Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 42
50 LAUGARDAGUjR 3,1. I\IARS .1990, Afmæli Jónas G. Jónsson Jónas G. Jónsson kennari, Álfhóli 6, Húsavík, er áttatíu ára í dag. Jónas er fæddur á Rifkelsstöðum í Eyjafirði. Eftir lát móður sinnar fór hann fyrst til Hallgríms afa síns en síðan, þá sex ára, i Kaupang og ólst þar upp fram undir tvítugt hjá Bergsteini Kolbeinssyni og konu hans, Ingibjörgu Sölvadóttur. Jónas naut farskólamenntunar í Kaup- angssveit í Eyjafirði og gekk í kvöld- skóla á Akureyri 1926-27. Næst lá leiðin í Gagnfræðaskóla Akureyrar og tekið þaðan próf 1930. Ekki voru tök á frekara námi þar á bæ því að peningar lágu ekki á lausu. En þá fréttist að Bjöm Jakobsson frá Narfastöðum hefði hug á að stofna íþróttaskóla á Laugarvatni með að- stoð Bjama skólastjóra þar. Jónas hafði nokkuð æft flmleika og aörar íþróttir og sótti um skólann ásamt öðrum pilti, Ólafi Péturssyni, síðar garðyrkjubónda í Mosfellssveit. Námi luku þeir vorið 1933 og út- skrifuðust sem fyrstu nemendur frá íþróttaskóla íslands. Þegar hér var komið réðst Jónas haustið 1933 til Húsavíkur sem íþróttakennari að skólunum og Völsungi. Árið 1942 sat hann einn vetur í Kennaraskól- anum og lauk þar almennu kenn- araprófi. Síöan kenndi hann jöfnum höndum bókleg fræði og íþróttir við hin ýmsu skólastig. Svo og við Iðn- skólann frá stofnun 1944 um sinn. Frá 1950 hætti Jónas að mestu af- skiptum af íþróttakennslu og 1976 hætti hann vegna aldurs eftir rúm- lega 40 ára skóla- og kennslustörf. Auk framantalinna starfa tók Jón- as þátt í ýmsum félagsmálum. Hann var í stjórn Völsungs og formaður um skeið, í niöurjöfnunarnefnd og fleira, annaðist fiskimælingar fyrir atvinnudeild Háskólans og formað- ur Norræna félagsins á Húsavík um tíu ára bil. Hann hefur verið félagi í Karlakómum Þrymi og Rotaryfé- lagi til þessa dags. Einnig var hann einn af stofnendum bridgefélags og goflklúbbs, þar í stjórn fyrstu árin. Að lokum má geta þess að Jónas var mikill áhugamaður um garðrækt og bar garður þeirra hjóna þar vitni um. Jónas hefur veriö heiðraður af ýmsum félagasamtökum fyrir störf sín. Hann er heiðursfélagi í Knatt- spyrnufélagi Akureyrar, Völsungi og Golfklúbbi Húsavíkur. Honum hefur verið veitt gullmerki ÍSÍ og Norræna félagsins. Einnig hefur hann hlotið starfsmerki HSÞ. Jónas var um árabil fréttaritari íslendings á Akureyri. Jónas kvæntist þann 9.10.1943 Friðnýju Steingrímsdóttur, sauma- konu hjá Gefjun á Akureyri, f. 30.8.1917, d. 10.6.1984. Foreldrar hennar voru Steingrímur Guðna- son, b. á Hóli við Raufarhöfn, og Sigríður Þorsteinsdóttur frá Blika- lóni. Þau bjuggu síðustu árin á Húsavík. Börn Jónasar og Friðnýjar eru: Olga, f. 15.12.1944, kennari, búsett í Reykjavík, gift Heimi Daníelssyni, verkstjóra hjá Gamla Kompaníinu, og era börn þeirra: Friðný, Jónas oglngi. Gunnur, f. 27.9.1946, læknaritari á Landspítalanum, búsett í Reykja- vík, gift Guðjóni Bjarnasyni, hús- verði Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergi. Fóstursonur Jónasar og jafnframt systursonur Friðnýjar er Berg- steinn Karlsson, húsasmiður á Húsavík, kvæntur Jónasínu Kristj- ánsdóttur frá Hólmavaði og eiga þau tvö böm: Björgu og Friðgeir. Systkini Jónasar: Ólöf, f. 16.5.1900, d. 13.2.1984, var gift Eyþóri Halls- syni, skipstjóra á Siglufirði, og átti Ólöf eina fósturdóttur; Hallgrímur, f. 3.10.1902, d. 26.11.1980, verslunar- maður, var kvæntur Ólínu Vigfús- dóttur frá Seyðisfirði; Lára, f. 7.3. 