Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1990, Side 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1990.
Bíldudalur
Nýr umboðsmaður á Bíldudal
frá og með 1. maí '90:
Guðrún Helga Sigurðardóttir
Gilsbakka 2
sími 94-2228
Þorlákshöfn
Nýr umboðsmaður í Þorlákshöfn
frá og með 1. maí '90:
Hrönn Guðmundsdóttir
Oddabraut 24
sími 98-33938
Skrifstofur lögreglustjórans
í Reykjavík hafa fengið
nýtt símanúmer
699000
Lögreglustjórinn í Reykjavík
Lögtaksúrskurður
Lögtök fyrir eftirtöldum gjaldföllnum en ógreiddum
opinberum gjöldum, álögðum 1988 og 1989 á ein-
staklinga og lögaðila í Hveragerðisbæ ásamt kostn-
aði, áföllnum og áfallandi svo og dráttarvöxtum
mega fara fram að liðnum 8 dögum frá birtingu aug-
lýsingar um úrskurð þennan á kostnað gjaldenda en
á ábyrgð Hveragerðisbæjar. Gjöldin eru þessi: út-
svar, aðstöðugjöld, skipulagsgjald, almennur vatns-
skattur, auka vatnsskattur, holræsagjald, lóðarleiga
og gatnagerðargjöld. Þá nær úrskurðurinn einnig til
viðbótar og aukaálagningar framangreindra opin-
berra gjalda vegna fyrri tímabila.
Selfossi, 26. apríl 1990.
Sýslumaðurinn í Árnessýslu.
Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Gyðufell 6, 4. hæð t.h., þingl. eig. Kristín H. Alexandersdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru Fjár- heimtan hf., Veðdeild Landsbanka ís- lands, Gjaldheimtan í Reykjavík og Eggert B. Ólafsson hdl. Reykás 17, hluti, þingl. eig. Dagný Erla Gunnarsdóttir, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 16.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík.
Asparfell 4, íb. 07-03, þingl. eig. María Eyþórsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur eru Þórunn Guð- mundsdóttir hrl., Kjartan Ragnars hrl. og Sveinn H. Valdimarsson hrl.
Gnoðarvogur 44-46, hluti, þingl. eig. Amór Guðjohnsen, fer fram á eign- inni sjálfri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Bjöm Jónsson hdl., Valgarð Briem hrl., Kristinn Hallgrímsson hdl, Gjald- heimtan í Reykjavík og Eggert B. Ólafsson hdl. Starrahólar 6, hluti, þingl. eig. Eggert Eh'asson, fer fram á eigninni sjáliri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 17.30. Upp- boðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík og Fjárheimtan hf. Vesturberg 37, þingl. eig. Birgir Sím- onarson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 10. maí ’90 kl. 18.00. Upp- boðsbeiðandi er Jón Egilsson hdl. BORGARFÓGETAEMBÆTnÐ í REYKJAVÍK
LAUSA MÖLA
er margra böl! ° '
Útlönd_________________________dv
Sjálfstæðisbaráttan við Eystrasalt:
Eystrasaltsríkin
standi saman
- segir nýkjörinn forsætisráðherra Lettlands
Ivars Godmanis, hinn nýkjörni forsætisráðherra Lettlands.
Símamynd Reuter
Hinn nýkjörni forsætisráðherra
Lettlands, Ivars Godmanis, sagði í
gær að Eystrasaltsríkin þrjú - Lett-
land, Eistland og Litháen - verði að
standa saman í baráttunni fyrir sjálf-
stæði frá Moskvu. Ráðherrann var
með þessu að skírskota til þess
möguleika að Lettland og Eistland
verði beitt efnahagsþvingunum á
sama hátt og Litháar en Moskvu-
valdið hefur beitt Litháa refisiað-
gerðum í kjölfar sjálfstæðisyfirlýs-
ingar þeirra frá því í mars.
I Litháen sagði landbúnaðarráð-
herra að ráðamenn væri komnir á
fremsta hlunn með að skera enn niö-
ur flutning mjólkur og kjöts til Sovét-
ríkjanna sem svar Litháa við efna-
hagsaðgerðum Sovétmanna. Ráð-
herrann, Vytautas Knashys, sagði að
útflutningur gæti verið skorinn nið-
ur um tíu prósent til viðbótar. Það
kæmi sér afar illa fyrir Sovétmenn
því þeir eru mjög háðir innfluttum
mjólkur- og kjötafurðum. „Mjólk og
kjöt eru raunveruleg vopn okkar í
þessari baráttu," sagði ráðherrann.
„Fimmta hvert kíló af kjöti og þriðji
hver lítri af mjólk sem neytt er í
Moskvu er framleitt hjá okkur,“
sagði hann jafnframt.
Knashys sagði að hluti kjöt- og
mjólkurframleiðslu Litháen yrði
nýttur til vöruskipta en ráðamenn í
lýðveldinu reyna nú að koma á bein-
um vöruviðskiptum við lýðveldi Sov-
étríkjanna til aö komast fram hjá
efnhagsþvingunum Moskvu.
