Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990.
3
Fréttir
íslenskir aðalverktakar:
Vinnuvélstjórar
vinna ekki eftir
klukkan sex
Vinnuvélstjórar hjá íslenskum aö-
alverktökum eru hættir aö vinna eft-
ir klukkan sex á daginn og eins vinna
þeir ekki um helgar. Vinnuvélstjórar
eru óánægðir meö laun sín og miða
þeir þá við þaö sem iðnaðarmenn hjá
Islenskum aðalverktökum hafa í
laun.
„Þaö hefur sjaldan hentað okkur
betur að lenda í svona. Herinn er að
draga úr framkvæmdum. Við mun-
um Ufa þetta af. Þetta er ekki alvar-
legt mál. Ég vil taka fram að það er
engin illska í þessu. Vinnuvélstjórar
hafa nokkuð til síns máls þegar þeir
bera sig saman við iðnaðarmenn. Það
eru utanaðkomandi aðstæður sem
banna okkur að gera nokkuð í þessu
núna. Við höfum aftur hugsað okkur
að samræma þessi mál viö fyrstu
hentugleika," sagði Ólafur Thors
starfsmannastjóri hjá íslenskum að-
alverktökum.
Ólafur sagði að þar sem samdráttur
væri á framkvæmdum á vegum
varnarliðsins kæmi vinnudeiian
ekki illa við íslenska aðalverktaka
og skaðaði þá lítt. Hann sagði þetta
sennilega koma verst út fyrir þá
starfsmenn sem sæktust eftir mikilli
eftirvinnu.
-sme
Tvær íkveikjur:
Sumarbústaður
brann til
kaldra kola
Sumarbústaður við Hraun í Ölfusi
brann til kaldra kola síðastliðinn
laugardagsmorgun. Verksummerki
bentu sterklega til að um íkveikju
hafi verið að ræða. Meðal annars
fundust hjólför eftir bifreið og virtist
sem henni hefði veriö ekið í burtu í
skyndingu.
Lögreglunni á Selfossi barst til-
kynning um brunann á níunda tím-
anum á laugardagsmorguninn. Þeg-
ar að var komiö var ljóst að slökkvi-
starf myndi ekkert hafa að segja enda
var bústaöurinn þá nær alveg brunn-
inn. Sumarbústaðurinn var byggður
úr timbri. Eignatjón varð töluvert
mikiö.
Seinna um daginn var slökkviliðið
á Selfossi kvatt út þegar eldur kvikn-
aði í vegg við verkstæðið Selás. Þar
hafði logandi flösku með bensíni ver-
iö hent á norðurvegg verkstæðis-
hússins og því um augljósa íkveikju
að ræða. Fljótlega tókst að slökkva
eldinn og urðu skemmdir ekki mikl-
ar.
-ÓTT
Hert eftirlit meö hraðakstri:
Tóku ökumann
á 161 kíló-
metra hraða
Lögreglan á Selfossi stöðvaði 21
ökumann fyrir of hraðan akstur um
helgina. Einn ökumannanna var
sviptur ökuréttindum á staðnum
enda mældist hann á 161 kílómetra
hraða á Suöurlandsvegi á móts við
Hveragerði á sunnudagskvöldið. Af
öðrum sem voru stöðvaðir mældist
einn ökumaður á 135 km hraða, ann-
ar var á 132 km og þriðji á 122 kíló-
metra hraða á klukkustund. Lögregl-
an stöðvaði einnig ökumann bifhjóls
sem ók á 92 kílómetra hraða á Engja-
vegi, sem er í íbúðahverfi á Selfossi.
Að sögn lögreglu víða um landið
hefur mjög mikið orðið vart við gá-
leysisakstur í kjölfar vorsins og góðr-
ar færöar. Því hefur áhersla verið
lögð á radarmælingar og annaö eftir-
lit vegna umferðarlagabrota að und-
anförnu.
NORDMENDE
ftaÉWmWÉWBl
Spectra SL 72 29" sjónvarp í algjörum
sérflokki, meö flötum möttum Black
Matrix-skjá*, sem endurspeglar ekki
Ijósi, Super VHS innbyggt, 40 stööva
minni, 40W stereomagnari, tengi fyrir
aukahátalara, tvöfalt Scart-tengi, barna-
læsing, fjarstýring, Teletext m/8 síöna
minni, tenging fyrir gervihnattasjónvarp,
möguleiki á NTSC/Secam, tilbúiö fyrir
NICAM-stereomóttöku o. m. fl.
Verö aöeins: 119.520,- kr eöa
107*900,-«
Spectra SL 63 25" sérlega vandaö
sjónvarp, meö flötum möttum Black
Matrix-skjá*, sem endurspeglar ekki
Ijósi, Super VHS innbyggt, 40 stööva
minni, 40W stereomagnari, tengi fyrjr
aukahátalara, tvöfalt Scart-tengi, barna-
læsing, fjarstýring, Teletext m/8 síöna
minni, tenging fyrir gervihnattasjónvarp,
möguleiki á NTSC/Secam, tilbúiö fyrir
NICAM-stereomóttöku o. m. fl.
VerÖ aðeins: 104.200,- kr eöa
93*800,-3
HRB
Galaxy 51 20" vandaö sjónvarp, meö
skörpum, litsterkum skjá, 40 stööva
minni, tengingu fyrir gervihnatta-
sjónvarp, þráölausri fjarstýringu,
möguleika á NTSC/Secam móttöku,
sjálfvirkum stöðvaleitara, Scart-tengi
og ýmsu fleira.
Verö aðeins: 49.900,- kr eöa
44.900,-«„
mm
Nordmende sjónvarpstækin, sem eru Vestur-Þýsk hágæðavara,
eru löngu landsþekkt fyrir langa endingu og frábær gæði
Við
tökum
vel á
móti
þér !
f E "mST11 ÆF
EUROCARD ' HMÉ0H Samkort
greiöslukjör til allt aö 12 mán.
eöa allt aö 3 ára greiöslukjör
SKIPHOLTI 19
SÍMI29800
-ÓTT