Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. '■9 Nokkrar blákaldar stað reyndir um nærfatnað Umhverfið, sem við lifum í, hefur áhrif á allt líf okkar og heilsu, sálarástand og vellíðan. Okkur er því nauðsyn á að þekkja og skilja okkar nánasta umhverfi. Með orðinu um- hverfi er hér átt við mataræði, líkamsrækt, útivist og hvað annað sem hefur bein og óbein áhrif á heilsu okkar og þrek. Við þurfum líka að kunna að klæða okkur í samræmi við það umhverfi sem við lifum í hverju sinni og við þurfum að kunna að velja okkur réttan fatnað. Nærfatnaðurinn er nánasta snert- ingin við húðina. En hún gegnir mikilvægu hlutverki til vernd- unar og viðhalds á jafnvægi líkamsstarfsemi okkar. Húðin er reyndar stærsta líffæri líkamans. Nærfatnaðurinn má ekki tor- velda öndun og rakaflutning húðarinnar. Hann á að vernda húð og líkama okkar fyrir kulda og öðrum neikvæðum áhrifum umhverfisins. Þau nærföt, sem uppfylla þessar kröfur best, eru úr 100% silki eða dýrahári. Nærfatnaður úr bómull, að ekki sé talað um gerviefni eða blöndur úr þeim, vernda ekki líkamann eins og ull og silki gera. Þau eru af mörgum talin skaðleg heilsu okkar. Ull og silki byggja upp með þér lífsorku og vinna því með þér til að viðhalda góðri heilsu. Þessir náttúrulegu þræðir, silkið og dýrahárið, vernda þig ekki aðeins fyrir kulda heldur eru þau einnig til þess fallin að gegna lífsörvandi hlutverkum. Ruskovilla er finnskt fyrirtæki sem fram- leiðir ullarnærfatnað úr 100% merinoull og silki- nærfatnað úr 100% náttúrusilki (shappe-silki) sem er ólýsanlega gott að klæðast. Þessi náttúruefni hafa fylgt mannkyninu þúsundir ára. Það er sárt til þess að vita hvað margir foreldrar hafa glatað skilningi á því hvað það er þýðingarmikið atriði fyrir heilsu barnanna þeirra að klæðast fatnaði úr þessum náttúruefnum. Skaðsemi fatnaðar úr gerviefnum er meiri en margan órar fyrir. Vandaðu því val þitt þegar þú velur nærfatnað þinn og einnig þegar þú velur hann fyrir þá sem verða að treysta á forsjá þína. Ruskovilla ullarnærfatnaðurinn er fram- leiddur úr hinum mjúka og fíngerða þræði merino- ullarinnar. Hinir frábæru eiginleikar þessarar ullar gera þessi nærföt einstök að gæðum. Hún er sterk, silkimjúk og mjög þunn miðað við hve hlý hún er. Þessi 100% merinoull er ólituð og hefur ekki verið unnin með ólífrænum efnum. Hún ertir því ekki húðina á neinn hátt eða veldur kláða. ' Við vefnaðinn er aðeins notuð vefolía og glæ olía. Þeg- ar neytandinn fær nærfatnaðinn í sínar hendur er vottur af þessum spunaolíum eftir í honum sem hverfa úr við fyrsta þvott. Hinir sérstöku eiginleikar merinoullarinnar í varma og mýkt sjá um að okkur verður hæfilega heitt og okkur líður vel. Vanræksla og kæruleysi í klæðaburði getur orðið okkur og vandamönnum okkar til örlagaríks heilsutjóns og veikinda. Það er alltaf til skaða fyrir heilsu okkar að klæðast ekki í samræmi við aðstæður. Ef of mikill hiti streymir frá líkama okkar veldur það orkutapi og missi innri krafta. Kornabörn þarfnast hlýrra klæða. Við fæðingu verður barn, sem vant er hita móðurlíkamans, að aðlagast miklu minni hita hins nýja umhverfis. Það er því örlagaríkt hverju það klæðist. Barnið myndar ekki strax heldur smátt og smátt sitt eigið hita- kerfi eða orkusvið. Þetta atriði í verndun kornabarna er mörg- um okkar ekki að fullu ljóst. Bleiur og bleiubuxur gegna miklu hlutverki í lífi kornabarnsins. Merinoullarbleiubuxurnar geta tekið í sig mikla vætu án þess að varmahlutverk þeirra minnki. Ekki er nauðsynlegt að þvo þær í hvert skipti eftir að barnið hefur vætt þær. Þvaglyktin hverfur ef buxurnar eru settar út á snúrur og loft fær að leika um þær. Fyrir bleiuárin ættu 2-3 bleiubuxur úr ull að nægja. Við framleiðslu Ruskovilla silkinærfatnaðar er aðeins notað hreint náttúrusilki. Hið svokallaða shappe-silki inniheldur 3-5% sericin eða silkilím. Vegna hinna græðandi áhrifa þessa sericins er þessi silkinærfatnaður mjög góður fyrir fólk sem er með veika húð og húðútbrot. Á síðustu árum hefur fjöldi ofnæmistilfella af