Fastlega er búist við að Godmanis,
sem var kjörinn forsætisráðherra
Lettlands í gær, leggi fram ráðherra-
lista nýrrar ríkisstjórnar í dag.
Skömmu fyrir kjör hans mátti sjá
sovéska skriðdreka á götum Riga,
höfuðborgar lýðveldisins. Margir
Lettar líta svo á að ákvörðun
Moskvustjórnarinnar um aö senda
skriðdrekana sé liður í tilraun sové-
skra ráðamanna til að hræða íbúana.
Þing Lettlands lýsti því yfir fyrir
helgi að unnið yrði að fullu sjálfstæði
lýðveldisins í áföngum. Yfirvöld í
Moskvu hafa enn ekki brugðist opin-
berlega við þeirri yfirlýsingu en for-
seti Lettlands sagði í gær að háttsett-
ur embættismaður í Æðsta ráðinu,
þ.e. sovéska löggjafarþinginu, hefði
haft samband við lettneska ráða-
menn símleiðis þar sem hann hefði
farið fram á nánari upplýsingar. Aö
því er fréttamaður lettneska útvarps-
ins skýrði frá sendu fulltrúar á lett-
neska þinginu Gorbatsjov Sovétfor-
seta bréf síðdegis í gær þar sem var
að finna upplýsingar um ákvörðun
þeirra.
Ráöamenn í Lettlandi höfðu vonast
til að yfirlýsing þeirra, sem var mun
mildari en fullveldisyíirlýsing Lithá-
ens, myndi ekki reita Moskvustjórn-
ina til reiði. Samkvæmt ákvörðun
þings Lettlands er stór hluti sovésku
stjórnarskrárinnar enn í gildi í lýð-
veldinu þrátt fyrir að kjarni stjórnar-
skrár-Lettlands frá þeim tíma er lýð-
veldið var sjálfstætt hefði verið end-
urvakinn. Eistland, þriðja Eystra-
saltsríkið, hefur einnig ákveðiö að
fara fetið í sjálfstæöisbaráttu sinni
og vinna sér fullveldi í áföngum á
sama hátt og Lettland.
Reuter
Sameinað Þýskaland
verði í Nato
- segir framkvæmdastjóri bandalagsins
3Framkvæmdastjóri Nato, Manf-
red Wörner, sagöi á blaðamanna-
fundi í gær að sameinað Þýskaland
ætti ekki aðeins aö vera í vestrænu
hernaðarbandalagi heldur einnig
hýsa kjamavopn.
Wömer sagöi að Sovétmenn þyrftu
ekkert aö óttast þó að valdajafnvægi
í álfunni breyttist þar sem Nato liti
nú á Sovétríkin sem félaga hvað við-
víkur öryggi. Hann sagöi að það
væri einróma samþykkt meðal landa
Nato aö kjamavopn ættu að vera í
Evrópu og þá sérstaklega í Þýska-
landi. Fyrir aðeins íjórum dögum til-
kynnti George Bush Bandaríkjafor-
seti, vegna þrýstings frá bandaríska
þinginu og Vestur-Þýskalandi, að
hætt yrði við áætlanir um endumýj-
un Lance-flauganna.
Wömer gerði ráð fyrir aö einhver
andstaöa yrði við veru kjamavopna
í sameinuðu Þýskalandi og yfirvöld
í Mosku væru vís til að berjast gegn
því. Hann lét ekki uppi hvort kjarna-
vopnin yrðu á því svæði sem nú er
Austur-Þýskaland.
Manfred Wörner, framkvæmdastjóri
Nato, telur aö sameinað Þýskaland
skuli hýsa kjarnavopn.
Eftir hálftíma fund með Bush sagði
Wömer að Nato vildi að Sovétríkin
litu á aðildarlöndin sem bandamenn
en ekki ógnun. Þátttaka sameinaðs
Þýskalands í Nato myndi færa Sovét-
ríkjunum félaga í pólítískri og efn-
hagslegri samvinnu.
Bandaríska stórblaðið Washington
Post sagði í gær að utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, Eduard Shevardned-
ze, hefði sagt að ekkert mælti á mótí
því af hálfu yfirvalda í Moskvu að
sameining þýsku ríkjanna gengi
hratt fyrir sig, ef að ákvöröun um
hernaðarhlutverk sameinaðs Þýska-
lands yrði frestaö um nokkur ár. í
síðustu viku gerði Bush það ljóst aö
Evrópa yrði aldrei kjamorkulaust
svæði, þó svo að hætt hefði verið viö
endumýjun Lance, en gert er ráö
fyrir að þær verði orðnar úreltar um
miðjan þennan áratug. Wörner efað-
ist um að ákvörðun yrði tekin strax
um að losna viö þær 88 Lanceflaugar
sem em í Vestur-Evrópu, flestar í
Vestur-Þýskalandi, en slíkt yrði að
semjaviðMoskvuum. Reuter