um 30
starfsmanna og er um 27 stöðu-
gildi að ræða.
Líkur á að Borgaraflokkurinn klofni endanlega:
Formaðurinn hefur
löðrungað okkur
- segir Hörður Helgason, formaður kjördæmisráðs Reykjaness
„Júlíus Sólnes, formaður flokksins,
hefur löðrungaö okkur. Ég og Gunn-
ar Sigurðsson, formaður kjördæmis-
ráðsins á Vestfjörðum, sendum hon-
um skeyti 4. mars þar sem við óskuð-
um þess aö vantraust á þingflokkinn
yrði rætt á næsta landsstjórnarfundi
Borgaraflokksins. Þó að ég hafi geng-
ið ákveöið eftir svari fékk ég ekkert
svar fyrr en 29. mars. Það kom þá
boðsent jneð leigubíl. Fundurinn
verður 31. mars og Júlíus vill ekki
að vantraustið veröi rætt nema und-
ir liðnum önnur mál. Þessa fram-
komu gagnvart okkur kalla ég að
hann hafi löðrungað okkur,“ sagði
Hörður Helgason, formaður kjördæ-
misráðs Borgaraflokksins í Reykja-
neskjördæmi.
Á aðalstjórnarfundi Borgara-
flokksins, sem haldinn veröur í dag,
mun koma til mikilla átaka. Jafnvel
er búist við að hluti fundarmanna
muni ganga út af fundi og um leiö
muni Borgaraflokkurinn klofna end-
anlega. Nokkrir fundarmanna munu
leggja fram vantraust á allan þing-
flokk Borgaraflokksins. DV hefur
haft samband við formenn nokkurra
kjördæmisráða og það er greinilegt
að óánægja innan flokksins er mikil
og verður ekki stöðvuð á einum
fundi.
Héldu hvorki vatni né vindi
„Ég sagði það strax að Júlíus ætti
að einbeita sér að því að styrkja
flokkinn innan frá. Þeim lá svo mik-
ið á að komast í ráöherrastóla að
þeir máttu ekki vera að neinu öðru.
Til dæmis hefur Júlíus ekki komið
hingað upp eftir síðan í nóvember.
Það má segja að þeim hafi legið það
mikið á að komast í ríkisstjóm að
þeir hafi hvorki haldið vatni né vindi.
Það er eðlilegt að við á Vesturlandi
séum óánægð. Við unnum mikið fyr-
Þeim Júlíusi og Ola veitir ekki af að standa þétt saman á aðalstjórnarfundin-
um í dag. Borin verður frain tillaga um vantraust á þingflokkinn.
Fréttaljós
Sigurjón M. Egilsson
ir kosningarnar og komum manni
inn. Vegna persónulegs metnaðar
fárra manna er búiö að eyðileggja
þetta starf fyrir okkur,“ sagði Ágústa
Bjömsdóttir, formaður kjördæmis-
ráðs Borgaraflokksins á Vesturlandi.
Á fundi landsstjórnar eiga 15
manns sæti, formaður,. varaformað-
ur, ritari, átta formenn kjördæma-
ráða og fjórir kosnir beinni kosningu
á aðaifundi. í lögum Borgaraflokks-
ins segir meðal annars að þingmenn
flokksins skuli ekki gegna öömm
embættum eða sitja í stjórnum pen-
ingastofnana. Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir situr í bankaráði Búnað-
arbankans og í stjórn Stofnlánadeild-
ar landbúnaðarins. Á síðasta lands-
stjórnarfundi kom þetta til umræðu.
Fundarmenn töldu aö með þessu
væri brotið gegn samþykktum
flokksins. Viömælandi DV sagði að
Júlíus Sólnes hefði komið af fjöllum
og ekki sagst hafa vitað af þessari
samþykkt. Óli Þ. Guðbjartsson vara-
formaður sagði að samþykktin hefði
ekkert að segja. „Hann vitnaði í
stjórnarskrána og sagði aö þingmenn
væru bundnir af samvisku sinni,"
sagði viðmælandinn. Óli staðfesti
þessa skoðun sína í samtali við DV
í gær.
Fjöldi annarra mála
Þeir sem DV hefur rætt viö hafa
týnt til fjöldann allan af ágreinings-
málum. „Almennir flokksmenn vilja
þvo hendur sínar af þingflokknum.
Þau mál sem rætt hefur verið um og
hafa skapað þessu óánægju eru það
mörg að þetta starf gengur ekki leng-
ur,“ sagöi Hörður Helgason. Þegar
Hörður var spurður hvort flokkur-
inn væri að klofna sagðist hann eiga
von á því.
Hörður sagði að Júlíus væri búinn
að viðra hugmyndir um samkomulag
við Steingrím Hermannsson. Sam-
komulagið gengi út á það að Her-
mann Sveinbjörnsson, sem er að-
stoðarmaöur sjávarútvegsráðherra
og systursonur Steingríms, verði
ráðuneytisstjóri í umhverfisráðu-
neytinu og í staðinn verði Guttormur
Einarsson, ritari Borgaraflokksins,
ráðinn sem atvinnumálafulltrúi for-
sætisráðherra með vinnuaðstöðu í
umhverfisráðuneytinu.
