Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1990, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 31. MARS 1990.
Lið Menntaskólans við Sund í spurningakeppni framhaldsskólanna, tvíburarnir Sverrir og Ármann Jakobssynir
og Hrafnkeli Kárason. Tvíburarnir tóku þátt í keppninni í þriðja sinn að þessu sinni. DV-mynd GVA
Spumingakeppni framhaldsskólanna lokið:
- segja tvíburabræðumir Sverrir og Ármann sem vom með í þriðja skipti
Spurningakeppni framhaldsskól-
anna hefur veriö árvisst efni í sjón-
varpi og útvarpi undanfarin ár. Tveir
nemendur hafa skoriö sig úr þar sem
þeir taka nú þátt í keppninni í þriöja
skipti af fimm. Þaö eru þeir Ármann
og Sverrir Jakobssynir, eineggja tví-
burar úr Menntaskólanum viö Sund.
Skólinn hefur aö vísu aldrei sigraö í
keppninni með þeim bræörum en
ailtaf munaö mjög mjóu - aðeins einu
stigi. Þegar helgarblaöið hitti þá í
vikunni voru þeir ekkert of sigur-
vissir meö lokakeppnina en hún fór
fram í beinhi útsendingu í gærkvöldi.
„Viö fórum í þessa keppni upphaf-
lega eftir að hafa tekið þátt í for-
keppni hér í skólanum. Á hverju ári
er haldin forkeppni þar sem allir
hafa möguleika á að spreyta sig. Þeir
sem eru hæstir í forkeppninni eru
valdir í skólaliðið," segir Ármann.
Þeir bræöur segjast hafa mjög gaman
af spurningaleikjum hvers konar en
þó hafi áhuginn dvínaö undanfarið.
Enginn undirbúningur fer fram fyrir
keppni. „Þaö þýöir ekkert aö lesa sér
til því viö vitum ekkert úr hvaða átt-
um spurningarnar koma,“ segja þeir.
Þriöji aðilinn í keppninni er Hrafn-
kell Kárason en hann er ekki heldur
óvanur spurningakeppni. Hrafnkell
tók þátt í spurningaleiknum Bæimir
bítast sem Ómar Ragnarsson hefur
umsjón meö á Stöö tvö. Þar keppti
hann fyrir heimabyggð sína, Mos-
fellsbæ.
Strákamir segja aö þátttakan í
sjónvarpinu breyti engu um fram-
komu annarra nemanda gagnvart
þeim. „Þetta er ekki stór skóli og hér
þekkjast allir nemendur mjög vel.
Ætli maöur þekki ekki flesta meö
nöfnum," segja þeir. Strákarnir eru
á einu máh um aö mikil hvatning
komi frá öömm nemendum og bæði
nemendur og kennarar gauka að
þeim ábendingum."
Þeir eru sammála um aö keppnin
sem slík taki engan tíma frá þeim og
námið í skólanum komi vart aö not-
um í spurningakeppninni. „Við höf-
um lesið mikið í gegnum árin og
margan fróðleik fáum viö úr dag-
blöðunum. Sverrir hefur mestan
áhuga á íþróttum þó hann segist ekki
stunda þær og svo er einnig með
Hrafnkel. Ármann hefur hins vegar
mestan áhuga á sögu og stjórnmálum
og öllum gagnlegum fróðleik.
Þeir hafa ekki ákveöiö hvaö tekur
viö eftir stúdentspróf en tvíbura-
bræðumir hvetja Hrafnkel þó óspart
til að fara í veðurfræði. Trausti Jóns-
son veðurfræöingur haföi sagt aö sá
sem gæti leyst eina ákveðna spurn-
ingu ætti að fara í veðurfræði. Hrafn-
keli tókst þaö.
Mikill áhugi er í framhaldsskólun-
um á spumingakeppni Sjónvarpsins.
Þetta er í fimmta skipti sem keppnin
er haldin. Upphafleg hugmynd kom
frá Jóni Gústafssyni, þáverandi
starfsmanni sjónvarpsins, og sá
hann um framkvæmd og kynningu
á fyrstu keppninni. Þorgeir Ástvalds-
son, Hermann Gunnarsson og Vern-
harður Linnet hafa einnig séð um
kynningar.
Keppnin byrjar í útvarpinu en þar
fara fram undanúrslit meðal tuttugu
og þriggja framhaldsskóla. Aðeins
átta skólar standa eftir þegar keppn-
in fer í sjónvarpið. Úrslitin eru send
út í beinni útsendingu en aörir þætt-
ir eru teknir upp í skólunum sjálfum.
Tvíburarnir Ármann og Sverrir
eiga þátttökumet í spurningaleikn-
SMÁAUGLÝSiNGAR
SIMINNER
Mánudaga - föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 - 22.00
um. Þeim var boðið aö vera með í
spurningaþáttunum Meistarinn sem
Stöð 2 var með á sínum tíma en höfn-
uðu því. Þeir eru fæddir 18. júlí 1970.
Foreldrar þeirra eru Jakob Ár-
mannsson bankamaður, sonur Ár-
manns Jakobssonar, bankastjóra
Útvegsbanka íslands, og Hildar
Svavarsdóttur, og Signý Thoroddsen
sálfræðingur, dóttir Sigurðar Thor-
oddsen verkfræðings og Jakobínu
Tulinius. -ELA
DAGUR JARflAR 22. APRÍL
Móðir jörð á undir
högg að sælqa
Átt þú góða hugmynd sem getur nýst henni?
Umhverfisvemd skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr.
Ef maðurinn heldur áfram að misnota jörðina mun hann á endanum
gera hana óbyggilega.
Við þurfum að snúa vöm í sókn - með sameiginlegu átaki. Til þess þarf
góðar hugmyndir. Því hefur umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar
ákveðið að setja á stofn hugmyndabanka vegna „DAGS JARÐAR“,
alþjóðlegs umhverfisvemdardags 22. apríl næstkomandi. Þar gefst
borgarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum,
tillögum og ábendingum um úrbætur sem geta orðið til að bæta
umhverfi okkar.
Með hugmyndabankanum vill umhverfismálaráð Reykjavíkur kalla á
jákvæðar og framsýnar hugmyndir um úrbætur í nánasta umhverfi
borgarbúa. Umhverfismálaráð mun fara ítarlega yfir allar tillögur sem
skilað verður í hugmyndabankann og hrinda í framkvæmd eftir því sem
kostur er og nánar verður ákveðið.
Hugmyndum og tillögum skal skila fyrir 22. apríl merktum:
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatúni 2,
105 Reykjavík.
UMHVERFISMÁLARÁÐ REYKJAVÍKUR