Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Blaðsíða 4
•1 L'AUGARDAGUR 31. MARS 1990. Fréttir Tíu mánaða drengur alvarlega heilaskemmdur eftir hjartaaðgerð í London: Fórum út til London með fjörugt barn en komum heim aftur með aumingja - segir Guðjón Jóhannsson, faðir htla drengsins Jóhann litli ásamt móður sinni, Halldóru Svövu Siguröardóttur, áður en hann fór i helgarleyfi af Landspítalanum í gær. Það er átakanleg sjón að sjá þennan litla dreng þar sem hann hálfsitur í fangi móður sinnar og heldur ekki höfði. Hann iðaði áður af fjöri en eftir hjartaaðgerð er hann alvarlega skemmdur á heila. DV-mynd S „Við fórum út til London með mjög fjörugt, lifandi og skemmtilegt barn og komum síðan heim aftur með aumingja. Drengurinn liggur nú nær hreyfmgarlaus í rúminu og heldur ekki höfði þegar hann er tekinn upp. Þetta er alveg hræðilegt. Maður hugsar óhjákvæmilega að það væri miklu betra fyrir aumingjans barnið að fá að deyja í stað þess að heíja alveg vonlausa tilveru,“ sagði Guð- jón Jóhannsson frá Vestmannaeyj- um þar sem hann sat niðurdreginn í anddyri Landspítalans. Tíu mánaöa sonur Guöjóns og Halldóru Svövu Siguröardóttur, Jó- hann Kristinn, liggur á Barnaspítala Hringsins eftir að hafa verið í alvar- legri hjartaaðgerð á einkasjúkrahúsi í London í febrúar. Aðgerðin sjálf gekk ágætlega en í stað þess aö fá sama fjörkálfinn heim og fór út snemma í febrúar horfa foreldramir nú upp á barn með svo skemmdan heila að það á enga framtíð fyrir sér. Helblárog kaldur „Jóhann var mjög hjartveikur og læknamir hér heima mæltu mjög með því að við fæmm með hann í aðgerð á einkasjúkrahúsinu Harley Street Clinic í London. Aðgerðin var gerö 13. febrúar og virtist allt hafa gengið að óskum. Við bjuggum í ná- grenninu og vomm mætt á spítalann klukkan níu á hverjum morgni. Um hálfum mánuöi eftir aðgerðina fékk drengurinn sýkingu í skurðinn og þessi sýking er sögð hafa ráðið miklu um hvemig ástatt er fyrir honum í dag. Um svipað leyti komum viö að honum þar sem hann lá helblár og kaldur í rúminu. Við héldum satt að segja að drengurinn væri dáinn og kölluðum í hjúkmnarfólk í ofboði. Hann var tekinn afsíðis og við gerð- um okkur aldrei grein fyrir því hvað var gert við hann. Uppfrá því var hann mjög undarlegur. Hann lá bara og starði tómeygur út í loftið og virt- ist ekki þekkja okkur. Læknarnir sögðu að þetta liti ekki vel út en við- brögð okkar vom þau aö við neituð- um að eitthvað væri að. Reyndin var hins vegar að sú að af einhverri ástæðu var heilinn í baminu meira og minna skemmdur. Okkur var sagt að Jóhann gæti dáið í aðgerðinni og vorum alveg undir það búin. En þetta sem gerðist er mun verra.“ Hver ber ábyrgðina? Guðjón segir að þau hafi farið með drenginn á Bamaspítala Hringsins strax eftir heimkomuna 9. mars. Leið smátími þar til hann hafði verið at- hugaður og niðurstaða fékkst. Sú niðurstaða var áfall fyrir þau Guðjón og Halldóra. Raunveruleikinn varð ekki lengur umflúinn. Drengurinn mun ekki ná sér aftur. „Maöur fyllist svo miklu vonleysi og svo mikilli reiði. Ég hef einsett mér að finna sökudólg í þessu máli þó útlitið fyrir að mér takist það sé ekki gott. Það hlýtur einhver að bera ábyrgð á því hvemig komið er fyrir syni mínum og ég hætti ekki fyrr en einhver hefur tekið þá ábyrgð á sig. Það getur ekki verið að þessi hörmu- legi atburður eigi sér ekki skýringar sem einhver getur gefið. Ég hef haft samband við lögfræðing og mun gera allt til að fá niðurstöðu í málinu. Ég vil fá skýr svör við því hvers vegna hresst og lifandi bam er aumingi eft- ir hjartaaðgerð sem lukkaðist í sjálfu sér ágætlega. Hver ber ábyrgðina?“ Sóðaskapur Guðjón segir að læknunum úti í London og hér heima beri ekki fylli- lega saman um orsök heilaskemmd- anna. Læknamir ytra staðhæfa að sýkingin sé höfuöorsökin en hér heima hallast menn frekar aö súrefn- isleysi. Bæði þetta og viðmót lækn- anna í London vekur óneitanlega spumingar í höfði Guðjóns, spum- ingar sem leita sífellt á hann en sem engin svör fást við. Eins spyr hann sig hvort nægilegt eftirlit hafi veriö með drengnum fyrst hann varð hel- blár í framan og kaldur. „Við áttum að fá alla sjúkrahús- pappíra um drenginn með okkur heim en fjórum dögum fyrir heim- Þessi fjörkálfur starir nu tómum augum út í loftið og getur sig varla