Loka skrifstofum
Þingflokkurinn hefur greitt kostn-
að af rekstri kjördæmisskrifstof-
anna. Samkvæmt heimildUfn DV éru
nú uppi hugmyndir uín að loka öllum
skrifstofunum nema í Reykjavík og
á Suðurlandi. Það eru einu kjördæm-
in sem einhvern stuðning er að finna
við þingflokkinn. Þá liggur fyrir til-
laga um aö þingflokkurinn leggi fram
10 milljónir króna vegna prófkjörs
og kosningabaráttu í Reykjavík. Til-
lagan hefur fallið í góðan jarðveg en
endanleg afgreiðsla bíður þar til
framboðslistinn liggur fyrir og þar
til nákvæm kostnaðaráætlun er til-
búin.
Samkvæmt heimildum DV hefur
þingflokksformaðurinn, Guðmund-
ur Ágústsson, lagt fram tillögu um
að Jón Gunnarsson, aðstoðarmaður
Júlíusar Sólness verði rekinn. Við-
mælendur DV könnuðust við þessar
fullyrðingar.
Slysavarnafélagsmenn koma til bjargar unga háskólanemanum.
DV-mynd S
Þremur bjargað á
einni klukkustund
Ríkisstjóm kunnugt um áform Alusuisse:
Stöðvist álverið
verður það
ekki opnað á ný
Björgunarmenn á Jóni E. Berg-
sveinssyni, bát slysavamafélagsins
Ingólfs, björguðu tvisvar sinnum
ungum mönnum við Akureyjarrif
við Ánanaust síðdegis í gær. Einum
af mönnunum var bjargað á sundi
og var hann orðinn talsvert kaldur.
Um hálffjögurleytið komu menn í
Slysavamafélagshúsið og tilkynntu
um tvo unga menn sem væm úti í
Akurey. Sjórinn var að falla að þeim
á hólmanum og áttuðu þeir sig ekki
á sjávarfollum í fjömnni. Björgunar-
báturinn náði í mennina og komust
þeirr þurrir um borð.
Bátúrinn var varla kominn aftur
að landi þegar aftur var tilkynnt um
mann í vandræðum við Akureyjar-
rif. Þar var ungur háskólanemi á ferð
og var verr staddur en hinir tveir -
var á leið til lands og óð sjóinn upp
í axlir með höfuðið upp úr.
Eftir aö hafa verið bjargað um borð
í Jón E. Bergsveinsson, gaf maðurinn
þá skýringu til Slysavarnafélags-
manna að hann hefði veriö svo hug-
fanginn af rannsóknum viö rifið að
hann heföi ekki áttað sig á því að það
var að falla að.
-ÓTT
Samkvæmt heimildum DV er rík-
isstjóminni kunnugt um að ef kemur
til verkfalls í álverinu í Straumsvík
og reksturinn stöðvast, verði álverið
ekki opnað aftur. Alusuisse telur
verksmiðjuna orðna úrelta og það
taki því ekki aö opna hana aftur ef
kerin kólna öll niður. Verkfall var
boðað í álverinu frá miðnætti síðast-
liðnu. Þegar DV fór í prentun voru
allar líkur á að af verkfalli yrði.
Verkfallið er þannig framkvæmt í
byijun aö ef samningar nást ekki
verða næstu 14 dagar notaðir til að
kæla kerin niður en að þeim tíma
loknum yrði verksmiðjunni lokað.
Starfsmenn álversins hafa þegar
hafnað því að senda deiluna til fé-
lagsdóms. Samkvæmt heimildum DV
eru bæöi ráöherrar og forystumenn
úr verkalýöshreyfingunni að reyna
að fá menn tfi að sættast á aö deilan
verði sett í gerðardóm.
Á ríkisstjómarfundi í gærmorgun
var lögð fram skýrsla um stööuna í
álversdeilunni og hún rædd ítarlega.
„Ég gæti trúað því að deilan í álver-
inu skaöaði þá samninga sem fyrir-
hugaðir em við Atlantalhópinn um
byggingu nýs álvers á íslandi. Og ef
svona andrúmsloft er í Hafnarfirði
þá má öruggt telja aö þaö fæli frá
bygginu nýs álvers í Straumsvík.
Hitt er annað að ef tekið er á því að
leysa málið þá tel ég að það sé hægt.
Deilan snýst aðeins um hvort greiða
eigi sama bónus í ár og greiddur var
í fyrra. J>að reynir hins vegar ekki á
þá greiðslu fyrr en í september. Því
þykir manni óþarfi að kasta sér fyrir
björg löngu áður. Mér fmnst það líka
vera spurning hvort aöilar geta ekki
náð samkomulagi um að setja deil-
una í gerðardóm. Mér sýnist sem að
þarna sé komin upp óþarflega mikfi
harka og því miður er það að verða
landlægt í álverinu," sagði Stein-
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra í samtali við DV í gær.
-S.dór