1905, og á hún eina dóttur; og Aðal- björg, f. 11.3.1905, d. 11.11.1986, var gift Páh Bjamasyni, símvirkja á Akureyri, f. 10.10.1908, d. 12.7.1973, og eignuðust þau fjögur börn. Seinni kona Jóns, fóður Jónasar, var Baldvina Baldvinsdóttir og eignuðust þau fjögur börn: Kristínu, Bimu, Skjöld ogÞórhall. Foreldrar Jónasar voru Jón Jón- asson, f. 18.1.1874, d. 3.9.1935, bif- reiðarstjóri á Akureyri, og Aðal- björgHallgrímsdóttir, f. 31.3.1881, d. 12.3.1915. Jón var sonur Jónasar, b. á Kjarna í Eyjafirði, Jónssonar, b. á Skútu- stöðum, Helgasonar, b. á Skútustöð- um, Ásmundssonar, ættföður Skútustaðaættarinnar. Móðir Jóns Helgasonar var Þuríð- ur Árnadóttir. Móðir Jónasar á Kjarna var Kristín Jóhannesdóttir, JónasG. Jónsson. b. á Geiteyjarströnd, Þorsteinsson- ar. Móðir Jóns bifreiðarstjóra var Kristjana Jónsdóttir úr Eyjafirði. Aðalbjörg, móðir Jónasar, var dóttir Hallgríms, hreppstjóra á Rif- kelsstöðum, Hallgrímssonar, b. að Garðsá í Eyjafirði, Gottskálkssonar. Móðir Hallgríms hreppstjóra var Guörún Ámadóttir, b. á Svertings- stöðum, Hallgrímssonar. Jónas er staddur um þessar mundir hjá venslafólki að Fjarðar- seh 3 í Reykjavík. Hann biður að heilsa vinum og vandamönnum fjær og nær. Hafsteinn Jóhannesson Reykjalín Hafsteinn Jóhannesson Reykjal- ín forstjóri, Sunnubraut 52, Kópa- vogi, verður fimmtugur á morgun, 1. apríl. Hafsteinn fæddist á Hauganesi á Árskógsströnd í Eyjafirði. Hann stundaði sjómennsku frá unga aldri með foður sínum og lauk mótomámskeiði 1959. Hann lauk námi í vélvirkjun 1965 og meistara- prófi í sömu iðngrein 1968. Hafstein hóf nám við Vélskóla íslands 1969 og útskrifaðist þaðan sem vélfræð- ingur 1971. Réðst hann þá til Eim- skips sem vélstjóri á milhlanda- Studioblóm Þönglabakka 6, Mjódd, norðan við Kaupstað, sími 670760 Blómaskreytingar viðöll tækifæri. Sendingarþjónusta. MOF-96E MOF-131 750 W 1.300 W 8.000- 18.000 24.000 sn/mín sn/ mín ng@E@® Skeifunni 11d, sími 686466 skipum þess og lengst af á Brúar- fossi, fram til ársins 1978. Árið 1977 hóf Eimskipafélag íslands starf- semi Ryðvarnarskálans í Sigtúni 5 og réð Hafstein sem verkstjóra og umsjónarmann hans, þar til áriö 1986 að hann stofnaði hlutafélag með fjölskyldu sinni og yfirtók rekstur Ryðvarnarskálans og rek- ur nú fjölþætta þjónustustarfsemi fyrir bifreiðareigendur ásamt Bíla- leigu RVS. Hafsteinn situr í stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs og var formaður þess 1986-88. Hann á sæti í atvinnumálanefnd og um- hverfisráði Kópavogs. Hafsteinn er stjórnarformaður og aðaleigandi AVIS-ÍSLAND Stjörnubíla