Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAl 1990. Fréttir Veöurspá fyrir maímánuð: Hlýtt og úrkomulítið - samkvæmt spá bandarískra veðurfræðinga Langtímaspá yfir veður á N - Atlantshafi til loka maí Byggt á gögnum NOAA(National Oceanic and Atmospheric Adminstration) Kortin sýna líkur á hita og úrkomu f maf. Linur með tölunni 30 eru meðaltalslínur. Aðrar línur tákna frávik frá meðalhita og meðalútkomu. Það eru töluverðar líkur á að hita- stig maímánaðar verði þokkalega yfir meðallagi hér á landi. Ekki er reiknaö með mikilli úrkomu þar sem líkur benda til að hún verði nokkuð minni en venja er til í þessum aðal- vormánuði. Allt í allt er þannig útlit fyrir frekar hlýtt og úrkomulítið vor ef marka má langtímaspá banda- risku veðurstofunnar fyrir maímán- uð sem nýkomin er út. Veturinn virðist vera að losa tökin á Frónbúum og víðast hvar kominn vorhugur í fólk. Gildir það jafnt um fólk sunnanlands, þar sem jörð hefur að mestu verið auð undanfarnar vik- ur, og norðan- , vestan- og austan- lands þar sem enn má finna óskap- lega snjóskafla í görðum fólks. Fólk hefur fengið nóg af snjó þennan vet- urinn og því kærkomin tíðindi sem við flytjum lesendum frá bandarísku veðurstofunni í dag. í síðustu langtímaspá var sagt að frá miðjum apríl til miðs maí yrði meðalhiti og töluverð úrkoma. Sú spá hefur gengið eftir að nokkru en nú hefur ný spá tekið við sem úreld- ir gömlu spána fyrir fyrri hluta maí. Eins og síðast þegar við spáöum á þessum nótum er útlitið ekki alltof gott fyrir þá sem ætla að sóla sig við Tryggingasjóður sparisjóða hefur höfðað mál á hendur fyrrverandi sparisjóðsstjóra í Sparisjóði Rauða- sandshrepps. Sparisjóðsstjórinn var dæmdur fyrir að hafa dregið sér fé frá Sparisjóðnum. Tryggingasjóður- inn liðkaði til tii að Eyrasparisjóður á Patreksfirði tæki yfir Sparisjóð Miðjarðarhafiö þar sem yfir því er mikið úrkomusvæði eins og sést á úrkomukortinu. Rauðasandshrepps. Til að af samein- ingu sparisjóðanna gæti orðið greiddi Tryggingasjóðurinn það sem vantaði í sjóðinn. Það var á árinu 1987 sem fariö var að skoða bókhald hins litla spari- sjóðs. Þá kom í ljós að talsvert vant- aði af peningum. Við rannsókninga Þess ber að geta, eins og alltaf þeg- ar DV birtir langtímaspár, að áreið- anleiki veðurspáa hraðminnkar því kom i ljós að það voru um 2,7 milljón- ir króna. Setudómarinn í málinu, Allan Magnússon, reyndi að ná sáttum milli aðila. Þær tilraunir báru engan árangur. Sparisjóðsstjórinn fyrrver- andi bauðst til að endurgreiða 1,2 milljónir. Því var hafnað. lengra sem menn spá fram í tímann. Því ber að taka spánni með fyrirvara. Málið er nú í aukaþingi Barða- strandarsýslu, sem er haldið í bæjar- þingi Reykjavíkur, og er dóms að vænta innan fárra daga. Ríkissaksóknari hefur ákært spari- sjóðsstjórann fyrrverandi og er sá þáttur málsins nú í Hæstarétti. -sme BirHng styður H-listann Fyrsti aðalfundur Birtingar, fé- lags jafnaðar- og lýðræðissinna, sem haldinn var á laugardaginn lýsir yfir stuðningi við sameigin- legt framboö jafnaðarmanna og félagshyggjufólks um landið, „og sérstaklega við H-lista Nýs vett- vangs í Reykjavik". í ályktun fundarins segir enn- fremur: „Birting styður framboö Alþýöubandalagsins og annarra jafnaöarmanna utan höfuðborg- arinnar þar sem ekki tókst sam- staöa vinstrimanna um eitt fram- boð.“ Eftir aðalfundinn er stjórn Birt- ingar þannig skipuð: Árni Páll Árnason, Hrafn Jökulsson, Kjart- an Valgarðsson, Margrét S. Björnsdóttir, Mörður Árnason, Ragnheiður Gyða Jónsdóttir og Svanfriöur Jónasdóttir. Svanfiríö- ur var kjörin í stjórn í staö Sigríð- ar I. Sigurbjömsdóttur sem ekki gaf kost á sér. -hlh London: Ný svæðis- númer Svæðisnúmer íyrir London hafa breyst og eru nú 71 fyrir miðborgina en 81 utan miðborg- ar. Þannig er númerið 44 1 434 0000 nú 44 71 434 0000. Breytingin tók gildi 6. maí en ef hringt verð- ur í gamlá svæðisnúmerið eftir breytinguna mun símsvari til- kynna um hana fyrst um sinn. -hlh Flugleiðir: Fjölga við- komustöðum Flugleiðir hafa hafið áætlunar- flug til Baltimore-Washington International flugvallarins, en hann þjónar samnefndum borg- um í Bandaríkjunum. í fyrstu verða þrjár ferðir í viku. Ferðunum verður fjölgað um eina í viku fljótlega. Flugleiðir eru eina norræna flugfélagið sem flýgur á þessari leið. -sme -hlh Sparisjóður Rauðasandshrepps: Sáttatilraunir árangurslausar - dóms er að vænta innan fárra daga I dag mælir Dagfari________,_________ Næst eru það heimsmálin Þingmenn og ráöherrar streyma nú úr landi eftir að þeir lokuöu þinginu á laugardagskvöldið. Með- an þeir sinntu þeim málum sem þar voru til úrlausnar hafa hrannast upp ýmis óafgreidd mál hingað og þangaö um heiminn sem nú á að ganga í að leysa. