Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990. 17 Frá Bridge- félagi Breið- firðinga Sl. fimmtudag 22. mars hófst butlertvímenningur félagsins og er spilaö í tveimur 14 para riölum. Staðan eftir fiórar umferöir er eftirfarandi: A-riðill Sæti Stig 1. sæti Hlynur Garðarsson - ViðarÓlason..............56 2. Guðmundur Erlendsson - Sigurður ísólfsson.......52 3. Magnús Oddsson - JónStefánsson............51 4. Sigríður Pálsdóttir - Eyvindur Valdimarsson....49 B-riðiU Sæti Stig 1. Hermann Sigurðsson - Jóhannes Bjarnason.......54 2. Björn Arnórsson - Ólafur Jóhannesson.......53 3. Jón Þorkelsson - Kjartan Jóhannsson.......48 4. Bjöm Amarson - Stefán Kalmánsson........44 Bridge „Vígreif vörn" Nýlega kom út ný bridgebók og er þar að verki kunnur útgefandi skák- og bridgebóka, Jóhann Þórir Jóns- son, sem rekur prentsmiðjuna Skák- prent. Bókin hefir hlotið nafnið „Vígreif vörn“, sem er ágæt þýðing á „Killing Defence“ eftir Skotann H.W. Kelsey. Það er á engan hallað þótt ég segi að þetta sé besta bók um vamarspila- mennsku sem komið hefir út. Þórarinn Guðmundsson hefir þýtt bókina með ágætum og bætt nokkr- um dýrmætum orðum í bridgemálið. Talning er motto höfundarins og í gegnum aUa kafla bókarinnar er sí- fellt hamrað á mikilvægi þess að telja upp Utina og gera sér þannig grein fyrir legu spilanna. Við skulum grípa niður í einn kafla bókarinnar. * 10 V K93 ♦ KD64 + 109742 S/Allir * D9543 V AG6 * A98 * 83 fSKEKEMMi Bridge Stefán Guðjohnsen Suður Vestur Norður Austur 1spaði pass lgrand pass 31auf pass 41auf pass 4 spaðar pass 51auf pass pass pass Þú spilar út tígulás gegn fimm laufum suðurs, austur hendir þristinum og sagn- hafi tvistinum. Hvemig átt þú að halda áfram? Úthtið er dökkt því að suður á meira en einn ás með svona sagnir. Staðan er vonlaus ef suður hefir ásinn fimmta í laufi. Jafnvel þótt hann eigi ekki nema fjögur tromp getur hann náð samningn- um með því aö taka trompin í tveimur umferðum, láta út hjarta undir kónginn og síðan víxltrompa. Þú verður því að gera ráð fyrir að lauf félaga þíns séu að minnsta kosti kóngur og eitt annað spil. Sagniiafa vantar innkomu í blindan til þess að svína trompi. Eigi hann annan tígul er það ekkert mál en hann gæti verið tigullaus. Sennileg dreifing suðurs er 6-2-1-4 og þá hefur austur einspil í spaða og sagnhafi kemst ekki inn á blind- an með því að trompa spaða í annarri umferð. Þá lítur út fyrir að þú eigir að láta út spaða til þess að leggja grunninn að yfirtrompun félagans. Þú ættir líka að gera það en það vofir önnur hætta yfir. Þaö eru allar líkur til þess að spaði félaga þíns sé lágspii. Ef svo er getur tia blinds nægt fyrir innkomu þeirri sem sagnhafi hefir þörf fyrir, gefið honum færi á að kasta tapspilum sínum í hjarta í tígulinn og síðan næst yfirslagur með því að svína trompi. Til þess að verjast þessu verður þú að láta spaðadrottning- una út í öðrum slag. Allt spilið var þannig: * 10 V K93 ♦ KD64 * 109742 V 108742 ♦ G10753 + K5 ♦ ÁKG872 V D5 ♦ 2 + ÁDG6 •í* V ÁG6 ♦ Á98 X OQ Ég vil eindregið hvetja alla bridgespU- ara til þess að kaupa eintak. Ég fullyrði líka að þeir sem lesa bókina munu spUa betri vörn á eftir. Stefán Guðjohnsen Fullkomin amsetnmg -felst f þessu litla hylki ^ Rétt bætiefni eru lífsnauðsynleg undirstaða fyrir alla uppbyggingu líkamans, þrek og góða heilsu. Ef réttu efnin vantar koma ýmis einkenni í ljós s.s. slappleiki, þrekleysi, lélegar neglur, þurr húð, erfitt að vakna á morgnana, þunglyndi og skortur á einbeitni. IMagnamín er bætiefni sem er sér unnið fyrir Islendinga og tryggir þess vegna öll nauðsynleg bætiefni, miðað við íslenskar fæðuvenjur, á einfaldan, öruggan og hagkvæman hátt. mariá mm Magnamín með morgunmatnum - einfaldlega réttu bætiefnin. i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.