hf. ásamt Amóri L. Pálssyni, Bílaleigu IALP. Hafsteinn var kvæntur Guðríði S. Stefánsdóttur 1959-67 og eru bömþeirratvö: Stefán Rafn, f. 11.8.1959, búsettur á Akureyri, kvæntur Þórhhdi Svavarsdóttur og eiga þau þrjá syni: Svavar Trausta, f. 3.3.1982; Gunnar Þór, f. 21.4.1984, og Haf- stein Reykjalín, f. 29.11.1986. Fyrir hjónaband eignaðist Stefán Rafn soninn Heiðar Örn, f. 23.11.1980. Hulda Jóhanna, f. 7.8.1960, búsett að Ásbyrgi á Hauganesi, gift Guð- mundi Ingvasyni og eiga þau eina dóttur: Valgerði Ingu, f. 21.8.1989. Hafsteinn var kvæntur annarri konu sinni, Hjördísi Ólafsdóttur, 1976-80. Árið 1984 kvæntist Hafsteinn nú- verandi konu sinni, Ásthildi Ingu Haraldsdóttur, og er hann stjúp- faðir tveggja bama hennar, Har- aldar og Katrínar, sem bæði em við nám í Bandaríkjunum. Harald- ur er ókvæntur en Katrín er gift Bjama K. Þorvarðarsyni. Systkini Hafsteins eru: Hanna Guðrún, f. 6.7.1934, gift Þór Hjalta- syni, b. á Akri í Öngulsstaðahreppi og eiga þau sjö böm; Vigfús Reyn- ir, f. 21.3.1943, skipstjóri á Dalvík, kvæntur Svanhildi Amadóttur og eiga þau þrjú böm; Elísabet, f. 30.1. 1946, búsett á Dalvík, gift Þorsteini Skaftasyni rafvirkjameistara og eiga þau fjögur böm; Ragnar Reykjalín, f. 25.9.1948, skipstjóri og útgerðarmaöur á Hauganesi, kvæntur Helgu Haraldsdóttur og eiga þau fjögur böm, og Elvar Reykjalín, f. 26.12.1954, skipstjóri og útgeröarmaður á Hauganesi, kvæntur Guðlaugu Carlsdóttur og eiga þau þijár dætur. Foreldrar Hafsteins: Jóhannes Reykjahn Traustason, f. 7.12.1913, d. 22.1.1985, útvegsbóndi og oddviti Hafsteinn Jóhannesson Reykjalín. í Ásbyrgi á Hauganesi, og Hulda Vigfúsdóttir, f. 16.8.1914, húsfreyja á Hauganesi. Jóhannes Reykjalín var sonur Trausta Jóhannesonar, b. á Kuss- ungsstöðum i Fjörðum, Jónssonar Reykjahn, prests á Þöglabakka, Jónssonar Reykjalín, prests á Ríp, Jónssonar, prests á Breiðabólstað í Vesturhópi, Þorvarðarsonar. Móðir Jóhannesar á Kussungs- stöðum var Sigríður Jónsdóttir frá Kimbastöðum í Skagafirði, Rögn- valdssonar. Móðir Trausta var Guðrún Sigríður Hahgrímsdóttir, b. á Hóli í Fjörðum, og Ingveldar Ámadóttur frá Sveinsströnd við Mývatn. Móðir Jóhannesar Reykjalín var Anna Guðrún Jónsdóttir, b. að Hrafnagih í Þorvaldsdal, og Jónínu Jóhannesdóttur frá Selá á Árskógs- strönd. Hulda, móðir Hafsteins, er dóttir Vigfúsar, smiðs og útvegsbónda í Litla-Árskógi á Árskógsströnd, Kristjánssonar, b. á Litlu-Hámund- arstööum, Jónssonar frá Stóru- Hámundarstöðum, Hallgrímsson- ar. Móðir Kristjáns var Þuríður Helga Stefánsdóttir. Móöir Huldu var Elísabet Jó- hannsdóttir, formanns á Hinriks- mýri á Árskógsströnd, Jóakims- sonar, húsmanns í Höfðahverfi og á Svalbarðsströnd, Þorsteinssonar. Móðir Jóhanns var Björg Tómas- dóttir frá Hóh í Höfðahverfi. Móðir Ehsabetar var Hanna Gísladóttir, b. á Svínámesi, Jónassonar og Rak- elar Jóhönnu Jóhannsdóttur Kröy- er, b. á Munkaþverá í Eyjafirði. Þar sem 1. apríl er dæmigerður gríndagur þá hafa þau hjón ákveðiö að væta kverkar vina og kunninga laugardaginn 31. mars, aö Sunnu- braut 52 í Kópavogi, milh kl. 15 og 19. Það veröur ekkert aprílgabb. Til hamingju með afmælið 31. mars 85 ára Friörika Guðmundsdóttir, Suðurhólum 28, Reykjavtk. 