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra er til dæmis flog- inn vestur um haf til að sitja fund Alþjóðabankans því hann er líka bankaráöherra landsins og stærir sig af að hafa í einu vetfangi sam- einað banka hér í gríð og erg á nokkrum mánuðum. Má búast við umróti í bankaheimi um veröld víða eftir að Jón hefur sagt hvemig fara skuli aö því að sameina banka. Þá ætlar ráðherra víst líka að skoöa álver í Kalifomíu enda eru aðstæð- ur þar einna líkastar þeim aðstæð- um sem hér eru eins og allir Kah- forníufarar vita. Því miður verður víst einhver bið á að við leysum vandann i Litháen vegna deilna hér heima fyrir. Páll á Höllustöðum og Ólafur í Garðabæ em enn að rífast um hvort þeir eigi að fara til Lithá- en eða ekki og verður hvorugum haggað. Þeir geta verið stífir á meiningunni þessir utanbæjar- þingmenn. Forseti Litháa brá sér vestur um haf og leitaði ásjár Bush, en reið ekki feitum hesti úr þeirri för sem von var. Bush getur ekkert gert í málinu meðan Höllustaða- bóndi heldur að sér höndum. Heimsbyggðin bindur hins vegar mestar vonir við það ferðalag Steingríms Hermannssonar sem nú stendur yfir. Hann er floginn á fund Mubarak, forseta í Egypta- landi, sem hefur átt við margs kon- ar vandræði að etja og er í þörf fyrir góð ráð og-leiðbeiningar. Hit- ar eru nú nokkrir austur þar og má búast við að forsætisráðherra fari að dæmi nafna síns Sigfússon- ar og steypi sér í Níl þegar tæk- ifæri gefst. Aðalerindi Steingríms til útlanda að þessu sinni er hins vegar að eiga fund með þeim gamla skæruliöaforingja Yasser Arafat. Raunar ætlaði Steingrímur á fund með Arafat fyrir nokkrum árum. Þá sat Steingrímur í fílabeinstumi utanríkisráðuneytisins en Þor- steinn í forsætisráðuneytinu og hann geröi sér lítið fyrir og bann- aði Steingrími að fundast með Ara- fat. Ekki þarf að fara mörgum orð- um um afleiðingarnar af því far- banni. Palestínumenn hafa verið barðir sundur og saman af júðun- um og Arafat ekki vitað sitt rjúk- andi ráð. Það er því ekki seinna vænna að þeir hittist félagamir og komi sér saman um gagnaðgerðir. Arabaríki bíða í ofvæni eftir heim- sókn Steingríms til Mubarak og Arafats en Israelsmenn naga negl- ur og treysta á að Jón Baldvin komi þeim til hjálpar gegn arabahöfö- ingjunum og Steingrími. Jón Baldvin hefur hins vegar öðrum hnöppum að hneppa um þessar mundir. Hann er logandi hræddur um að Svíar glutri niður viðræðum EFTA og EB og er ýmist í því að lýsa Svía vanhæfa eða lýsa því yfir að hann meini ekkert meö þeim yfirlýsingum. En það var líka eitthvað bogið við þetta viðtal sem Þjóðviljinn tók viö Jón Baldvin þar sem ráðherrann skammaði Svía. Það kom nefnilega á daginn að Þjóðviljaskrattinn tók þetta viðtal í rólegheitum upp á segulband í Kringlu þinghússins en Jón Bald- vin veitti hins vegar viðtalið á hlaupum um ganga þingsins. Ekki er við góðu að búast þegar þannig er staðið að málum. Menn verða að gæta tungu sinnar í framtíðinni því annars má búast við að þeir verði kærðir fyrir Evrópudóm- stólnum ef ekki sjálfu útvarpsráði. Steingrímur ætlar hins vegar ekki að láta staðar numið eftir að hafa leyst vanda Palestínumanna. Þá drífur hann sig til Bergen á ráð- stefnu um umhverfismál. Fáfróður almenningur stendur að vísu í þeirri trú að það sé í verkahring Júlíusar umhverfisráðherra að ráöstefnast um umhverfið. En þá gleyma menn því að svo var skorið niöur umhverfis Júlíus í þinglok að hann hefur ekki með annað umhverfi að gera en það sem hann sér út um gluggana á jeppa sínum þá hann veltist um í nágrenni borg- arinnar. Auk þess hefur Júlíus lýst því yfir að í sínu ráðuneyti sé meira að gera en menn komist yfir og er þá eðlilegt að Steingrímur hlaupi undir bagga þótt hann sé ekki fast- ur starfsmaður í þessu nýja ráðu- neyti. Eftir umhverfisfundinn ætl- ar svo Steingrímur til Tékkó og miöað við öll þau vandamál sem uppi eru í ríkjum Austur-Evrópu er með öllu óvíst hvenær hann má vera að því að líta til með okkur vesalingunum hér heima. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.