ýmsu tagi farið mjög vaxandi, því hafa fleiri og fleiri farið að nota silkinærfatnað. Ruskovilla silkivoðin er þægilegt og mjúkt interlock prjónaefni. Silki og ull hafa sömu hitaeiginleika (hitaeinangrun) en vegna fíngerðari þráða silkisins finnst okkur silki svalara á húðinni en ullin. Silki veitir okkur því vellíðan jafnt í hita sem kulda. Silkinærfatnaður skilur eftir við húðina mjög fíngerða, þægi- lega, upplífgandi, rafmagnaða örvun sem andstæðu við hina óþægilegu rafsegulhlöðnun frá gerviefnum. Frá aldaöðli hefur silki haft á sér orð sem framúrskarandi og eftirsótt klæðaefni. í silkiþræðinum er sólarljósið innibyrgt. Lirfa silkivefarans, sem liggur í sólarátt og lítur út eins og talan átta lárétt séð, býr sér til verndar púpu úr samfelldum þræði. Eins og silkipúpan verndar lirfuna í vexti sínum verndar silkiklæðn- aðurinn okkur fyrir óþægilegum áhrifym umhverfisins. Okkur sem búum í hlýju húsnæði og vinnum á hlýjum vinnu- stöðum en förum á milli þessara staða oft í köldu veðri hentar þessi nærfatnaður einkar vel. Okkur verður sem sagt ekki kalt og ekki of heitt ef við klæðumst silkinærfatnaði. Þeir sem ferðast um óbyggðir vegna starfa eða skemmtunar, þegar kald- ast er, og klæðast silkinærfatnaði innanundir merinoullarnær- fötum eru mjög vel klæddir gegn mesta kulda en eru þó í klæðnaði sem er ekki íþyngjandi eða hamlar hreyfingu. Pilturinn eða stúlkan, sem fer til síns heima, t.d. af skemmtistað á kaldri vetrarnóttu og hefur haft með sér síðar silkinærbuxur til að bregða sér í eftir ballið, þarf ekki að kvíða kulda þó ekki náist í bílfar heim. Eiginleikar silkisins eru fólgnir í líffræði- lega örvandi og heilsugefandi áhrifum. Sefandi og hjúkrandi eiginleikar silkisins hafa verið staðfestir með rannsóknum. Þessar rannsóknir hafa staðfest að silkið hefur mjög jákvæð áhrif, m.a. í bar- áttu við ýmsa húðsjúkdóma, eins og útbrot og ofnæmishúðsjúkdóma, astma, taugastreitu, svefnörðugleika, illa lyktandi húð (svitalykt), röng efnaskipti, beinverki og þunglyndi. Þá hefur ^ verið mælt með silkinærfatnaði fyrir konur á breyt- ingaaldri og fyrir unglinga á gelgjuskeiði. Tvö sett af ullar- eða silkinærfatnaði í lengri ferðalög geta haldist hrein og fersk í 2-3 vikur án þvotta ef þau eru notuð til skiptis og látið lofta um þau, t.d. á döggvotu grasi eða snjóbreiðu. Vegna þessara eiginleika eru Ruskovilla nærfötin einkar hentug í ferðalög og langar og erfiðar göngur. Þú ert léttbúin með þau í fartesk- inu. Silkinærfatnaður er rétti nærfatnaðurinn árið um kring. Einu sinni silkinærfatnaður - alltaf silkinærfatnaður. Mikið atriði er að nota náttúrulegt þvottaefni við þvotta. Ólífræn þvottaefni eru skaðleg fyrir náttúruþræðina. Ef ull er þvegin með ónáttúrulegu þvottaefni hefur það skemmandi áhrif og rýrir kosti hennar. Það er minni hætta á að skemma silki en ull ef nægilegt magn af sericin er í silkiþræðinum. Silkiþráður- inn flækist ekki en silkiþræðirnir geta aftur á móti harðnað við ranga meðferð. Ruskovilla nærfötin skal þvo í höndum eða í sjálfvirkri þvottavél sem er búin öruggu ullarprógrammi. Við þvott á náttúruefnum þarf að vanda val á þvottaefni. Ruskovilla mæl- ir með Amytis þvottaleginum sem framleiddur er úr lífrænum efnum og veldur ekki skaða í lífríkinu í kringum landið okkar eins og mörg efni gera. Ruskovilla nærfatnaðurinn, bæði silkinærfatnaðurinn og ull- arnærfatnaðurinn, fæst í öllum stærðum og gerðum - á korna- börn, börn og unglinga, karla og konur. Bolir með stuttum ermum, ermalausir bolir, ermalangir bolir, með 0 eða V háls- máli og bolir með rúllukraga og löngum ermum. Síðar buxur, hnésíðar buxur, hálfsíðar buxur og stuttar buxur, sokkar, háir og lágir, húfur, lambhúshettur og vettlingar. Á ungbörn: treyj- ur, bolir, buxur, gallar, húfur, lambhúshettur, svefnpokar, teppi, sokkar og vettlingar. Kornabarn með silkihúfu svitnar ekki á höfðinu. Amytis þvottalögurinn fyrir silki, ull og angóra fæst í 6 ml, 250 ml og 1000 ml. NÁTTÚRULÆKNIN GABÚÐIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.