hreyft. Myndin var tekin fyrir hjarta- aðgerðina. förina var sagt að pappírarnir hefðu týnst. Þeir fundust aldrei og við fór- um því tómhent heim. Þar að auki virtust læknarnir í London forðast að ræöa við okkur en ég gekk að sjálf- sögðu eftir svari. Þetta tvennt vekur eðlilega upp ýmsar spurningar í huga manns. Var það eitthvert klúð- ur sem olli því að sonur minn er svona í dag? Fyrir utan þetta fannst okkur hreinlætinu mjög ábótavant á spítal- anum. Við áttum ekki orð þegar við sáum fólk ganga beint inn af götunni og inn á gjörgæsludeildina án þess að vera í nokkrum hlíföarfotum. Þetta vekur spurningar um rót sýk- ingarinnar." Tilveran í rúst Eftir heimkomuna segir Guðjón að fjölskyldulífð hafi veri í rúst. Hann og Halldóra eiga eldri telpu saman og auk þess eru tveir eldri krakkar á heimilinu. Vegna hjartasjúkdóms Jóhanns litla fluttu þau Guðjón og Halldóra frá Vestmannaeyjum til Grindvíkur í febrúar. Leigðu þau íbúðina sína í Eyjum. Guðjón var í rífandi vinnu í Eyjum og haföi þokkalegar tekjur en nú er hann at- vinnulaus og sér ekki fram á bjarta daga. Guðjón gerir sér vonir um skaðabætur vegna þessa atburðar en öðruvísi sér hann sér ekki fært að hafa bamið heima. Jóhann verður í meðferð um ófyrirsjáanlega framtíð og ekki útlit fyrir aö þau geti flutt aftur til Eyja. „Maður er fullur svartsýni út af þessu og mig óraði aldrei fyrir að annað eins gæti hent nokkra mann- eskju.“ -hlh Jóhann litli var fjörugt barn sem var að frá morgni til kvölds. Það þarf ekki sérfræðing til aö sjá muninn á barninu fyrir og eftir aðgerðina á mynd- inni þar sem móðir hans heldur á honum. Ferðaleikur DV, Bylgjunnar og Veraldar í dag hefst ferðaleikur sem út- varpsstöðin Bylgjan, Dagblaðið- Vísir og Ferðamiðstöðin Veröld standa aö. Til að takaþátt í leikn- um þurfa menn að fylgjast með náunga sem neftúst Veraldur ferðalangur og lætur fyrst i sér heyra á Bylgjunni í dag, einu sinni fyrir hádegi og aftur eftir hádegi. Svarseðil við leiknum er síðan að finna í DV. Veraldur feröalangur verður einnig á dagskrá Bylgjunnar frá 2. til 11. apríl og sömu daga birt- ist svarseðill í DV. Dregið verður úr réttum lausnum og greint frá þeim á Bylgjumii kl. 11.30 dagana 17. til 27. apríl. Verðlaunin eru ferðir frá Ferðamiöstöðinni Ver- öld til Costa del Sol, Benidorm, Mallorca og Ibiza, hver að verð- mæti 50.000 krónur. Tóbaksvamamefhd: Ekki reykja í fermingar- veislum Á morgun stendur Tóbaksvarn- arnefnd fyrir reyklausum degi. Hann er að sinni helgaður hreinu lofti á heimilum. Þá hvet- ur Tóbaksvarnarnefnd sérstak- lega til þess að menn reyki ekki í fermingarveislum, hvorki þenn- an dag né endranær og sýni með því fermingarbörnum þá virð- ingu sem vert er. Um leið hafa Vigdís Finboga- dóttir forseti, Steingrímur Her- tnannsson forsætisráðherra og Ölafur Skúlason biskup undirrit- að áskomn til íslendinga um að fara að þessum tilmælum. Reyk- lausi dagurinn er nú haldinn í þriðja sinn. -GK Framhaldsskólanemar: Virðisaukann fynr af bókum Framltaldsskólanemar af öllu landinu hafa skrifað öllum al- þíngismönnum bréf og gengið á fund tveggja ráðherra. Nemend- umir eru að berjast fyrir því að niðurfellingu virðisaukaskatts af bókum verði flýtt. Nemendurnir vilja að niðurfellingin taki gildi 1. september í stað 15. nóvember eins og búið er aö ákveða. Fundur framhaldsskólanema ákvað að taka upp bréfaskriftir til alþingismanna vegna þessa máls. Auk þess hafa fulltrúar nemenda gengið á fúnd Svavars Gestssonar menntamálaráðherra og Ólafs Ragnars Grímssonar fjánnálaráðherra. Samkvæmt upplýsingum frá nemendafélagi Verzlunarskólans hafa engin við- brögð komið við þessum aögerð- um - hvorki frá ráðhemmum né alþingismönnum. Ef niðurfelling virðisauka- .skatts af bókum tekur gildi 1. september í stað 15. nóvember mun það spara nemendum um- talsverðar fjárhæðir. Þaö lætur nærri að meðalnemandi hafi keypt bækur fyrir 30 til 40 þúsund krónur á síðasta ári. Þrátt fyrir ítarlegar tilraunir fengust hvergi upplýsingar um hversu stór námsbókamarkaður- inn er. „sme Þrjátíu sagt upp hjá SIS Sambandið sagöi upp 31 starfs- manni í gær og gildir uppsögnin frá og með l. apríl. Af þeim sem sagt var upp eru 8 í starfi á for- stjóraskrifstofu Sambandsins og 23 í búvörudeild. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.