80 ára Guðlaug M. Arndal, Vitastíg 12, Hahiarflrði. 75 ára Oddur I. Einarsson, Vallholti 28, Selfossi. Guðni Friðriksson, Skarðshlíö HJ, Akureyri. Kristján Stefónsson, Einhoiti 6C, Akureyri. Slgfríður Georgsdóttir, Bústaöavegi 105, Reykjavik. Þorsteinn Þorsteinsson, Flókagötu 62, Reykjavík. 60 ára_______________________ Ásta Lovísa Pálsdóttir, Engímýri 1, Akureyri. Gunnar Pétursson, Hlíöarvegi 17, ísafiröi. Ragnar Steindör Jensson, Kaplaskjóisvegi 65, Reykjavík. 50 ára Halldór P. Hostert, Mörk, Garöahæ. Jón Óiafur Hjartarson, Skúlagötu 5, Stykkishólmi. 40 ára _ Auður Vésteinsdóttir, Suðurhvammi 21, Hafnarfirði. Guðlaug Ólafsdóttir, ~ Ljósheimum 8A, Reykjavík. Guðmundur Hafiiðason, Sléttahrauni 30, Hafnarfiröi. - Guðrún Ellertsdóttir, Fífuseli 12, Reykjavík. Guðrún ína ívarsdóttir, “ Ránargötu 19, Reykjavík. Hrefna Marinósdóttir, Fjarðarvegi 47, Þórshöfh. Jóhann Jónsson, - Grundargerði 3E, Akureyri. Kristín S. Sigurðardóttir, Rjúpufelli 35, Reykjavík. Kristján Gunnarsson, Marargrund 10, Garðabæ. - Kristján Pétursson, Kambaselí 54, Reykjavík. Ruth Snædal Jónsdóttir, Holtagerði 12, Húsavtk, Sigurður Pétursson, Logafold 98, Reykjavik. Sveinbjörn Dýrmundsson, Grunnskólanum á Hólmavik. Óskar Guðlaugur Indriðason Óskar Guðlaugur Indriðason, eða Óskar í Ásatúni eins og hann er jafnan nefndur, Vesturbrún 20, Flúðum, verður áttatíu ára á morg- un,l.apríl. Óskar er fæddur í Ásatúni en for- eldrar hans höfðu byijað búskap þar árið 1903. Faðir hans dó á sum- ardaginn fyrsta 1928,55 ára gamall, en móðir hans hélt áfram búskap með bömum sínum þar til hún lést 6.6.1939, þá 62 ára gömul. Árið 1940 keypti Óskar jörðina ásamt bróður sínum Hahgrími. Laufey systir þeirra gerðist húsmóðir hjá þeim. Síðar gerðist hún eigandi að jörð og búi að einum þriðja og bjó félagsbúi með þeim þar til Hallgrímur lést á Þorláksmessu 1982. Oskar og Laufey bjuggu áfram þar til þau seldu frænda sínum, Grími Guðmunds- syni, og konu hans, Guðbjörgu Jó- hannsdóttur, jörðina árið 1988 og fluttu í öldmnarheimilið að Vestur- brún20áFlúðum. Foreldrar Óskars eignuðust ellefu börn. Fyrsta bamið dó á fyrsta ári. Óskar er fimmta barn þeirra í röð- inni að aldri til. Fjögur þessara systkina em nú látin en sjö em enn á lffi, sjötíu og tveggja ára það yngsta. Óskar Guðlaugur Indriðason. Foreldrar Óskars voru Indriði Grímsson, b. í Ásakoti í Biskups- tungum, og Gróa Magnúsdóttir. Foreldrar Indriða vom Grímur Guðmundsson frá Kjaransstöðum í Biskupstungum, b. í Ásakoti, og Helga Guðmundsdóttir frá Brekku í Biskupstungum. Þau eignuðust sex böm. Foreldrar Gróu vom Magnús Jónsson frá Efra-Langholti og Guðný Einarsdóttir. Systir Guðnýjar var Gróa Einars- dóttir, móðir Einars Jónssonar listamanns og myndhöggvara. Óskar verður að heiman á af- mælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.